Morgunblaðið - 27.06.2003, Blaðsíða 42
DAGBÓK
42 FÖSTUDAGUR 27. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Í
dag fara út Mánafoss,
Þerney RE, Zjawa-IV,
Björn Re og Latouche-
Trévilla.
Hafnarfjarðarhöfn: Í
dag eru væntanleg Wil-
son Borg og Polar
Siglir.
Mannamót
Aflagrandi 40. Bingó í
dag kl. 14.
Árskógar 4. Kl. 13-
16.30 opin smíða- og
handavinnustofan.
Púttvöllur opinn. .)
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8-
16 hárgreiðsla, kl. 8.30-
12.30 bað, kl. 9-16
handavinna, kl. 9-17
fótaaðgerð, kl. 13-16
spilað í sal.
Félagsstarfið, Dal-
braut 18-20. Kl. 9 bað,
og opin handa-
vinnustofa.
Félagsstarfið Dalbraut
27. Kl. 8-16 opin handa-
vinnustofan, kl. 9-12
applikering, kl. 10-13
opin verslunin. Bingó.
Félagsstarfið Hæð-
argarði 31. Kl. 9.30
gönguhópur, allir vel-
komnir, kl. 9-12 bað, kl.
9-16 opin vinnustofa.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8. bað, kl. 10
hárgreiðsla, kl. 10-12
verslunin opin, kl. 11
leikfimi, kl. 13 „opið
hús“ – spilað á spil.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist
spiluð í Fannborg 8
(Gjábakka) kl. 20.30.
Skrifstofan er lokuð frá
og með 30. júní til 6.
ágúst. Viðvera í Gjá-
bakka fellur niður á
sama tíma.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Billjard
kl. 13.30, brids kl. 13.
Púttæfingar á Hrafn-
istuvelli kl. 14 til 16.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. S. 588 2111.
Húnavatnssýslur-
Vatnsdalur 15.-16.júní
2 daga ferð. Ekið norð-
ur Kjalveg, um Hvera-
velli og Vatnsdal. Ekið
til Þingeyrar og kirkj-
an skoðuð. Á Blönduósi
verður m.a. litið inn í
heimilisiðnaðarsafnið.
Ekið um þjóðveg 1 til
Reykjavíkur. Gist eina
nótt á Húnavöllum.
Leiðsögn Þórunn Lár-
usdóttir.
Gerðuberg, fé-
lagsstarf, Vinna í
vinnustofum fellur nið-
ur í dag. Kl. 9.30 sund
og leikfimiæfingar í
Breiðholtslaug. Frá há-
degi spilasalur opinn.
Allar upplýsingar á
staðnum og í síma
575 7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Handavinnustofan op-
in, leiðbeinandi á staðn-
um kl. 9.30-16. Kl. 13.15
brids, kl. 20.30 fé-
lagsvist.
Gullsmári, Gullsmára
13. Opið frá kl. 9-17,
heitt á könnunni.
Hraunbær 105. Kl. 9
baðþjónusta, fótaað-
gerð og hárgreiðsla, kl.
11 leikfimi (út júní), kl.
10 pútt.
Hvassaleiti 58-60. Hár-
snyrting fótaaðgerðir.
Norðurbrún 1. Kl. 9-13
tréskurður, kl. 9-17,
hárgreiðsla, kl. 10-11
boccia.
Vesturgata 7. Kl. 9-16
fótaaðgerð og hár-
greiðsla, kl. 9.15-14.30
handavinna, kl. 10-11
kántrý dans, kl. 11-12
stepp, , kl. 13.30-14.30
sungið við flygilinn, kl.
14.30-16 dansað í að-
alsal.
Vitatorg. Kl. 9 hár-
greiðsla, kl. 9.30 morg-
unstund, kl. 10 fótaað-
gerð, kl. 13.30 bingó.
Förum í sumarferð 2.
júlí. Farið verður á
Akranes, í Borgarnes,
á Hvanneyri og endað í
kvöldmat í Skessu-
brunni í Svínadal. Verð
kr. 3.200. Allir vel-
komnir. Skráning og
upplýsingar í síma
561 0300
FEBK. Brids spilað kl.
13.15 í Gjábakka.
Hana-nú, Kópavogi.
Laugardagsgangan á
morgun. Lagt af stað
frá Gjábakka kl. 10.
Gott fólk, gott rölt.
Gengið frá Gullsmára
13, kl. 10 á laug-
ardögum.
