Morgunblaðið - 02.07.2003, Blaðsíða 38
38 MIÐVIKUDAGUR 2. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Fyndnasta
myndin sem
þú sérð á árinu!
2 vik
ur
á top
pnum
í USA
!
Sýnd kl. 6.Sýnd kl. 8 og 10.
Ef þú hélst að þú værir
heimskur, þá hefurðu ekki
hitt Harry og Lloyd.
Þeir eru komnir aftur,
heimskari en nokkru sinni
fyrr í geggjaðri grínmynd!
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
HUGSAÐU STÓRT
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
Miðasala opnar kl. 15.30
Sýnd kl. 10.15. B.i. 12
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.30.
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.
kl. 3.40, 5.50 og 8. kl. 4. Ísl. tal. 500 kr.
Ef þú skellir á
ertu dauður!
Spennutryllir
af bestu gerð.
Fór beint á
toppinn í USA.
Frábær mynd
sem heldur
áhorfendum
í heljar
greipum!
Síð. sýn. 2 fyrir 1
kl. 4, 6, 8 og 10. bi. 14
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. B.i. 14
Ef þú hélst að þú værir
heimskur, þá hefurðu ekki
hitt Harry og Lloyd.
Þeir eru komnir aftur,
heimskari en nokkru sinni
fyrr í geggjaðri grínmynd!
X-IÐ 97.7
SV MBL
HK DV
4. SÝNING FIMMTUDAG 3/7 - KL. 20.00 UPPSELT
5. SÝNING FÖSTUDAG 4/7 - KL. 20.00 UPPSELT
6. SÝNING SUNNUDAG 6/7 - KL. 17.00 UPPSELT
7. SÝNING FIMMTUDAG 10/7 - KL. 20 UPPSELT
8. SÝNING FÖSTUDAG 11/7 - KL. 20 UPPSELT
9. SÝNING LAUGARDAG 12/7 - KL. 15 UPPSELT
10. SÝNING LAUGARDAG 12/7 - KL. 20 UPPSELT
11. SÝNING FIMMTUDAG 17/7 - KL. 20 UPPSELT
12. SÝNING FÖSTUDAG 18/7 - KL. 20 ÖRFÁ SÆTI LAUS
ATHUGIÐ ÓSÓTTAR PANTANIR SELDAR DAGLEGA !
NÓI albínói hefur verið tilefnd til
norsku Amanda-kvikmyndaverð-
launanna. Mynd Dags Kára Pét-
urssonar er tilnefnd í nýjum
flokki sem kenndur eru við Canal
+ fjölmiðlarisann. Alls eru fimm
myndir tilnefndar, ein frá hverju
Norðurlandanna, Danmörku,
Finnlandi, Íslandi, Noregi og Sví-
þjóð, allt fyrstu myndir viðkom-
andi kvikmyndagerðarmanna í
fullri lengd. Ennfremur má engin
myndanna hafa verið sýnd í
norsku bíói áður. Sigurmyndin
hlýtur verðlaunafé að upphæð 50
þúsund krónur norskar, sem eru
525 þúsund íslenskar.
Hinar myndirnar sem voru til-
nefndar er danska myndin Recon-
struction eftir Christoffer Boe,
finnska myndin Nousukausi eftir
Johanna Vuoksenmaa, norska
myndin Buddy eftir Morten Tyld-
um og hin sænska Elina – Som
om jag inte fanns eftir Klaus
Härö.
Í netmiðli norska dagblaðsins
Aftenposten er talað um að liðið
ár sé búið að vera sérlega gjöfult
hvað norska kvikmyndagerð varð-
ar, og óvenju sterkar myndir séu
tilnefndar til Amanda-verð-
launanna. Þrjár myndir er til-
nefndar sem besta norska mynd-
in, Villmark, fyrsta mynd Pål Øie,
Jonny Vang eftir Jens Lien og
Salmen fra kjøkkenet eftir Bernt
Hamer en hún vakti mikla athygli
á Cannes-hátíðinni síðustu.
