Morgunblaðið - 04.07.2003, Blaðsíða 24
LISTIR
24 FÖSTUDAGUR 4. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
„ÞETTA var óperusýning eins og
þær gerast allra bestar; stórkost-
lega hugmyndarík uppsetning,
flutningurinn magnaður og tilfinn-
ingaþrunginn. Í einu orði sagt –
stórfenglegt,“ segir í hinu alþjóðlega
óperutímariti Opera Now um sýn-
ingu Íslensku óperunnar á Macbeth
á liðnum vetri. Gagnrýnandi blaðs-
ins, Neil Jones, var viðstaddur sýn-
ingu 2. mars sl. og í nýútkomnu júlí/
ágúst-hefti blaðsins birtist gagnrýni
hans ásamt grein um starfsemi Ís-
lensku óperunnar, auk þess sem
fjallað er um Óperustúdíó Austur-
lands og Sumaróperu Reykjavíkur.
Jones byrjar umsögn sína á því að
fara jákvæðum orðum um leikmynd,
lýsingu og mikilvægt hlutverk
kvennakórsins og skrifar svo: „En
þó kórinn, leikmynd og lýsing hafi
verið afbragð, þá var það frammi-
staða einsöngvaranna sem lyfti þess-
ari uppsetningu í hæstu hæðir.
Ólafur Kjartan Sigurðarson var
stórkostlegur Macbeth þótt hann sé
í yngri kantinum fyrir hlutverkið, en
Elín Ósk Óskarsdóttir skóp ógleym-
anlega lafði Macbeth. Hæstu tón-
arnir hjá henni voru glæsilegir og
túlkun hennar kynngimögnuð. En
gæðin lágu víðar. Guðjón Óskarsson
í hlutverki Bancos, Jóhann Friðgeir
Valdimarsson sem Macduff og
Snorri Wium sem Malcolm sungu
allir og léku mjög vel. Hulda Björk
Garðarsdóttir var mjög þokkafull í
hlutverki hirðmeyjar lafði Macbeth
en það er synd að frá hendi Verdis er
hlutverkið svo lítið, að falleg söng-
rödd hennar fékk ekki að njóta sín
frekar.“
Um hljómsveitarstjórann Petri
Sakari segir að honum hafi tekist að
„fara með bæði söngvara og hljóð-
færaleikara út á ystu nöf, án þess að
fara nokkurn tíma yfir strikið í því
augnamiði að flytja stóra óperu með
traustum flytjendum í litlu húsi.“
Marktæk í alþjóðlegu
samhengi
Bjarni Daníelsson óperustjóri
segir að það sé afar ánægjulegt fyrir
Íslensku óperuna að fá svona um-
sögn í jafn virtu óperublaði. „Við
viljum gjarnan geta túlkað það
þannig að það sé grundvöllur fyrir
því að reka óperuhús á Íslandi með
sóma. Það er mjög mikilvægt fyrir
okkur að það sé staðfest á þennan
hátt að það sé mark á okkur takandi
í alþjóðlegu samhengi.“
Bjarni segir sýningar Íslensku óp-
erunnar ekki hafa fengið viðlíka um-
fjöllun áður í erlendum fagtímarit-
um, og kveðst vona að þetta verði til
þess að erlendir tónlistarblaðamenn
heimsæki Ísland oftar til að fylgjast
með því sem hér er að gerast. „Það
er mikilvægt fyrir okkur að vera
með í þeirri úttekt sem þessi blöð
gera, og auðveldar okkur að bera
okkur saman við önnur óperuhús.
Það má kannski segja að það sé ís-
lensk afstaða að frægðin komi að ut-
an, en það er ekkert óeðlilegt við það
að taka mark á því sem gests augað
sér. Ég hef orðið var við það að er-
lendir óperulistamenn sem hafa
unnið með okkur eru yfirleitt bæði
hissa og ánægðir með vinnulagið
sem hér tíðkast, en ekki síður hvað
fólk hér er fagmannlegt í því list-
ræna. Þetta fólk ber okkur afskap-
lega vel söguna, en óneitanlega er
meira gaman að sjá það á prenti í
stóru blaði.“
Sýning Íslensku óperunnar á Macbeth fær frábæra dóma í Opera Now
Í einu orði –
stórfenglegt
Morgunblaðið/Sverrir
Ólafur Kjartan Sigurðarson var stórkostlegur Macbeth og Elín Ósk Ósk-
arsdóttir kynngimögnuð Lafði Macbeth, segir meðal annars í dómi Neil
Jones um sýningu Íslensku óperunnar í óperutímaritinu virta Opera Now.