Sumarorlof eldri borg-
ara í Skálholti. Boðið
er upp á fjóra dval-
arhópa á tímabilinu 18.
júní til 14. júlí. Allar
nánari upplýsingar eru
veittar á skrifstofu Elli-
málaráðs Reykjavík-
urprófastsdæma í síma
557-1666 og einnig á
netinu www.gamlinoi.is
Brúðubíllinn
Brúðubíllinn verður
næst á ferðinni 7. júlí.
Minningarkort
Félag MND-sjúklinga
selur minningarkort á
skrifstofu félagsins á
Norðurbraut 41, Hafn-
arfirði. Hægt er að
hringja í síma 565-
5727. Allur ágóði renn-
ur til starfsemi félags-
ins.
Landssamtökin
Þroskahjálp.
Minningarsjóður Jó-
hanns Guðmundssonar
læknis. Tekið á móti
minningargjöfum í
síma 588-9390.
Í dag er föstudagur 27. júní, 178.
dagur ársins 2003. Orð dagsins:
Fagnið á þeim degi og leikið af
gleði, því laun yðar eru mikil á
himni, og á sama veg fóru feður
þeirra með spámennina.
(Lúk. 6,23.)
Í nýlegum pistli á Deigl-unni.com fjallar Magn-
ús Þór Torfason verkfræð-
ingur um tímabundin
atvinnuleyfi útlendinga.
Hann rekur skilyrði fyr-ir því að atvinnuveit-
andi fái leyfi til þess að
ráða til sín útlending: „Til
að fá slíkt leyfi þarf at-
vinnurekandinn að sýna
fram á að kunnáttumenn
verði ekki fengnir innan
lands, atvinnuvegi lands-
ins skorti vinnuafl eða aðr-
ar sérstakar ástæður mæli
með leyfisveitingu.“
Magnús telur núverandireglur um atvinnu-
leyfi útlendinga gallaðar.
Sérstaklega gagnrýnir
hann að atvinnleyfin séu
ekki bundin launþegan-
um. Hann sér fá rök sem
mæla með því fyrirkomu-
lagi: „Ef markmið laganna
er að tryggja að kjör er-
lendra starfsmanna séu
sambærileg við kjör Ís-
lendinga, væri ekki heppi-
legra að hverfa frá slíkum
miðaldareglum og gefa út-
lendingnum möguleika á
að skipta um vinnu eftir að
hann kemur til landsins? Í
slíku kerfi kæmist at-
vinnurekandi ekki hjá því
að greiða samkeppnishæf
laun því að erlendi starfs-
maðurinn gæti hvenær
sem er skipt um vinnu, líkt
og aðrir starfsfélagar
hans. Ef starfsmaður
segði upp á tímabilinu yrði
upprunalegi atvinnu-
rekandinn laus undan
skyldum sínum og sá nýi
tæki þær yfir.“
Magnús gefur lítið út ámótrök við slíkri
breytingu. Hann segir þau
felast annars vegar í því
að „ekki sé hægt að leggja
þær skyldur á atvinnurek-
andann sem nú er gert
varðandi tryggingar og
ábyrgðir, ef launþeginn
getur hvenær sem er
gengið út“. Magnús telur
að þessi rök haldi ekki
vatni enda fæli breyting í
sér að tortryggni gagn-
vart vinnuveitendum sem
ráða útlendinga til sín
minnkaði.
Hin rökin sem Magnússegir að tínd yrðu til
væru að ekki mætti
„sleppa útlendingum laus-
um á vinnumarkaði“. Um
þetta segir Magnús:
„Pistlahöfundur hefur
litla samúð með slíkum
rökum. Sömu aðilar og
halda þeim fram hlytu að
hafa verið á móti því að
konur fengju að taka til
starfa á almennum vinnu-
markaði, þar sem þær
voru tilbúnar að vinna á
lægri launum en karl-
menn, og atvinnurekend-
ur færðu sér það í nyt,
ekki síður en þeir myndu
gera í tilviki útlendinga
með tímabundin atvinnu-
leyfi.“
Að lokum segir Magnús:„Það er eðlilegt og
sjálfsagt að þeir sem
starfa á Íslandi hafi frelsi
til að ákveða sjálfir hjá
hverjum þeir starfa og full
ástæða til að endurskoða
lög um atvinnuréttindi út-
lendinga með slíkt í huga.“
STAKSTEINAR
Að vera sjálfs sín herra
Víkverji skrifar...
