Morgunblaðið - 26.06.2003, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. JÚNÍ 2003 47
Nýr og betriHverfisgötu 551 9000
www.regnboginn.is
Kvikmyndir.com
X-ið 977
HJ MBL
HK DV
Sýnd kl. 6, 8 og 10. B.i.16
Martröðin er raunveruleg!
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.
Ef þú hélst að þú værir heimskur,
þá hefurðu ekki hitt Harry og Lloyd.
Þeir eru komnir aftur,
heimskari en nokkru sinni
fyrr í geggjaðri grínmynd!
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Sýnd kl. 6, 8 og 10. B.i. 16
sv MBL
Fyndnasta
myndin sem
þú sérð á árinu! T H E Y
Ef þú hélst að þú værir
heimskur, þá hefurðu ekki hitt
Harry og Lloyd.
Þeir eru komnir aftur,
heimskari en nokkru sinni
fyrr í geggjaðri grínmynd!
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.
Fyndnasta myndin
sem þú sérð á árinu!
Losaðu þig við reiðina
og hlæðu þig
máttlausan!
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
www.laugarasbio.is
ARI Í ÖGRI: Óskar Einarsson
trúbador föstudag og laugardag.
ÁSGARÐUR, Glæsibæ: Dans,
Caprí-tríó leikur fyrir dansi sunnu-
dag kl. 20 til 00.
BÚÁLFURINN, Hólagarði, Breið-
holti: Hermann Ingi föstudag og
laugardag.
CAFÉ FLÓRA, Grasagarðinum:
Endurteknir sólstöðutónleikar með
Páli Óskari og Móniku sunnudag kl.
22.
CATALINA, Hamraborg 11,
Kópavogi: Halli Reynis trúbador
föstudag og laugardag.
CELTIC CROSS: Threesome og
Garðar Garðars föstudag og laugar-
dag.
GAUKUR Á STÖNG: X- Slash,
Botnleðja og I Adapt fimmtudag.
Hljómsveitin Í svörtum fötum föstu-
dags. Moonboots laugardag.
GLAUMBAR: Atli skemmtana-
lögga fimmtudag. Þór Bæring föstu-
dag og laugardag.
GRANDROKK: Útgáfutónleikar
Kentár fimmtudag kl. 22. Buff föstu-
dag, Dikta laugardag.
GRÆNI HATTURINN, Akureyri:
Rokkhljómsveit Rúnars Júlíussonar
föstudag og laugardag.
GULLÖLDIN: Stórsveit Ásgeirs
Páls föstudag og laugardag.
HÓTEL EGILSBÚÐ, Neskaup-
stað: Írafár laugardag.
HÓTEL SAGA: Tónleikar til minn-
ingar um Jón Kaldal fimmtudag kl.
20:30.
HVERFISBARINN: Bítlarnir
fimmtudag. Atli skemmtanalögga
föstudag og laugardag.
JÓMFRÚIN, Lækjargötu: Tríóið
Flís laugardag.
KRÁIN, Laugavegi 73: Þór Óskar
trúbador föstudags- og laugardags-
kvöld.
KRINGLUKRÁIN: Hljómsveitin
Stuðbandalagið frá Borgarnesi föstu-
dag og laugardag.
LEIKHÚSKJALLARINN: ’80-
diskó-partístemning föstudag. Gull-
foss og Geysir laugardag.
MIÐGARÐUR, Skagafirði: Sveita-
ball með Á móti sól laugardag.
NASA VIÐ AUSTURVÖLL: Út-
gáfutónleikar hljómsveitarinnar Á
móti sól föstudag.
ODD-VITINN, Akureyri: Karaoke
föstudagskvöld. Hljómsveit Harðar
G. Ólafssonar laugardag.
PAKKHÚSIÐ, Selfossi: Hljóm-
sveitin Gilitrutt föstudagskvöld.
PLAYERS-SPORT BAR, Kópa-
vogi: Papar föstudag og laugardag.
PÓSTHÚSIÐ, Tálknafirði: Tón-
leikar með Mugison og Skúla Þórðar
laugardag.
RABBABARINN, Patreksfirði:
Tónleikar með Mugison og Skúla
Þórðar föstudag.
RÁIN, Reykjanesbæ: Hljómsveit
Rúnars Þórs fimmtudag, föstudag og
laugardag.
SPOTLIGHT: Andrea Gylfadóttir
og Seth Sharp syngja blús fimmtu-
dag. Dj Sesar föstudag og laugardag.
STAPINN, Reykjanesbæ: Land og
synir laugardag.
TJARNARBORG, Ólafsfirði: Blús-
tónleikar með Halldóri Bragasyni og
Guðmundi Péturssyni laugardag.
TÓKI MUNKUR, Þingeyri: Tón-
leikar með Mugison og Skúla Þórðar
sunnudag.
