Morgunblaðið - 06.07.2003, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. JÚLÍ 2003 B 15
bíó
GLOVER er einkum frægur að endem-
um. Hann er engum líkur og
ómögulegt að segja fyrir um hvern-
ig eða hvar hann birtist næst. Við
vitum þó að þessu sinni verður það í
Englum Charlies – Fullt innsog
(Charlie’s Angels: Full Throttle),
sem hefur göngu sína um helgina.
Endurtekur hlutverki Granna
mannsins, sem flestum á óvart vakti
hvað mesta athygli og hrifningu er
fyrri myndin var frumsýnd fyrir
þrem árum. Dæmalaus leikferill
virðist því kominn í tiltölulega
öruggar skorður. Hann hófst er pilt-
urinn var nemandi í grunnskóla og
aðeins 13 ára gamall hafði hann um-
boðsmann á sínum snærum. Það bar
tilætlaðan árangur því Glover, sem er
fæddur 1964, fékk hlutverk í upp-
setningu á Tónaflóði árið 1977 og
gestahlutverk í sjónvarpsþáttunum
Sæludagar Happy Days (’74) og
Fjölskyldubönd (Family Ties) (’82),
sem færðu honum önnur bitastæð-
ari hlutverk í sjónvarpsmyndum.
Leikarinn ungi var forsjáll og
stórhuga, vildi varast að festast á
litla skjánum sem hann tók að forð-
ast og uppskar stórt hlutverk kyn-
órafulls unglings í Einkakenn-
aranum (My Tutor) (’83), og annað
minna í Föstudeginum 13.: Loka-
kaflanum (’84), fylgdi í kjölfarið.
Ári síðar var Glover valinn til að
fara með hlutverk föður Michaels J.
Fox í hinni geysivinsælu Aftur til
framtíðar (’85). Glover er stór-
skemmtilegur sem úrræðalítil karl-
tuskan og varð feikivinsæll hjá
áhorfendum. Um sama leyti sýndi
Glover sinn besta leik til þessa í
Orkly strákurinn (The Orkly Kid)
(’85), fáséðri smámynd þar sem
hann leikur á móti Oliviu Newton-John.
Glover hlaut frábæra dóma fyrir eft-
irminnilega frammistöðu sem
óánægður ungur maður og lykilvitni
í jaðarmyndinni Árbakkinn (River’s
Edge) (’87). Árangurinn varð hon-
um hvatning að leita frekar á mið
ögrandi verkefna, og harðneitaði að
leika í framhaldsmyndunum sem
kenndar eru við Aftur til framtíðar.
Framleiðandinn, Steven Spielberg,
greip til þess óyndisúrræðis að nota
úrklippubúta úr fyrstu myndinni og
annan leikara með andlitsgrímu til
að taka að sér hlutverkið. Spielberg
uppskar óþökk Glovers (og hinna fjöl-
mörgu aðdáenda hans), og fór í
skaðabótamál sem hann vann fyrir
rétti.
Tíundi áratugurinn er undarlegur
kapítuli hjá sérvitringnum Glover
sem hóf hann með því að leika Dell
frænda í Villt blóð (Wild at Heart),
frábærri mynd þeirra Sigurjóns Sig-
hvatssonar og David Lynch. Ef minnið
bregst ekki, gekk frændinn um með
skorkvikindi í nærbrókunum. Því
næst lék Glover annan furðufugl,
listamanninn Andy Warhol í Doors
(’91), og afgreiddi eftirminnilega
gestahlutverk í Hvað nagar Gilbert
Grape (’91), Even Cowgirls Get the
Blues (’91), Dauður nár (Dead Man)
(’95) og Málið gegn Larry Flynt
(The People vs. Larry Flynt) (’96).
Myndunum leikstýrðu stórjaxlarnir
Lasse Hallström, Gus Van Sant, Jim Jarm-
usch og Milos Forman. Allir löðuðu þeir
fram minnisstæðan leik hjá Glover,
sem oftar en ekki skyggði á stjörn-
urnar.