SÓLBRÚNKUVERKSMIÐJA,hugsaði Víkverji þegar hann var
nýstiginn út úr flugvélinni á flugvell-
inum í Palma, höfuðborg spænsku
eyjarinnar Mallorca. Á óralöngum
gangi flugstöðvarinnar eru færibönd
til að flýta fyrir 16 milljónum ferða-
manna, sem koma til Mallorca á ári
hverju, og á þessum tímapunkti
fluttu færiböndin með skipulegum
hætti föla Íslendinga inn í landið en
sólbrúna og sællega Íslendinga út í
vél.
Mallorca reyndist bjóða upp á
fleira en sólböð, bæði fallega náttúru
og athyglisverða menningu. Bærinn,
þar sem Víkverja og fjölskyldu hans
hafði verið holað niður á ágætu hót-
eli, var hins vegar versta sort af
ferðamannabæ, byggður eingöngu í
kringum túrismann, sögulaust og
miðbæjarlaust pláss með endalaus-
um röðum hótela - en að sjálfsögðu
líka stórfínni strönd, þar sem gott
var að slappa af.
x x x
STÆRSTI ókostur þessararbæjarnefnu var að þýzkir ferða-
menn höfðu svo gott sem hertekið
hana. Víkverji og fjölskylda hans,
sem töldu sig hafa farið í sumarfrí til
Spánar, voru hreint ekki viss í sinni
sök fyrsta kvöldið, þegar þau fóru út
til að finna sér spænskan veit-
ingastað. Hann var vandfundinn,
hins vegar var hver bjórgarðurinn á
fætur öðrum og meira að segja heil
bjórgata með þýzkum krám, þýzk-
um skiltum, þýzkum matseðlum,
þýzkri tónlist (af útþynntari sort-
inni, eins og heyrist í þýzkum sjón-
varpsskemmtiþáttum) og þýzkum
gestum. Eftir langa leit fannst ekta
spænskur veitingastaður – þar voru
Víkverji og fjölskylda hans einu
gestirnir, en maturinn var ágætur.
Í verzlunum og á veitingastöðum
var Víkverji ævinlega ávarpaður á
þýzku, sem kom svo sem ekki að sök
þar sem hann talar málið, en aug-
ljóst var að heimamenn gengu út frá
því að hann tilheyrði hernámsliðinu.
Víkverji hefur löngum verið aðdá-
andi þýzkrar tungu og menningar –
en hann vill helzt njóta hennar í
Þýzkalandi. Á Spáni vill hann kynn-
ast menningu innfæddra. Víkverja
finnst að ferðaskrifstofan hefði átt
að vara hann við, því að það eru ekki
allir til í að drekka þýzkan bjór og
borða bratwurst eða schnitzel í öll
mál þegar þeir fara í frí til Spánar.
x x x
LAUSN Víkverja á málinu var aðfara í tvígang til höfuðborg-
arinnar Palma, sem er heillandi borg
og var a.m.k. nægilega fjölmenn til
þess að þar voru spænsk áhrif yf-
irgnæfandi. Sömuleiðis leigði fjöl-
skyldan sér bíl og ók um eyjuna,
m.a. um fjallahéruðin á norðaust-
urströndinni, þar sem kynnast mátti
aldagamalli menningu eyjarskeggja
tiltölulega ómengaðri. Liggi leiðin
aftur til Mallorca ætlar Víkverji að
finna sér gististað í betri tengslum
við menningu innfæddra.
Reuters
Berum klæði
á vopnin
SUMIR menn svífast
einskis og hyggjast jafnvel
beita vopnum í þeim til-
gangi að losna við ketti. Það
er með ólíkindum að slíkir
menn fái að vaða uppi í fjöl-
miðlum landsins. Kettir eru
góð dýr og eiga ekki skilið,
frekar en börn og gamal-
menni, að borin séu á þá
vopn.
Laufey.
Afleiðingar fátæktar
ÞUNGLYNDI, fjárnám,
gjaldþrot, aukið ofbeldi og
áfengis- og vímuefna-
neysla. Allt hefur þetta ver-
ið mikið í umræðunni und-
anfarið, bæði í fjölmiðlum
og í samfélaginu. Ástæður
þess að fólk lendir í blind-
götu í samfélaginu geta
verið margvíslegar. Eitt
atriði sem alltaf gleymist í
umræðunni er hverjar af-
leiðingar fátæktar eru.
