Morgunblaðið - 03.07.2003, Blaðsíða 1
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS FIMMTUDAGUR 3. JÚLÍ 2003 Á netinu mbl.is/vidskipti BLAÐ C
ÞÓRÐUR Friðjónsson, for-
stjóri Kauphallar Íslands, segir
að æskilegt hefði verið að til-
kynning um sölu Shell Petrolium
Company Ltd. sl. mánudag á
20,69% hlut í Skeljungi til Sjóvár-
Almennra hf. og Burðaráss hf.
hefði birst strax um morguninn
þann dag.
Aðspurður hvort rætt hefði
verið um að loka fyrir viðskipti
með bréf Skeljungs þar til til-
kynningin bærist sagði Þórður að
í þessu tilviki hafi Kauphöllin
ekki haft yfirsýn yfir umsvif
þeirra viðskipta sem í farvatninu
voru og hvað nákvæmlega var að
gerast og því hafi ekki verið talin
ástæða til að loka fyrir viðskiptin.
„Við getum ekki lokað fyrir
viðskipti á grundvelli þess að von
sé á fréttatilkynningu í lok dags-
ins, þá verða menn að standa
öðruvísi að hlutunum. Það er
grundvallaratriði hjá okkur að
loka ekki nema rík ástæða sé til,
og að reynt er þá að hafa lokað í
eins skamman tíma og unnt er
enda er það brýnt útfrá jafnræð-
issjónarmiðum,“ segir Þórður.
Barst mjög seint
Hann segir að haft hafi verið
samband við Kauphöllina um
morguninn og menn hafi velt
vöngum yfir því hvort tilefni væri
til að loka fyrir viðskipti með bréf
Skeljungs fram að birtingu til-
kynningarinnar. Hann segir að á
sama tíma hafi verið talað um að
fréttatilkynningin væri á leiðinni
á næstu mínútum. Á þeim tíma
höfðu engar óvenjulegar færslur
átt sér stað í viðskiptakerfinu, að
sögn Þórðar. „Já, það voru
vangaveltur um þetta fyrr um
morguninn, við vissum að það var
eitthvað að gerast, en höfðum
ekki upplýsingar um hvað það
væri. Tilkynningin berst síðan
mjög seint og að mörgu leyti
hefði verið æskilegt eftir á séð að
fréttatilkynningin hefði birst
strax um morguninn, og þá um
leið hefði verið lokað fyrir við-
skiptin í örstuttan tíma eins og
við erum vanir að gera við sam-
bærilegar aðstæður eftir að
fréttatilkynning hefur borist
Kauphöllinni,“ sagði Þórður í
samtali við Morgunblaðið.
Á mánudaginn sl. urðu mjög
mikil viðskipti með bréf Skelj-
ungs þegar 12,4% eignarhlutur
Haukþings, fjárfestingarfélags í
eigu Eimskips, Sjóvár-Almennra
og Skeljungs, í Skeljungi var
seldur á genginu 12 til Íslands-
banka, Landsbankans, Sjóvár-Al-
mennra og Burðaráss.
Klukkan 15.40 þann dag er síð-
an tilkynnt um sölu Shell á
fimmtungshlut sínum í Skeljungi.
Stuttu síðar er tilkynnt um að
Kaupþing Búnaðarbanki hafi
keypt 7,68% í Skeljungi þann
daginn og fóru þau kaup fram
samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins, á genginu 15–15,7 en
lokagengi á bréfum Kaupþings í
Kauphöll Íslands í gær var 15.
Aðspurður segir Þórður að
hefði tilkynningin um sölu á hlut
Shell borist og birst í fréttakerfi
Kauphallarinnar um morguninn
hefði það hugsanlega getað haft
áhrif á atburðarás dagsins. „Við
leggjum áherslu á það við skráðu
félögin að ef um mikilvægar verð-
myndandi fréttir er að ræða þá
séu þær birtar eins fljótt í frétta-
kerfinu okkar og unnt er.“
Upplýsinga aflað
Morgunblaðið kannaði hjá Fjár-
málaeftirlitinu hvort tilefni væri
til að skoða þau viðskipti sem
fram fóru sl. mánudag í ljósi þess
að innan dagsins var um 24%
munur á gengi í viðskiptum með
bréf Skeljungs, þ.e. bréfin í félag-
inu seldust annarsvegar á geng-
inu 12 og hinsvegar á genginu 15
og þar yfir, nánast á sama tíma.