Amanda-verðlaunin verða af-
hent í 19. skiptið í Haugasundi
hinn 22. ágúst næstkomandi.
Morgunblaðið/Kristinn
Dagur Kári hefur þegar hlotið fjölda verðlauna fyrir Nóa albínóa sem enn
er verið að sýna í Háskólabíói með enskum texta.
Nói tilnefnd til
Amanda-verðlauna
UNGLINGASTJARNAN Hilary
Duff skín skært í Bandaríkjunum um
þessar mundir, en hún hóf frægðarför
sína sem aðalpersóna unglingaþátt-
anna Lizzie McGuire, sem sendir eru
út á Disney-sjónvarpstöðinni. Í þátt-
unum leikur Duff dæmigerða ung-
lingsstúlku, dálítið klaufalega og upp-
fulla af óröryggi. Hafa vinsældir
Lizziar farið sívaxandi frá því að
þættirnir hófu göngu sína árið 2001.
Af stjörnuímynd leikkonunnar Hilary
Duff stafar hins vegar allt annað en
óöryggi eða klaufháttur, enda er Duff
á góðri leið með að verða ofurkyngerð
unglingastjarna í anda Britney Spe-
ars. Í kvikmyndinni um Lizzie
McGuire fer persónan beinlínis í
gegnum þessi umskipti, þ.e. frá því að
vera hin óörugga unglingsstúlka sjón-
varpsþáttanna, í það að verða kyn-
þokkafull poppgyðja, með útlitið á
hreinu og dýrkuð af jafnöldrum sín-
um.
Þetta gerist þegar Lizzie heldur
ásamt vinum sínum í skólaferðalag til
Rómar eftir að hafa áunnið sér titilinn
„klaufalegasta stúlka skólans“ við
vorútskriftina. Í Róm stendur til að
uppfræða krakkana um heimsins
fornminjar og menningarverðmæti
en Lizzie lendir fyrr en varir í óvæntu
ævintýri. Svo vill nefnilega til að hún
líkist ákaflega mikið ítalskri unglinga-
poppstjörnu sem nýlega hætti sam-
starfi við poppstrákinn Paolo og biður
Paolo Lizzie að bregða sér í hlutverk
mótsöngvara síns á stórri tónlistar-
verðlaunahátíð. Þau Paolo og Lizzie
hittast auðvitað fyrir tilviljun og fyrr
en varir er hún orðin bálskotin í hin-
um súkkulaðisæta Paolo, æskuvinin-
um Gordo til nokkurrar öfundar. Eft-
ir því sem poppstjörnuævintýrið
verður meira spennandi, týnir Lizzie
sér í þeim heimi og áttar sig að lokum
á því að hún hefur vanrækt bestu vini
sína.
En það er fremur grunnt á þessari
þroskasögu unglingsstúlkunnar
Lizzie, sem gengur fyrst og fremst út
á það að breyta söguhetjunni í fulln-
uma tískudrottningu.
Þetta er afskaplega stöðluð ung-
lingakvikmynd, klippt og skorin, upp-
full af fjöldaframleiddri popptónlist
og tískudýrkun. Leikkonan Hilary
Duff býr þó yfir nægum sjarma til að
halda myndinni uppi og er það einna
helst þegar hún leikur hina sein-
heppnu og upprunalegu Lizzie, að
kvikmyndin lifnar örlítið við.
Úr klaufa í poppstjörnu
KVIKMYNDIR
Sambíóin
The Lizzie McGuire Movie / Lizzie McGuire
Leikstjórn: Jim Fall. Handrit: Susan Jan-
sen, Ed Decter, John Strauss. Aðal-
hlutverk: Hilary Duff, Adam Lamberg,
Ashlie Brillault, Yani Gellman og Alex
Borstein. Lengd: 90 mín. Bandaríkin.
