Morgunblaðið - 07.07.2003, Síða 1
Reuters
AÐGERÐ lækna í Singapúr sem
miðaði að því að aðskilja írönsku
síamstvíburana Ladan og Laleh Bij-
ani, en þær eru samvaxnar á höfði,
var sögð hafa farið vel af stað í gær.
Búist var við að aðgerðin tæki um
48 klukkustundir en að henni koma
25 læknar og um 100 hjúkr-
unarliðar. Systurnar eru 29 ára
gamlar og hafa báðar lokið laga-
námi. Þær voru bjartsýnar fyrir að-
gerðina sem þó er mjög tvísýn, líkur
eru á að önnur eða báðar deyi eða
bíði varanlegan heilaskaða. Sama
æðin sér heila beggja fyrir blóði.
Keith Goh, yfirlæknir aðgerð-
arinnar, á að baki nokkra slíka
skilnaðarskurði, meðal annars 97
klukkustunda aðgerð á nepölsku sí-
amstvíburunum Ganga og Jamuna
Shrestha árið 2001. Aðgerðin á
írönsku systrunum er nauðsynleg
vegna óvenjumikils þrýstings í höf-
uðkúpum þeirra sem leiðir til höf-
uðverkjakasta en getur þróast yfir í
heilaskemmdir ef ekkert er að gert.
Ladan og Laleh hafa búið sig
undir aðgerðina með sálfræðiráð-
gjöf og lestri úr kóraninum og létu
þess getið í yfirlýsingu, að þær von-
uðust til þess að aðgerðin væri leið-
arendi á erfiðri göngu og eftir hana
gætu þær hafið nýtt líf sem tvær að-
skildar manneskjur.
Leiðarendi á
erfiðri göngu
STOFNAÐ 1913 181. TBL. 91. ÁRG. MÁNUDAGUR 7. JÚLÍ 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Skraf og
ráðagerðir
Námskeið fyrir íslenska
yfirstjórnendur | Viðskipti 11
Draumar
og óhljóð
Fjölbreytt raftónlist á tónleikum
í Nýlistasafninu | Fólk 27
og erlendis, enda er honum að miklu leyti kennt
um þær hörmungar sem yfir Líberíu hafa dunið
frá árinu 1989. Obasanjo sagði hins vegar í gær
að tilboð hans væri nauðsynlegt ef menn vildu
frið í Líberíu og varaði við því að hann myndi
ekki una því „að vera áreittur af nokkrum manni
eða stofnun fyrir að hafa boðið Charles Taylor
til Nígeríu“.
Bush sendir „könnunarsveit“
George W. Bush Bandaríkjaforseti hefur
ítrekað sagt að hann vilji að Taylor víki. „Mig
grunar að hann geri það,“ sagði Bush í vikulegu
útvarpsávarpi sínu á laugardag. „Ég mun ekki
sætta mig við annað.“
Taylor hefur sagst vera reiðubúinn að víkja
en ítrekaði þá skoðun sína í gær að þátttaka
Bandaríkjanna í friðargæslu í landinu „skipti
öllu máli“. Bush hefur aftur á móti ekki viljað
gefa upp hvort hann sé reiðubúinn til að senda
bandaríska hermenn til Líberíu. Fimmtán
bandarískir hermálasérfræðingar, eins konar
„könnunarsveit“, héldu hins vegar til landsins í
gær til að kanna aðstæður.
Hvorki Taylor né Obasanjo tjáði sig um það í
gær hvenær sá fyrrnefndi færi frá en Obasanjo
sagði þó að hann teldi ekki að það yrði „á næst-
unni“. „Við teljum að brotthvarf hans megi ekki
eiga sér stað við ótryggar aðstæður [...] þannig
að það ylli meira blóðbaði,“ sagði Obasanjo.
Taylor þiggur boð um hæli
Forseti Líberíu segir ekkert um það hvenær hann hyggst draga sig í hlé
Monróvíu. AFP, AP.
CHARLES Taylor, forseti Vestur-Afríkuríkis-
ins Líberíu, sagðist í gær hafa þegið boð Oluseg-
uns Obasanjo um pólitískt hæli í Nígeríu. Hann
gaf hins vegar engar vísbendingar um hvenær
hann hygðist yfirgefa land sitt, sem mátt hefur
þola áratugalanga borgarastyrjöld.
Obasanjo, sem er forseti Nígeríu, kom til Líb-
eríu síðdegis í gær og átti fund með Taylor á
herflugvelli í höfuðborginni Monróvíu. Sagðist
hann eftir fundinn hafa gert Taylor tilboð „sem
hann hikaði ekki við að þiggja“. Tilboðið fælist
m.a. í því að Taylor fengi öruggt hæli í Nígeríu.
