Morgunblaðið - 02.07.2003, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. JÚLÍ 2003 35
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
KRABBI
Afmælisbörn dagsins:
Þú hefur öflugt ímyndunar-
afl og veist upp á hár hverjar
skyldur þínar eru.
Þú hefur oft það hlutverk að
hvetja aðra til dáða.
Það gerir þú vel.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú finnur fyrir vináttu í garð
allra sem á vegi þínum verða
í dag. Það er kjörið að bregða
sér út og gera eitthvað
ánægjulegt.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú munt njóta þess að versla
fyrir heimilið eða fjölskyldu-
meðlimi í dag. Hlutir sem
tengjast tómstundum munu
vera góð kaup.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þó að vinnan og fjármálin
eigi hug þinn allan í dag finn-
ur þú fyrir þörf til þess að
bregða á leik. Nú er heppi-
legt að ljúka samninga-
viðræðum.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú getur auðveldlega aukið
tekjur þínar í ár. Spurningin
er – hvernig? Í dag getur þú
eflaust leyst úr þessu vanda-
máli.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Himintunglin færa þér mikla
gæfu í dag og það væri ekki
úr vegi að bera fram ósk.
Óskaðu eftir hverju því sem
ætti að vera svarað játandi.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Leyndarmál gætu verið af-
hjúpuð fyrir þig í dag. Eitt-
hvert leynimakk á sér stað.
Samræður við vini eru því
safaríkar og spennandi.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Miklar tilfinningar í garð vin-
ar gera vart við sig í dag. Þú
gætir verið í aðstöðu til þess
að rétta þessari persónu
hjálparhönd.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú ert í góðri aðstöðu til þess
að koma þér á framfæri í dag.
Mikil virðing er borin fyrir
þér hvar sem þú kemur.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Umræður um framandi staði
og ferðalög gætu vakið hjá
þér löngun til þess að ferðast.
Þér þykir það ánægjulegt að
hverfa frá amstri hversdags-
ins.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Ef þú þarft að skipta eign eða
ákveða hver ber ábyrgð á
hverju í dag, gætir þú komið
út í gróða. Ekki forðast um-
ræður um þessi mál.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Einhver nákominn ber hag
þinn fyrir brjósti í dag. Að
sjálfsögðu hefur þú farið
kæruleysislega með fé þitt
undanfarið.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Í dag skalt þú stefna að því að
skipuleggja þig. Á meðan þú
gerir það væri ekki úr vegi að
hreyfa sig lítið eitt.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Á CAFÉ
Er blessuð litlu börnin fara að sofa,
og borgin fyllist næturhúmi svörtu;
er raunir lífsins lofa trúuð hjörtu
og ljósið deyr í verkamannsins kofa,
þá opnar kráin öllum sínar dyr.
Ég geng þar inn sem gestur síðla nætur.
Þar glóir vín á barmafullum skálum.
Þar rífast menn á mörgum tungumálum
um meyjar, sem að eiga snotra fætur,
hvelfdan barm og brjóst sem melónur.
Ég sit og horfi á fólk, sem fer og kemur,
á fólk, sem þráir líf og glaðar stundir,
á fólk, sem hlær, þótt biturt blæði undir;
sé bikar dauðans hylltan öðru fremur
og ástina, sem aldrei hefur fæðzt.
– – –
Vilhjálmur frá Skáholti
LJÓÐABROT
ÁRNAÐ HEILLA
60 ÁRA afmæli. Í dag,miðvikudaginn 2 júlí,
verður sextug Ólafía Helga
Stígsdóttir, Kothúsvegi 10 í
Garði. Hún og eiginmaður
hennar, Garðar Stein-
þórsson, taka á móti vinum
og ættingjum í samkomu-
húsinu Garði milli kl. 16 og
20 sunnudaginn 6. júlí.
Bandaríkjamennirnir sig-
ursælu, Erik Rodwell og
Jeff Meckstroth, bættu bik-
ar í veglegt safn sitt á laug-
ardaginn þegar þeir tóku á
móti fyrstu verðlaunum fyr-
ir opnu tvímenningskeppn-
ina í Menton. Alls tóku 338
pör þátt í mótinu og þar af
fjögur íslensk. Jón Baldurs-
son og Þorlákur Jónsson
stóðu sig best íslensku par-
anna, en þeir náðu inn í 52
para úrslit og enduðu í 43.
sæti.
Vestur gefur; NS á hættu.
Norður
♠ K965
♥ G10732
♦ 64
♣K8
Vestur Austur
♠ 743 ♠ ÁDG8
♥ KD6 ♥ Á954
♦ K93 ♦ G752
♣9752 ♣6
Suður
♠ 102
♥ 8
♦ ÁD108
♣ÁDG1043
Spilið að ofan kom upp á
fyrri stigum keppninnar.
