Morgunblaðið - 02.07.2003, Blaðsíða 31
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. JÚLÍ 2003 31
Gönguferð í Öskjuhlíðina Stuðn-
ingshópur um krabbamein í blöðru-
hálskirtli efnir til gönguferðar í
Öskjuhlíðina í dag, miðvikudaginn 2.
júlí, ef veður leyfir. Gönguferðin kem-
ur í staðinn fyrir hefðbundinn rabb-
fund. Gengið verður frá húsi Krabba-
meinsfélagsins í Skógarhlíð 8 í
Reykjavík, kl. 17. Séð verður fyrir
akstri fyrir þá sem treysta sér
ekki til að ganga.
Nýtt afl efnir til almenns fundar
um málefni varnarliðsins í Ölveri í
Glæisbæ kl. 17.30 í dag, miðvikudag-
inn 2. júlí. Framsögumenn eru Þor-
valdur Gylfason prófessor og Jónas
Antonsson háskólanemi. Fundarefnið
er brottför varnarliðsins. Hver er
varnarþörfin? Þarf að koma upp her
eða heimavarnarliði? Á að semja við
NATO um að Íslendingar haldi við
varnarviðbúnaði og hafi hér lágmarks
varnar- og öryggisviðbúnað? Hvað
kostar brottför varnarliðsins o.fl. All-
ir velkomnir á fundinn.
Í DAG
SAMFYLKINGIN í Reykjavík hef-
ur sett á laggirnar hverfafélag í
Breiðholti. Tilgangur félagsins er
m.a. að vera vettvangur fyrir um-
ræðu og ályktanir um málefni hverf-
isins. Á næstunni mun félagið leita
eftir samráði við önnur samtök og
stofnanir í hverfinu um ýmis mál.
Jafnframt mun félagið leitast við að
vera tengiliður á milli íbúa og borg-
aryfirvalda í Breiðholti fyrir hönd
Samfylkingarfélags Reykjavíkur
sem er aðili að Reykjavíkurlistan-
um.
Í stjórn félagsins voru kjörin:
Stefán Jóhann Stefánsson formaður,
Hörður Stefánsson ritari og með-
stjórnendur eru þau Lilja Guð-
mundsdóttir, Magnús Már Guð-
mundsson og Jóhanna Eyjólfsdóttir.
Hverfafélag
Samfylkingar
í Breiðholti
SKÓLAHLJÓMSVEIT Akraness
hélt nýverið utan og spilaði á Ís-
lendingahátíð í Kaupmannahöfn í
Danmörku og stórri tónlistarhátíð í
Gautaborg í Svíþjóð. Hljómsveitin
tók þátt í keppni í sínum þyngd-
arflokki og stóð sig vel og lenti í 2.
sæti, með 87 stig af 100 mögulegum
og voru dómarar mjög hrifnir af
hljómsveitinni, segir í frétta-
tilkynningu. Ferðin gekk í alla staði
mjög vel. Stjórnandi hljómsveit-
arinnar er Heiðrún Hámund-
ardóttir.
Skólahljómsveit
Akraness í 2. sæti
PÓST- og fjarskiptastofnun hefur
ákveðið að fresta gildistöku númera-
flutnings í farsímanetum sem til stóð
að kæmi til framkvæmda 1. júlí nk.
Notendur heimilissíma hafa síðan
í lok árs 2000 getað flutt númer á
milli þjónustuveitenda og til stendur
að innleiða þennan möguleika í far-
símaþjónustu.
Og Vodafone hefur beðið um þessa
frestun þar sem mikil vinna á sér
stað innan félagsins við að sameina
GSM-símstöðvar og reikningakerfi
félagsins vegna samruna Íslands-
síma, Tals og Halló. Þessar breyt-
ingar eru forsenda þess að vinna við
númeraflutning geti haldið áfram
innan félagsins.
Ákvörðunar um nýja dagsetningu
er að vænta fyrir lok ársins.
Fresta gildistöku númera-
flutnings í farsímanetum
Póst- og fjarskiptastofnun
DILBERT mbl.is
ATVINNA
mbl.is
w
w
w
.d
es
ig
n.
is
©
20
02
-
IT
M
90
47
V. Fellsmúla • S. 588 7332
Opi›: Mán. - föst. 9-18,
Laugardaga 10-14
Ba›innréttingar
Græn vi›aráfer›
Breidd 130 sm
Kirsuberja fulning
Breidd 120 sm
Græn vi›aráfer›
Breidd 90 sm
Kirsuberja fulning
Breidd 90 sm
Hvít fulning
Breidd 90 sm
Mahóní fulning
Breidd 80 sm
Ávalur ölur
Breidd 90
• Takmarka›ur
fjöldi
Dúndur sumartilbo›
Uppgefnar breiddir mi›ast vi›
ne›ri skápa, ekki heildarbreidd.
Allar innréttingar til afgrei›slu af lager
• 30-50% afsláttur
af völdum innréttingum
2 3 4 5 6 71