Morgunblaðið - 27.06.2003, Side 46
ÍÞRÓTTIR
46 FÖSTUDAGUR 27. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
OPIÐ
KVENNAMÓT
GLÆSILEG VERÐLAUN!
SÓLSTÖÐUMÓT KVENNA HJÁ GKG Í KVÖLD!
Punktakeppni.
Verðlaun með og án forgjafar.
1. sæti: 50.000 kr. úttekt frá ÚRVAL-ÚTSÝN.
2. sæti: 25.000 kr. úttekt frá GOLFBÚÐINNI Í HAFNARFIRÐI.
3. sæti: 15.000 kr. úttekt frá GOLFBÚÐINNI Í HAFNARFIRÐI.
2 UTANLANDSFERÐIR FRÁ ICELAND EXPRESS FYRIR HOLU Í
HÖGGI Á ÖLLUM PAR 3 BRAUTUM.
NÁNDARVERÐLAUN Á ÖLLUM PAR 3 BRAUTUM.
Mæting kl. 21 – ræst út af öllum teigum kl. 22
Mótsgjald kr. 3.000
FÓLK
KNATTSPYRNA
Efsta deild karla
Landsbankadeildin
Þróttur R. – ÍBV...................................2:0
Staðan:
Fylkir 7 4 1 2 12:6 13
Þróttur R. 7 4 0 3 11:9 12
FH 7 3 2 2 12:9 11
ÍA 7 2 4 1 9:6 10
KR 7 3 1 3 8:10 10
ÍBV 7 3 0 4 12:12 9
Valur 7 3 0 4 10:13 9
Grindavík 7 3 0 4 9:12 9
KA 6 2 2 2 9:8 8
Fram 6 1 2 3 7:14 5
Markahæstir:
Gunnar Heiðar Þorvaldsson, ÍBV ......... 7
Björgólfur Takefusa, Þrótti R. .............. 5
Jóhann H. Hreiðarsson, Val................... 5
Haukur Ingi Guðnason, Fylki ................ 4
Jónas Grani Garðarsson, FH ................. 4
Sinisa Kekic, Grindavík .......................... 4
Guðjón H. Sveinsson, ÍA ........................ 3
Hreinn Hringsson, KA ........................... 3
Sigurbjörn Hreiðarsson, Val .................. 3
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, KR .......... 3
Sören Hermansen, Þrótti R. .................. 3
Björn Viðar Ásbjörnsson, Fylki............. 2
Gunnar Þór Pétursson, Fylki................. 2
Hjálmar Þórarinsson, Þrótti R. ............. 2
Kristján Brooks, Fram ........................... 2
Pálmi Rafn Pálmason, KA...................... 2
Steinar Tenden, KA ................................ 2
Tommy Nielsen, FH ............................... 2
Veigar Páll Gunnarsson, KR.................. 2
1. deild karla:
Njarðvík – Breiðablik ..........................0:1
– Hörður Bjarnason 7.
Víkingur – Stjarnan .............................1:3
Stefán Örn Arnarsson 31. – Valdimar
Kristófersson 19., 25., Vilhjálmur Vil-
hjálmsson 23.
Staðan:
Keflavík 6 5 0 1 14:6 15
Víkingur R. 7 3 3 1 9:6 12
Þór 6 3 2 1 13:10 11
Breiðablik 7 3 1 3 7:8 10
HK 6 2 2 2 7:5 8
Njarðvík 7 2 2 3 10:10 8
Afturelding 6 2 2 2 6:9 8
Stjarnan 7 1 3 3 9:12 6
Haukar 6 1 2 3 5:10 5
Leiftur/Dalvík 6 1 1 4 5:9 4
2. deild karla:
Fjölnir – Léttir......................................5:0
Davíð Þór Rúnarsson 2 , Ragnar Sverr-
isson 2, Steinn Símonarson.