Taylor hefur verið ákærður fyrir stríðsglæpi í
nágrannaríki Líberíu, Síerra Leóne, og á nú
verulega undir högg að sækja, bæði heima fyrir
STARFSMAÐUR Fun-Land-
skemmtigarðsins við Smáralind slas-
aðist á höfði um þrjúleytið í gær þeg-
ar hann hljóp fyrir eitt leiktækjanna
og fékk það á sig.
Tildrög slyssins voru þau að gest-
ur í stærsta tæki skemmtigarðsins,
svonefndu „Freak-Out“-tæki, missti
húfu og fór þá pilturinn, sem er ný-
orðinn 16 ára, inn á öryggissvæðið til
þess að ná í húfuna með þeim afleið-
ingum að járnróla, sem gestirnir
sátu í og sveifluðust með, rakst í höf-
uð hans. Pilturinn var fluttur á slysa-
deild Landspítala – háskólasjúkra-
húss í Fossvogi og að sögn
vakthafandi læknis fékk hann heila-
hristing og skarst á höfði en slasaðist
ekki alvarlega. Líðan hans var eftir
atvikum góð í gærkvöld.
Samkvæmt vinnuverndarlögum
er óheimilt að ráða ungmenni yngri
en 18 ára til vinnu „þar sem fyrir
hendi er slysahætta sem gera má ráð
fyrir að börn og unglingar geti átt í
erfiðleikum með að átta sig á eða
forðast vegna andvaraleysis eða
skorts á reynslu eða þjálfun“. Í
reglum um vélknúin leiktæki í
skemmtigörðum segir meðal annars
að heimilt sé að ráða gæslumenn til
þess að annast rekstur vélknúinna
leiktækja og daglegt eftirlit með
þeim undir yfirstjórn rekstrarstjóra.
„Gæslumenn skulu vera orðnir fullra
17 ára og hafa næga þekkingu, þjálf-
un og hæfni til að stjórna viðkomandi
leiktæki. Gæslumenn skulu sjá um
að rekstur gangi eðlilega og að far-
þegum eða öðrum stafi ekki hætta
af.“
Eigandi skemmtigarðsins segir að
pilturinn hafi ekki stjórnað tækinu
heldur hafi starfssvið hans verið að
hleypa gestum út um hlið að loknum
ferðum með því. Eyjólfur Sæmunds-
son, forstjóri Vinnueftirlitsins, segist
ekki geta tjáð sig um vinnutilhög-
unina í skemmtigarðinum við
Smáralind á þessu stigi málsins. At-
vikið verði rannsakað nákvæmlega
og hvort eðlilega hafi verið að verki
staðið miðað við reglur um vinnu
barna og ungmenna.
16 ára starfsmaður skemmtigarðsins við Smáralind slasaðist á höfði
Morgunblaðið/Júlíus
Starfsmaður skemmtigarðsins við
Smáralind fluttur burt slasaður.
TYRKIR eru ævareiðir út í Banda-
ríkjamenn eftir að Bandaríkjaher
handtók ellefu tyrkneska hermenn
í Norður-Írak á föstudag. Banda-
ríkjamenn slepptu hermönnunum
úr haldi seint í gærkvöld en óttast
er að þetta atvik geti haft slæm
áhrif á samskipti ríkjanna.
Um 250 Tyrkir komu saman fyrir
framan sendiráð Bandaríkjanna í
Ankara í gær til þess að mótmæla
aðgerðum Bandaríkjahers en eins
og sjá má á myndinni veifuðu þeir
m.a. tyrkneska fánanum og hróp-
uðu slagorð. Er talið að handtök-
urnar hafi staðið í tengslum við
meintan undirbúning tilræða við
íraska embættismenn í Kúrdahér-
uðum Íraks.
Recep Tayyip Erdogan, forsætis-
ráðherra Tyrklands, ræddi málið í
síma við Dick Cheney, varaforseta
Bandaríkjanna, síðdegis en fyrr í
gær sagði hann að það hefði valdið
sambandi ríkjanna tveggja „óbæt-
andi tjóni“. Sagði Erdogan þetta
„ljótt atvik“ sem „hefði ekki átt að
eiga sér stað“.Reuters
Tyrkir
ævareiðir
Kannað hvort reglur um vinnu
ungmenna hafa verið brotnar
Meistarar
krýndir
Roger Federer og Serena Williams
unnu á Wimbledon | Íþróttir 6