Morgunblaðið - 06.07.2003, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. JÚLÍ 2003 B 3
AÐSPURÐUR segir Einar að at-vinnuástand sé þokkalegt íBolungarvík. Þaðan eru nú
gerðir út um 50 bátar og hefur verið að
fjölga. Mest eru þetta smábátar, allt upp
í 15 tonn. „Sjávarútvegur er og verður
aðalatvinnugreinin hér í Bolungarvík. En
við viljum byggja upp fleira til að taka
við fólki sem hefur aflað sér menntunar
á öðrum sviðum,“ segir Einar.
Í Bolungarvík er ekki mikið um erlent
vinnuafl. „Þeir [útlendingar] sem eru
hér hafa verið mjög lengi og lagað sig
vel að samfélaginu. Þetta er fólk sem
kom til að vera og hefur keypt sér hér
hús.“ Nóg íbúðarhúsnæði er í boði í Bol-
ungarvík, að sögn Einars. „Félagslega
húsnæðiskerfið hefur verið baggi á
sveitarfélögum. Fólk hefur sóst eftir að
komast í stærra húsnæði og félagslegu
blokkirnar staðið auðar að einhverju
leyti. Hér bjuggu um 1.300 manns á
meðan EG var í fullu fjöri, fram undir
1990. Nú eru hér innan við þúsund
manns.“ Einar segir að íbúafjöldinn hafi
staðið í stað undanfarin tvö ár. Hann
segist vona að línuívilnunin skapi fleiri
störf og stuðli að fjölgun íbúa.
Í bæjarstjórn Bolungarvíkur sitja fjór-
ir fulltrúar Sjálfstæðisflokks og þrír
fulltrúar Bæjarmálafélags Bolung-
arvíkur. Samkomulag þykir einstaklega
gott í bæjarstjórninni. Einar segist ekki
hafa orðið var við neina flokkadrætti í
bæjarstjórn né bæjarráði. „Það starfa
allir að því einhuga að bæta bæjarlífið
og hér er sérstaklega góð samstaða.“
Þegar spurt er um atvinnu í landi
nefnir Einar fyrst stórglæsilegt há-
tæknifrystihús Bakkavíkur hf. Auk þess
eru smærri fiskvinnslur og nýsköp-
unarfyrirtækið Fiskbitar.
„Þetta fyrirtæki er einstakt þar sem
það nýtir úrgang frá fiskvinnslunni til að
skapa enn meiri verðmæti úr aflanum,“
segir Einar. „Svo er hér fiskimjölsverk-
smiðja og komu á land um 30 þúsund
tonn af loðnu í fyrra. Því miður fengum
við enga loðnu í vetur en nú þegar hafa
skip komið til okkar eftir að sumarvertíð
hófst, svo það lítur betur út með þessa
vertíð. Verksmiðjan vinnur líka úr bein-
um og rækjuskel víða að af Vest-
fjörðum. Þetta er mjög fullkomin mjöl-
verksmiðja.“
Meðal nýlegra sprota í atvinnulífi Bol-
víkinga er Náttúrustofa Vestfjarða. „Við
vonum að ríkið beini hingað verkefnum
sem augljóslega er hægt að vinna úti á
landi. Þar vil ég til dæmis nefna vöktun
á landsvæðum og fornleifarannsóknir.
Náttúrustofan getur einnig verið tengi-
liður í samstarfi við innlendar og erlend-
ar rannsóknastofnanir. Hún hefur m.a.
verið unnið að rannsóknum á Horn-
ströndum og gert rannsókn á útrásum
sveitarfélaga hér á norðanverðum
Vestfjörðum. Þeir sýndu fram á að hér
þyrfti ekki að byggja rándýra skólp-
hreinsistöð. Þessi rannsókn gæti skilað
þjóðarbúinu gríðarlegum sparnaði.“
Bolvíkingar eru að fikra sig áfram í
ferðaþjónustu. „Við eigum stórglæsi-
legt sjóminjasafn í Ósvör um árabáta-
tímann. Það er orðið mjög vel þekkt
víða um lönd. Þúsundir ferðamanna
koma á hverju ári að heimsækja það.“
Ferðamannaíbúðir
Einar segir að skortur á gistiaðstöðu
hamli ferðaþjónustunni. Hann sér
möguleika á að nýta ónotaðar íbúðir í
félagslega íbúðakerfinu og bjóða upp á
íbúðagistingu. „Við hefðum helst viljað
selja þær einhverjum sem vildi setja
upp svona fyrirtæki, eða leigja þær
rekstraraðila. Það er veruleg eftirspurn
eftir gistiplássi. Hér er stórglæsileg
íþróttaaðstaða og sundlaug, ágætt
skíðasvæði og knattspyrnuvöllur með
stóru og góðu æfingasvæði. Svo er hér
eini 18 holu golfvöllurinn á Vestfjörðum.
