Morgunblaðið - 04.07.2003, Blaðsíða 42
DAGBÓK
42 FÖSTUDAGUR 4. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Í
dag er Stella Pollux
væntanleg og út fara
Mánafoss, Björn RE og
Hanseduo.
Hafnarfjarðarhöfn: Í
dag er Stella Pollux
væntanleg.
Mannamót
Aflagrandi 40. Bingó í
dag kl. 14. Þjórsár-
dalur, Háifoss og Gjá-
in. Miðvikudaginn 9.
júlí verður farið í
Þjórsárdal og að Háa-
fossi og Gjánni. Stopp-
að verður í Árnesi. Þar
fáum við okkur súpu,
brauð og kaffisopa.
Lagt af stað frá Afla-
granda kl. 9.30. Skrán-
ing í afgreiðslu eða í
síma 562 2571.
Árskógar 4. Kl. 13–
16.30 opin smíða- og
handavinnustofan.
Púttvöllur opinn. .)
Bólstaðarhlíð 43. Kl.
8–16 hárgreiðsla, kl.
8.30–12.30 bað, kl. 9–16
handavinna, kl. 9–17
fótaaðgerð, kl. 13–16
spilað í sal.
Félagsstarfið, Dal-
braut 18–20. Kl. 9 að-
stoð við böðun, hár-
greiðslustofan opin.
Félagsstarfið Dalbraut
27. Kl. 8–16 opin
handavinnustofan, kl.
9–12 applikering, kl.
10–13 opin verslunin.
Félagsstarfið Hæðar-
garði 31. Kl. 9.30
gönguhópur, allir vel-
komnir, kl. 9–12 bað,
kl. 9–16 opin vinnu-
stofa.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8. bað, kl. 10
hárgreiðsla, kl. 10–12
verslunin opin, kl. 11
leikfimi, kl. 13 „opið
hús“ spilað á spil.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist
spiluð í Fannborg 8
(Gjábakka) kl. 20.30.
Skrifstofan er lokuð
frá og með 30. júní til 6.
ágúst. Viðvera í Gjá-
bakka fellur niður á
sama tíma.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Billjard
kl. 13.30 og brids kl. 13.
Innanfélags Púttmót á
Hrafnistuvelli. Mæting
kl. 13.30.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. S. 588 2111.
Dagsferð 12. júlí.
Söguferð í Borgar-
fjörð. Hvanneyri,
Deildartunguhver,
Reykholt, Hraun-
fossar, Húsafell o.fl.
Kaffi og meðlæti í
Munaðarnesi. Leið-
sögn Sigurður Krist-
insson. Brottför kl. 9.
Gerðuberg, fé-
lagsstarf. Lokað vegna
sumarleyfa til 12.
ágúst. Sund og leik-
fimiæfingar í Breið-
holtslaug á mánudög-
um, miðvikudögum og
föstudögum kl. 9.30.
Gjábakki, Fannborg 8.
Handavinnustofan op-
in, leiðbeinandi á
staðnum kl. 9.30–16.
Kl. 13.15 brids, kl.
20.30 félagsvist.
Gullsmári, Gullsmára
13. Opið frá kl. 9–17,
heitt á könnunni.
Gjábakki – Gullsmári.
Fjögur sæti laus um
Strandir til Ófeigs-
fjarðar dagana 14.–17.
júlí. Upplýsingar í síma
554 3400.
Hraunbær 105. Kl. 9
baðþjónusta, fótaað-
gerð og hárgreiðsla, kl.
10 pútt. Bingó kl. 14.
Hvassaleiti 58-60.
Hársnyrting fótaað-
gerðir. Bingó og vöfflu-
kaffi í dag kl. 13.30.
Norðurbrún 1. Kl. 9–
17, hárgreiðsla.
Vesturgata 7. Kl. 9–16
fótaaðgerð og hár-
greiðsla, kl. 9.15–14.30
handavinna, kl. 13.30–
14.30 Sungið við flyg-
ilinn, kl. 14.30–16 dans-
að í aðalsal.
Vitatorg. Kl. 9 hár-
greiðsla, kl. 9.30 morg-
unstund, kl. 10 fótaað-
gerð, kl. 13.30 bingó.
FEBK. Brids spilað kl.
13.15 í Gjábakka.
Hana-nú, Kópavogi.
Laugardagsgangan á
morgun. Lagt af stað
frá Gjábakka, kl. 10.
Gott fólk, gott rölt.
Gengið frá Gullsmára
13, kl. 10 á laugar-
dögum.
