Morgunblaðið - 02.07.2003, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. JÚLÍ 2003 39
Nýr og betriHverfisgötu 551 9000
www.regnboginn.is
Kvikmyndir.com
X-ið 977
HJ MBL
HK DV
Sýnd kl. 6, 8 og 10. B.i.16
Martröðin er
raunveruleg!
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.
Fyndnasta myndin
sem þú sérð á árinu!
Losaðu þig við reiðina
og hlæðu þig máttlausan!
Sýnd kl. 6, 8 og 10. B.i. 14.
Sýnd kl. 6 og 10.15. B.i. 16
sv MBL
T H E Y
Ef þú skellir á ertu dauður!
Spennutryllir af bestu gerð.
Fór beint á toppinn í USA.
Frábær mynd sem heldur
áhorfendum í heljar greipum!
f llir rt r!
tr llir f t r .
r i t t i í .
r r l r
rf í lj r r i !
X-IÐ 97.7
SV MBL
HK DV
Sýnd k. 4, 6, 8 og 10:10. Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.
Sýnd kl. 4 og 6.
www.laugarasbio.is
Sýnd kl. 10.
Ef þú hélst að þú
værirheimskur,
þá hefurðu ekki hitt
Harry og Lloyd.
Hann taldi sig hafa séð allt,
þar til hann sá of mikið!
KIM
BASINGER TÉA LEONI
Fyndnasta myndin
sem þú sérð á árinu!
Losaðu þig við reiðina
og hlæðu þig máttlausan!
A L P A C I N O
RÚMLEGA 100 þúsund tónleika-
gestir flúðu hátíðarsvæðið í Glast-
onbury eftir úrhellisrigningu á
lokakvöldi hátíðarinnar.
Ágætisveður var fram eftir degi,
eða allt þar til rigna tók án afláts.
Síðasta daginn komu m.a. fram
Moby, The Manic Street Preachers
og Feeder. Moby lauk hátíðinni á
léttu nótunum og lék lagið „Creep“
eftir Radiohead, sem spiluðu á
laugardeginum.
Glæpir á hátíðinni voru u.þ.b.
helmingi færri en í fyrra og er það
mikið gleðiefni fyrir aðstandendur
hennar, en þeir hafa ekki fengið
vilyrði fyrir hátíðarhöldunum frá
bæjaryfirvöldum. Nú horfir það til betri vegar
og að sögn talsmanns bæjaryfirvalda var
ástandið gott. Hann bætti því við að helst hefði
verið kvartað undan miklu magni af flugeldum.
Skipuleggjandi hátíðarinnar, Michael Evans,
sagði hátíðina í ár hafa verið þá bestu hingað
til og að framtíð hátíðarinnar væri nú tryggð.
Hann sagði að þetta væri í fyrsta sinn sem
heilt kvöld hefði liðið á hátíðinni án þess að
hann hefði fengið símtal frá óánægðum ná-
granna. Hann hefur þegar hafist handa við að
skipuleggja hátíðina fyrir árið 2004 og nú þeg-
ar hefur Prince staðfest komu sína. Aðspurður
hvort Oasis yrðu eitt af stóru nöfnunum á
næsta ári sagði Evans: „Þið getið dregið ykkar
ályktanir. Ég segi ekkert.“
Í ár seldust 112.500 miðar upp á mettíma,
eða aðeins 18 klukkustundum.
Reuters
Michael Stipe og sveit hans R.E.M.
var aðalnúmerið á föstudag en ný
plata er í burðarliðnum. Stemmningin var ómenguð bróðurpart helgarinnar á Glastonbury.
Votur endir á glæstri hátíð
Glastonbury-hátíðin haldin síðustu helgi
Neil Young gefur út nýja plötu í
næsta mánuði. Platan heitir Green-
dale og kemur út 18. ágúst.
Young flutti plötuna í heild sinni á ný-
afstaðinni tónleikaferð en lögin verð-
ur jafnframt að finna í samnefndri
kvikmynd sem frumsýnd verður á
Toronto-hátíðinni sem hefst 4. sept-
ember. Fyrsta upplaginu af plötunni
fylgir mynddiskur sem inniheldur
upptökur með Young á tónleikum
sem hann hélt í Dyflinni. Young er
þessa dagana á tónleikaferð með
hljómsveit sinni Crazy Horse um
Bandaríkin … Muse ætlar að setja
nýtt lag á heimasíðu sína www.muse-
official.com 14. júlí næstkomandi.