Walt Disney Pictures, 2003.
Heiða Jóhannsdóttir
Leikkonan Hilary Duff býr yfir
nægum sjarma til að halda uppi
myndinni um Lizzie McGuire.
ÞAÐ er alltaf gaman að sjá þessar baktjaldamyndir.
Gera sér grein fyrir að á bakvið flest liggur græðgi og
sjálfselska, sjaldnast er fyrir að finna heilar manneskjur
með góðan ásetning. Nú er það „PR-bisnessinn“ sem er
tekinn fyrir þegar við fáum nasasjón af lífi kynningar-
fulltrúans Eli Wurman í nokkra daga á meðan hann
skipuleggur góðgerðarsamkomu og reynir að redda
sjálfselskri kvikmyndastjörnu úr klípu.
Þetta er bara býsna áhugaverð mynd, og vel gerð að
mörgu leyti. Eli lifir í grimmum heimi, hann er algerlega
að fara á taugum, pilluæta sem blandar saman ótal teg-
undum lyfja og er mestan hluta dagsins út úr heiminum.
Al Pacino leikur Wurman af snilld, ótrúlega tættur,
þreyttur, búinn á því, en samt greinilega fínn gaur inn við
beinið og ekki jafn rotinn og flestir „kunningjar hans“ í
heimi þeirra valdamestu, heimi kvikmyndastjarnanna,
viðskiptajöfranna og stjórnmálamannanna. Pacino er
umkringdur fínustu leikurum, sem allir standa sig með
prýði. Richard Schiff siglir hraðbyri inn í hóp virtra kvik-
myndaleikara. Það hefði hins vegar mátt gusta meira af
Ryan O’Neal í hlutverki spilltrar Hollywood-stjörnu.
Kvikmyndatakan er látlaus en áhrifarík, og skapar
réttu stemninguna í myndina. Stemning sem maður er
reyndar lengi að venjast, en kemst betur inn í eftir hlé.
Málið er að handritið er alls ekki nógu gott. Það hefur
reyndar allar persónurnar og atburðina sem þarf til að
gera gott og áhugavert handrit, en það er einsog það hafi
bara ekki verið þróað nægilega.
Verið er að draga upp mynd af lífi Eli, og inn í það flétt-
ast morð sem líka tengist samsæri, og allt er þetta fólk
sem Eli þekkir í gegnum starfið. Myndin flýtur áfram án
þess að framvindan komist að. Atriði á eftir atriði byggist
á samtölum í stað þess að „eitthvað gerist“. Hvort sem þá
glæpahlið myndarinnar hefði sterkari áhrif og meiri drif-
kraft, eða að eitthvað gerðist innra með honum. Síð-
arnefnda hlið málsins er alls ekki nógu skýr, sem er mjög
miður, því Eli er áhugaverð persóna og þar kemur einnig
Kim Basinger inn með sérlega dempaðan og hárfínan
leik í áhugaverðu hlutverki ekkju bróður hans. Maður
þyrfti eiginlega að hafa meiri samúð með Eli, skilja betur
hvað er að gerast innra með honum, og hvað liggur á bak
við gjörðir hans. Einsog myndin er, skil ég að fólk geti
látið Eli fara í taugarnar á sér og allt það skítapakk sem
umkringir hann. Og þá er á litlu að byggja.
Tætt líf
og tryllt
KVIKMYNDIR
Kunningjar mínir/People I know
Leikstjórn: Daniel Algrant. Handrit: Jon Robin Baitz. Kvik-
myndataka: Peter Deming. Aðalhlutverk: Al Pacino, Kim Bas-
inger, Ryan O’Neal, Téa Leoni, Richard Schiff, Bill Nunn og Ro-
bert Klein. 100 mín. BNA. Miramax Films 2002.
Al Pacino leikur Wurman af snilld, ótrúlega tættur,
þreyttur, búinn á því, en samt greinilega fínn gaur.
Hildur Loftsdóttir