Morgunblaðið - 29.06.2003, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 29.06.2003, Blaðsíða 48
SÖNGLEIKURINN Grease var frumsýndur í Borgarleikhúsinu á fimmtudagskvöldið en þetta er í þriðja sinn sem verkið er sett upp hérlendis á síðustu árum. Árið 1994 sýndi Söngsmiðjan þennan þekkta rokksöngleik á Hótel Íslandi með Guðjóni Bergmann og Jónu Sigríði Grétarsdóttur í hlutverkum Danny Zuko og Sandy Olsson. Fjórum árum síðar var röðin komin að Leikfélagi Reykjavíkur, sem setti upp Grease með Selmu Björnsdóttur og Rúnari Frey Gíslasyni í aðalhlutverkunum sem Birgitta Haukdal og Jón Jósep Sæbjörnsson fara með nú. Nýjasta uppfærslan er staðfærð og leikur Birgitta ekki Sandy heldur Sandí og er Jón Jósep Danni en ekki Danny. Ný tegund af söngleik Söngleikurinn er eftir Jim Jacobs og Warren Casey en þeir höfðu lengi verið vinir áður en þeir sömdu Grease. Hugmyndin var að gera nýja tegund af söngleik og brjóta viðtekn- ar venjur. Þeir ákváðu að láta söng- leikinn gerast seint á sjötta áratugn- um og snúast um gullöld rokksins. Þess má geta að rokktónlistin í Grease þótti sæmilega hallærisleg á tímum Led Zeppelin, Jimi Hendrix og Rolling Stones en eitthvað við tón- listina og tímann heillaði þá félaga. Söngleikurinn hlaut nafnið Grease vegna þess að á þessum tíma var allt löðrandi í hárolíu og fitugum skyndi- réttum þar vestra. Þeir reyndu hug- mynd sína á almenningi í fyrsta sinn hinn 5. febrúar 1971 í tilraunaleik- húsi í Chicago. Verkið gekk betur en nokkuð annað hjá leikhúsinu og New York var næsta skref. Fjórðungur þjóðarinnar fór á Grease í bíó Söngleikurinn var frumsýndur á Broadway árið 1972 og hefur notið mikilla vinsælda æ síðan. Þess má geta að Richard Gere náði almennings- hylli í hlutverki Danny á Broadway. Vinsældir verksins jukust enn þeg- ar samnefnd mynd með John Travolta og Oliviu Newton-John var frum- sýnd árið 1978 en þau slógu í gegn í hlutverk- um sínum. Lögin „Sum- mer Nights“ og „You’re the One I Want“ náðu víða toppsæti vinsældalista. Myndin naut að sjálf- sögðu einnig vinsælda hérlendis og náði röðin við Háskólabíó langa leið að Suðurgötu. Engar staðfestar tölur eru til varðandi aðsóknina á Grease en ljóst er að myndin er á meðal að- sóknarmestu kvikmynda á Íslandi. „Um fjórðungur þjóðarinnar hefur nú séð þá kvikmynd og sá sem einna oftast hefur séð myndina hefur séð hana sextán sinnum,“ segir í Morg- unblaðinu 1979. Myndin fékk eina Óskarsverð- launatilnefningu árið 1979 fyrir lagið „Hopelessly Devoted to You“ og fimm tilnefningar til Golden Globe- verðlaunanna sama ár en hreppti engin. Annað æði í uppsiglingu? Grease-æði hefur sem sagt gengið reglulega yfir landið. Alls urðu sýn- ingarnar á þessum söngleik um rokk, ról og menntaskólarómantík meira en 70 talsins árið 1998. Þetta sama ár var stórmyndin Grease tekin til sýn- inga á ný víða um heim í tilefni tví- tugsafmælis myndarinnar. Ljóst er að það hefur enn ýtt undir vinsældir söngleiksins enda ýmsar uppákomur tengdar Grease vinsælar á afmælis- árinu. Svo virðist sem annað Grease- æði sé í uppsiglingu því miðasala á nýju Grease-sýninguna hefur gengið vel. Í tengslum við Grease-æði hafa Grease-æði hefur gengið reglulega yfir landið Rokk, ról og menntaskóla- rómantík Þórður, 10 ára, og Áslaug, 11 ára, í Grease- fötum, þegar æðið stóð hve hæst árið 1979. Frá sýningu Söngsmiðjunnar á Grease árið 1994 en þá voru Guðjón Berg- mann og Jóna Sigríður Grétarsdóttir í aðalhlutverkum. Morgunblaðið/Árni Sæberg Grease var sett upp í Borgarleikhúsinu við miklar vinsældir árið 1998 en þá léku Selma Björnsdóttir og Rúnar Freyr Gíslason þau Sandy og Danny. FÓLK Í FRÉTTUM 48 SUNNUDAGUR 29. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ Fimmtudagur 3. júlí kl. 20 Tónleikar Kammersveitar Tübingen Stjórnandi Guðni A. Emilsson. Á efnis- skrá: Divertimento eftir Mozart, Konsert fyrir tvær fiðlur eftir J. S. Bach, Rondo fyrir fiðlu og strengjasveit eftir Schubert og Holberg-svítan eftir Grieg. Einleikarar á fiðlur: Susanne Calgéer og Julia Galic. Tónleikaferðin er studd af Háskóla Íslands, Goethe Centrum, Þýska Sendiráðinu, Utanríkisráðuneyti Þýskalands og Forseta- embættinu í Berlín. Verð kr. 1.500/1.200. ATH! SALURINN ER LOKAÐUR VEGNA SUMARLEYFA FRÁ 4. JÚLÍ TIL 11. ÁGÚST 2003. 3. SÝNING SUNNUDAG 29/6 - KL. 17.00 UPPSELT 4. SÝNING FIMMTUDAG 3/7 - KL. 20.00 UPPSELT 5. SÝNING FÖSTUDAG 4/7 - KL. 20.00 UPPSELT 6. SÝNING SUNNUDAG 6/7 - KL. 17.00 UPPSELT 7. SÝNING FIMMTUDAG 10/7 - KL. 20 UPPSELT 8. SÝNING FÖSTUDAG 11/7 - KL. 20 ÖRFÁ SÆTI LAUS 9. SÝNING LAUGARDAG 12/7 - KL. 15 ÖRFÁ SÆTI LAUS 10. SÝNING LAUGARDAG 12/7 - KL. 20 ÖRFÁ SÆTI LAUS 11. SÝNING FIMMTUDAG 17/7 - KL. 20 ÖRFÁ SÆTI LAUS ATHUGIÐ ÓSÓTTAR PANTANIR SELDAR DAGLEGA ! POPPBANDIÐ Á móti Sól lætur í þessari viku frá sér plötuna Fiðr- ildi. Á plötunni eru meðlimir bands- ins samir við sig og tryggir fyrri tónlistarstefnu en síðast létu þeir frá sér plötu fyrir jólavertíðina 2001, ÁMS og því hartnær tvö ár frá síðustu breiðskífu þeirra. „Þetta er önnur plata hljómsveit- arinnar eins og hún er núna, en sú fjórða frá upphafi,“ segir Magni Ás- geirsson, söngvari bandsins, sem leit við hjá blaðamanni ásamt Sæv- ari Helgasyni gítarleikara. Auk þeirra Magna og Sævars eru í hljómsveitinni Heimir Eyvindarson, Þórir Gunnlaugsson og Stefán Þór- hallsson. Törn í Hveragerði Á plötunni má heyra nokkra smelli sem fengið hafa að hljóma í vetur, eins og „Drottningar“ og „Keyrðu mig heim“ (sem áður kom út á safnplötu) en meginþorri plöt- unnar samanstendur af glænýju efni: „Við byrjuðum í október á síð- asta ári að vinna við plötuna, semja og þess háttar,“ segir Sævar. „Við tókum eina góða törn í Hveragerði og fengum Hafþór Guðmundsson til að stjórna upptökum.“ Hafþór sá hefur löngum verið kenndur við hljómsveitina SSSól en verið viðriðinn upptökustjórnun fyrir mörg vinsælustu popp- og rokkböndin í dag, eins og Írafár og Í svörtum fötum. Tónlist fyrir elskendur Spurður um titil plötunnar segir Magni að hugsunin hafi ekki síst verið að hafa titilinn sumarlegan og léttan. Hann jánkar því að titillinn geti hljómað yfrið væminn, segir þó að í raun sé titillagið eitt rokk- aðasta og harðasta lagið á plötunni. Þeir Magni og Sævar segjast hreyknir af tónlist sinni: „Við erum löngu hættir að hlusta á gagnrýniraddir.“ Magni minnist á tal um að textar þeirra séu ekki nógu margbrotnir: „Þegar allt kemur til alls er upp- hafspunkturinn „She loves you, yeah, yeah, yeah“, og fólkið sem við erum að spila fyrir er að stórum hluta í slíkum hugleiðingum.“ Bandið á sér ekki hvað síst stóran aðdáendahóp meðal ungmenna sem hafa tekið smellum þeirra opnum örmum. Þegar þeir félagar eru spurðir hvort þeir verði mikið varir við athygli yngri aðdáenda neita þeir því: „Það er mest bara sagt „Hæ“ og kannski spurt „Ertu í hljómsveit?“ og síðan gengið í burtu tístandi.“ Mikið spilað í sumar Framundan hjá þeim félögum er löng og ströng vertíð og mun band- ið spila vítt og breitt á ýmsum skemmtunum. Eiginlegir útgáfu- tónleikar segja þeir þó að verði ekki fyrr en í ágúst en í gærkvöld léku þeir þó á dansleik á klúbbnum Nasa þar sem jafnframt var haldið vel heppnað útgáfuteiti. Í kvöld mun sveitin skemmta í Miðgarði og ljóma þeir Magni og Sævar upp þegar þeir tala um Miðgarð sem þeir segja eitt af fáum húsum á landinu þar sem enn sé hægt að halda almennileg sveitaböll. Seinna í sumar verður hægt að sjá hljómsveitina spila meðal ann- ars á Humarhátíð á Höfn í Horna- firði, á Unglingalandsmóti Ung- mennafélags Íslands á Ísafirði og Þjóðhátíð í Eyjum. Á móti Sól gefur út nýja plötu eftir nær tveggja ára hlé Sumarlegt Fiðrildi Enn eitt sólskinssumarið er í uppsigl- ingu hjá bandinu Á móti Sól. Út er komin ný plata þeirra, Fiðrildi, og ræddi Ásgeir Ingvarsson við tvo með- limi hljómsveitarinnar um aðdraganda útgáfunnar og ungu aðdáendurna. asgeiri@mbl.is AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.