SNORRI Heimisson hélt sína
fyrstu tónleika í Listasafni Sigurjóns
Ólafssonar sl. þriðjudag og hóf tón-
leikana með Solo de Consert fyrir
fagott og píanó eftir Gabriel Pierné
(1863–1937) franskan tónsmið, org-
elleikara og hljómsveitarstjóra.
Pierné fékk Rómarverðlaunin 1882,
tók við af Cesar Franck sem org-
elleikari við Sainte-Clotilde kirkjuna
og var afkastamikið tónskáld. Þessi
einleikskonsert er skemmtilegt verk
er var í heild mjög vel leikið en þó
helst með nokkru æskuóþoli.
Annað viðfangsefnið var Bachian-
as Brasileiras nr. 6 fyrir flautu og
fagott eftir Villa-Lobos. Verkið er í
tveimur þáttum og er sá fyrri „Aría“
besti partur verksins og þar mátti
heyra sekvensa, er jafnvel minntu á
Bach, en sá seinni er í raun of fast
bundinn til að geta heitið fantasía
með góðu móti. Samleikur Snorra og
Berglindar Maríu Tómasdóttur var í
heild nokkuð góður og ljóst að þau
eru bæði efnilegir hljóðfæraleikarar.
Þriðja viðfangsefnið var Passacalia
in Blues, fyrir fagott og píanó, eftir
Emil Petrovics (1930), júgóslavnesk-
an tónsmið og kennara við Liszt-aka-
demíuna í Búdapest. Hann var af-
kastamikið tónskáld og auk stærri
verka samdi hann Nocturne fyrir
einn symbal og Mouvement en Rag-
time fyrir tvo symbala. Þrátt fyrir að
lítið færi fyrir „blues“ tónferli í
passacaliunni, sem var samkvæmt
klassískri formskipan, byggð á föstu
bassastefi, er tók ýmsum breyting-
um, var verkið ekki óskemmtilega
samið og var fjörlega og vel flutt af
þeim Snorra og Árna. Tríó fyrir
flautu, fagott og píanó eftir Chick
Corea (1941) og Interferences fyrir
fagott og píanó eftir Roger Boutry
(1932) eru tónsmíðar sem hægt er að
kalla einu nafni „meik“, eða eins kon-
ar spilara tónlist, þar sem raðað er
saman alls konar leikaðferðum og
ostinato-tónmynstrum, sem mynda
ekki það sem kalla mætti samfellda
tónsmíð, sem þó, í sumum tilfellum,
er ekki auðvelt að flytja og var lip-
urlegur flutningur það eina sem gaf
þessum verkum eitthvert yfirbragð
góðrar tónlistar.
Snorri Heimisson er efnilegur fag-
ottleikari, ræður yfir töluverðri
tækni og fallegum tóni, sem þó brást
á hæsta sviðinu, sem útaf fyrir sig er
ekki tiltökumál og gæti verið tilfall-
andi. Túlkun hans er gædd nokkru
æskuóþoli en í fallegu aukalagi sýndi
Snorri ljóðrænan og syngjandi fal-
legan tónaleik. Samleikararnir
Berglind María Tómasdóttir og
Arne Jørgen Fæø eru efnilegir
hljóðfæraleikarar og átti Berglind
María oft góða spretti, sérstaklega í
dúettinum eftir Villa-Lobos. Í stíl við
ríkjandi óþol hinna efnilegu flytj-
enda, sem skóp þá stemmningu, eins
og eitthvað lægi á, var leikur Fæø,
kvikur en hvell, viss og sérlega skýr.
Æskuóþol
TÓNLIST
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar
„Debut“ tónleikar á fagott. Snorri Heim-
isson lék sína fyrstu opinberu tónleika og
flutti verk eftir G. Pierne, Villa-Lobos, E.
Petrovics, Ch. Corea og R. Boutry.
Samleikarar voru Berglind María Tómas-
dóttir á flautu og Arne Jørgen Fæø á
píanó. Þriðjudagurinn 1. júlí 2003.
FAGOTTTÓNLEIKAR
Jón Ásgeirsson
Aðalheiður S. Eysteinsdóttir opn-
ar sýningu á myndbandi í Ketilhús-
inu á Akureyri. Opnun sýningar-
innar er liður í verkinu „40 sýningar
á 40 dögum“.
