Morgunblaðið - 27.06.2003, Blaðsíða 44
ÍÞRÓTTIR
44 FÖSTUDAGUR 27. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
„ÞETTA voru fín mörk bæði, gaman að
skora með skalla því það er ekki á hverj-
um degi sem ég geri það,“ sagði Björg-
ólfur Takefusa, markaskorari Þróttar,
sæll og glaður eftir sigurinn yfir ÍBV í
gærkvöldi.
„Fyrra markið kom eftir ótrúlega
gott samspil, Dóri [Halldór Hilmisson]
sendi mig skemmtilega í gegn og ég var
heppinn að hitta vel með ristinni. Ég
hafði ekki tíma til annars en að skjóta í
fyrsta, var með mann í bakinu og því
gerði ég þetta svona.
Við vorum betri í fyrri hálfleik en svo
eftir að við náðum forystu bökkuðum
við eins og svo oft vill verða hjá okkur.
Annað sætið var í húfi og líka að komast
aðeins út úr þessum pakka sem er í
deildinni. Auðvitað er þetta langt frá því
að vera búið, það er mikið eftir af deild-
inni og ekkert öruggt, en ég held að ef
við leikum eins og við höfum gert hing-
að til ætti okkur að takast að halda okk-
ur í deildinni,“ sagði Björgólfur.
Spurður hvort þetta væri sú staða sem
hann hefði átt von á í vor þegar keppnin
hófst sagði hann: „Ef ég á að vera alveg
hreinskilinn er svarið nei. Liðið okkar
er reynslulaust í efstu deild og þessi
byrjun hefur komið skemmtilega á óvart
og eins og mótið hefur spilast getum við
ekki annað en verið þokkalega sáttir.
Mér hefur gengið vel að skora enda
hafa strákarnir spilað mig uppi. Það er
frábær andi í liðinu og það virðist vera í
góðri æfingu. Þetta er búið að vera mjög
skemmtilegt, enda er alltaf gaman þeg-
ar vel gengur,“ sagði Björgólfur.
Það er alltaf gaman
þegar vel gengur
Morgunblaðið/Sverrir
Björgólfur Takefusa
ÞAÐ vekur athygli í upp-
hafi efstu deildar karla
hversu fá stig efsta lið
deildarinnar hefur. Sömu-
leiðis hefur deildin sjaldan
eða aldrei verið jafnari og
ómögulegt er að gera sér í
hugarlund hvaða lið mun
standa uppi sem sigurveg-
ari. Eða hvað?
Fylkismenn tróna nú á
toppi efstu deildar karla
og er það þriðja árið í röð
sem þeir eru efstir þegar
sjö umferðir eru að baki.
Frá því að þriggja stiga
reglan var tekin upp árið
1984 hefur efsta lið deild-
arinnar aldrei hlotið færri
stig í fyrstu sjö umferð-
unum en Fylkismenn hafa
nú eða 13 stig. Árbæingar
þurfa engu að kvíða því
þeir eru líklegir til að
lyfta Íslandsbikarnum ef
litið er til stöðunnar eftir
sjö umferðir á þremur af
síðustu fjórum leiktíðum.
Eftir sjö umferðir í fyrra
hafði KR 13 stig að lokn-
um sjö umferðum og sömu-
leiðis ÍA árið 2001 og KR
1999.
Árið 1995 höfðu Skaga-
menn fullt hús stiga að
loknum sjö umferðum en
þeir unnu reyndar fyrstu
12 leiki sína í deildinni það
sumar og urðu Íslands-
meistarar.
Toppliðið hefur aldrei
fengið eins fá stig
MAGNÚS Gylfason, þjálfari Eyja-
manna, var ekki ánægður með sína
menn í gærkvöldi. „Fyrri hálfleik-
ur var afspyrnuslakur – alveg
hræðilegur. Mér fannst við ná að
rífa okkur vel upp í seinni hálfleik
og spiluðum þá sæmilega en mark-
ið var eins og reiðarslag fyrir okk-
ur,“ sagði hann vonsvikinn í leiks-
lok.