Staðan:
Völsungur 6 6 0 0 26:6 18
Fjölnir 7 5 0 2 22:12 15
Selfoss 6 4 1 1 15:6 13
KS 6 3 1 2 12:11 10
ÍR 6 3 0 3 11:10 9
Víðir 6 3 0 3 8:9 9
KFS 6 2 0 4 12:22 6
Tindastóll 6 1 1 4 11:17 4
Léttir 7 1 1 5 6:23 4
Sindri 6 0 2 4 4:11 2
3. deild, A-riðill:
Drangur – Númi ....................................4:4
Staðan:
Víkingur Ó. 5 5 0 0 16:1 15
Skallagrímur 5 4 0 1 16:7 12
BÍ 4 3 0 1 10:8 9
Númi 5 2 2 1 14:14 8
Bolungarvík 5 2 0 3 11:12 6
Grótta 6 1 1 4 8:10 4
Drangur 6 1 1 4 8:18 4
Deiglan 6 1 0 5 8:21 3
3. deild, B-riðill:
Hamar – Árborg ....................................2:0
Ægir – Freyr .........................................0:1
Staðan:
Leiknir R. 5 4 1 0 26:4 13
Reynir S. 5 3 2 0 19:2 11
ÍH 5 3 1 1 12:9 10
Freyr 6 3 0 3 10:12 9
Árborg 6 2 2 2 16:9 8
Hamar 6 2 1 3 7:15 7
Afríka 5 1 0 4 3:19 3
Ægir 6 0 1 5 4:27 1
3. deild, D-riðill:
Höttur – Leiknir F................................2:1
Staðan:
Neisti D. 5 3 1 1 7:5 10
Höttur 6 3 1 2 8:7 10
Fjarðabyggð 5 3 0 2 13:8 9
Huginn 5 3 0 2 12:8 9
Einherji 5 2 0 3 7:10 6
Leiknir F. 6 1 0 5 6:15 3
Álfukeppnin
Kamerún – Kólumbía ...........................1:0
Pius N’Diefi 9.
Frakkland – Tyrkland..........................3:2
Henry 10., Pires 26., Wiltord 44. Karade-
niz 42., Tuncay Sanli 48.
Frakkar og Kamerúnar mætast í úr-
slitaleik á sunnudag.
Kólumbíumenn og Tyrkir mætast í leik
um 3. sætið á laugardag.
SIGURÐUR Hannesson, eftirlits-
maður KSÍ, verður eftirlitsmaður á
síðari leik írska liðsins Shamrock
Rovers og MKS Wodzislaw Slaski
frá Póllandi, en liðin mætast í Dubl-
in á sunnudaginn. Shamrock vann
2:1 í fyrri leiknum.
CARLOS Queiroz, nýráðinn
knattspyrnuþjálfari Real Madrids,
segir að hann hafi lært mikið á því að
starfa með Sir Alex Ferguson. „Sir
Alex hefur mjög mikið vit á knatt-
spyrnu og ég lærði mikið á því að
starfa með honum á síðasta tímabili.
Ég ber mikla virðingu fyrir honum
og hann er frábær knattspyrnu-
stjóri,“ sagði Queiroz en hann var
aðstoðarþjálfari Fergusons á síðustu
leiktíð.
QUEIROZ vill ekki að Luis Figo
yfirgefi Real Madrid en það hafa
verið sögusagnir um að Figo muni
yfirgefa Real Madrid eftir komu
David Beckhams til félagsins. „Ég
trúi því að Beckham og Figo geti
leikið saman en þeir eru báðir frá-
bærir knattspyrnumenn. Einu skipt-
in sem ég vil ekki hafa þá í byrj-
unarliðinu á næstu leiktíð er þegar
þeir verða meiddir,“ sagði Queiroz.
CLIVE Clark, leikmaður Stoke,
hefur skrifað undir nýjan tveggja
ára samning við félagið en samning-
ur hans rann út fyrr í mánuðinum.
Clark er 23 ára gamall varnarmaður
og kemur frá Írlandi.
ROBERTO Mancini, knattspyrnu-
stjóri Lazio, hefur greint frá því að
Florentino Perez, forseti Real
Madrid, hafi beðið sig um að verða
knattspyrnustjóri Real Madrid áður
en þeir réðu Carlos Queiroz. „Ég hef
sagt við forráðamenn Lazio að ég
ætli að vera áfram hjá liðinu og ég
stend við mín orð, en Perez hringdi í
mig og bað mig um að taka við Madr-
idarliðinu,“ sagði Mancini.
ÞUNGAVIGTARBOXARINN Vit-
ali Klitschko heldur áfram að biðla
til Lennox Lewis um að fá að berjast
við hann aftur. Lewis sigraði
Klitschko um síðustu helgi en marg-
ir töldu að sigur Lewis hefði ekki
verið sanngjarn. „Ég vona að Lewis
berjist við mig aftur. Ég kom öllum á
óvart um helgina og ég veit að ég get
sigrað hann,“ sagði Klitschko en það
þurfti að sauma 60 spor í andliti hans
eftir bardagann við Lewis.
ARIEL Ortega frá Argentínu þarf
að greiða Fenerbahce 840 milljónir
íslenskra króna í sekt og er í leik-
banni til 30.desember 2003. FIFA
hefur ákveðið þetta en Ortega gekk
til liðs við tyrkneska félagið Fener-
bahce í júní 2002. Hann fann sig ekki
í Tyrklandi og neitaði að leika með
Fenerbache þó hann væri samnings-
bundinn félaginu og því hefur FIFA
gripið til þessara aðgerða.
