Morgunblaðið - 02.07.2003, Síða 40
40 MIÐVIKUDAGUR 2. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. B. i. 16 ára.
KVIKMYNDIR.COM
KVIKMYNDIR.IS
ÓHT Rás 2
„Grípandi og gefandi
með óborganlega
bardaga“
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B i. 12
HL MBL
SG DV
Roger Ebert
Sýnd kl. 8 og 10. B.i. 16.
Síðustu sýningar í STÆRSTA
kvikmyndasal landsins
with englishsubtitel
Sýnd kl. 6. Enskur textiSýnd kl. 5.50, 8 og 10.15.
X-IÐ 97.7
DV
KVIKMYNDIR.COM
ÓHT Rás 2
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.
KRINGLAN
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Stelpan sem þorði
að láta draumana
rætast!
AKUREYRI
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Stórskemmtileg
ævintýra og
gamanmynd
í anda Princess
Diaries frá
Walt Disney
X-IÐ 97.7 DV
Lithimnulestur
Með David Calvillo
fimmtudag og
föstudag
Lithimnulestur er gömul fræðigrein þar sem
upplýsingar um heilsufar, mataræði og
bætiefni eru lesnar úr lithimnu augans.
Á fimmtudag og föstudag mun David Calvillo
vera með lithimnulestur í Heilsubúðinni, Góð
heilsa gulli betri. Njálsgötu 1, uppl. og tímapantanir í s:561-5250.
VINSÆLASTI símaklefinn í bæn-
umm er sá sem landinn flykktist til að
sjá Colin Farrell svitna í og bíða eftir
kalli mannsins með ljá-
inn.
Símaklefinn (Phone
Booth) umtöluð, ný
bandarísk spennumynd
var frumsýnd á föstudag
og var sú mynd sem
flestir drifu sig á um
helgina og það þótt hún
hafi einungis verið sýnd í
tveimur bíóum, sem nú-
orðið þykir býsna lítið á
tímum risafrumsýninga.
Tæplega 2.300 manns
sáu myndina og segir
Guðmundur Breiðfjörð
markaðsstjóri hjá Norðurljósum það
endurspegla þær góðu en óvæntu við-
tökur sem myndin fékk vestra í vor.
„Fyrirfram var ekki búist við miklu
af Phone Booth hvorki hérlendis né
erlendis – heil mynd um mann í síma-
klefa! En svo þegar menn fóru að sjá
þessa mynd kom annað í ljós. Þetta er
óvæntur tryllir sem heldur fólki í helj-
argreipum allan tímann og má þakka
því frábæru handriti og leik, sérstak-
lega hjá Colin Farrell, segir Guð-
mundur, greinilega sáttur við gengi
myndarinnar.
„Einnig skipti tíma-
setningin miklu máli en
þessa helgi var lítið um
samkeppni og veðrið
var ekki gott þannig að
bíó var valkostur og því
leiðin greið á toppinn fyr-
ir Phone Booth.“
Myndin um unglinga-
stjörnuna Lizzie
McGuire og Ítalíuævin-
týri hennar fékk og fínar
viðtökur, sérstaklega ef
mið er tekið af því að
þættirnir sem myndin
byggir á hafa ekki verið
sýndir hérlendis og fyrirbærið því
óþekkt.
Toppmyndin frá síðustu viku,
Heimskur heimskarari, féll niður í
þriðja sætið og þriðja myndin sem
frumsýnd var á föstudag, Kunningjar
mínir, með Al Pacino, kemur inn í 8.
sæti yfir tekjuhæstu myndir helgar-
innar.
Vinsæll símaklefi
" #
$ $%$
$# & # ' (
"&
)
(
*
(
%
$ # !+(,!
!"# %&
!
# '
$ (
($
&")* &
"
+ , -. &
.
%.
'&/
-!
!
.!
/!
0!
1!
-!
--!
2!
-!
3!
-3!
-1!
4!
-.!
.-!
-!
5
-
-
.
0
/
-
.
0
0
3
4
3
/
-2
.
3
-
! 6789: 78;,559< 9*5 67896789: 9 78*<978
=*5 78;,559< 9*5 9<,759*59>
6789: 9 6789 78*5 78;,559?658789
,@=
78;,559?65878
678
6789 6789
?65878
78;,559< 9*5 9<,75
78;,559< 9A,@=
9?B75
?658789>
: 6789 78*5 78;,55
?65878
: 78*5 78;,559?658789 skarpi@mbl.is
Colin Farrell sveitt-
ur í símaklefa.