Minningarkort
Minningarkort Lands-
samtaka hjartasjúkl-
inga fást í Reykjavík,
Hafnarfirði og á
Seltjarnarnesi á skrif-
stofu LHS, Síðumúla 6,
Reykjavík, s. 552-5744,
fax 562-5744, Hjá
Hirti, Bónushúsinu,
Suðurströnd 2,
Seltjarnarnesi, s. 561
4256, Bókabúð Böðv-
ars, Reykjavíkurvegi
66, Hf., s. 565 1630.
Minningarkort Lands-
samtaka hjartasjúkl-
inga, Vesturlandi:
Penninn, Bókabúð
Andrésar, Kirkjubraut
54, Akranesi, s.
431 1855 Dalbrún ehf.,
Brákarbraut 3, Borg-
arnesi, s. 437 1421
Hrannarbúðin, Hrann-
arstíg 5, Grundarfirði,
s. 438 6725.
FAAS, Félag aðstand-
enda alzheimer-
sjúklinga. Minning-
arkort eru afgreidd
alla daga í s. 533-1088
eða í bréfs. 533-1086.
Í dag er föstudagur 4. júlí, 185.
dagur ársins 2003. Orð dagsins:
Þá er þeir mötuðust, tók Jesús
brauð, þakkaði Guði, braut það og
gaf lærisveinunum og sagði: Tak-
ið og etið, þetta er líkami minn.
(Matt. 26, 26.)
Jón Steinsson skrifarpistil í Deigluna og
furðar sig á ofurtollum á
innfluttan ís. „Fyrir
nokkrum vikum úrskurð-
aði Samkeppnisstofnun
að Kaupás og Bónus
mættu ekki ráðstafa
meira en 80% af því
frystirými sem ætlað er
fyrir framstillingar á ís-
vörum í viðskiptasamn-
ingum við Kjörís og
Emmessís,“ skrifar Jón.
„Það sem er ef til vill
athyglisverðast við þetta
mál er einfaldlega það að
sú staða skuli á annað
borð hafa komið upp á Ís-
landi að Kjörís og Emm-
essís hafi eins sterka
stöðu á ísmarkaði og raun
ber vitni. Það þarf varla
að taka það fram að er-
lendis selst Kjörís og
Emmessís nánast ekki
neitt. Enda eru ísarnir
sem þessi fyrirtæki fram-
leiða ekkert sérlega góðir
í alþjóðlegum saman-
burði. Þar hafa ísar á
borð við Ben & Jerry’s og
Haagen-Daas vinninginn.
(Að mati undirritaðs og
flestra sem hann hefur
rætt þetta mál við.)
Skýringin á velgengniKjöríss og Emmessíss
er ef til vill sú að háir
verndartollar eru lagðir á
innfluttan ís. Ben and
Jerry’s og Haagen-Daas
ísar bera ekki aðeins
magntoll upp á 110 kr./
kg heldur einnig 30%
verðtoll. Þetta þýðir að ef
erlendir söluaðilar selja 1
kg af slíkum ísum til Ís-
lands á 100 kr. leggst 140
kr. tollur á ísinn þannig
að íslenskir heildsalar
þurfa að greiða 240 kr./
kg fyrir hann.
Þessir háu tollar gera
það að verkum að hálfur
líter af Ben and Jerry’s ís
kostar u.þ.b. 750 kr. út úr
búð í Reykjavík. Í Banda-
ríkjunum kostar þessi
sami ís rétt rúmar 200 kr.
Til samanburðar kosta 2
lítrar (þ.e. fjórum sinnum
meira magn) af hinum
verndaða Mjúkís einnig
um 750 kr.
Í þessu máli eins og svo
mörgum öðrum hafa litlir
hagsmunir þröngs hóps
framleiðenda verið teknir
fram yfir mun stærri
hagsmuni neytenda. Toll-
ar á ís eru fáránleg tíma-
skekkja sem ætti að af-
nema hið fyrsta,“ skrifar
Jón Steinsson.
Við þetta má bæta þeirriathugasemd, að ef
hægt væri að fá útlendan
ís á svipuðu verði og þann
íslenska, yrðu innlendir
ísframleiðendur að efla
vöruþróunina og búa til
betri ís til að standa sig í
samkeppninni. Geta ekki
allir verið sammála um að
æskilegra sé að íslensk
framleiðsla sé keypt
gæðanna vegna en vegna
þess að hún sé vernduð
með ofurtollum?