Hjá Fjármálaeftirlitinu feng-
ust þær upplýsingar að verið
væri að afla upplýsinga um við-
skiptin í samræmi við eftirlits-
skyldur Fjármálaeftirlitsins, en
ekki væri búið að taka ákvörðun
um sérstakar athuganir á þessu
stigi.
Tilkynning um Shell-
söluna birtist seint
Rætt var um að loka fyrir viðskipti með bréf Skeljungs. Fjármálaeftirlitið aflar upplýsinga
VIÐSKIPTABLAÐ MORGUNBLAÐSINS
NORRÆN ráðstefna um viðskiptafræði
verður haldin á Íslandi dagana 14.–16.
ágúst næstkomandi. Ráðstefnan, sem er á
vegum Nordisk Företagksekonomisk För-
ening (NFF), hefur verið haldin sextán
sinnum áður en aldrei á Íslandi. Gert er ráð
fyrir um 600 gestum.
Að sögn Margrétar Sigrúnar Sigurðar-
dóttur, verkefnisstjóra Viðskiptafræði-
stofnunar, eru umfjöllunarefni ráðstefn-
unnar, sem ber heitið NFF 2003, á afar
breiðu sviði. „Það er reynt að koma inn á öll
svið viðskiptafræðanna. Þarna gefst fræði-
mönnum á Norðurlöndum tækifæri til að
kynna rannsóknir sínar og fá umræður um
þær. Samhliða þessari ráðstefnu verður
haldin doktorsnemaráðstefna á Bifröst þar
sem 55 doktorsnemar frá Norðurlöndunum
kynna sínar rannsóknir,“ segir Margrét.
Hún segir að 450–500 erindi verði flutt á
ráðstefnunni sem haldin verður í Háskóla
Íslands. Í raun sé um margar ráðstefnur að
ræða sem sé skellt saman í eina. Alls verða
26 þemu tekin fyrir á ráðstefnunni, allt frá
reikningshaldi til mannauðsstjórnunar og
farið yfir það sem hæst ber á hverju sviði.
„Þarna gefst yfirlit yfir fræðin eins og
þau eru í dag,“ segir Margrét.
Ráðstefnuna sækja fræðimenn frá öllum
viðskiptaháskólum á Norðurlöndum. Á
vefnum www.nff2003.hi.is sem settur var
upp í tilefni ráðstefnunnar má finna frekari
upplýsingar um erindi á ráðstefnunni. Fjór-
ir aðalfyrirlesarar halda erindi við opnun
NFF 2003 og við lok ráðstefnunnar: Walter
W. Powell, prófessor við Stanford-háskóla
og Santa Fe Institute, Guje Sevon, prófess-
or við Stokkholm School of Economics,
Helgi Þorláksson og Þráinn Eggertsson,
sem báðir eru prófessorar við Viðskipta- og
hagfræðideild Háskóla Íslands.
Í undirbúningsnefnd fyrir ráðstefnuna
sitja, auk Margrétar, Runólfur Smári
Steinþórsson, dósent við HÍ, og Gylfi Dal-
mann Aðalsteinsson lektor við HÍ.
R Á Ð S T E F N A N N F F 2 0 0 3
Viðskipta-
fræði frá
öllum hliðum
Stærsta ráðstefna um
viðskiptafræði sem haldin
hefur verið á Íslandi
S É R B L A Ð U M V I Ð S K I P T I , E F N A H A G S M Á L O G A T V I N N U L Í F Á S A M T S J Á V A R Ú T V E G S B L A Ð I
Spá 26% minni hagnaði
Gengi krónunnar hefur mikil áhrif 2
Barátta gegn spillingu
Rætt við Jermyn P. Brooks hjá Transparency Int. 7
BREYTT NEYSLA OG
AUKIN ÁFENGISSALA