GUÐMUNDUR Helgi Þorsteinsson
hefur verið ráðinn til starfa sem
framkvæmdastjóri tæknimála hjá
Alþjóðablaksambandinu og mun
hefja störf á næstu vikum. Al-
þjóðablaksambandið, FIVB, hefur
aðsetur í Lausanne í Sviss og er
það alþjóðasérsamband sem er
með flestar þjóðir innan sinna raða
eða alls 217 þjóðir. „Ég er mjög
ánægður fyrir hönd þeirra sem
hafa lagt hönd á plóginn hér á Ís-
landi hvað blakið varðar und-
anfarin ár. Það er mikil viðurkenn-
ing fyrir okkur að ég verð fulltrúi
Íslands á þessu sviði enda ekki oft
sem Íslendingar fá tækifæri til að
starfa í alþjóðlegum sérsam-
böndum,“ sagði Guðmundur í gær
en hann er fertugur að aldri og lék
í efstu deild í tvo áratugi með ÍS.
„Ég hef verið eftirlitsmaður árs-
reikninga FIVB undanfarin fjögur
ár og þekki ágætlega til á þessum
vígstöðvum. Íþróttin er í mikilli
sókn og um fimmtíu manns starfa
á skrifstofunni. Blakið er ein vin-
sælasta íþróttin á Ólympíu-
leikunum og eina íþróttin þar sem
keppt er bæði úti og inni, en
strandblakið verður æ vinsælla
með hverju árinu sem líður.“
Guðmundur mun hafa eftirlit
með starfi sérsambanda innan
FIVB auk þess sem framtíðarsýn
FIVB til ársins 2008 verður á hans
könnu. „Þetta er spennandi verk-
efni en ég veit ekki hve lengi ég
verð í þessu starfi enda er ráðn-
ingarsamningurinn opinn, eins og
sagt er,“ sagði Guðmundur.
Guðmundur til starfa hjá
Alþjóða blaksambandinu
Guðmundur Helgi Þorsteinsson
Stefán Arnarson er þjálfari ís-lenska kvennalandsliðsins og
segir hann góðar líkur á því að lið-
ið komist áfram úr riðlinum, en
þrjú lið halda áfram á næsta stig
keppninnar sem verður í maí á
næsta ári. „Þessi riðlakeppni á að
fara fram í nóvember og það á að
leika heima og heiman en ég held
að einhver breyting verði þar á og
samið um að leika þetta á annan
hátt, annars verður þetta svo gríð-
arlega mikill kostnaður. Þessar
þjóðir hafa varla efni á slíku móta-
haldi og vænlegra er fyrir alla að
leika þetta bara einhvers staðar á
nokkrum dögum.
Portúgal og Makedónía eru í
fyrsta styrkleikaflokki en við og
Ítalía í öðrum. Miðað við leikina í
Portúgal á dögunum tel ég okkur
eiga jafna möguleika á móti þeim,
það voru portúgalskir dómarar úti
um daginn og þeir hjálpuðu okkur
ekki neitt,“ segir Stefán um leikina
í Portúgal.
„Þrjú lið komast áfram og þau
leika í maí/júní á næsta ári og þá
koma inn liðin sem urðu ekki í sex
efstu sætunum á EM í Danmörku í
desember. Þetta er svipað kerfi og
kvennalandsliðið í fótboltanum hef-
ur verið í.
Við vitum lítið um Makedóníu
annað en að þær eru mjög sterkar.
Sömu sögu er að segja af Ítalíu, við
vitum lítið um þær en teljum okk-
ur eiga að geta unnið þá leiki.
Reyndar var HM haldið á Ítalíu
fyrir tveimur árum og það setti
svolítinn kraft í kvennaboltann
þar. Markmiðið hjá okkur er að
komast áfram úr riðlinum og vona
síðan að við verðum heppin þegar
dregið verður í vor,“ segir Stefán.
Um framhaldið hjá liðinu segir
hann: „Við förum í æfingaferð til
Danmerkur í ágúst, síðan er mögu-
leiki á móti í Svíþjóð síðar, en það
er ekki staðfest ennþá, og loks för-
um við til Póllands í október.
Við tókum fína rispu fyrir ferð-
ina til Portúgals en annars erum
við ekki að æfa, það verða átta eða
níu stelpur að spila erlendis í vetur
þannig að liðið mun ekki hittast
mikið fyrr en að þessum verkefn-
um kemur.