„Fátækt hefur alltaf verið
til og mun alltaf verða,“
segir fólk, eins og það sé
eitthvert náttúrulögmál.
Fátækt er illt mein í sam-
félaginu sem stjórnvöld
ættu að setja metnað í að
lagfæra eins og kostur er.
Það hringdi til mín fullorðin
kona sem barðist áfram,
bláfátæk með börn sín, en
hún sagði að það hefði nú
alltaf einhvern veginn
bjargast. Þegar nýja fá-
tæktin skall á fyrir nokkr-
um árum varð hún gjald-
þrota. Þetta segir sína
sögu. Fólk sem lendir í
miklum fjárhagsvanda
brotnar oft niður. Fordóm-
ar eru miklir út í þetta fólk
og þetta er álitinn aum-
ingjaskapur. Flest fólk vill
reyna að lagfæra hlutina,
því ætti að rétta því hjálp-
arhönd en ekki brjóta það
enn meira niður. Það kall-
ast að ráðast á garðinn þar
sem hann er lægstur.
Sigrún Ármanns Reyn-
isdóttir, formaður
Samtaka gegn fátækt.
Dýrahald
Afródíta
er ennþá týnd
AFRÓDÍTA er svört með
hvíta bringu og hvítar lopp-
ur. Hún tapaðist um miðjan
maí úr Kópavogi. Hún gæti
verið farin hvert á land sem
er. Hafi einhver orðið henn-
ar var er sá hinn sami beð-
inn að hringja í 848 2850
eða 564 1604.
Köttur
í óskilum
FRESSKÖTTUR hefur
tekið sér bólfestu í garði í
Smáíbúðahverfinu. Köttur-
inn er u.þ.b. sex mánaða
gamall, svartur og hvítur
að lit. Hann ber drapplitaða
ól en á henni er ekkert
heimilisfang. Upplýsingar í
síma 588 2343 eða 867 7686.
Týndur kisi
í Engjahverfi
LADY týndist hinn 23. júní
frá Starengi 14. Hún er
svört með hvítar loppur,
hvíta bringu og ómerkt.
Hún er innikisa og því óvön
að vera lengi úti. Ef einhver
hefur séð hana vinsamlega
hringið í síma 865 6762.
Ungur högni
fannst
UNGUR högni fannst í iðn-
aðarhverfi, milli Grafar-
vogs og Árbæjar, fimmtu-
daginn 19. júní sl. Hann er
svartur og hvítur að lit.
Þeir sem kannast við kött-
inn eru vinsamlegast beðn-
ir að hringja í síma
662 8888.
Páfagaukur
í óskilum
PÁFAGAUKUR flaug inn
um svalaglugga í Lækjar-
smára í Kópavogi hinn 23.
júní sl. Gaukurinn er ungur
að aldri, ljósgrænn og gul-
ur að lit. Þeir sem kunna að
sakna gauksins geta hringt
í síma 847 8718.
Kanína fannst
KANÍNA fannst hjá
Smáraskóla í hádeginu
hinn 25. júní sl. Hún er hvít
á kvið og brún og svört að
öðru leyti. Sakni einhver
kanínu væri ráð að hafa
samband í síma 864 0110.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
Morgunblaðið/Sverrir
Í sumarskapi.
LÁRÉTT
1 af háum stigum, 8
yrkja, 9 hyggur, 10 slít,
11 síðla, 13 hitt, 15 höf-
uðfats, 18 starfið, 21 veð-
urfar, 22 skot, 23 skurð-
urinn, 24 veikburða.
LÓÐRÉTT
2 ávísun, 3 dökkt, 4 ólán,
5 vondan, 6 lof, 7 veiði-
dýr, 12 gagn, 14 mis-
kunn, 15 haltan, 16
veisla, 17 verk, 18 sér
eftir, 19 hlussulegan
kvenmann, 20 baktali.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 dugir, 4 ríkja, 7 álkan, 8 kurls, 9 dís, 11 nösk,
13 árar, 14 ósatt, 15 gróp, 17 tjón, 20 fim, 22 teyga, 23
ögrar, 24 rotin, 25 linar.
Lóðrétt: 1 djásn, 2 gikks, 3 rönd, 4 ryks, 5 kúrir, 6 ans-
ar, 10 Ítali, 12 kóp, 13 átt, 15 getur, 16 ólykt, 18 jaran,
19 nárar, 20 fann, 21 mögl.
Krossgáta 6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16