Markið sem hann talar um var
annað mark Þróttara í leiknum og
það gerðu þeir á 58. mínútu og kom
það nokkuð gegn gangi síðari hálf-
leiks, skallamark hjá Björgólfi
Takefusa, hans fimmta mark í
deildinni í sumar.
„Þó svo við lékjum mun betur í
síðari hálfleik var það hreinlega
ekki nógu gott hjá okkur. Við ógn-
uðum lítið og Þróttarar voru ein-
faldlega betri en við,“ sagði Magn-
ús og var allt annað en hress, enda
var annað sætið í deildinni að veði,
um sinn í það minnsta, því bæði lið
voru með níu stig fyrir leikinn í
gær og sigur færði Þrótturum ann-
að sætið en ÍBV er í sjötta sæti.
„Fyrri hálfleikur er sá langslak-
asti sem við höfum leikið í sumar.
Síðari hálfleikur var miklu skárri
og það var það eina jákvæða við
þennan leik hjá okkur,“ sagði þjálf-
arinn.
Gestirnir áttu fyrsta færi leiksinsþar sem Ian Jeffs var óvaldaður
á markteig á 1. mínútu leiksins en
máttlaus skalli hans
náði ekki að skapa
hættu. Eins og í svo
mörgum leikjum
sumarsins tóku liðin
enga áhættu á fyrsta stundarfjórð-
ungi leiksins. Liðin þreifuðu fyrir sér
og aðeins söngur stuðningsmanna
Þróttar vakti athygli á þessum tíma.
Guðfinnur Ómarsson, Þrótti,
komst í fínt færi rétt áður en Björg-
ólfur skoraði fyrsta mark leiksins en
þeir félagar áttu bestu færi leiksins í
liði Þróttar.
Gunnar Heiðar Þorvaldsson,
markahæsti leikmaður Landsbanka-
deildarinnar úr liði ÍBV, hefur ekki
skorað í síðustu tveimur leikjum liðs-
ins og eftir að hann brenndi af úr
ágætu færi á 20. mínútu var líkt og
hann hefði misst sjálfstraustið. Leik-
ur ÍBV snýst að mestu um að koma
Gunnari Heiðari í marktækifæri en
vörn Þróttar lagði áherslu á að stöðva
kappann með góðum árangri. Bjarni
Rúnar Einarsson var í fremstu víg-
línu með Gunnari en komst lítt áleiðis
í leiknum. Greinilegt er að skarð
Steingríms Jóhannessonar í framlínu
ÍBV verður vandfyllt næstu vikurnar
á meðan hann jafnar á sig á höfuð-
meiðslum.
Birkir Kristinsson markvörður
ÍBV fékk nóg að gera á 34. mínútu
þegar Guðfinnur komst einn í gegn.
Birkir varði skot frá Guðfinni eftir að
hann var slopinn í gegnum vörn ÍBV,
Guðfinnur fékk knöttinn aftur til sín
en skallaði yfir markið.
Síðari hálfleik byrjuðu Eyjamenn
eins og þeir hófu þann fyrri – af
krafti. En síðan fór að draga af þeim
og ungur framherji í liði Þróttar,
Björgólfur Takefusa fór að láta meira
að sér kveða. Hann býr yfir mikilli
snerpu og er áræðinn í aðgerðum sín-
um og áttu varnarmenn ÍBV í mikl-
um vandræðum með „strákinn“ það
sem eftir lifði leiks. Björgólfur skor-
aði annað mark sitt í leiknum með
skalla á 58. mínútu en skömmu síðar
áttu gestirnir besta færi sitt í leikn-
um en Páll Einarsson leikmaður
Þróttar skallaði knöttinn af marklínu
og bjargaði málum fyrir sitt lið.
Síðustu 30. mínútur leiksins voru
Þróttarar mun ákveðnari í sóknarleik
sínum og fékk Björgólfur a.m.k. fjög-
ur fín færi sem hefðu getað endað
með marki auk þess sem Sören Her-
mansen slapp einn í gegnum vörn
ÍBV en skaut hárfínt framhjá.