Þetta er talsvert öðruvísi núna
en áður þegar allar stelpurnar
spiluðu hér heima. Þetta var auð-
vitað draumaaðstaða en því miður
vorum við ekki alveg vakandi fyrir
því.“
Hver er staða íslenska kvenna-
landsliðsins í alþjóðlegum hand-
knattleik um þessar mundir?
„Staðan er betri en áður og það
er kominn harður kjarni af stelp-
um sem hafa mikinn metnað, en
það vantar ennþá fleiri slíkar
þannig að breiddin verði meiri.
Sem dæmi um stöðu okkar má
nefna að við höfum undanfarin ár
leikið talsvert af landsleikjum við
mjög sterkar þjóðir og liðið hefur
staðið sig vel og vakið athygli.
Danir hefðu til dæmis aldrei boðið
okkur að koma ef við hefðum ekki
staðið okkur vel að undanförnu.
Ég tel því að það hafi orðið fram-
farir og að við séum á réttri leið.
Þetta kostar allt mikla peninga
en þegar ég tók við liðinu var gerð
þriggja ára áætlun þar sem gert
var ráð fyrir tólf til fjórtán lands-
leikjum á ári og það hefur staðist.
Ég held að ef við náum því að fá
verkefnin náum við árangri. Gall-
inn er aftur á móti sá, og hefur oft
loðað við kvennalandslið, að náist
ekki árangur strax er hætt við að
þeir sem ráða ferðinni gefist upp á
verkefninu. Mönnum ætti þó að
vera ljóst að árangur næst ekkert
einn, tveir og þrír frekar en í öðr-
um greinum. Ég held að Ísland
eigi ekki langt í að geta státað af
ágætis kvennalandsliði í hand-
bolta,“ sagði landsliðsþjálfarinn.
Markmiðið
að komast
áfram úr
riðlinum
ÍSLENSKA kvennalandsliðið í
handknattleik lék fyrir skömmu
þrjá vináttulandsleiki við Portú-
gala ytra, tapaði tveimur naum-
lega og vann einn. Leikir þessir
voru liður í undirbúningi liðsins
fyrir forkeppni Evrópukeppni
kvennalandsliða. Þar er Ísland
með Portúgal, Makedóníu og
Ítalíu í riðli, en dregið var á dög-
unum.
Stefán Arnarson, landsliðsþjálfari
kvenna í handknattleik
FRAMARAR verða með í Evr-
ópukeppni félagsliða í handknatt-
leik liða sem skipuð eru leik-
mönnum sem fæddir eru 1986 eða
síðar. Mótið verður haldið í Svíþjóð
í tengslum við Partille Cup mótið og
hefst á miðvikudaginn. Sautján lið
verða með í þessu móti og er þeim
skipt í fjóra riðla. Framarar eru
með Barracuda frá Makedóníu, TV
Kornwestheim frá Þýskalandi og
HK Waasmunster frá Belgíu í riðli.
Partille Cup er nú haldið 34. árið
í röð og þar verða 725 lið frá 41
landi.
Þess má geta að Helga Magn-
úsdóttir verður í framkvæmda-
nefndinni fyrir þetta Evrópumót
drengja og tveir íslenskir dómarar
dæma þar, þeir Arnar Sigurjónsson
og Svavar Ö. Pétursson, en þetta er
í annað sinn sem þeir fara á svona
mót, en í tenglsum við mótið er
einnig dómaranámskeið.
Framarar í Evrópu-
keppni ungmenna
ÚRSLIT
KNATTSPYRNA
Bikarkeppni KSÍ,
VISA-bikar kvenna, 8-liða úrslit:
Hásteinsvöllur: ÍBV – KR .....................20
Hlíðarendi: Valur – Þór/KA/KS ............20
Stjörnuvöllur: Stjarnan – Fjölnir .........20
Kaplakrikavöllur: FH – Breiðablik.......20
1. deild karla:
Kópavogsvöllur: HK – Keflavík ............20
Ólafsfj.v.: Leiftur/Dalvík – Afturelding20
Ásvellir: Haukar – Þór...........................20
3. deild karla:
Leiknisvöllur: Leiknir R. – ÍH..............20
Gervigras Laugardal: Afríka – Reynir S.
..................................................................20
Boginn: Vaskur – Reynir Á. ..................20
Blönduósvöllur: Hvöt – Magni ..............20
Djúpavogsvöllur: Neisti D. – Einherji .20
Eskifjarðarv.: Fjarðabyggð – Huginn..20
SUND
Keppni á aldursflokkameistaramóti Ís-
lands í sundi, AMÍ, hefst í Jaðarsbakka-
laug á Akranesi. Mótið stendur til
sunnudags en í því taka þátt rúmlega
300 ungmenni, 18 ára og yngri, frá 20 fé-
lögum.
Í KVÖLD