Uppátæki leikarans eru mörg
hver athyglisverð. Hann hagaði sér
furðulega hjá David Letterman, reyndi
að slæma háhæluðum fótabúnaði
sínum í óæðri endann á þáttastjórn-
andanum sem vísaði leikaranum á
dyr; hefur gefið út stórskrýtnar
hljómplötur og jafnvel enn fárán-
legri bókmenntir. Allt þetta auk
hlutverkavalsins hefur sett Glover á
sinn eigin, sérstaka stall í kvik-
myndaborginni, en svo virðist sem
iðnaðurinn hafi fyrirgefið honum
duttlungana. Auk þess að leika í
báðum myndunum um englana hans
Charlies, fer Glover með aðalhlutverk
Rodions Raskolnikov í nýrri kvik-
myndagerð Glæps og refsingar eftir
Dostojevskí og Bartleby í samnefndri
mynd byggðri á verki annars skáld-
jöfurs, Hermans Melville. Þrátt fyrri
allt er Glover á grænni grein.
REUTERS
Sérvitringurinn Crispin Glover, í fylgd með vini sínum Nicolas Cage, á frumsýningu hrollsins Williard.
Sæbjörn Valdimarsson
SVIPMYND
Kúnstugur Crispin
Hann kemur til dyranna einsog hann er
klæddur – hvergi smeykur þótt hvers-
dagsfötin séu allajafna talsvert óvenju-
leg. Crispin Glover er einn af sárafáum
furðufuglum Hollywoodborgar en stofn-
inn er í mikilli útrýmingarhættu um þess-
ar mundir.
„Í RAUNINNI er ekkert til fyrir-
stöðu annað en að beðið er lögfræði-
legs álits á nokkrum smáatriðum,“
segir Hjörtur Grétarsson, starfsmað-
ur Kvikmyndamiðstöðvarinnar. Sú
staða er í úthlutunarmálum að um-
sóknir hafa hlaðist upp, þannig að fyr-
ir liggja 37 umsóknir til framleiðslu
bíómynda í fullri lengd. Þar fyrir utan
bíða 48 handrit sem sótt hefur verið
um styrki fyrir, auk fjölda stutt- og
heimildarmynda.
Eftir að fyrirliggjandi, uppsafnað-
ar umsóknir hafa hlotið afgreiðslu
verður úthlutunum hagað þannig að
umsóknir verða ekki lengur afgreidd-
ar við ákveðin tímamörk, líkt og verið
hefur frá upphafi. Þess í stað mun
Kvikmyndamiðstöðin veita fram-
leiðslu- og þróunarstyrki „eftir hend-
inni,“ er hún telur ástæðu til, og
leggja áherslu á að opna gamla kerfið.
Umsækjendur geta leitað til hennar
hvenær sem er, fylgt málum sínum
eftir á öllum stigum og væntanlegum
umsækjendum gert greiðara fyrir en
áður við þróun verka sinna. Þannig á
að fyrirbyggja að stokkið verði í fram-
tíðinni beint í framleiðslu mynda fyrr
en verkefni hafa farið í gegnum nægi-
lega þróun. Eftir helgina verða veittir
nokkrir styrkir til gerðar kvikmynda í
fullri lengd en auk þess fá um tugur
handrita þróunarstyrki.
Sem fyrr er ólíklegt að gerð verði
kvikmynd í fullri lengd með íslensku
fjármagni eingöngu, en styrkur Kvik-
myndamiðstöðvarinnar er undir-
stöðuatriði og gerir gæfumuninn við
að nálgast nauðsynlega, erlenda með-
framleiðendur.
Í stað fyrrum úthlutunarnefndar
starfa tveir ráðgjafar við Kvikmynda-
miðstöðina, þau Valdís Óskarsdóttir
og Sveinbjörn I. Baldvinsson, sem
lesa yfir öll handrit og fara yfir um-
sóknir sem berast stofnuninni.
Kvikmyndamiðstöð Íslands tilkynnir fyrstu
styrkveitingarnar eftir helgi
Opnara kerfi
Nk. þriðjudag eða miðvikudag
mun Kvikmyndamiðstöð Ís-
lands tilkynna um fyrstu styrk-
veitingar stofnunarinnar til
handritsgerðar, stuttmynda,
heimildarmynda og kvikmynda
í fullri lengd.
saebjorn@mbl.is
Morgunblaðið/Sverrir
Tómas Lemarquis í titilhlutverki Nóa albínóa, bestu mynd Íslendinga um árabil. Vonandi
leynast fleiri slíkar í umsóknarhaugnum hjá Kvikmyndamiðstöðinni.