Lið ÍBV er ekki líklegt til afreka í
næstu leikjum miðað við það sem liðið
sýndi í gær. Leikur liðsins var hug-
myndasnauður og tilviljanir réðu því
að liðið náði að skapa hættu.
Bjarnólfur Lárusson fékk að líta
gula spjaldið í leiknum og verður í
leikbanni í næsta leik liðsins gegn KR
á heimavelli. Gylfi Orrason dómari
leiksins sá hins vegar ekki þegar
Bjarnólfur braut af sér undir lok
leiksins og hefði með réttu átt að fá
annað gult spjald og þar með rautt.
Lið Þróttar var kraftmikið að
þessu sinni með Björgólf sem besta
mann liðsins. Varnarmenn ÍBV áttu í
mesta basli með að stöðva Björgólf
þegar hann fékk knöttinn. Páll Ein-
arsson, Halldór Hilmisson og Char-
les McCormick léku vel á miðjunni og
voru skapandi með sendingum sínum
á framherjana. Fjalar var öruggur í
marki Þróttar og vörn liðsins hélt sjó
að þessu sinni.
Nýliðarnir eru með 12 stig að lokn-
um sjö umferðum og hefur Ásgeir
Elíasson þjálfari liðsins sagt að
markmið liðsins sé að ná um 20 stig-
um til þess að tryggja veru liðsins á
meðal þeirra bestu – og miðað við leik
liðsins í gær er allt eins líklegt að það
takist.
Björgólfur í
ham gegn ÍBV
ÞRÓTTUR úr Reykjavík náði að tylla sér í annað sæti Lands-
bankadeildar karla í knattspyrnu í gær þar sem liðið lagði ÍBV að
velli, 2:0, á Laugardalsvelli og skoraði Björgólfur Takefusa bæði
mörk Þróttar sem er með 12 stig, einu minna en Fylkir. ÍBV er í
sjötta sæti með níu stig. Það eru tveir áratugir frá því að Þróttur
lagði ÍBV að velli í leik í efstu deild, 3:1 árið 1983. Staða nýliða
Þróttar er því nokkuð góð þegar sjö umferðum af átján er lokið en
miðað við leik ÍBV í gær er allt eins líklegt að liðið eigi eftir að berj-
ast í neðri hluta deildarinnar fram á haustið.
Sigurður Elvar
Þórólfsson
skrifar
GRÉTAR Már Sveinsson gekk í
vikunni til liðs við 1. deildarlið HK í
knattspyrnu. Hann hefur leikið með
ÍR í 1. deildinni undanfarin ár.
JOSE Luis Chilavert, landsliðs-
markvörðurinn litríki frá Paragvæ,
heldur því fram að enska úrvals-
deildarliðið Bolton Wanderers vilji
fá sig til liðsins. „Það var maður
sendur frá félaginu til að ræða við
mig en ég hef ekki tekið neina
ákvörðun um framhaldið,“ sagði
hinn 37 ára gamli Chilavert.
SAM Allardyce, knattspyrnustjóri
Bolton, hefur aðra sögu að segja.
Hann segir að Chilavert vilji ólmur
koma til félagsins. „Hann rakst á rit-
ara félagsins, þar sem báðir voru
staddir í sumarleyfi, og sagðist vera
tilbúinn ef Bolton vildi fá hann,“
sagði Allardyce á heimasíðu Bolton
og aftók með öllu að félagið myndi
sækjast eftir því að fá hann.
ALLARDYCE sagði ennfremur í
gær að hann hefði dregið til baka
samningstilboð til Ivans Campos,
sem lék með liðinu síðasta vetur. All-
ardyce sagði að samningaumleitanir
við leikmanninn hefðu strandað á
umboðsmanni hans. Það væri synd,
því Bolton hefði komið Campo til
bjargar á erfiðum tíma á ferli hans.
