Morgunblaðið - 02.07.2003, Blaðsíða 1
Sumar í
myndlist
Bragi Ásgeirsson fjallar um
sumarsýningarnar Listir 20
Nýtt lag og
nýr rappari
Hljómsveitin Quarashi boðar
stefnubreytingu Fólk 39
Grímsey
fyrir öld
Fundnar 100 ára gamlar myndir úr
fórum Willards Fiske Miðopna
STOFNAÐ 1913 176. TBL. 91. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 2. JÚLÍ 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
BANDARÍKJAMENN eru
nú með á prjónunum ómann-
aða, hljóðfráa flugvél sem á
að geta flogið frá Bandaríkj-
unum til árása hvar sem er í
heiminum á tveim klukku-
stundum, að því er greint er
frá á fréttavef BBC í gær.
Breska blaðið The Guard-
ian segir að þessi hljóðfráa
sprengjuflugvél tilheyri nýrri
kynslóð ofurvopna sem
Bandaríkjamenn séu að þróa
í því skyni að geta gert árásir
á óvini sína frá Bandaríkjun-
um. Á næstu 25 árum muni
þessi nýja tækni gera Banda-
ríkjamenn óháða bæði her-
stöðvum utan landamæra
sinna og samvinnu við hefð-
bundin bandalagsríki. Það
kapp sem þeir leggi nú á að
vera engum háðir eigi rætur í
því hve erfitt þeim reyndist
að afla sér alþjóðlegs stuðn-
ings við innrásina í Írak.
Banda-
ríkin
þróa of-
urvopn
Herstöðvar erlend-
is verði óþarfar
OPINBER sjóðþurrð blasir við í auð-
ugasta og fjölmennasta ríki Banda-
ríkjanna, Kaliforníu, en stjórn rík-
isins mistókst að fá fjárlagafrumvarp
sitt samþykkt áður en nýtt fjár-
hagsár hófst í gær. Horfur eru á að
ríkissjóður verði auralaus í sept-
ember nk.
Efnahagskerfi Kaliforníu er það
fimmta stærsta í heiminum, en fjár-
lagahallinn nemur 38,2 milljörðum
dollara. Mörg önnur ríki eiga við
fjárlagahalla að stríða, en ekkert eins
gífurlegan og Kalifornía.
Andstæðingar ríkisstjórans, demó-
kratans Grays Davis, leggja nú allt
kapp á að hrekja hann úr embætti, og
meðal þeirra sem kunna að bjóða sig
fram í embættið er Hollywood-
leikarinn og „gereyðandinn“ Arnold
Schwarzenegger.
Kalifornía
auralaus
Los Angeles. AFP.
FORSETI Þýskalands, Johannes Rau, er í opinberri
heimsókn á Íslandi í boði forseta Íslands, Ólafs Ragn-
ars Grímssonar. Hann kom til landsins í gær ásamt
eiginkonu sinni og dóttur og af því tilefni var boðið
til móttöku á Bessastöðum. Ekki er annað að sjá en
vel hafi farið á með þýska forsetanum og yngstu
kynslóð Íslendinga. Fánar Íslands og Þýskalands
blöktu við hún til marks um vináttu landanna./6
Morgunblaðið/Golli
Forseti Þýskalands í heimsókn
ÍTALSKA ríkisstjórnin, sem tók við for-
sæti innan Evrópusambandsins, ESB, í
gær, ætlar að snúast gegn því, að meiri-
hlutaákvarðanir verði teknar í fleiri
málaflokkum en verið hefur. Kom þetta
fram hjá Franco Frattini, utanríkisráð-
herra Ítalíu, í gær.
Þessi afstaða Ítala gengur þvert gegn
vilja framkvæmdastjórnar ESB og þeirra
ríkja, sem vilja, að meirihlutaákvarðanir
nái til fleiri sviða en áður til að koma í
veg fyrir, að starfsemi sambandsins lam-
ist vegna ágreinings, jafnvel aðeins við
eitt ríki, ekki síst nú þegar 10 ný ríki eru
að fá aðild.
Meirihlutaákvarðanir gilda nú á nokkr-
um sviðum en í drögum að væntanlegri
stjórnarskrá ESB er lagt til, að þær nái
til dæmis einnig til orku-, innflytjenda-
og byggðamála. Sagði Frattini á þingi, að
hann myndi berjast gegn öllum breyt-
ingum að þessu leyti en fyrr í gær lýsti
Carlo Azeglio Ciampi, forseti Ítalíu, yfir
því, að meirihlutaákvarðanir innan ESB
ættu að ná til utanríkis- og varnarmála
og einnig til sumra þátta efnahagsmál-
anna.
AP
Franco Frattini, utanríkisráðherra Ítalíu,
ræðir við fréttamenn í gær.