Helsta röksemdin fyrir
ofurtollum á ís er að með
því sé verið að vernda
innlendan landbúnað. En
að hve miklu leyti ætli ís-
lenskur ís sé búinn til úr
mjólkurafurðum? Eru
önnur hráefni ekki harla
stór hluti vörunnar, sum
hver jafnvel innflutt á
lágum eða engum tollum?
STAKSTEINAR
Ofverndaður
íslenskur ís
Víkverji skrifar...
KUNNINGI Víkverja er mikillgöngumaður. Gengur á hverjum
degi með hund sinn í bandi á heima-
slóðum. Yfirleitt er það mikið gam-
an, hann horfir á fuglana, spáir í
sjávarföll og bara nýtur lífsins. Þó
eru undantekningar þar á, eins og
sjálfsagt á öllu í lífinu.
Nýlega var kunninginn einu sinni
sem oftar á heimleið úr röskum,
blautum túr, bæði hundurinn og
hann sjálfur, ja, hundblautir. Fram-
undan sá hann fjóra stráka saman í
hóp og einn sem fylgdi í humátt á
eftir þeim. Þeir voru kátir og ánægð-
ir eins og drengja er siður og létu
hátt. Í því að kunningi Víkverja
mætir þeim heyrir hann einn þeirra
segja: „Djöf … var gott hjá okkur að
rífa buxurnar utan af þessum aum-
ingja!“ Að því sögðu sneru þeir sér
allir við og öskruðu á þann sem á eft-
ir fylgdi: „Frík, frík, aumingi.“ Sá
sem fyrir aðkastinu varð sagði ekk-
ert heldur gekk niðurlútur áfram.
Kunningjann langaði mest til að
skerast í leikinn en hundurinn var
heimfús og leyfði ekki neina af-
skiptasemi í þetta sinn. Í staðinn
sneri kunninginn sér við og fylgdist
með því sem fram fór í von um að
það mundi duga til að strákarnir
fjórir létu af þessum ljóta leik. En
það var nú öðru nær. Þeir veittust að
fórnarlambinu með orðum, hrintu
honum og slógu til hans. Kunningi
Víkverja var forviða og starði á það
sem fram fór stórum augum. Fór
svo fram um stund uns heyrðist í
einum: „Hey, hún er enn að horfa á
okkur, ma’r,“ og þar með létu þeir
strákgreyið vera, buxurnar ónýtar
og spurning hvernig sjálfsmyndin er
eftir svona lagað.
x x x
KUNNINGJA Víkverja var aðþessu loknu heitt í hamsi, hálf-
hljóp heim og fór beint í símann.
Hann taldi nefnilega víst að hann
gæti rakið ferðir þessara þokkapilta
til leikjanámskeiðs eða einhvers
slíks sem í gangi er í bæjarfélaginu.
Hann byrjaði á að hringja í íþrótta-
félag staðarins, þar var honum sagt
að leikjanámskeið og slíkt væri á
vegum bæjarins. Þá hringdi hann á
bæjarskrifstofuna og var þar vísað
af einum á annan þar til hann var við
það að gefast upp. En, nei, hann
skyldi ekki gefast upp og hafði á
endanum uppi á konu einni sem var
til í að hlusta á söguna og ætlaði að
reyna að komast til botns í málinu.
x x x
EFTIR allar umræðurnar sem ver-ið hafa í gangi upp á síðkastið
um einelti og afleiðingar þess getur
kunninginn ekki annað en undrast
þvílíkt og annað eins. Hann telur að
piltar á þessum aldri – hann giskaði
á þeir hefðu verið 12–13 ára – ættu
að hafa hlotið fræðslu um þessi mál.
Kannski er brotalöm á fræðslunni
eða þá að sumum er hreinlega ekki
við bjargandi. Hann vildi deila þess-
ari sögu með fleirum í von um að ein-
hverjir myndu ranka við sér og
brýna fyrir börnum sínum að bera
virðingu fyrir náunganum og koma
fram við aðra eins og þau vilja að
aðrir komi fram við sig.
Morgunblaðið/Þorkell
Einelti er andstyggilegt.
Dýrin haga sér
dólgslega
KONA úr Elliðaárdalnum
hafði samband við Velvak-
anda og lýsti yfir andstöðu
sinni við ketti. Hún kvaðst
ekki geta liðið það að kettir
væru sífellt að skríða inn
um gluggana á húsi hennar
þar sem þeir sporuðu út
gluggakistur og gerðu ann-
an óskunda. Hún hefur
keypt tilteknar vörur sem
eiga að sporna gegn kött-
um, sem koma þarna
óboðnir, en ekkert hefur
gengið.