ÚTHLÍÐ, Biskupstungum: Fyrsti
stórdansleikur sumarsins með Geir-
mundi Valtýssyni laugardag.
ÚTLAGINN, Flúðum: Hljómsveit-
in Spútnik laugardag.
VAGNINN, Flateyri: Tónleikar
með Mugison og Skúla Þórðar
fimmtudag.
VÍDALÍN: Blústónleikar með Hall-
dóri Bragasyni og Guðmundi Péturs-
syni fimmtudag kl. 22. Tchernobyl
föstudagskvöld. Fjandakornið laug-
ardag.
FráAtilÖ
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Djasstríóið Flís verður á Jómfrúnni á laugardag.
RÚMENSKA sígaunahljómsveitin
Fanfare Ciocarlia spilar á
skemmtistaðnum NASA í kvöld
en margir þekkja fjöruga lúðra-
sveitartónlist af því tagi er sveit-
in spilar. Má geta þess að hún
erekki ólík í anda bræðrum sín-
um í Taraf de Haïdouks, sem
heimsóttu landann á síðustu
Listahátíð í Reykjavík í maí í
fyrra við góðan orðstír.
Tólf manns spila í Lúðrasveit-
inni Lævirkjanum, eins og nafnið
Fanfare Ciocarlia þýðir. Tónlistin
er þó ekki lúðrasveitartónlist eins
og fólk á að venjast hérlendis
heldur er um að ræða fjöruga
danstónlist, einlæga og kraft-
mikla. Sveitin þykir góð á sínu
sviði en hún er skipuð þremur
trompetleikurum, klarínettleik-
ara, tveimur saxófónleikurum,
tveimur hornleikurum, þremur
túbuleikurum og trommu- og
slagverksleikara en sveitarmenn
skiptast á um að syngja og hrópa
eftir því sem við á, þótt tónlistin
sé að mestu án söngs.
„Þetta er hamingjurík tónlist
og það á að dansa við hana,“ seg-
ir saxófónleikarinn Oprica Ivanc-
ea, sem vonast eftir fjölmenni og
stuði á tónleikunum í kvöld.
„Fólk hefur gaman af þessari
tónlist vegna þess að það er svo
gott að dansa við hana. Hún er
kraftmikil og það er ekki hægt
að sitja á sér,“ segir hann.
Sveitin kemur hingað frá
Bandaríkjunum þar sem hún hef-
ur verið á tónleikaferðalagi og
heldur síðan til Evrópu þar sem
hún spilar með Taraf de Haïdo-
uks í Þýskalandi, Austurríki,
Spáni, Ítalíu, Slóveníu og víðar
næsta mánuðinn. „Við erum búnir
að ferðast um heiminn síðustu
sex eða sjö ár,“ segir Ivancea en
þeir heimsækja heimalandið
Rúmeníu með reglulegu millibili
enda tónlistin þjóðleg. „Mörg lög-
in eru hefðbundin og byggð á
rúmenskri hefð og við spilum líka
gömul lög,“ segir hann.
Ivancea segir að það hafi verið
gaman að spila í Bandaríkjunum
og eftirminnilegt að koma til Los
Angeles en þeir spiluðu á tón-
leikastaðnum þekkta Hollywood
Bowl. „Það var samt skemmtileg-
ast að spila í New York. Margir
komu að hlusta á okkur, mikið af
vinum okkar og tónlistarfólki,“
segir hann.
Ivancea segir að allir eigi að
geta dansað við tónlist þeirra.
„Þetta er skemmtilegur taktur til
að dansa við og allir ættu að ná
honum,“ segir hann og útskýrir
að hluta vinsældir balkanskrar
danstónlistar sem þessarar.
Sveitarmeðlimum finnst greini-
lega heldur kalt úti en þeir eru
léttklæddir mjög, enda nýkomnir
úr hitanum í New York. Það lifn-
ar þó yfir þeim þegar þeir heyra
að ekki dimmi á Íslandi á þessum
árstíma og lofa dansstuði fram á
rauða (eða gullna) sumarnótt.
Fanfare Ciocarlia á NASA í kvöld
Morgunblaðið/Árni Torfason
Radulescu Lazar, trompetleikari og söngvari, og saxófónleikarinn Oprica
Ivancea létu sig ekki muna um að taka lagið fyrir ljósmyndara en alls eru
12 hljóðfæraleikarar í Fanfare Ciocarlia.
Hamingjurík
danstónlist
Rúmenska sveitin Fanfare Ciocarlia
heldur tónleika í NASA við Austur-
völl í kvöld. Húsið verður opnað kl.
20 og sveitin stígur á svið kl. 21. For-
sala í 12 tónum við Skólavörðustíg
og er miðaverð 3.900 kr.