Morgunblaðið - 26.06.2003, Blaðsíða 46
46 FIMMTUDAGUR 26. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ENN ein stjarnan hefurbæst í vaxandi hóp Ís-landsvina. Hann heitirEric Szmanda og er
landsmönnum líklega best kunnur í
hlutverki rannsóknarstofumanns í
þáttunum C.S.I. – Crime Scene
Investigation sem sýndir hafa verið
á SkjáEinum um nokkurt skeið við
miklar vinsældir. Þættirnir segja frá
þrautseigu liði tæknirannsóknar-
deildar lögreglunnar í Las Vegas
sem beitir vísindum og útsjónarsemi
til að leysa flókin sakamál.
Hann hefur komið áður til lands-
ins en er hérna um þessar mundir í
tengslum við Amstel Light Icelandic
Open golfmótið. Hann segist reynd-
ar sjálfur hafa ósköp lítinn áhuga á
golfi, nema þá helst að heimsækja
púttvelli. Hann er aðeins hér á
mótinu vegna þess að hann var beð-
inn að mæta til að auka á fjölmiðla-
umfjöllun og greip tækifærið enda
hugfanginn af landinu.
Eins og að vera úti í geimi
„Ég kom fyrst til Íslands í fyrra
eftir að vinkona mín – sem ferðast
hefur vítt og breitt – hafði margsagt
mér að ég þyrfti að koma hingað,“
segir leikarinn ungi. „Ég kann mjög
vel við mig hérna. Þetta er notalegur
staður og afslappandi og mig hefur
líka alltaf langað til að fara út í geim
– en þar sem ég get það ekki þá
kemst náttúran hér líklega hvað
næst því.“
Eric getur varla hamið hrifningu
sína af landi og þjóð: „Það eru allir
svo gestrisnir og maður þarf líka
ekki að olnboga sig í gegnum þvögu
af þreytandi bakpokaferðalöngum
líkt og eru alls staðar annars staðar í
Evrópu.“
Hann segist hafa eignast marga
vini á nokkrum stuttum ferðum sín-
um til landsins: „Ég þekki allt af-
greiðslufólkið á skemmtistöðunum
og vertana og svo kynnist ég fólki
hreinlega á götum úti. Fólk kemur
að tali við mig vegna þess að það
þekkir mig úr þáttunum eða langar
einfaldlega til að æfa sig í ensku.“
Áfall á golfvellinum
Eric á von á að dvelja hér fram á
föstudag, en hann ætlar ekki að
stunda golf að neinu ráði: „Ég varð
fyrir hálfgerðu golf-áfalli þegar
frændi minn fór með mig 12 ára á
golfvöll í fyrsta skipti og sór að
stunda þessa íþrótt aldrei aftur.“
Inntur eftir því hvað gerðist segir
hann: „Fólk getur verið svo kvikind-
islegt þarna úti á grasflötinni ef
maður er ekki fljótur að klára hol-
una. Ef maður lýkur henni ekki í
þremur–fjórum höggum fer fólk að
pirrast og maður verður að hleypa
þeim framhjá. Við frændi þurftum
sífellt að hleypa fólki fram
fyrir okkur og ég held við höfum
gefist upp á 8. holu.“
Blaðamaður jánkar því þegar Eric
spyr hvort það sé rétt að víkingarnir
hafi rænt öllum fegurstu konunum
úr Evrópu: „Stelpurnar hérna eru
svo ótrúlega fallegar að það er næst-
um óhugnanlegt,“ segir leikarinn og
kveðst vera hamingjusamlega ein-
hleypur. Þegar hann er spurður
hvort fólk sé ekki líka fallegt í Los
Angeles, borginni sem virkar sem
segulstál á fallegt fólk í leit að frægð
segir hann: „Jú, en það hefur flest
hræðilegan persónuleika. Fólk kem-
ur til Los Angeles af vissum ástæð-
um og ef það er fallegt þá var það lík-
lega fallegasta fólkið í skólanum
sínum og hefur fengið allt sem það
vill upp í hendurnar öllum stundum.