Ég hef hitt menn sem segjast vilja koma
hingað til að spila golf ef hægt væri að
leigja íbúðir. Svo er hér mjög gott nátt-
úrugripasafn þar sem m.a. er ísbjörn
veiddur af Bolvíkingum eins og frægt
varð. Menningarlíf er í miklum blóma,
félagsstarf, kórar og mikið af hæfileika-
ríku tónlistarfólki sem stendur fyrir
skemmtilegum uppákomum.“
Einar segir Bolvíkinga horfa björtum
augum til framtíðar. „Við ætlum ekki að
láta þá erfiðleika sem bitið hafa lands-
byggðina ýta okkur niður; ætlum ekki
að leggja árar í bát. Bolvíkingar eru ein-
huga um að berjast áfram.“
Einar Pétursson tók við starfi bæjarstjóra í Bolungarvík um síð-
ustu áramót. Hann nam rekstrarfræði á Bifröst og er að skrifa
lokaritgerð til BS-prófs í viðskiptafræði.
Einar Pétursson
TENGLAR
.....................................................
www.bolungarvik.is
Baráttuhugur í
Bolvíkingum
sögunnar Þorbjörn hf. í Grindavík og
var gert samkomulag um samein-
ingu Þorbjarnar og Bakka hf. í júlí
1997.
„Þorbjörn sagðist ætla að halda
hér uppi vinnslu áfram,“ segir Guð-
mundur. „Það urðu bara nokkrir
mánuðir sem hann hélt uppi vinnslu.
Hann keypti líka togara sem nefndur
var Hrafnseyri með heimahöfn í Bol-
ungarvík. Skipið kom fyrsta daginn
sem hann tók við rekstrinum, en ég
held það hafi aldrei landað hér. Svo
segja þeir, alveg eins og ÚA á Ak-
ureyri um Raufarhöfn, að þeir hafi
tapað á rekstrinum og þetta gangi
ekki upp.“
Þorbjörn hætti bolfiskvinnslu í
Bolungarvík haustið 1998, vegna
taprekstrar og hráefnisskorts að því
er sagt var. Eins dró úr rækjuvinnsl-
unni vegna þess að erfitt var að út-
vega hráefni. Guðmundur segir að
þetta hafi verið erfiðir tímar. „Það
varð hrun á fasteignamarkaðinum í
Bolungarvík, það féllu öll hús í verði
á einum degi.“
Þorbjörn fór í samstarf við
NASCO um rekstur rækjuvinnsl-
unnar í Bolungarvík. Þorbjörn hafði
stofnað dótturfélagið Bakka hf. um
reksturinn í Bolungarvík og eignað-
ist NASCO meirihluta og síðar allt
fyrirtækið, en skipin og kvótinn voru
áfram í eigu Þorbjörns.
„Þegar NASCO var búið að kaupa
hreinsaði það allar fiskvinnsluvél-
arnar út úr fyrirtækinu og breytti
því í rækjuverksmiðju. Setur þar sex
rækjuvinnsluvélar, sem er afar stór
verksmiðja. Bolvíkingar sáu að við
gátum ekki lifað af rækjuvinnslu
einni saman. NASCO var með mikið
af skipum á Flæmska hattinum und-
ir erlendum fánum. Á sama tíma og
NASCO kaupir verksmiðjuna fóru
Bolvíkingar að byggja upp smábáta-
flotann. Þó var lítill kvóti eftir í
byggðarlaginu. Það sem eftir var af
kvóta átti útgerðar- og fiskvinnslu-
fyrirtækið Jakob Valgeir hf., en þeir
áttu og ráku mjög lítið frystihús.“
Smábátarnir komu til bjargar
Guðmundur velkist ekki í vafa um
að smábátarnir hafi bjargað Bolung-
arvík eftir að mestallur bolfiskkvót-
inn var horfinn úr plássinu. Hann
segir að styrkur Bolvíkinga hafi fal-
ist í mjög sterkum sparisjóði þeirra
sem lánaði mönnum til að kaupa
smábáta og aflaheimildir.
„Sparisjóðurinn lánaði í heild
milljarð í smábátakaup. Tækifærin
lágu í svokölluðu þorskaflahámarki.
Við höfðum frelsi til að sækja í ýsuna
og steinbítinn. Með þessu duglega
fólki sem var hér vorum við strax
farin að reka þessa smábáta með
glæsibrag.“
Guðmundur segir að deilt hafi ver-
ið á Bolvíkinga fyrir að vinna ekki
fiskinn á staðnum, en mikið var flutt
í burt til vinnslu annars staðar. „Það
var rétt, en hér var ekkert fisk-
vinnsluhús nema þetta litla hús hjá
Jakobi Valgeir. Það var búið að taka
stóra húsið okkar undir rækju-
vinnslu.“
Bolfiskvinnslan eykst á ný
NASCO lenti í rekstrarerfiðleik-
um og var úrskurðað gjaldþrota í
árslok 2000. Stofnað var nýtt hluta-
félag, Bakkavík hf., að mestu í eigu
heimamanna, og keypti það eignir
þrotabúsins. Rekstur rækjuverk-
smiðjunnar var þannig tryggður.
