Morgunblaðið - 02.07.2003, Page 21
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. JÚLÍ 2003 21
FYRIR fáeinum mánuðum glödd-
ust menn mjög yfir velgengni Norð-
urljósa þegar ársreikningur fyrir ár-
ið 2002 var birtur.
Fjölmiðlar gerðu
niðurstöðum hans
ágæt skil og fram-
setning þeirra bar
með sér að útvarps-
rekstur og sjón-
varpsrekstur fyr-
irtækisins stæði með ágætum og
skilaði hagnaði enda hefur Stöð 2
auglýst sig að undanförnu sem
„sjónvarpsstöð í blóma“.
Það hefur því vafalaust komið
flatt upp á ýmsa að í lok síðustu viku
skyldi tilkynnt um uppsagnir nokk-
urra starfsmanna á fréttastofu
Stöðvar 2 og Bylgjunnar. Brá þá svo
við að formaður Blaðamannafélags
Íslands, sem starfar á stöðinni og
ritstjóri Fréttablaðsins, sem er fast-
ur álitsgjafi í fréttaskýringaþáttum
hennar, fóru að leita skýringa á
þessum ótíðindum og finna blóra-
böggul í málinu. Og eins og vænta
mátti af áhöfn „Súperztöðvar“, eins
og Stöð 2 kallar sig um þessar
mundir, var Ríkisútvarpið gert að
skotmarki.
Nú eru auglýsingar í RÚV tals-
mönnum Norðurljósa mestur þyrnir
í augum. Við önnur tækifæri hafa
þeir barizt fyrir því að RÚV verði
svipt megintekjustofni sínum sem
eru afnotagjöldin. Þegar öllu er á
botninn hvolft ætti RÚV samkvæmt
þessum kenningum að standa uppi
slyppt og snautt enda ekki að efa að
umræddir hagsmunaðilar kysu helzt
að sjá það endanlega líða undir lok
af hagkvæmnisástæðum. Það yrðu
meiri möguleikar til að hækka
áskriftargjöld og auka við auglýs-
ingatekjur ef keppinautum fækkaði
og samþjöppun fjölmiðla undir
merki Norðurljósa yrði enn meiri en
orðið hefur á undangengnum 15 ár-
um.
Keppinautunum hefur lengi verið
það þyrnir í augum að samkvæmt
útvarpslögum skuli þjónusta RÚV
fjármögnuð með auglýsingum. Svo
hefur reyndar verið allar götur síðan
1930. Með löggjöfinni frá 1985, þeg-
ar rekstur einarekinna útvarps- og
sjónvarpsstöðva var heimilaður, var
áfram ákveðið að Ríkisútvarpið
skyldi fjármagnað með auglýs-
ingum. Það var yfirveguð ákvörðun
ríkisstjórnar og Alþingis, sem ekki
hefur verið breytt. Nýir rekstrarað-
ilar gátu ekki gengið þess duldir
hverjar leikreglurnar voru. Þær
hafa heldur ekki verið þeim meira
fótakefli en svo að á rúmum 15 árum
hefur ómældur gróði runnið í vasa
þeirra, sem komið hafa að rekstri
Stöðvar 2. Þeir hafa því ekki undan
neinu að kvarta.
Í viðhorfskönnun sem Gallup
gerði meðal almennings í fyrra sögð-
ust 86,5% þjóðarinnar vilja ann-
aðhvort hafa auglýsingar í sama
mæli í útvarpi og sjónvarpi Rík-
isútvarpsins og nú er eða auka
tekjur af þeim. Sama könnun leiddi í
ljós, að flestir landsmenn eru þeirr-
ar skoðunar að RÚV eigi að reka
áfram sem ríkisstofnun í núverandi
mynd. Á hinn bóginn njóta beinar
fjárveitingar á fjárlögum mests
fylgis landsmanna í stað afnota-
gjalda þegar spurt er um tekjuöflun
RÚV. Samtök auglýsenda hafa lýst
því sem sjálfsögðum hlut og eðlileg-
um þætti í tjáningarfrelsinu innan
hins frjálsa markaðskerfis að aug-
lýsingar birtist í miðlum Rík-
isútvarpsins.
