Morgunblaðið - 27.06.2003, Síða 18
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
18 FÖSTUDAGUR 27. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
FYRIRHUGUÐ heilsurækt í Laug-
ardal hefur risið á skömmum tíma
og telur Björn Leifsson, eigandi
World Class, að tvær til þrjár vikur
séu þangað til húsið verður fokhelt.
„Staðan er þannig núna að það er
búið að setja þakið á. Glerið er
komið í hús og ætlunin er að setja
það í á morgun (í dag). Búið er að
hlaða alla milliveggi niðri í bún-
ingsklefunum, byrjað er að leggja í
gólf og það er langt komið að múra.
Þá er byrjað að setja upp loftræst-
ingu, pípulagnir og rafmagn,“ segir
hann.
Ætlunin er að opna World Class í
Laugardalnum 3. janúar á næsta
ári og er verkið á áætlun. Björn
segir að fljótlega verði farið að
steypa innisundlaugina, sem
Reykjavíkurborg byggir, en allri
grunnvinnu sé lokið og útveggir til-
búnir. „Sú laug verður opnuð í sept-
ember eftir ár. Hún verður tilbúin
að utan þegar við opnum.“
Útboð á vinnu í kringum bíla-
stæði og aðkomu fer fram á næstu
dögum, að sögn Björns, en breyt-
ingar eru fyrirhugaðar á aðkomu-
leiðum út af götunum í kring.
„Allt gengur mjög vel og ef eitt-
hvað er er framkvæmdin á undan
áætlun, en það eru að meðaltali 50–
60 manns að vinna í húsinu á degi
hverjum,“ segir hann.
Hann bendir á að undir bygging-
unni sé 3.200 fermetra kjallari, með
fjögurra metra lofthæð, en þar
verða allir búningsklefar, böð,
hreinlætisaðstaða, barnagæsla,
tæknirými, eldhús, sólbaðsaðstaða
og fleira. „Þetta er miklu meira en
menn sjá.“
Heilsuræktin
opnuð um áramót
Laugardalur
Morgunblaðið/Arnaldur
Nýbyggingarnar í Laugardalnum eru óðum að taka á sig endanlega mynd.
SKÝRSLA um þróun mannfjölda og
búferlaflutninga í Reykjavík og á
höfuðborgarsvæðinu var lögð fram á
fundi borgarráðs á þriðjudag. Í
skýrslunni, sem unnin var af Bjarna
Reynarssyni skipulagsfræðingi, er
bæði fjallað um fólksfjölgun í
Reykjavík og fólksflutninga innan
borgarinnar og flutningamynstrið
greint. Fjölmörg línurit og kort eru í
skýrslunni sem sýna þróun íbúa-
flutninga.
Helstu niðurstöður sem fram
koma í skýrslunni eru að tímabilið
1992–2002 fjölgaði íbúum á höfuð-
borgarsvæðinu um 28.002 en í
Reykjavík var fjölgunin 11.640
manns. Íbúum á jaðarsvæðum borg-
arinnar fjölgar því hraðar en í eldri
borgarhlutum og er sú þróun vel
þekkt utan frá að því er segir í
skýrslunni. Fjölgun íbúa í Reykjavík
kemur til af tvennu, annars vegar
náttúrulegri fjölgun, sem er fjöldi
fæddra umfram fjölda látinna, og
hins vegar vegna aðfluttra íbúa. Ef
litið er til tímabilsins 1980–2002 hef-
ur íbúum á Reykjavíkursvæðinu
fjölgað um að meðaltali 1.257 á ári og
um 1.316 í grannsveitarfélögum, alls
2.573 íbúar á ári.
Hver íbúi flutti oftar
en einu sinni 1991–2001
Búferlaflutningar hafa yfirleitt
meiri áhrif á þróun fólksfjölda og
samsetningu hans en breytingar á
fæðingar- og dánartíðni. Búferla-
flutningar eru tíðir hér á landi en eru
oftast innan sama sveitarfélags. Á
tímabilinu 1991–2001 fluttu um 212
þúsund manns innan höfuðborgar-
svæðisins, sem þýðir að hver íbúi
flutti oftar en einu sinni á þessu
tímabili. Talsverðar sveiflur hafa
verið í flutningum til og frá höfuð-
borgarsvæðinu á tímabilinu 1980–
2002 og enn meiri sveiflur hafa verið
í flutningum til og frá Reykjavík á
sama tímabili. Síðustu tvö ár hefur
flutningsjöfnuður fyrir Reykjavík
verið neikvæður, sérstaklega árið í
fyrra, en þá fluttu 665 fleiri frá
Reykjavík en til hennar. Stór hluti
þeirra sem flytja frá borginni flytur
til nágrannasveitarfélaganna. Sé lit-
ið á búferlaflutninga til höfuðborg-
arsvæðisins á tímabilinu 1990–2002
má sjá að meðalaðflutningur á ári
var 1.216 íbúar og af þeim kom að
meðaltali 1.161 frá landsbyggðinni,
eða 95% hópsins. Þeir sem flytja af
landsbyggðinni eru einkum ungt fólk
á aldrinum 20–24 ára. Aðeins 55
manns fluttu til höfuðborgarsvæðis-
ins frá útlöndum að meðaltali á tíma-
bilinu.
Í skýrslunni er vísað til framreikn-
inga þróunar- og fjölskyldusviðs um
fólksfjölda í Reykjavík. Samkvæmt
þeim reikningum verða íbúar í borg-
inni orðnir 130–140 þúsund árið 2024
og 220–240 þúsund á höfuðborgar-
svæðinu í heild. Í spánni er gert ráð
fyrir því að draga muni úr flutning-
um frá landsbyggðinni og útlöndum
til höfuðborgarsvæðisins eftir 2005
og að þeir flutningar verði komnir í
jafnvægi eftir 15 ár.
Skýrsluna má nálgast á vef
Reykjavíkurborgar.
!" #$
* 4+ 4 +
5 5 5* 5 5 5
5
5
* 5
5
5 5 $
% & '
()*
% &$
!'(#
+
6+ 6 "
+,%-
((*
5
5
5
* 5
5
5 5 5
5
4 5
+ 5
5
5 % &$
)
*!+ '$"
!" #
,'(#
- '
Einkum ungt
fólk flyst af
landsbyggðinni
Reykjavík
Skýrsla um þróun mannfjölda í
Reykjavík lögð fyrir borgarráð
TENGLAR
.....................................................
reykjavikurborg.is
Moggabúðin
Stuttermabolir, aðeins 1.000 kr.
Moggabúðin
Íþróttataska, aðeins 2.400 kr.