Ítalir á móti
meirihluta-
ákvörðunum
Róm. AFP.
FRAMKVÆMDASTJÓRI Stofnfisks, Vigfús
Jóhannsson, fagnar setningu bráðabirgðalaga
ríkisstjórnarinnar frá því í gær vegna tilskip-
unar Evrópusambandsins um fiskeldi. Mark-
mið laganna er að hnekkja innflutningsbanni
Íra og Breta á lifandi eldisfiski, seiðum og
frjóvguðum hrognum frá Íslandi og tryggja
þannig mikla hagsmuni íslenskra fyrirtækja.
Vigfús segir að útlitið hafi verið slæmt þegar
bannið tók gildi, viðskiptavinir fyrirtækisins
hafi verið í uppnámi og farnir að horfa til ann-
arra landa með kaup á hrognum. Vonast hann
til að Stofnfiskur, sem er stærsti framleiðandi
laxahrogna á landinu, hljóti ekki fjárhagslegan
skaða af en á árinu stefnir í að laxahrogn frá
Stofnfiski og lúðuseiði frá Fiskeldi Eyjafjarðar
verði seld úr landi fyrir 5–600 milljónir króna.
„Við erum mjög ánægðir með þessi góðu við-
brögð ríkisstjórnarinnar og hvernig hún hefur
tekið á málinu. Menn hafa unnið vel eftir að í
ljós kom hversu alvarlegt ástandið var,“ segir
Vigfús og bindur vonir við að útflutningsleyfi
fáist strax í næstu viku.
Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra segir
að mikið hafi verið í húfi og ríkisstjórnin orðið
að leysa vandann. Reiknar hann með að í fram-
haldinu verði sett ströng reglugerð um inn-
flutning eldisfisks þannig að ekki verði heim-
ilaður innflutningur frá löndum sem hafa
lakari sjúkdómavarnir og -stöðu en Ísland.
Tryggja þurfi að fiskisjúkdómar berist ekki til
landsins.
Átta bráðabirgðalög frá 1991
Forseti Íslands staðfesti bráðabirgðalögin
síðdegis í gær en þetta eru áttundu lögin af
þeim toga sem hafa verið sett frá 1991. Síðast
voru bráðabirgðalög sett í tvígang síðla árs
2001 vegna tryggingamála íslenskra flugfélaga
í kjölfar hryðjuverkanna 11. september það ár.
Framkvæmdastjóri Stofnfisks fagnar lögum um viðskipti með eldisfisk
Miklir hagsmunir tryggðir
Settar verða strangar
reglur um innflutning
eldisfisks til landsins
Markmiðið/23
FORSÆTISRÁÐHERRAR Ísr-
aels og Palestínumanna, Ariel
Sharon og Mahmoud Abbas, héldu
„uppbyggilegan“ fund í Jerúsalem
í gær, og segja fréttaskýrendur að
sáttatónninn í ráðherrunum að
fundinum loknum hafi verið meiri
en heyrst hafi frá leiðtogum þess-
ara deiluaðila í þrjú ár.
„Það sem var jákvætt við þenn-
an fund var að hægt var að ræða
óleyst deilumál á uppbyggilegan
hátt og án þess að farið væri út í til-
gangslaust þref,“ sagði talsmaður
Sharons, Raanan Gissin, að fund-
inum loknum. Kvaðst hann þess
fullviss að frekari fundir leiðtog-
anna yrðu haldnir á næstunni.
Dómsmálaráðherra Ísraels,
Yossef Labid, gekk lengra og sagði
fundinn hafa verið „mjög árang-
ursríkan“ og kvað sér hafa þótt
mest um að heyra upplýsingamála-
ráðherra Palestínumanna, Nabil
Amr, segja að „Palestínumenn vilji
að börn sín gangi í háskóla en endi
ekki líf sitt með því að gera sjálfs-
morðssprengjuárasir“.
Amr sagði helsta árangurinn af
fundinum hafa verið samþykki um
Meiri sáttatónn en áður
Jerúsalem. AFP, AP.
skipan nefnda til að ræða óleyst
deilumál. Munu nefndirnar einkum
fjalla um öryggisgæslu, palestínsk
efnahagsmál og lausn fanga.
Haft var eftir heimildamanni
sem er náinn samstarfsmaður
Sharons að ísraelski forsætisráð-
herrann hefði sagt Abbas að hann
væri reiðubúinn að leyfa Yasser
Arafat Palestínuleiðtoga að fara
frá Ramallah, þar sem honum hef-
ur verið haldið í herkví síðan í des-
ember 2001. Sharon væri þó ekki
tilbúinn til að leyfa Arafat að fara
annað en til Gazaborgar.
Reuters
Abbas og Sharon takast í hendur
fyrir fundinn í Jerúsalem í gær.