Í DAG
Sjá einnig Staður og stund á mbl.is
Föstudagur
Nýja bíó kl. 20 Tónleikar harðang-
ursfiðluhljómsveitar frá Bærum í
Noregi. Hópur dansara sýnir norska
þjóðdansa við undirleik hljómsveit-
arinnar.
Siglufjarðarkirkja kl. 21.30 Egill
Ólafsson og djasstríóið Flís flytja
sönglög Jóns Múla Árnasonar við
texta bróður hans, Jónasar. Tríóið er
skipað Davíð Þór Jónssyni píanó,
Valdimar Sigurjónssyni kontrabassa
og Helga Svavari Helgasyni slag-
verksleikara.
Þjóðlagahátíðin
á Siglufirði
NÚ stendur yfir sýning þeirra
Áslaugar Woudstra Finsen og
Rebekku Gunnarsdóttur í Listasetr-
inu Kirkjuhvoli á Akranesi. Þar sýna
þær vatnslitamyndir og glerverk.
Sýningin stendur til 6. júlí.
Listasetrið er opið alla daga nema
mánudaga frá kl. 15–18.
Áslaug Woudstra Finsen og Rebekka Gunnarsdóttir við verk sín.
Sýna í Kirkjuhvoli
HELGI Þorgils Friðjónsson opnar
myndlistarsýningu kl. 16 á laugar-
dag í Galleríi Sölva Helgasonar í
Lónkoti í Skagafirði.
Á sýningunni eru sextán olíu-
málverk, sem eru myndröð sér-
staklega gerð í tilefni þessara sýn-
ingar.
Sýningin Helga Þorgils nyrðra
stendur fram að mánaðamótum.
Þrjár myndir af 16 úr myndaröðinni Auga, eftir Helga Þorgils. 20 x 20 sm.
Helgi Þorgils sýnir ný
olíuverk í Lónkoti
TRÍÓ Cantabile heldur stutta hádeg-
istónleika kl. 12.15 í Ráðhúsi Reykja-
víkur í dag, föstudag og flytur allt frá
dramatískum verkum yfir í létt dæg-
urlög. Tríóið er skipað Birnu Helga-
dóttur, píanóleikara, Emilíu Rós Sig-
fúsdóttur, flautuleikara og Sigríði
Ósk Kristjánsdóttur, söngkonu. Tríó-
ið er hluti af skapandi sumarstarfi
Hins hússins. Aðgangur ókeypis.
Tríó á hádegis-
tónleikum
Í grænni lautu er
bók með gömlum
og nýjum söngva-
leikjum. Ragn-
heiður Gests-
dóttir valdi leikina
og myndskreytir
þá með litríkum klippimyndum.
Bókin geymir söngvaleiki sem börn
á öllum aldri hafa um árabil leikið
jafnt úti sem inni. Sumir leikirnir hafa
gengið kynslóð fram af kynslóð.
Útgefandi er Mál og menning.
Bókin er prentuð í Danmörku. Verð:
1.990 kr. Tilboðsverð í júlí 1.393 kr.
Söngvaleikir
TVÆR sýningar verða opnaðar
á jarðhæð í Norska húsinu í
Stykkishólmi kl. 14 á laugardag.
Ebba Júlíana Lárusdóttir sýnir
glerlistaverk í bláa sal hússins.
Ebba Júlíana er fædd og uppal-
in í Stykkishólmi og hefur lagt
stund á glerlist síðan 1988, en
hún lærði glerbræðslu hjá Chris
Ellis og glerblástur í Portland
Press Studio í Texas.
Ebba hefur haldið fjölda
einka- og samsýninga hér heima
og erlendis. Sýningin saman-
stendur að mestu af veggmynd-
um og skálum sem sýna þær
nýju brautir sem Ebba Júlíana
fetar nú í listsköpun sinni.
Í gyllta salnum sýna 15 lista-
menn sem allir tengjast gall-
eríinu Samlaginu á Akureyri.
Sett verða upp smærri mynd-
verk eftir félagsmenn en sam-
svarandi sýningar félagsmanna
úr Samlaginu eru í sumar settar
upp m.a. á Akureyri, í Reykja-
vík, á Egilsstöðum og á Blöndu-
ósi.
Í sýningaraðstöðunni í Brok-
eyjarstofu verður sett upp sýn-
ing úr fórum safnsins og heldra
heimili á 19. öld er á annarri
hæð hússins.
Sýningarnar á jarðhæðinni
standa til 28. júlí en húsið er op-
ið daglega í sumar kl. 11–17.
Gler- og myndverk
í Norska húsinu
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