Morgunblaðið - 02.07.2003, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 02.07.2003, Blaðsíða 6
6 B MIÐVIKUDAGUR 2. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ bílar DÆLUR ehf. er þekkt fyrirtæki á sínu sviði og var upprunalega stofn- að 1899 af Gísla J. Johnsen í Vest- mannaeyjum og bar þá nafn stofn- andans. Fyrirtækið skipti síðan um eigendur árið 1960. 1986 var fyrir- tækinu skipt upp og sérstakt fyrir- tæki stofnað um dæludeildina sem fékk heitið Dælur. Faðir Hjalta, Þor- steinn Hjaltason, starfaði hjá Dæl- um sem óx og dafnaði og eignaðist fjölskylda hans síðan fyrirtækið. „Við byggjum fyrirtækið á þessum gamla grunni, þ.e.a.s. góðri þjón- ustu, vera aðgengilegir og þjóna vel okkar viðskiptavinum,“ segir Hjalti. Í mars á þessu ári breyttist eign- araðild fyrirtækisins aftur. Þor- steinn Hjaltason og Jónína Arndal drógu sig út úr því og inn komu þrír nýir eigendur ásamt Hjalta, þeir Gunnar Björnsson, Kristófer Þor- grímsson og Eiríkur Hans Sigurðs- son. Fyrirtækið var á Fiskislóð vest- ur á Granda en flutti nú nýverið í Bæjarlind 1–3. Eins og nafnið bendir til sérhæfir fyrirtækið sig í sölu og þjónustu á dælum til sjávarútvegs, sumarbú- staða og til fleiri nota. En nú hefur bæst við ný deild sem er Ducati-hjól- in. Stútfullur af súrefni „Þetta kom þannig til að Eiríkur Hans Sigurðsson, nýi framkvæmda- stjórinn okkar, er vélhjólaáhuga- maður til margra ára. Hann kemur alltaf til vinnu sinnar á góðviðrisdög- um á mótorhjóli og ég sá bara hvað maðurinn var lifandi. Hvað hann var stútfullur af súrefni, gleði og áhuga fyrir því að takast á við daginn. Ég sá að þetta var eitthvað sem ég yrði að skoða betur. En ég vissi að þótt það ætti að verða mér til lífs þá kunni ég ekki á mótorhjól. Ég dreif mig í bóklegt nám og síðan verklegt og svo fór ég að velta fyrir mér hvers konar mótorhjól ég ætti að fá mér. Ég fór að skoða tímarit og sá þá alltaf sama merkið – ofsalega falleg hjól, frá- bæra hönnun – hjól sem stóðu út úr í þessum blöðum. Þetta var Ducati. Ég komst að því að Ducati er ekki með umboðsmenn á Íslandi. Ég skrifaði þeim bréf og sagði þeim að við værum að leita eftir nýju umboði til að breikka okkar vörulínur. Þeir svöruðu til baka og kváðust lítast vel á þetta. Þeir báðu okkur um mark- aðsáætlun til þriggja ára og frekari upplýsingar um markaðinn og Ís- land,“ segir Hjalti. Hann fór umsvifalaust í gagnaöfl- un af ýmiss konar tagi. Hann skoðaði innflutning á mótorhjólum til Ís- lands sem er töluverður og síðan bjó hann til söluáætlun fyrir Ducati. „Þeim leist vel á þetta og síðan lá leið okkar til Bologna í höfuðstöðvar Ducati. Við skoðuðum verksmiðjuna og sáum vörulínuna og safnið. Sonur Eiríks, Hrólfur, er mótorhjólamaður og þegar hann gekk inn á safnið sáum við geðshræringuna sem hann komst í. Ég uppgötvaði að það var svipað fyrir Hrólf að koma inn á þetta safn og fyrir mig þegar ég, Elvis-aðdáandinn, kom í Graceland í Memphis á sínum tíma.“ Ducati er lífsstíll Á hverju ári er haldin Ducati-helgi á Ítalíu þar sem koma saman um 10.000 hjól. „Ducati framleiðir mögnuðustu keppnishjól í heimi og á þeim hefur Superbike- keppnin unn- ist oftar en á nokkru öðru hjóli. Það er mál manna Ducati sé Ferrari mót- orhjólanna. Fyrirtækið er með mest vaxandi markaðshlutdeild í heimin- um. Þeim nægir að selja tíu hjól á Ís- landi bara til þess að bæta Íslandi inn á kortið. Þeir segja að tilvalið sé að selja ferðahjól og meðfærileg götuhjól á Íslandi. Nú eru þeir líka komnir með nýtt hjól sem heitir Multistrada, sem er eiginlega hjól fyrir allar aðstæður. Við sáum strax að þetta væri gullegg og við viljum gera okkar til að kynna hjólin fyrir Íslendingum,“ segir Hjalti. Hann bendir á að mörg ljón séu á veginum fyrir innflutningi á mótor- hjólum til Íslands. Greiða þurfi há flutningsgjöld og 30% vörugjöld auk 25% virðisaukaskatts af hjólunum. „Hjólin eru dýr þegar þau eru loksins komin til Íslands. Við fórum yfir þetta með Ítölunum og þeir vilja hjálpa okkur til að geta boðið upp á gott verð í byrjun. Besta auglýsingin fyrir okkur er sú að einhver kaupi Ducati-hjól og sjáist á því í Reykja- vík eða úti á landi.“ Hjalti er stórhuga og hefur ým- islegt á prjónunum. „Við ætlum að stofna eigendaklúbb Ducati á Íslandi og hjóla einu sinni í viku. Á næsta ári ætlum við að flytja hjólin til Ítalíu og taka þátt í Ducati-helginni. Auk þess ætlum við í ökuskóla hjá Ducati, bæði fyrir götuhjól og keppnishjól, til að gera okkur að betri ökumönn- um. Við gerum þetta af áhuga og ástríðu, eins og kjörorðið er hjá Ducati.“ Ducati er Ferrari hjólanna Það hefur bæst við í flóruna hjá mótorhjólaunnendum hér á landi því nú er í fyrsta sinn komið umboð fyrir hin margfrægu Ducati-vélhjól. Það er fyrirtækið Dælur ehf. sem valdist sem umboðsaðili. Guðjón Guðmundsson ræddi við Hjalta Þorsteinsson, inn- kaupastjóra hjá Dælum, sem hafði veg og vanda af því að ná umboðinu hingað til lands. Morgunblaðið/Guðjón Guðmundsson Hjalti Þorsteinsson við nýju Ducati-hjólin. Monster 620s, nakið götuhjól, 60 hestafla, 618 cc. Það kostar 1.020.000 kr. 749s, 748 cc, 199 kg í svokölluðum Hyper Sport-keppnishjólaflokki. 1.660.000 kr. Ducati 999 er 998 cc, 124 hestöfl. Eitt frægasta keppnishjól í heimi. Það kostar 1.990.000 kr. Morgunblaðið/Jim Smart

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.