Meckstroth og Rodwell voru
í NS og sá síðarnefndi varð
sagnhafi í þremur laufum
eftir þessar sagnir:
Vestur Norður Austur Suður
Pass Pass 1 hjarta 2 lauf
2 hjörtu 3 lauf Pass Pass
Pass
Vestur kom út með hjarta-
kóng og skipti yfir í tromp í
öðrum slag. Sem er góð
vörn. Rodwell stakk upp
kóng og svínaði tíguldrottn-
ingu. Vestur fékk slaginn og
trompaði aftur út, en valdi
til þess fimmuna en ekki
níuna. Sú ónákvæmni
reyndist afdrifarík. Laufátta
blinds hélt slagnum, og þá
innkomu notaði Rodwell til
að svína tígultíu. Síðan tók
hann öll trompin:
Norður
♠ K96
♥ G10
♦ –
♣–
Vestur Austur
♠ 43 ♠ ÁD
♥ D6 ♥ 9
♦ 9 ♦ G7
♣– ♣–
Suður
♠ 102
♥ –
♦ Á8
♣D
Í þessari stöðu spilaði
Rodwell laufdrottningu og
henti spaða úr borði. Austur
er í vanda staddur. Tígli má
hann augljóslega ekki
henda, og ekki heldur spaða,
því þá má láta ásinn slá vind-
högg. Hann kaus að henda
hjarta, en Rodwell spilaði þá
tígulás og tígli og fékk síð-
asta slaginn á spaðakóng.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson
1. e4 c5 2. Rf3 e6 3. d4 cxd4
4. Rxd4 Rc6 5. Rc3 Dc7 6.
g3 a6 7. Bg2 d6 8. 0-0 Bd7
9. He1 Be7 10. Rxc6 Bxc6
11. Dg4 h5 12. De2 h4 13.
a4 hxg3 14. hxg3 Rf6 15. a5
Hc8 16. Be3 Kf8 17. Bb6
Db8 18. Ra4 Bb5 19. Dd2
Rd7 20. Be3 Bf6 21. c3 Re5
22. Rb6 Hd8 23. Bd4
Dc7 24. b3 Bc6 25.
Had1 De7 26. c4 g5
27. Dc3 Rg4 28. Rd5
Bxd5 29. exd5 e5 30.
Bb6 He8 31. c5 Kg7
32. Db4 Rh2 33. c6
g4 34. He4 Hh6 35.
Hxg4+ Rxg4 36.
Dxg4+ Hg6 37. De4
Bg5 38. Df5 bxc6 39.
dxc6 e4 40. He1 He6
41. c7 e3 42. f4 Bf6
43. Bd5 Bc3 44. He2
Bd2 45. Hh2 Bc3 46.
Hh7+ Kg8
Staðan kom upp á of-
urmóti í Enghien-les-Bains
sem lauk fyrir skömmu í
Frakklandi. Michael Adams
(2.723) hafði hvítt gegn Joel
Lautier (2.666). 47. Hxf7!
e2 47. ... Dxf7 var slæmt
vegna 48. Bxe6 Dxe6 49.
Dxe6+ Hxe6 50. c8=D+
Kf7 51. Dxc3. Eftir texta-
leikinn varð svartur hins-
vegar mát í næsta leik. 48.
Dh7#.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
HLUTAVELTA
Morgunblaðið/Jón Stefánsson
Þessar kjarnorkustúlkur á Blönduósi efndu til hlutaveltu á
dögunum og öfluðu 2.150 kr. sem þær ætla að láta renna til
krabbameinssjúkra barna. Stúlkurnar heita, talið frá
vinstri: María Björg Ásmundsdóttir, Hanna Lísa Hafliða-
dóttir, Sigurbjörg Ása Ásmundsdóttir, Hrefna Björg Ás-
mundsdóttir og Sigurlaug Máney Hafliðadóttir.
70 ÁRA afmæli. Í dag,miðvikudaginn 2.
júlí, er sjötug Ester Árna-
dóttir, Holtagerði 52,
Kópavogi. Hún tekur á móti
ættingjum og vinum í Borg-
um, safnaðarheimili Kópa-
vogskirkju, kl. 20.
Dómkirkjan. Hádegisbænir kl. 12.10.
Léttur málsverður á eftir. Prestarnir taka
við fyrirbænum í síma 520 9700.
Hallgrímskirkja. Morgunmessa kl. 8. Hug-
leiðing, altarisganga, léttur morgunverður.
Háteigskirkja. Bænaguðsþjónusta kl. 11.
Súpa og brauð borið fram í Setrinu kl. 12.
Brids í Setrinu kl. 13–16. Kvöldbænir kl.
18.
Laugarneskirkja. Gönguhópurinn Sólar-
megin leggur í hann kl. 10.30. Næstu vik-
ur mun hópurinn leggja upp frá kirkjunni
alla mið. og föst. kl. 10.30.
Neskirkja. Fyrirbænamessa kl. 18. Prest-
ur sr. Örn Bárður Jónsson.
Breiðholtskirkja. Kyrrðarstund í dag kl.
12.10. Tónlist, altarisganga, fyrirbænir.
Léttur málsverður í safnaðarheimilinu eft-
ir stundina.