Þegar það kemur til LA ætlast það
til að fá áfram sömu meðferð.“
Langar í íbúð
Þó hann eigi bókað flug á föstudag
segir hann að vel geti farið svo að
hann ílengist. Það virðist sem að
ferðir hans til Íslands verði alltaf
lengri en hann áætlaði: „Ég hef hitt
svo mikið af skemmtilegu fólki og
allir vilja að ég sjái hinn og þennan
fossinn og jökulinn og prófi eitt og
annað. Ég þarf meiri tíma til að gera
þetta allt saman og liggur ekki á að
fara heim alveg strax.“
Og þessi bandaríski sjarmör seg-
ist því farinn að íhuga kaup á íbúð:
„Ég gæti alveg hugsað mér að vera
hér til frambúðar. Ég hitti fasteigna-
sala sem sagðist geta reddað fyrir
mig íbúð sem ég gæti síðan leigt út á
meðan ég er í burtu. Ég held ég fari
jafnvel að skoða íbúðir í vikunni.“
Þegar Eric er tjáð hversu mjög
viðtalið á eftir að kitla þjóðarstolt
lesenda segir hann að þeir eigi það
líka skilið: „Þetta er skemmtilegur
staður og sérstaklega gaman að
kynna vini míni fyrir Íslandi. Ég
kom með einn vin minn hingað í
fyrra sem er ennþá að þakka mér
fyrir að hafa sýnt sér staðinn. Þar að
auki er fólkið hérna gott og auðvelt
fyrir mig að vera hérna fyrst allir
tala svona góða ensku.“
Eric kveðst samt vera að grípa ís-
lenskuna: „Ég held að hún sé að
seytlast inn í undirmeðvitundina. Ég
heyrði í gær fólk tala saman á ís-
lensku og stóð mig að því að hlæja að
því sem þau voru að segja. Það væri
gaman að læra eitthvað í íslensku og
gera það að hefð að koma hingað
nokkrum sinnum á ári.“
Þannig heldur Eric áfram að lofa
land og þjóð í hvívetna. Hér sé mat-
urinn góður og þægilegt að flugið sé
styttra en til Evrópu. Hótelin minna
hann á bestu hótelin í New York og
hann kunni vel við svala veðrið: „Ég
ólst upp í Wisconsin og kann betur
við kulda en hita. Sumir furða sig
líka á því hvers vegna ég kem til Ís-
lands í sumarfríinu í stað þess að
liggja í sólbaði, en raunin er að í
Kaliforníu get ég þess vegna farið á
ströndina hvaða dag ársins sem er,
og svo er hitinn líka óbærilegur á
sumrin. Eitt er það samt sem ég ekki
skil, og það er hvernig þið komist af
með nánast ekkert sólskin fjórðung
úr árinu. Ég get ekki ímyndað mér
að ég gæti komið nokkru í verk þá.
Ég myndi bara liggja uppi í rúmi og
glápa á sjónvarp,“ bætir leikarinn
geðþekki hlæjandi við.
Eric Szmanda úr CSI er hugfanginn af landi og þjóð
Liggur ekki á heim og
ætlar að skoða íbúðir
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Hyggur á íbúðarkaup:
Eric Szmanda er yfir sig hrifinn
af Íslandi. Hér stillir hann sér
upp og í baksýn er borgin sem
honum er orðin svo kær.
asgeiri@mbl.is
Í stellingum á rannsóknarstofunni:
Eric sem Greg Sander, reiðubúinn að
þefa uppi vísbendingarnar.
Fyndnasta
myndin sem
þú sérð á árinu!
2 vik
ur
á top
pnum
í USA
!
Sýnd kl. 10. B.i. 12. Síðustu sýningar Sýnd kl. 6 og 8.
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
HK DV
X-97,7
HJ MBL
Kvikmyndir.com
ÓHT Rás 2
Ef þú hélst að þú værir
heimskur, þá hefurðu ekki
hitt Harry og Lloyd.
Þeir eru komnir aftur,
heimskari en nokkru sinni
fyrr í geggjaðri grínmynd!
HUGSAÐU STÓRT
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
Miðasala opnar kl. 15.30
Sýnd kl. 5.50 og 10.10. B.i. 16 ára Sýnd kl. 10.15. B.i. 12
2 vik
ur
á to
ppnu
m
í US
A!
Fyndnasta myndin
sem þú sérð á árinu!
Losaðu þig við reiðina
og hlæðu þig máttlausan!
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.
Sýnd kl. 6 og 8.30.
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.10.
Sýnd kl. 3.40, 5.50 og 8.
Ef þú hélst að þú værir heimskur, þá hefurðu ekki hitt
Harry og Lloyd. Þeir eru komnir aftur,
heimskari en nokkru sinni fyrr í
geggjaðri grínmynd!
HJ MBL
SV DV
X-ið 977
Kvikmyndir.com
kl. 4. Ísl. tal. 500 kr.
FRUMSÝN. FIM. 26/6 - KL. 20.00 UPPSELT
2. LAU. 28/6 - KL. 15.00 ÖRFÁ SÆTI LAUS
3. SUN. 29/6 - KL. 17.00 ÖRFÁ SÆTI LAUS
4. FIM. 3/7 - KL. 20.00 ÖRFÁ SÆTI LAUS
5. FÖS. 4/7 - KL. 20.00 ÖRFÁ SÆTI LAUS
6. SUN. 6/7 - KL. 17.00 ÖRFÁ SÆTI LAUS
7. FIM. 10/7 - KL. 20
8. FÖS. 11/7 - KL. 20