Morgunblaðið - 02.07.2003, Qupperneq 11
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. JÚLÍ 2003 11
Kringlunni, sími 588 1680.
Seltjarnanesi, sími 5611680.
iðunn
tískuverslun
Útsala
20-50%
afsláttur
Laugavegi 63, sími 551 4422
Ú
T
S
A
L
A
SJÖTÍU manna hópur á vegum
KFUM og KFUK hélt til Struer í
Danmörku í gær. Tilefnið er nor-
rænt æskulýðsmót, en sambærilegt
mót hefur verið haldið síðan árið
1939. Núna er mótið haldið í mis-
munandi löndum annað hvert ár.
Að sögn Hreiðars Arnar Stef-
ánssonar fararstjóra er íslenski hóp-
urinn sá annar stærsti á mótinu, en
þar er lögð mikil áhersla á að kynn-
ast fólki af öðru þjóðerni. „Ungling-
arnir deila herbergi með unglingum
af öðru þjóðerni. Gist er í fjögurra
manna herbergjum þannig að tveir
Íslendingar eru í herbergi með
tveimur Norðmönnum, Dönum eða
Svíum,“ segir Hreiðar Örn.
Morgunblaðið/Jim Smart
Norrænt æskulýðsmót í Danmörku
STURLA Böðvarsson samgöngu-
ráðherra telur yfirlýsingar Þórólfs
Árnasonar borgarstjóra um að
halda eigi samkeppni um skipulag
Vatnsmýrarsvæðisins ganga í ber-
högg við samkomulag ríkis og borg-
ar um flugvallarsvæðið.
Þórólfur sagði í viðtali við Morg-
unblaðið á sunnudag að halda eigi
samkeppni um skipulag Vatnsmýr-
arsvæðisins á þessu kjörtímabili.
Hann lýsti einnig þeirri skoðun
sinni að hann teldi að innanlands-
flugið myndi flytjast til Keflavíkur.
Vonast eftir góðri sátt
„Fyrir það fyrsta vil ég segja að
ég vænti þess að eiga gott samstarf
við Þórólf Árnason sem borgar-
stjóra og að við getum náð góðu
samkomulagi um áframhaldandi
uppbyggingu í innanlandsfluginu.
Það sem liggur fyrir hins vegar er
að flugvöllurinn verði þarna í
Vatnsmýrinni í tiltekinn tíma. Á
grundvelli samkomulags og sam-
þykktar borgaryfirvalda var lagt út
í endurbyggingu flugvallarins.
Alþingi hefur samþykkt, með
samgönguaáætlun sem gildir til
2014, að miðstöð innanlandsflugsins
verði á Reykjavíkurflugvelli. Eftir
því vinn ég og ég vænti þess að
borgaryfirvöld komi til móts við
þær ákvarðanir ríkisstjórnar og Al-
þingis,“ segir Sturla.
Misskilningur hjá borgarstjóra
Samgönguráðherra segist líta
svo á að þótt borgastjóri viðri hug-
myndir um skipulagssamkeppni sé
ekki verið að útiloka veru flugvall-
arins í Vatnsmýrinni. „Það gætir
hins vegar mikils misskilnings hjá
borgarstjóra þegar hann segir að
það megi auðveldlega reka innan-
landsflugið frá Keflavík. Það er mat
allra sem nærri innanlandsfluginu
koma um þessar mundir að innan-
landsflug myndi leggjast af ef
Reykjavíkurflugvelli yrði lokað.
Það yrði mikið áfall fyrir ferðaþjón-
ustuna í landinu og þjónustuna við
byggðarlögin sem eru næst höfuð-
borginni.
Þannig að ég vonast til þess að
borgarstjóri muni átta sig á þessu
þegar hann hefur komið sér betur
fyrir í stólnum,“ segir Sturla Böðv-
arsson.
Sturla Böðvarsson um framtíð flugvallarins
Vill áframhaldandi upp-
byggingu flugvallarins
VILHJÁLMUR Þ. Vilhjálmsson,
oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykja-
vík, telur að ekki sé tímabært að taka
ákvörðun um skipulagssamkeppni á
Vatnsmýrarsvæðinu fyrr en ákvörð-
un liggi fyrir um hvenær norðaustur-
suðvestur brautin á flugvellinum
verði lögð niður. „Uppbygging þess
svæðis sem þá losnar, þ.e. 7 ha við
Hringbraut og 9 ha svæði austan nú-
verandi byggðar í Skerjafirði, mun
ekki hefjast fyrr en flugöryggi, sem
brautin veitir, verður tryggt annars
staðar, eins og segir í aðalskipulagi
Reykjavíkur,“ segir Vilhjálmur.
Samkeppni á næsta
kjörtímabili
„Í greinargerð með nýju aðalskipu-
lagi Reykjavíkur segir að stefnt sé að
því að efna til samkeppni um heildar-
skipulag Vatnsmýrarinnar á kjörtíma-
bilinu 2002–2006 áður en uppbygging
hefst. Borgarstjórn hefur enga
ákvörðun tekið um hvort af því verði.
Þrátt fyrir að aðalskipulag Reykja-
víkur 2001–2024 geri ráð fyrir að
norður-suður brautin verði lögð niður
árið 2016 en austur-vestur brautin
starfrækt 2016–2024, ríkir mikil
óvissa um framtíð Reykjavíkurflug-
vallar, sbr. sérstaka bókun sem gerð
var þegar umhverfisráðherra stað-
festi aðalskipulag Reykjavíkur en þar
segir að uppbygging í Vatnsmýri og
tímasetning hennar sé háð flutningi
flugstarfsemi af svæðinu sem þýðir að
uppbygging skuli gerð í samráði við
samgönguyfirvöld enda hafi þau þá
mótað sér stefnu um framtíð innan-
landsflugs.
Ennfremur var í kjölfar staðfest-
ingar aðalskipulags Reykjavíkur
skipuð nefnd sem hefur það hlutverk
að fara yfir svæðisskipulag höfuð-
borgarsvæðisins 2001–2024 sem um-
hverfisráðherra staðfesti 20. desem-
ber 2002 og jafnframt að gera tillögur
um landnotkun á flugvallarsvæðinu í
Vatnsmýri. Í skipunarbréfi ráðherra
kemur fram að komist nefndin að
sameiginlegri niðurstöðu skuli hún
gera tillögu um breytingu á svæðis-
skipulagi höfuðborgarsvæðisins á
umræddu svæði í samræmi við nið-
urstöður sínar.
Það er því ljóst að það þarf að út-
kljá fjölmörg álitamál áður en tekin
verður ákvörðun um skipulagssam-
keppni í Vatnsmýrinni,“ segir Vil-
hjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti sjálf-
stæðismanna í borgarstjórn.
Ekki tímabært
að taka ákvörðun
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson um Vatnsmýrarsvæðið