Morgunblaðið - 27.06.2003, Page 53
ÞESSI kvikmynd eftir einn leikstjóra
Beðmála í borginni er uppfull af virt-
um leikurum og skærum stjörnum.
Sjálfur Al Pacino leikur Eli Wurman,
vel þekktan og virtan blaðafulltrúa
fína og áhrifaríka fólksins í New
York. Hann þykist hafa séð allt, þeg-
ar stærsti viðskiptavinur hans kemur
sér í klandur og hneyksli.
Cary Launer (Ryan O’Neal) er
frægur leikari og jafn góður í því að
ráðskast með alla í kringum sig og að
standa sig stórkostlega á hvíta tjald-
inu. En einhvern veginn virðist hann
ekki ráða nógu vel við smástirnið Jilli
(Téa Leoni) og biður Eli vinsamleg-
ast að fylgja henni út úr lífi sínu. Það
virðist ekki vera sérlega erfitt verk-
efni, þar til Eli kemur í næturteiti eitt
og fær þá vægt áfall við það sem þar
ber fyrir augu. Hneyksli sem bendla
má við marga af kunningjum Elis,
fína fólkið.
Myndin hefur fengið blendna dóma
í bandarísku pressunni en þeir sem
sáttir eru líkja henni gjarnan við
gömlu Sweet Smell of Success frá
1957 með Burt Lancaster og Tony
Curtes, af því leyti að báðar lýsi þær
hinum harðneskjulegum hliðum
skemmtanabransans á mjög trúverð-
ugan máta.
Kreppir að karli
Basinger og Pacino þreytuleg.
Laugarásbíó frumsýnir kvikmyndina
Kunningjar mínir (People I Know)
Leikstjórn: Daniel Algrant.
Aðalhlutverk: Al Pacino, Kim Basinger,
Ryan O’Neal, Téa Leoni og Richard
Schiff.
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. JÚNÍ 2003 53
KEFLAVÍK
kl. 6, 8 og 10.
AKUREYRI
kl. 6, 8 og 10.
ÁLFABAKKI
Kl. 5.50, 8 og 10.15.
KRINGLAN
Kl. 5.50, 8 og 10.10.
Svalasta mynd
sumarsins
er komin.
KVIKMYNDIR.IS
KRINGLAN
Kl. 8 og 10.10.
ÁLFABAKKI
Kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.20.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4. Ísl. tal
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 3.45.
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 8 og 10.
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 6.
KRINGLAN
Sýnd kl. 6.
ÁLFABAKKI
kl. 4, 6, 8 og 10.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. B.i. 16.
97.7
SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA
KL. 5.50, 8 OG 10.30.
B.i. 12 ára
ÍSLENSKA hljómsveitin Leaves
hyggur á útrás til Vesturheims
því 9. september næstkomandi er
áætluð útgáfa breiðskífu hljóm-
sveitarinnar í Bandaríkjunum.
Útgáfu annast fyrirtækið Dream-
Works sem meðal annars hefur
fyrir á snærum sínum Papa
Roach, All American Rejects og
Jimmy Eat World.
Smáskífur með lögum hljóm-
sveitarinnar fara að óma í banda-
rískum útvarpsstöðvum upp úr
miðjum júlí en breiðskífan kom
áður út í Evrópu fyrir tæpu ári. Í
bandarísku útgáfunni verða
nokkur laganna endurgerð en
einnig bætist við nýtt lag,
„Sunday Lover“.
Í kjölfar útgáfunnar vestra eru
uppi áætlanir um tónleikaferðir
um Bandaríkin víð og breið.
Þar með hefur fundist lausn á
deilu sem kom upp og fluttar
voru fregnir af fyrir skömmu þar
sem gömul bandarísk hljómsveit
sem starfandi var á sjöunda ár-
unum undir nafninu The Leaves
gerði athugasemd við að íslensku
Leaves notuðu sama nafn.
Undanfarna mánuði hefur
hljómsveitin unnið að undirbún-
ingi vesturfarar
og tónsmíðum og
munu liðsmenn
bandsins leyfa
löndum sínum að
heyra hvað þeir
hafa upp á að
bjóða á þrennum
tónleikum hér-
lendis í byrjun
júlí.
Tónleikarnir
verða 1., 3., og 5.
júlí, þeir fyrstu á
Kaffihúsinu 11
við Laugaveg,
aðrir tónleikarnir á Gauki á
Stöng en ekki liggur ljóst fyrir,
samkvæmt fréttatilkynningu,
hvar síðustu tónleikarnir verða
haldnir.
Hljómsveitn Leaves er skipuð
þeim Arnari Guðjónssyni söngv-
ara og gítarleikara, Halli Halls-
syni á bassa, Arnari Ólafssyni á
gítar, Nóa Steini Einarssyni á
trommur og Andra Ásgrímssyni á
hljómborði.
Hljómsveitin Leaves mun spila fyrir landsmenn í að-
draganda útrásar til Bandaríkjanna.
Laufin leika
og vestur
reika
HILLARY Duff virðist vera ein af
aðalungpæjunum í Hollywod um
þessar mundir og hér á landi er hægt
er að sjá hana í myndinni um Unga
spæjarann Cody Banks, og svo nú í
fyrstu kvikmyndinni með henni í að-
alhlutverki, Lizzie Maguire.
Myndin byggir á aðalpersónu sam-
nefndra sjónvarpsþátta. Þar segir frá
félögunum Lizzie, Gordo, Kate og Et-
han. Þau fara nú í skólaferðalag til
Rómar, þar sem Lizzie er ruglað
saman við hina ítölsku Isabellu, sem
er annar hlutinn í vinsælu poppdúói,
og verður skotin í fyrrverandi kær-
asta Isabellu, Paolo. Lizzie breytist
úr álkulegri unglingsstúlku í fallega
poppstjörnu en þá fara líka vanda-
málin að banka upp á. Gordo, vinur
hennar, verður að reyna að skilja til-
finningar sínar í garð Lizzie og sjálf
verður hún að gera upp við sig hvað
sönn vinátta gengur út á.
Myndin gekk vel í Bandaríkjunum
þar sem hún var frumsýnd í maí og
skilaði tvöfalt meira fé en hún kost-
aði.
Popp-
draumar
Lizzie fellur fyrir ítölskum sjarmör.
Sambíóin frumsýna kvikmyndina
Lizzie Maguire. Leikstjórn: Jim Hall.
Aðalhlutverk: Hilary Duff, Adam Lam-
berg, Robert Carradine, Hallie Todd,
Jake Thomas, og Ashlie Brillault.