Það væri ókurteisi að blanda sér í
rekstrarleg málefni Stöðvar 2, upp-
setningu á vaktatöflum og hvað
menn geta hagrætt í mannahaldi
með slíkum breytingum. Aðgerðir af
sambærilegum toga hafa leitt til
þess að föstum starfsmönnum RÚV
hefur fækkað um rúmlega 50 á sl.
fimm árum. Þegar samkeppni við
RÚV um auglýsingar er kennt um
uppsagnir fólks á fréttastofu Stöðv-
ar 2, fer ekki hjá því að upp rifjist
þau yfirboð sem viðgengizt hafa fyrr
og síðar, þegar Stöð 2 hefur talið sig
þurfa að ná til sín góðum og gegnum
starfskröftum frá RÚV. Það er göm-
ul saga, sem allir kannast við, enda
kjarninn í starfsliði Stöðvar 2 til
margra ára þjálfaður hjá RÚV.
Spyrja má: Hafa forráðamenn
Stöðvar 2 nú gert sér grein fyrir að
þessi yfirboð hafi verið of dýr og
ódýrari starfskraftar séu nú látnir
hverfa af vettvangi af þeim sökum?
Spaugilegast í þessu máli er að
talsmenn Stöðvar 2 láta sem þeir viti
ekki af samkeppni við Skjá einn eða
Fréttablaðið, sem með undirboðum
hafa komið auglýsingamarkaði fjöl-
miðlanna í uppnám á undanförnum
misserum. Ríkisútvarpið hefur ekk-
ert síður orðið fyrir barðinu á auk-
inni samkeppni um auglýsingar en
Stöð 2, Morgunblaðið eða DV.
Heildarauglýsingatekjur RÚV árið
2002 voru þar af leiðandi nánast þær
sömu og árið 1998 að krónutölu.
Hinn raunverulegi sökudólgur, sem
talsmenn Stöðvar 2 vilja af ein-
hverjum ástæðum ekki nefna, er
auðvitað Skjár einn. Tilkoma þeirrar
stöðvar hefur leitt til verulegra upp-
sagna á áskriftum Stöðvar 2 og
tekjumissis á auglýsingamarkaði.
Og hvað gerist svo þegar Skjár tveir
hefur útsendingar?
Það er gjörsamlega út í bláinn að
kenna Ríkisútvarpinu um hagræð-
ingaraðgerðir sem forráðamenn
Stöðvar 2 gera á rekstri sínum til
samræmis við einhver hagn-
aðarmarkmið, sem þeir sjálfir kjósa
að setja sér á hverjum tíma. Skila-
boðin sem berast frá „Súperztöð“
þessa dagana eru því kolröng og
ekkert mark á þeim takandi.
Kolröng skilaboð
frá Súperztöð
Eftir Markús Örn Antonsson
Höfundur er útvarpsstjóri RÚV.
SUMARIÐ er tími ferðalaga og mikillar umferðar bíla, sem eru ágætis
tæki, en ökumennirnir ráða ferðinni. Í Árnessýslu aka margir, bæði um
þjóðveg 1 og þá vegi alla sem liggja að sumarbústöðum og ferðamanna-
stöðum er margir sækja, ekki sízt um helgar.
Hellisheiðin er fjölfarin, á annan tug þúsunda bíla fara
um hana hverja helgina á fætur annarri að sumrinu. Margir
aka of hratt og mega búst við því að of hraður akstur endi
með sekt og punktasöfnun, sem kann að leiða til þess að við-
komandi ökumaður missi ökurétt sinn í þrjá mánuði. Öku-
skírteininu tapa menn þegar 12 punktum er náð ef þeir
hafa náð fullnaðarskírteini, en 7 punktar duga til þess að
þeir sem hafa bráðabirgðaskírteini tapi því í þrjá mánuði.
Í Árnessýslu heldur lögreglan uppi eftirliti með umferð og því miður eru
tugir ökumanna teknir fyrir of hraðan akstur í hverri viku, en alltaf bætast
nýir í hópinn. Það sem af er ársins hafa 1250 ökumenn verið teknir fyrir of
hraðan akstur, 53 fyrir ölvunarakstur og þeir skipta hundruðum sem ekki
hafa ökuskírteini meðferðis. Þessar tölur þýða að 7 manns eru kærðir fyrir
of hraðan akstur á hverjum einasta degi að meðaltali. Reyndar voru 104
teknir fyrir hraðakstur eina helgina í júní. Nú má búast við annarri mestu
umferðarhelgi sumarsins, þeirri fyrstu í júlí. Lögregla mun halda uppi sér-
stakri gæzlu um helgina, þar á meðal hraðamælingum og eftirliti með ölv-
unarakstri, auk þess að ökumenn verða spurðir um ökuskírteini, athugað
með bílbelti og annan öryggisbúnað og fylgzt með því hvort ökutæki hafi
verið skoðuð.