Lagið heitir „Stockholm Syndrome“
og hægt verður að kaupa það í gegn-
um tölvuna og með því að senda sms-
skilaboð. Lagið er forsmekkur nýrrar
plötu, þeirrar þriðju frá sveitinni, sem
gefin verður út í september …Nýja
smáskífan af ( ) plötu Sigur Rósar
hefur náð hátt á sölulistum í Banda-
ríkjunum og Kanada. Á listanum,
sem tekinn er saman af Nielsen
gagnasöfnunarfyrirtækinu, náði lagið
hæst í 4. sæti kanadíska sölulistans
og er nú í því níunda á meðan lagið
situr nú í 11. sæti bandaríska sölulist-
ans …Gömlu brýnin í Aerosmith eru
búin að taka upp helling af blúslögum
sem þeir hafa í hyggju að gefa út á
einni vænni blúsplötu. Til stendur að
hljóðblanda og eftirvinna í haust og
gefa blúsplötuna út í janúar … Í októ-
ber kemur út framhald metsölusafn-
plötunnar Elvis 30#1 sem inniheldur
30 lög sem Elvis
Presley kom í
efstu sæti vin-
sældalista. Nýja
safnplatan mun
heita Elvis 2nd to
None og innihalda
fleiri topplög auk
annarra sígildra laga hans. Þar að
auki verða nokkur aukalög, nýjar út-
gáfur eftir heita plötusnúða á borð við
Paul Oakenfold, sem búinn er að
lappa upp á lítt þekkt b-hliðarlag með
Presley sem heitir „Rubberneckin’“.
Alls verða 30 lög á plötunni, þ.á m.
„That’s All right“, „Viva Las Vegas“,
„Blue Suede Shoes“ og „Always on
My Mind“. Fyrri safnplatan rauk á
topp flestra breiðskífusölulista í
heiminum og hefur selst í 9 milljónum
eintaka á heimsvísu. Við þetta má
bæta að í gær kom út 4-diska safn,
Elvis: Close Up, sem inniheldur hell-
ing af óútgefnum upptökum, gamla
mastera, kvikmyndatónlist og tón-
leikahljóðritanir, m.a. frá tónleikum í
San Antonio 18. apríl 1972.
FÓLK Ífréttum
QUARASHI hefur haft hljótt um sig
undanfarna mánuði, mannabreyting-
ar urðu í sveitinni og liðsmenn hafa
notað tækifærið og tekið frí frá tón-
leikahaldi og ferðalögum. Fyrir
skemmstu brá sveitin sér svo í hljóð-
ver og tók upp nýtt lag sem verður
frumflutt á miðvikudag, en í því kem-
ur nýr rappari til sögunnar sem kall-
ar sig Opee.
Sölvi Blöndal hefur haft nóg fyrir
stafni, meðal annars stýrt upptökum
og útsetningum fyrir marga tónlist-
armenn aðra, en hann hefur líka ver-
ið iðinn við að semja ný lög. Hann
segir þó að Quarashi fari ekki í hljóð-
ver til að taka upp nýja skífu fyrr en
snemma á næsta ári, en lagið núna,
„partílag“ eins og hann kallar það, sé
bara rétt til að minna á að sveitin sé
enn starfandi.
Eins og getið er rappar nýr maður
með Quarashi í laginu nýja, Ólafur
Torfason, eða Opee, sem hann er
kallaður en einhverjir kannast við
hann af Bumsquad-disknum sem
kom út fyrir síðustu jól þar sem hann
flutti lagið Pempin’. Sölvi segir að
Ólafur sé ekki liðsmaður Quarashi,
sem stendur í það minnsta, „en hann
á eftir að vera áberandi í mínum
verkefnum á næstu mánuðum“. Sölvi
hefur látið þau orð falla í viðtölum á
árinu að hann sé að velta fyrir sér
stefnubreytingu í tónlist Quarashi,
og skemmst að minnast þess að í við-
tali í janúar sl. sagði hann að áherslur
yrðu gjörbreyttar á næstu skífu.
Hann segir að í nýja laginu megi ein-
mitt heyra ákveðna stefnubreytingu
þótt lagið sé ekki dæmigert fyrir það
sem verður væntanlega á næstu
plötu.
Eins og getið er er Sölvi að semja
tónlist alla daga, segist vera kominn
með slatta af nýjum lögum, og á eftir
að semja enn fleiri sem síðan verður
valið úr fyrir upptökur á næstu Quar-
ashi-skífu sem kemur út að ári. Hann
hefur einnig unnið með ýmsum ís-
lenskum tónlistarmönnum og hingað
er síðan væntanleg japönsk hljóm-
sveit, YKZ, sem hefur óskað eftir því
að fá að vinna tvö lög með Quarashi
þar sem Sölvi verður við stjórnvölinn.
Aðspurður hvort tónleikar séu á
næsta leiti til að kynna Quarashi með
Opee tekur Sölvi dræmt í það, en vill
þó ekki gefa það frá sér: „Það kemur
alveg til greina að taka nokkur lög ef
einhver birtist með fullar hendur
fjár,“ segir hann og kímir, en bætir
við að væntanlega verði ekkert af
tónleikum fyrr en sveitin sé tilbúin
með nýtt prógramm.
Morgunblaðið/Björg Sveinsdóttir
Quarashi með meiru: Ólafur Torfason, Steinar Orri Fjeldsted, Ómar Örn Hauksson og Sölvi Blöndal.
Nýr rappari með Quarashi