Morgunblaðið - 09.07.2003, Blaðsíða 52
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MIÐVIKUDAGUR 9. JÚLÍ 2003 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
Lágmúla og Smáratorgi
opið kl. 8-24
alla daga
ÁÆTLAÐ er að framkvæmdir við Héðins-
fjarðargöng milli Siglufjarðar og Ólafs-
fjarðar hefjist haustið 2006 og að þeim
verði lokið haustið 2009 en upphaflega átti
þeim að ljúka 2008.
Forystumenn ríkisstjórnarinnar
greindu forsvarsmönnum sveitarfélag-
anna á norðanverðu Eyjafjarðarsvæðinu
frá þessu í gær og tilkynntu að sveitar-
stjórnirnar fengju fljótlega yfirlýsingu frá
ríkisstjórninni um tilhögun fram-
kvæmdanna þessu til staðfestingar.
„Niðurstaðan er sú að frestun á því að
göngin verði tekin í notkun verður í raun
aðeins rúmt ár en ekki tvö ár,“ segir Davíð
Oddsson forsætisráðherra. „Þetta er í
raun í fyrsta skipti sem ríkisstjórnin gefur
út tímasetningu vegna þessara ganga,“
segir Halldór Ásgrímsson utanríkisráð-
herra.
Bæjarstjórarnir á Siglufirði og Ólafs-
firði segja að ákvörðun stjórnvalda mildi
áfallið sem íbúar svæðisins urðu fyrir þeg-
ar ákveðið var að fresta gerð ganganna.
Ljúka á Héð-
insfjarðar-
göngum 2009
Gerð/6
KAUPFÉLAG Eyfirðinga, KEA,
hefur selt Eignarhaldsfélaginu Feng
6% hlut í fjárfestingarfélaginu Kald-
baki. Fengur átti ekki hlut í Kaldbaki
áður, en er kominn í hóp stærstu hlut-
hafa eftir kaupin. KEA er áfram
stærsti hluthafi Kaldbaks eftir söl-
una, með 27% hlut, og Kaupþing Bún-
aðarbanki er næststærsti hluthafinn
með tæplega 14% hlut.
Fengur á fyrir hlut í ýmsum fé-
lögum, meðal annars AcoTæknivali
og Flugleiðum.
KEA selur
Feng hlut í
Kaldbaki
Fengur/12
INGVAR Helgason hf. og ítalska
verktakafyrirtækið Impregilo hafa
skrifað undir samning um að Ítal-
irnir taki á kaupleigu um 85 pallbíla
og jeppa af Nissan-gerð. Samning-
urinn hljóðar upp á um 210 milljónir
króna. Júlíus Vífill Ingvarsson,
stjórnarformaður Ingvars Helga-
sonar, segir að um sé að ræða kaup-
leigu til þriggja til fjögurra ára með
framlengingarsamningi. Ítalska fyr-
irtækið fær marga af bílunum
breytta fyrir 35 tommu hjólbarða og
vel búna til aksturs að vetrarlagi.
Impregilo
fær pallbíla
frá Ingvari
Helgasyni
Bílablað/2
TVEIR smábátar sukku í Reykjavíkurhöfn í gær-
morgun. Bátarnir voru bundnir saman og kom
leki að stærri trillunni, 12 tonna trébát smíðuðum
1971, með þeim afleiðingum að hann sökk og dró
hinn bátinn, minni plastbát, niður með sér.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu var bát-
urinn sem lekinn kom að illa farinn og hafði ekki
verið hreyfður í nokkur ár.
Hafnarstarfsmenn urðu varir við að leki var
kominn að stærri bátnum og gerðu lögreglu og
slökkviliði aðvart um klukkan 9.30 um morgun-
inn og voru báðir bátarnir sokknir þegar lög-
regla og slökkvilið komu að. Hallur Árnason hjá
Reykjavíkurhöfn segir að búið sé að ná bátunum
upp, en ekki sé ljóst hvort mikið tjón hafi hlotist
af.
Kafarar frá Slökkviliði Reykjavíkur fóru niður
að flökunum til að ganga úr skugga um að bát-
arnir væru mannlausir, segir Hallur. „Við vildum
taka af allan vafa um að einhver væri um borð.
Því var farið fram á að það yrði kafað.“
Morgunblaðið/Júlíus
Tvær trillur
sukku í
Reykjavíkurhöfn
ÓVISSU um áframhaldandi rekst-
ur Sementsverksmiðjunnar hf. á
Akranesi var eytt með samkomu-
lagi ríkisins við Íslenskt sement
ehf. Samkomulagið kveður á um að
kaupverðið sé 68 milljónir króna
en endanlegur kaupsamningur
verður ekki undirritaður fyrr en
um mánaðamótin ágúst-septem-
ber. Uppsafnað tap Sementsverk-
smiðjunnar á síðustu árum nemur
um 500 milljónum króna.
Að mati Valgerðar Sverrisdótt-
ur, iðnaðar- og viðskiptaráðherra,
eru 68 milljónir króna lágt verð
fyrir verksmiðjuna en þó ásætt-
anlegt miðað við erfiðan rekstur að
undanförnu.
Forseti bæjarráðs Akraness,
Guðmundur Páll Jónsson, kveðst
fagna því að samkomulag hafi
náðst og segir það mikilvægt fyrir
bæjarfélagið að rekstri verksmiðj-
unnar verði haldið áfram.