Seljakirkja. Kyrrðar- og bænastund í dag
kl. 18. Beðið fyrir sjúkum. Allir hjartanlega
velkomnir. Tekið á móti fyrirbænaefnum í
kirkjunni í síma 567 0110.
Morgunblaðið/Jim SmartNeskirkja
Safnaðarstarf Vídalínskirkja. Foreldramorgnar í safnað-
arheimilinu Kirkjuhvoli kl. 10–12. Hitt-
umst og spjöllum. Heitt á könnunni og
djús fyrir börnin. Allir foreldrar velkomnir
með eða án barna.
Hafnarfjarðarkirkja. Kyrrðarstund í kirkj-
unni kl. 12, íhugun, altarisganga, fyrir-
bænir. Léttur hádegisverður kl. 13 í Ljós-
broti Strandbergs.
Þorlákskirkja. Barna- og foreldramorgnar
í dag kl. 10–12.
Lágafellskirkja. AA-fundur kl. 20.30 í
Lágafellskirkju. Unnið í 12 sporunum.
Kletturinn, kristið samfélag. Kl. 20.30
Bænahópar í heimahúsum. Upplýsingar í
síma 565 3987.
Kefas. Samverustund unga fólksins kl.
20.30. Lofgjörð, lestur orðsins, fróðleikur
og samvera. Allt ungt fólk velkomið.
Kristniboðssalurinn, Háaleitisbraut 58.
Samkoma í kvöld kl. 20. Ræðumaður Jón-
as Þórisson. Kaffiveitingar eftir samkom-
una. Allir velkomnir.
Sauðárkrókskirkja. Kyrrðarstund kl. 21.
75 ÁRA afmæli. Í dag,miðvikudaginn 2.
júlí, er 75 ára Margrét H.
Sigurðardóttir, viðskipta-
fræðingur og fyrrv. for-
maður Félags eldri borg-
ara, Hörgshlíð 8,
Reykjavík. Hún er að heim-
an í dag.
FRÉTTIR
NÝLEGA var úthlutað úr styrkt-
arsjóði Selmu og Kays Langvads
við Háskóla Íslands og var styrkn-
um að þessu sinni úthlutað til rekt-
ors Kaupmannahafnarháskóla,
Lindu Nielsen, og rektors Háskóla
Íslands, Páls Skúlasonar.
Markmið styrktarsjóðsins er að
styrkja menningartengsl Íslands
og Danmerkur. Höfuðstóll sjóðsins
er nú 2,2 milljónir danskra króna,
eða um 25 milljónir íslenskra
króna.
Reynt er að hrinda markmiðum
sjóðsins í framkvæmd með því að
bjóða sérfræðingum á hinum ýmsu
sviðum að miðla upplýsingum á
milli landanna um þróun þeirra
mála sem þeir hafa látið til sín
taka. Fyrsta styrkinn hlaut þáver-
andi þjóðminjavörður, Kristján
Eldjárn, síðar forseti Íslands.
Styrknum hefur síðan þá verið út-
hlutað 24 sinnum. Styrkinn hlaut
síðast fyrrverandi forseti Hæsta-
réttar Danmerkur, Niels Pontop-
pidan.
Selma Guðjohnsen fæddist á
Húsavík þann 25. júní 1893 og var
dóttir Þórðar Guðjohnsens kaup-
manns og eiginkonu hans, Mariu
Kirstenar Sveinbjörnsson. Árið
1903 fluttist fjölskyldan til Dan-
merkur og heimili Guðjohnsens-
fjölskyldunnar á Friðriksbergi
varð brátt vinsælt aðsetur ungra
Íslendinga sem leituðu sér fram-
haldsmenntunar í Kaupmanna-
höfn.
Selma giftist árið 1923 Kay
Langvad verkfræðingi. Hann fædd-
ist í Kaupmannahöfn árið 1896 og
var sonur Peters Petersen yf-
irkennara. Þau eignuðust þrjá syni.
Á árunum 1937–46 stjórnaði Kay
Langvad starfsemi Höjgaar-
d&Schultz á Íslandi og fjölskyldan
bjó öll stríðsárin fimm í Reykjavík.
Á þeim árum tengdist hún bæði
hinni fjölmennu, íslensku fjöl-
skyldu sinni sterkum böndum
ásamt stjórnmála- og atvinnulífinu.
Kay Langvad tókst síðar að
tryggja fyrirtæki sínu E.Phil&Sön
sterka stöðu á Íslandi á grundvelli
reynslu sinnar frá stríðsárunum.
Styrktarsjóðurinn var stofnaður
við Háskóla Íslands árið 1964 í við-
urkenningarskyni fyrir það mik-
ilvæga hlutverk sem Ísland gegndi
í lífi Kays Langvads og fjölskyldu
hans.
Úthlutað hefur verið úr styrktarsjóði
Selmu og Kays Langvads
Selma og Kay Langvad stofnuðu styrktarsjóðinn árið 1964 til að styrkja
menningartengsl Íslands og Danmerkur.
Rektorar Kaup-
mannahafnarháskóla
og HÍ fengu styrkinn