HANN heitir Snorri og hann er
fyndinn. Hann varð annar í keppn-
inni um titilinn Fyndnasti maður Ís-
lands árið 2002. „Það er auðvitað
mikið fyndnara að vera næstfyndn-
asti maður Íslands,“ segir þessi
þéttvaxni og úfinhærði maður sem
hyggur á útrás til Lundúna þar sem
hann ætlar að reyna að koma Bret-
um til að hlæja: „Ég er að reyna að
hasla mér völl í atvinnuleysinu. Að-
staðan á vinnumarkaðnum rak mig
loksins til að gera eitthvað af viti
en hingað til hef ég verið með uppi-
stand hér og þar, allt frá 30 manna
skólaskemmtunum upp í húsfylli af
áhorfendum á boxkeppni í Kefla-
vík.“
Snorri stendur í þeirri trú að
hann sé fyrsti íslenski karlgrínist-
inn sem fer í víking en ævintýrið
hófst þegar hann og hópur ungra
athafnamanna gerðu sig líklega til
að flytja inn grínistann Eddie Izz-
ard. „Við sendum umboðsskrifstof-
unni hans afskaplega formlegt bréf
en fengum svar um að hann væri
því miður bókaður. Þá sendi ég til
baka í algjöru bríaríi og kæruleysi
bréf þar sem ég spyr hvað ég gæti
annars þurft að gera til að komast
að í London. Ég átti ekki von á að
fá svar frekar en að vinna í lottói,
en 20 mínútum seinna fæ ég bréf
þar sem mér er sagt að þau geti því
miður ósköp lítið gert fyrir mig, en
senda með heljarinnar lista yfir
grínklúbba í Lundúnum.“
Ekki beið Snorri boðanna, heldur
óð beint í símann og kjaftaði sig inn
á klúbba, eins og hann orðar það
sjálfur, og er núna bókaður á 6
uppistandsklúbba á 9 dögum, þar á
meðal Comedy Café og The Amus-
ed Muse, sem eru með betur þekkt-
um grínbúllum þar í bæ.
Grínast ei svo glatt á ensku
Ekki er að greina mikinn kvíða
hjá Snorra, að þurfa að grínast á
öðru máli en móðurmálinu þó vita-
skuld megi búast við einhverjum
stirðleika við spuna: „Mestallt uppi-
stand sem ég hef fengið að heyra
og sjá hefur verið á ensku. Maður
kann auðvitað Eddie Izzard utanað
og menn eins og Billy Connelly,
Richard Prior og jafnvel Monty
Python.“ Hann hefur eilítið spreytt
sig á uppistandi á enskri tungu áð-
ur og lagði einnig stund á nám í
ensku í háskóla: „Fyrsta prófraunin
verður þegar ég þarf að fara að
spinna uppi á sviði. Það að gera
uppistand er að vissu leyti eins og
að aka um Þingholtin á 130 km
hraða. Maður þarf að hugsa rosa-
lega hratt og enn hraðar þegar
maður gerir þetta á ensku.“
Annars hlakkar Snorri til að
skemmta öðrum en Íslendingum og
reiknar með að það verði allt öðru-
vísi: „Ég hef séð atriði úr breskum
grínklúbbum. Í Bretlandi eru grín-
istaaðdáendur eins og það eru
hljómsveitaraðdáendur á Íslandi.
Þar er þessi listgrein, þessi
skemmtanagrein, miklu eldri og
mikið þróaðri. Ég held líka að Ís-
lendingar séu lengur í gang en hins
vegar mikið meira gefandi þegar
þeir eru komnir af stað. Það er
þetta íslenska skemmtana-
pókerfés, þessi fyrsti hjalli sem
maður þarf að yfirstíga
ef maður ætlar að fá Ís-
lendinga til að hlæja. Ís-
lendingar virðast ekk-
ert sérstaklega á því að
láta annað fólk sjá á sér
að þeir séu að skemmta
sér – ekki fyrr en eftir
tvo eða þrjá bjóra.“
Uppistand er því ekk-
ert grín: „Þetta er mikið
adrenalínsport. Þú ert
annað hvort að rokka
feitt, allir horfa á þig og
finnst þú frábærasti
maður í heimi í smá
tíma, eða maður er
hinumegin við línuna og
enginn vill eftir manni
taka.“
Til að undirbúa útrás-
ina til Englands ætlar
Snorri Hergill að
skemmta löndum sínum
í Þjóðleikhúskjall-
aranum. Fyrsta slíka
skemmtunin var haldin
síðasta fimmtudag og
var uppselt á þá sýn-
ingu. Önnur sýning
verður á morgun,
fimmtudag, á sama stað.
Sýningin ber heitið Sauðkindin –
Af Íslandssögu og öðrum lygasög-
um og opnar húsið kl. 20.30 en sýn-
ingin hefst kl. 21.15. Þann 11. júlí
verður Snorri á Egilsstöðum á Café
Nielsen og 12. júlí á Kaffi Akureyri.
Snorri Hergill hyggur á víking til Englands til að fremja uppistand
Ásjóna fyndninnar? Snorri Hergill mun hita
upp fyrir Englandsför sína með uppistandi í
Þjóðleikhúskjallaranum á morgun.
Á einlægu tali við hirðfíflið
asgeiri@mbl.is
Morgunblaðið/Jim Smart