Morgunblaðið - 06.07.2003, Blaðsíða 53
unum. Sá er átti þann bíl var hepp-
inn að platan skyldi ekki fá titilinn
Everest og að myndin af fjórmenn-
ingunum skyldi ekki vera tekin í
fjöllunum þeim eins og til stóð í
fyrstu.
Meðan á upptökum stóð bar að
góða gesti. Söngkonan Linda Tayl-
or, vinkona Rabba til margra ára,
var svo vinsamleg að líta inn og
syngja lag Rabba, „Angel“, sem er
af síðustu sólóplötu hans. Eftir smá-
upphitun var röddin komin í gott
form og Linda söng þetta fallega
lag af mikilli innlifun og tilfinningu.
Ken Thomas, hirðupptökumaður
margra íslenskra og erlendra tón-
listarmanna, s.s. hljómsveitarinnar
Sigur Rósar, stóðst ekki mátið og
leit inn. Ken hefur unnið töluvert
með Rabba, tók m.a. upp plötuna Í
álögum með Rabba og Rúnari fyrir
þremur árum. Í næsta herbergi var
Dave Stewart, gítarleikari og laga-
höfundur Eurythmics, að klippa
hljóðupptökur. Í sama mund og ein-
hverjum úr hópnum datt í hug að fá
hann til að grípa í gaf skiptiborðið
símann óvart inn til okkar og á lín-
unni var Quincy Jones að spyrja um
Stewart. Það var því látið eiga sig
að ónáða hann.
Þennan daginn er ekki síður
neisti í mönnum, engu líkara en
flóðgáttir hafi opnast. Hlýir tónar
hljóðversins og stemmningin sem
alltaf fylgir Rabba mynda magnaða
blöndu. Það er orðið fjölmennt í
stúdíói 2, klukkan að verða tíu að
kvöldi og tíminn að renna út. Í hóp-
inn hafa bæst eiginkonur, börn og
tengdabörn. Engu er líkara en á
þessari stundu renni saman í eitt
Abbey Road og Rabbi Road. Draum-
urinn er í höfn og menn halda of-
urlítið tregafullir en fullkomlega
sáttir á fyrri slóðir, í raunveruleik-
ann og hinn íslenska hljóðheim. En
minningin lifir eins og „Strawberry
Fields Forever“.
Anddyri Abbey Road-hljóðversins.
Höfundur er gítarleikari og kennari.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. JÚLÍ 2003 53
KRINGLAN
kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10. B.i. 12.
Svalasta mynd sumarsins er komin.
AKUREYRI
Sýnd kl. 6, 8 og 10. B.i. 12.
AKUREYRI
Sýnd kl. 4.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.15. B.i.12.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 8 og 10.20. B.i. 16.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 2, 4 og 6.
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 8 og 10.
ÁLFABAKKI
kl. 2, 4, 6 og 8.
KVIKMYNDIR.COM
KVIKMYNDIR.IS
ÓHT Rás 2
Sýnd kl. 10. B.i 12.ÁLFABAKKI
SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 5.30, 8 OG 10.30. ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.15.
KRINGLAN
Sýnd kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 2. Ísl. tal. Tilboð 300 kr.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 2 og 4. Ísl. tal.
KEFLAVÍK
kl. 4 og 6.
Tilboð 300
QAQORTOQ, Grænlandi. Föstudagurinn 4. júlí. Kristjan Egede er bóndi
nálægt bænum Igaliko sem er skammt frá Narsaq. Hann selur hér afurðir
sínar við höfnina í Qaqortoq. Einnig ræktar hann rófur og kartöflur auk þess
sem hann verkar harðfisk á vorin. Hann hefur einu sinni komið til Íslands,
árið 1995, og ferðaðist þá vítt og breitt um landið. Hann var mjög hrifinn af
Reykjavík, fannst hún mjög glæsileg borg.
Dagbók ljósmyndara
Morgunblaðið/Ómar
Grænlenskur rabarbari
EIN af athyglisverðustu plötum
síðasta árs – og ein af þeim bestu,
reyndar – var platan Lonely
Mountain með hinum alls óþekkta
Mugison. Platan er þekkilegasti
samhræringur af raftónlist, tölvu-
þruski og bítlalegum stemmum;
allt framreitt á afar aðlaðandi
máta.
Mugison er listamannsnafn Arn-
ar Elíasar Guðmundssonar sem nú
hefur nýlokið námi í hljóðupptöku-
tækni í Lundúnum. Ævintýrum
Mugisons er þó hvergi nærri lokið
og í haust kemur téð plata út hjá
fyrirtæki Matthew Herberts, hús-
tónlistarmanns með meiru, en
merkið kallast Magic and Accident
(þess má geta að Herbert þessi
mun fara í túr með Björk Guð-
mundsdóttur í ágúst og mun þá
leika ásamt The Matthew Herbert
Big Band).
Örn segist nú vera kominn með
B.A-gráðu í „recording arts“ en
bætir við: „Hvað sem það nú þýð-
ir!“
Hann segir skólann einfaldlega
hafa verið fullan af græjum, ein-
hverjir lúðar hafi kennt á þær og
hann og félagar hans hafi legið
slefandi yfir hátölurum með lóð-
bolta í tvö og hálft ár en þess á
milli hafi þeir hlustað á tónlist og
pælt út og suður.
Í námi meðfram plötu
„Ég kunni ekki almennilega á
tölvur á sínum tíma og ákvað því að
skella mér í þetta nám,“ segir Örn.
„Ég laug því reyndar að foreldr-
unum að þetta væri mjög hagnýtt
nám og ég gæti fengið vinnu hjá
Ríkisútvarpinu í fyllingu tímans.“
Eins og áður segir er Örn nú
kominn með samning við Magic
and Accident og verður platan gef-
in út af hliðarmerki þess fyrirtæk-
is, Lifelike.
„Þegar ég bjó úti var platan
tilbúin og ég sendi diska á nokkur
fyrirtæki. En ég
sendi Herbert
fallegt bréf og
sagðist vera
skotinn í honum
og fékk því svar!
Hann bauð mér
svo í mat og við
þekkjumst ágæt-
lega í dag. Einn-
ig sendi ég hon-
um mynd sem ég teiknaði
kolruglaður, en það var víst gasleki
í íbúðinni sem ég varð ekki var
við.“
Örn segist hafa verið í námi
meðfram téðri plötu frekar en að
ferlið hafi verið öfugt.
„Hún kemur svo út í Evrópu í
september. Það kom út takmarkað
upplag fyrir þremur mánuðum síð-
an og var það bara selt í Rough
Trade-búðinni í London og ein-
hverjum búðum í Japan og Evrópu.
Platan var valin plata mánaðarins
hjá Rough Trade og rauk víst út
þar.“
Margt á seyði hjá Mugison
Slefandi með lóðbolta
Mugison
arnart@mbl.is
TENGLAR
.....................................................
www.mugison.com