Konan var einnig ósátt
við framkomu hundaeig-
enda sem viðra hunda sína í
Elliðaárdalnum. Hún getur
að eigin sögn ekki verið ein
á ferli í dalnum. Hundar
gangi þar lausir og láti oft á
tíðum dólgslega, ekki síður
en eigendur þeirra. Ef fólk
getur ekki haft hemil á dýr-
um sínum ætti að senda
þau í sveit. Þar eru þau
engum til ama. Fólk á að fá
að vera í friði með sitt, án
þess að eiga það á hættu að
verða fyrir áreiti frá kött-
um og hundum.
Skinkuvefjur gleðja
LEIGUBÍLSTJÓRI hafði
samband við Velvakanda
og lýsti ánægju sinni með
góðan skyndibita. Hann
segir að Skinkuvefjur þær
sem fást á Borgargrilli séu
einhver sá albesti skyndi-
biti sem hann hefur bragð-
að. Þykir honum afskap-
lega gott að fá sér slíkan
dýrindismat þegar hann er
við vinnu sína, seint um
kvöld og jafnvel á nóttunni.
Tapað/fundið
Hlutir töpuðust
á Nelly’s
GRÆNN leðurjakki,
Nokia-sími, lyklar og
peysa. Allt eru þetta hlutir
sem eiga það sameiginlegt
að hafa tapast á Nelly’s
þann 16. júní sl. Finnandi
hafi samband í síma
694 3725. Fundarlaun í
boði.
Vaðstígvél töpuðust
SONUR minn sjö ára skildi
eftir vaðstígvélin sín við
þvottalaugarnar í Laugar-
dal mánudaginn 30. júní sl.
Hann var þar með skátafé-
laginu Skjöldungum, en á
staðnum voru fleiri hópar.
Að öllum líkindum hefur
einhver úr hinum hópunum
tekið þau í misgripum.
Stígvélin eru svört og
merkt Úlfari, þau voru í
myndskreyttum plastpoka.
Hafi einhver upplýsingar
um stígvélin væri ráð að
hringja í síma 898 6789.
Kross tapaðist
HVÍTAGULLSKROSS
tapaðist þann 28. júní sl.
Krossinn hefur að öllum
líkindum tapast við Mark-
land 10 í Fossvoginum eða
Hafnarfjarðarkirkju. Skil-
vís finnandi vinsamlegast
hafi samband í síma
865 1967.
Dýrahald
Í leit að heimili
LJÚF mæðgin vantar
heimili. Þau geta ekki dval-
ið á núverandi heimili sök-
um flutninga og fást gefins
saman eða í sitthvoru lagi.
Upplýsingar í síma
860 5568.
Köttur fannst í
Vesturbæ
RAUÐBRÖNDÓTTUR og
hvítur kettlingur fannst í
Vesturbæ. Hann ber rauða
ól.
Upplýsingar í síma
551 2335 eða 662 0482.
Kanína fannst í
Jakaseli
LÍTIL grá kanína fannst í
Jakaseli þann 2.7. sl. Upp-
lýsingar í síma 896 6971.
Hamstur
fannst
LÍTILL gulbrúnn hamstur
fannst í Hólahverfi í gær.
Eigandi getur vitjað hans í
síma 698 0522.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
Morgunblaðið/Ómar
LÁRÉTT
1 flautar, 4 skvampa, 7
örum, 8 þvaðra, 9 nöldur,
11 magurt, 13 fiskurinn,
14 bál, 15 galdra-
tilraunir, 17 sníkjudýr,
20 ambátt, 22 stinga, 23
fiskar, 24 kul, 25 dauf
ljós.
LÓÐRÉTT
1 krydd, 2 skaut, 3 víða, 4
korn, 5 gulls, 6 ávöxtur,
10 fiskur, 12 álít, 13 smá-
sletta, 15 stórrar húðfell-
ingar, 16 svigna, 18
blíðuhót, 19 nytjalönd, 20
gefi að borða, 21 tuddi.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 steingrár, 8 vikni, 9 efast, 10 nei, 11 reisa, 13
neita, 15 fetil, 18 hakar, 21 íla, 22 skort, 23 kurla, 24 rik-
lingur.
Lóðrétt: 2 takki, 3 ilina, 4 grein, 5 ábati, 6 hver, 7 ótta,
12 sói, 14 eða, 15 fisk, 16 troði, 17 lítil, 18 hakan, 19
kerru, 20 róar.
Krossgáta
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16