Guðmundur segir að auk fiskvinnslu
Jakobs Valgeirs hafi verið stofnaðar
tvær aðrar í Bolungarvík, Vík og
vinnsla í eigu Björgvins Bjarnason-
ar. Þær hafi allar unnið afla smábáta.
„Við höfum verið að feta okkur
lengra og lengra í að vinna aflann
hér heima. Vík, sem var stofnuð af
trillukörlum og gekk ágætlega, var
nýlega sameinuð Bakkavík. Þar með
fluttu þeir í EG-húsið og tóku elsta
hlutann af því aftur í notkun. Þar er
nú komið hátæknifrystihús við hlið-
ina á rækjuvinnslunni. Á sama tíma
er Jakob Valgeir búinn að tvöfalda
sitt frystihús. Björgvin er líka að
bæta við sig. Við erum búnir að snúa
þessu algjörlega við.“
Bolvíkingar hafa aftur eignast
veiðiheimildir í bolfiski. Samkvæmt
upplýsingum frá Fiskistofu var út-
hlutað aflamarki, á grundvelli afla-
hlutdeilda til skipa og báta með
skráða heimahöfn á Bolungarvík, í
upphafi yfirstandandi fiskveiðiárs
sem nemur 4.424 tonnum í þorsk-
ígildum. Að teknu tilliti til sérstakra
bóta og jöfnunarúthlutana nema
heildaraflaheimildir til Bolvíkinga
um 4.900 tonnum. Guðmundur segir
að þessar aflaheimildir séu að lang-
mestu leyti í bolfiski.
„Rækjuflotinn hér hefur verið að
hverfa, rækjustofninn í Ísafjarðar-
djúpi er hruninn líkt og innfjarða-
rækjan um landið. Það eru eftir einn
eða tveir rækjubátar.“ Hann segir að
enginn „rússafiskur“, það er heil-
frystur innfluttur fiskur, sé nú unn-
inn í byggðarlaginu, það sé engin
þörf á honum. Smábátaflotinn hefur
eflst ár frá ári og nú eru að bætast
við allt að 15 tonna hraðfiskibátar.
,,Á síðasta ári hafa komið hingað sex
öflugir bátar. Það er búið að breyta
lögunum og gefa rúm fyrir stærri
báta. Þetta eru afskaplega vel búnir
bátar, strákarnir á þeim voru m.a. á
Guðbjörginni og segja að tækin um
borð í þessum bátum séu betri en
voru í henni nýrri.“
Guðmundur segir að það hafi verið
mikið áfall þegar Alþingi afnam
þorskaflahámarkið. „Það kostaði
okkur á félagssvæði Eldingar, þetta
litla hagkerfi frá Súðavík til Þing-
eyrar, 600 milljónir króna upp úr sjó
fyrsta árið eftir gildistöku þessara
laga. Þá átti virðisaukinn í vinnsl-
unni eftir að koma. Á öllum Vest-
fjörðum voru þetta milli 900 milljónir
og milljarður sem hurfu með því að
aflinn minnkaði. Ýsan og steinbítur-
inn voru kvótasett og þeir fóru að út-
hluta byggðakvótum til að koma eitt-
hvað á móti þessu. Byggðakvótarnir
hafa valdið miklum deilum bæði milli
manna, skipa og byggðarlaga. Vest-
fjarðaaðstoðin og byggðakvótinn
hafa verið miklir bjarnargreiðar. Við
höfum aldrei beðið um byggðakvóta
heldur almennar aðgerðir.“
Línuívilnunin hafðist í gegn
Á síðasta landsfundi Sjálfstæðis-
flokksins lagði Guðmundur fram til-
lögu um að flokkurinn styddi ívilnun
í aflaheimildum til línubáta sem
stunduðu dagróðra. Með harðfylgi
kom hann málinu í gegn og línuíviln-
unin endaði í stjórnarsáttmála nýrr-
ar ríkisstjórnar. Guðmundur þakkar
það „grasrótinni“ í Sjálfstæðis-
flokknum – almennum flokksmönn-
um – að línuívilnunin hafðist í gegn.
Hann segir að ýmsir þungaviktar-
menn hafi beitt sér gegn tillögunni.
„Svo þú sjáir nú hvað gamli mað-
urinn er mikill refur,“ segir Guð-
vík
Morgunblaðið/Guðni Einarsson