JURICA Vranjes hefur gengið til
liðs við Stuttgart en hann lék með
Bayer Leverkusen á síðustu leiktíð.
Stuttgart þarf ekkert að greiða fyrir
Vranjes þar sem hann var samnings-
laus. Vranjes er 23 ára og hefur leik-
ið 15 landsleiki fyrir Króatíu.
HOLLENSKI sóknarmaðurinn
Patrick Kluivert hjá Barcelona hef-
ur verið úrskurðaður í fjögurra
leikja bann af spænska knattspyrnu-
sambandinu. Kluivert var rekinn af
velli eftir 26 mínútna leik gegn Celta
Vigo í lokaumferð spænsku deildar-
innar á sunnudaginn eftir að hafa
lent saman við leikmann gestanna.
EVERTON og Manchester City
eru talin vera á eftir Steve McMan-
aman sem leikur með Real Madrid.
McManaman lék mjög lítið með
Madrid á síðustu leiktíð og eftir
komu Davids Beckhams til Madrid
er talið líklegt að McManaman yf-
irgefi félagið í sumar.
TOTTENHAM hefur fest kaup á
einum efnilegasta knattspyrnu-
manni Portúgals, Helder Postiga.
Hann er tvítugur og skoraði 19 mörk
fyrir Porto á síðasta tímabilinu en þá
vann lið hans UEFA-bikarinn,
portúgölsku deildina og bikarinn í
Portúgal.
LEICESTER CITY hefur fengið
Riccardo Scimeca af frjálsri sölu frá
Nottingham Forest. Scimeca er 28
ára gamall varnarmaður og er þriðji
leikmaðurinn sem gengur til liðs við
Leicester í sumar. Hinir eru Steve
Howey og Paul Brooker.
FÓLK
Þróttur R. 2:0 ÍBV
Leikskipulag: 4-4-2 Landsbankadeildin,
7. umferð
Laugardalsvöllur
Fimmtudaginn 26. júní, 2003
Aðstæður:
Góðar, léttur andvari, þurrt og
hlýtt.
Áhorfendur: 713.
Dómari:
Gylfi Þór Orrason, Fram, 3
Aðstoðardómarar:
Ólafur Ragnarsson,
Eyjólfur Finnsson.
Skot á mark: 14(6) - 11(6)
Hornspyrnur: 3 - 3
Rangstöður: 5 - 5
Leikskipulag: 4-4-2
Fjalar Þorgeirsson M
Erlingur Þ. Guðmundsson
Eysteinn P. Lárusson M
Jens Sævarsson
Ingvi Sveinsson
Guðfinnur Þ. Ómarsson
(Hallur Hallsson 78.)
Páll Einarsson M
Halldór A. Hilmisson M
Charles McCormick M
Björgólfur Takefusa MM
Sören Hermansen
Birkir Kristinsson M
Unnar Hólm Ólafsson
Tom Betts
Tryggvi Bjarnason
Hjalti Jónsson M
Ian Jeffs M
(Pétur Runólfsson 76.)
Bjarnólfur Lárusson
(Andri Ólafsson 88.)
Bjarni Geir Viðarsson
Atli Jóhannsson
Bjarni Rúnar Einarsson
Gunnar Heiðar Þorvaldsson M
1:0 (15.) Skemmtileg sókn Þróttar endaði með því að Halldór Hilmisson gaf
sendingu inn fyrir vörn ÍBV þar sem Björgólfur Takefusa tók við knett-
inum og skaut utanfótar með hægri í vinstra hornið framhjá Birki Krist-
inssyni.
2:0 (58.) Charles McCormick gaf fína sendingu frá vinstri fyrir markið þar sem
Björgólfur Takefusa var á auðum sjó og skallaði í netið af stuttu færi.
Gul spjöld:
Bjarnólfur Lárusson, ÍBV (26.) fyrir mótmæli. Hallur Hallsson, Þróttur R. (88.) fyrir brot.
Rauð spjöld: Engin.
Fyrri hálfleikur
alveg hræðilegur