Það er vandaverk að aka Hellisheiðina um helgar. Umferð alls konar
ökutækja er mikil. Hámarkshraðinn er 90 kílómetrar miðað við klukku-
stund, en hann gildir ekki um stærri ökutæki og þau sem aka með tengi-
vagn, misvel búnar kerrur og tjaldvagna, að ógleymdum þeim ótrúlega
miklu hrossaflutningum sem eiga sér stað í alls kyns kerrum, sem tengdar
eru við misjafnlega kraftmikla bíla. Oft hljótast nokkur vandræði vegna
þess að hámarkshraði þessara ökutækja er 80 kílómetrar. En víða eru axl-
ir, sem margir flutningabílstjórar nýta til þess að hleypa annarri umferð
fram úr. Þetta mættu ökumenn fólksbíla með tengivagna taka upp. Þess
skal getið hér, að 24 ökutæki sem falla undir þennan flokk hafa verið
stöðvuð vegna hraðaksturs. Minnt er á að ökutæki þurfa sérstaka spegla
vegna breiddar tengivagns. Sumir aka einfaldalega of hægt, en þá má
víkja út á axlirnar til þess að hleypa annarri umferð fram fyrir. Næsta
helgi verður mikil umferðarhelgi. Ökumenn eru boðnir velkomnir í Árnes-
sýslu og hvattir til þess að sýna sérstaka aðgæzlu, eins og reyndar allir sem
verða úti að aka um helgina.
Létta benzínfótinn örlítið – 1250
teknir fyrir hraðakstur á hálfu ári
Eftir Ólaf Helga Kjartansson
Höfundur er sýslumaður og lögreglustjóri á Selfossi.
Morgunblaðið/Kristinn
Radarmælingar undir Ingólfsfjalli. DILBERT mbl.is
TIL LEIGU
Í þessu glæsilega landsþekkta
húsi Húsgagnahallarinnar við
Bíldshöfða 20 er ca 1.400 fm
óinnréttað rými á fjórðu hæð
(öll hæðin) til leigu. Hentar vel
fyrir ýmiss konar starfsemi.
Afhending eftir samkomulagi.
Frábær staðsetning. Fjöldi
bílastæða. Einstakt útsýni. Út
frá hæðinni er útgengt á stór-
ar hellulagðar svalir, sem
liggja meðfram allri hæðinni.
Einnig til leigu 350 fm verslunarrými í húsinu. Í húsinu eru fyrir lands-
þekkt fyrirtæki, s.s Húsgagnahöllin, Intersport, Krónan, Nevada Bob og
Bakarameistarinn.
Upplýsingar veita Baldvin í síma 897 8040
og Ágúst í síma 894 7230
Hverafold 1-3
Sími 595 9080
Sími 595 9000
holl@holl.is
Opið virka daga kl. 9-18
www.holl.is
Njörvasund
MIKIÐ ENDURNÝJUÐ tæplega 94 fm 4ra herb. efri sérhæð í
fallegu þríbýli á þessum vinsæla stað í sundunum. Baðherbergið
er uppgert, búið að endurnýja þak, ofna, skólp og raflagnir. Verð
14,9 millj.
Hlíðarsmára 15
Sími 595 9080
Sími 595 9000
holl@holl.is
Opið virka daga kl. 9-18
www.holl.is
Krosseyrarvegur
Falleg 3ja herbergja 57,4 fm íbúð auk 30 fm bílskúrs á frábærum
stað í Firðinum búið er að endurnýja íbúðina á smekklegan hátt,
bílskúrinn er alvöru jeppaskúr. Verð 10,9 millj. 5305
Hlíðarsmára 15
Sími 595 9080
Sími 595 9000
holl@holl.is
Opið virka daga kl. 9-18
www.holl.is