Að sögn Ólafs Davíðssonar, for-
manns framkvæmdanefndar um
einkavæðingu, skiptir verðið ekki
meginmáli heldur hafi mest
áhersla verið lögð á að rekstri yrði
haldið áfram. Það skilyrði hafi Ís-
lenskt sement ehf. uppfyllt. Aðrir
tilboðsgjafar hafi ekki tiltekið
þetta atriði með jafn skýrum
hætti.
Fimm hópar fjárfesta buðu í
Sementsverksmiðjuna þegar 100%
hlutur ríkisins, að nafnvirði 450
milljónir króna, var auglýstur til
sölu. Viðræður við Íslenskt sement
ehf. hafa staðið yfir í þrjá mánuði.
Gunnlaugur Jónsson, fulltrúi
eins hópsins sem gerði tilboð í
verksmiðjuna í mars, kveðst undr-
andi á því að ekki hafi verið haft
samband við fleiri tilboðsgjafa
þegar ljóst var að viðræður
drægjust á langinn. Í auglýsingu
um söluna er tekið fram að við-
ræður geti tekið allt að tvær vik-
ur.
Framtíð Sementsverk-
smiðjunnar tryggð
Íslenskt sement/Miðopna
FLUGLEIÐAVÉL af gerðinni Bo-
eing 757 var snúið aftur til flugvall-
arins í Faro í Portúgal um fimmtán
mínútum eftir flugtak í gær. 192
farþegar voru í vélinni, mestmegn-
is ferðamenn sem voru að koma úr
sumarleyfi frá Albufeira. Flug-
stjórinn ákvað að snúa vélinni við
eftir að megn óþefur gaus upp aft-
ast í farþegarýminu. Farþegar sem
sátu aftarlega í vélinni kvörtuðu
undan höfuðverk og verkjum í hálsi
og sögðu lyktina hafa verið ramma
og óþægilega. Sögðu þeir að helst
hefði lyktin minnt á lykt af plast-
eða gúmmíbruna.
Mikill viðbúnaður var á flugvell-
inum í Faro þegar vélin kom aftur
inn til lendingar; fjöldi slökkviliðs-
og sjúkraflutningabifreiða var til
reiðu.
Íslenskir flugvirkjar til Faro
Guðjón Arngrímsson, upplýs-
ingafulltrúi Flugleiða, segir að
portúgalskir flugvirkjar hafi farið
um borð í vélina um leið og hún
sneri aftur til flugvallarins en ís-
lenskir flugvirkjar á vegum Flug-
leiða, sem staddir voru í Portúgal,
voru á leið til Faro til þess að fara
yfir vélina. Guðjón segir að flug-
vélin verði ekki send af stað aftur
fyrr en búið er að aðgæta hvort all-
ir hlutar vélarinnar séu í góðu
standi. „Það á ekki að gerast að
reykur gjósi upp í farþegarými og
menn vilja leita af sér allan grun.
Ef ekkert finnst í nótt verður að
fara með vélina í prufuflug og hún
fer ekki í loftið nema vitað sé að
hún sé í fullkomnu lagi,“ segir Guð-
jón.
Farþegar sem voru um borð í
vélinni og Morgunblaðið ræddi við
báru lof á viðbrögð áhafnarinnar
eftir að bilunarinnar varð vart.
Segja þeir að skömmu eftir flugtak
hafi orðið vart við daunillan reyk
um borð í vélinni.
Snúa þurfti Flugleiðavél til baka eftir flugtak í Faro í Portúgal
Reykur gaus upp í farþegarými
Bera lof/6
Í GÆRKVÖLD missti lítil flugvél afl
á öðrum hreyflinum er hún var stödd
um 63 sjómílur vestur af Íslandi en
hún lenti í Keflavík skömmu síðar.
Vélin var á leið til Reykjavíkur frá
Narsarsuaq á Grænlandi. Hún er
bresk, af gerðinni Short-3 SH36, en
skráð í Bandaríkjunum. Hún tekur
um 20 manns en fjórir voru um borð.
Samkvæmt upplýsingum frá flug-
stjórn á Reykjavíkurflugvelli til-
kynnti flugmaðurinn fyrst að vélin
hefði misst afl á öðrum hreyflinum
og skömmu síðar greindi hann frá
því að sér virtist sem aflið væri líka
að fara af hinum hreyflinum. Þá voru
þyrlur kallaðar út og Rannsókna-
nefnd flugslysa látin vita en flugmað-
urinn lenti vélinni skömmu síðar.
Lítil flugvél í
vandræðum
EIÐUR Smári Guðjohnsen, fyrirliði ís-
lenska landsliðsins í knattspyrnu, skrifar
í dag undir nýjan þriggja ára samning við
Chelsea, en á tímabili í gær virtist fram-
tíð hans hjá félaginu í mikilli óvissu eftir
að forráðamenn Lundúnaliðsins komu
þeim skilaboðum til leikmannsins að það
hefði dregið samningstilboð sitt til baka.
Arnór Guðjohnsen, faðir Eiðs og einn af
umboðsmönnum hans, staðfesti í samtali
við Morgunblaðið í gær að gengið yrði
frá samningnum í dag en eftir það sem á
undan er gengið væri samt ekkert öruggt
í þeim efnum fyrr en Eiður Smári væri
búinn að rita nafn sitt undir samninginn.
Morgunblaðið/Kristinn
Eiður áfram
hjá Chelsea
Skrifar undir/41
♦ ♦ ♦