Morgunblaðið - 10.07.2003, Side 1
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS FIMMTUDAGUR 10. JÚLÍ 2003 Á netinu mbl.is/vidskipti BLAÐ B
ÍSLENSKA hagkerfið færist niður um tvö
sæti frá því í fyrra á lista yfir ríki sem búa
við mest frjálsræði í efnahagsmálum og birt-
ur var nýverið í skýrslu sem Fraser-stofn-
unin í Kanada gefur út. Ísland fær ein-
kunnina 7,6 af 10. Á síðasta ári fékk Ísland
7,7 í einkunn á listanum og hafði þá náð að
stökkva úr 18. sæti með einkunnina 7,3 árið
1995.
Einkunnin sem liggur til grundvallar mati
á frjálsræði hagkerfisins er byggð á 38 þátt-
um en tölurnar sem notaðar eru í nýútkomna
skýrslu eru frá árinu 2001. Fimm yfirflokkar
eru taldir helstu mælikvarðar á frjálsræði í
efnahagsmálum: hófleg umsvif ríkisins, laga-
umhverfi og trygging séreignaréttar, að-
gangur að traustum gjaldmiðli, frelsi í við-
skiptum við önnur lönd og skynsamleg
setning reglugerða í viðskiptum og á vinnu-
markaði.
Hæstu einkunnir Íslands eru þær sem lúta
að lagaumhverfi og öryggi gjaldmiðilsins en í
þessum flokkum fær íslenska hagkerfið 8,9
og 9,0 í einkunn. Einkunn fyrir reglugerðir á
vinnumarkaði og í viðskiptum er 7,5 en fyrir
frelsi í viðskiptum við önnur lönd fær Ísland
fremur lága einkunn, 6,8. Sá undirflokkur
sem helst dregur þá einkunn niður eru höml-
ur á fjármagnsflutningum milli Íslands og
annarra landa en þar skorar Ísland einungis
3,8 af 10.
Aukin umsvif hins opinbera
Einn flokkur sker sig helst úr þeim fimm
sem notaðir eru til að reikna út einkunnina
en það eru umsvif hins opinbera. Þar hlýtur
Ísland einkunnina 6,0. Þess má geta að þegar
Fraser-stofnunin gerði fyrstu skýrsluna af
þessu tagi, árið 1970, var einkunn Íslands 7,3
í þessum flokki sem bendir til þess að umsvif
ríkisins hafi verið minni þá en á árinu 2001.
Mestu munar í þessum einkunnum um sam-
neyslu sem hefur aukist jafnt og þétt síðustu
árin.
Að mati Gústafs Adolfs Skúlasonar hjá
Samtökum atvinnulífsins er það lofsvert
framtak að skýrsla sem einblínir á frjálsræði
í efnahagsmálum skuli nú gefin út árlega.
„Ísland er að fá nánast sömu einkunn og árið
áður en fellur samt úr 11.–12. í 13.–15. sæti í
samanburðinum, sem er auðvitað tilefni til að
skoða hvað veldur. Rétt er þó að hafa í huga
að samanburðurinn gildir fyrir árið 2001 og
að ýmsar breytingar kunna að hafa orðið síð-
an þá. Sem dæmi má nefna skattabreyting-
arnar sem tóku gildi í ársbyrjun 2002 og
munu án efa verða taldar Íslandi til tekna í
næstu samantekt,“ segir Gústaf Adolf.
Einkavæðing hækkar einkunn
Hagfræðistofnun, sem er ein af 54 sam-
starfsstofnunum Fraser-stofnunarinnar við
gerð skýrslunnar, bendir á í tilkynningu sem
send var út vegna útkomu skýrslunnar að
einkavæðing ríkisbanka sé einn þeirra þátta
sem ekki komi fram í einkunninni. „Líklegt
er að Ísland muni hækka nokkuð á næsta ári
þar sem bankakerfið hvarf að fullu úr ríkis-
eign árið 2002,“ segir í tilkynningunni. Hag-
fræðistofnun telur ekki hægt að rekja lækk-
un heildareinkunnar milli ára til ákveðins
þáttar heldur hafi margar litlar breytingar
orðið.
Meira kvartað nú en í fyrra
„Að sumu leyti er þarna á ferðinni einfaldur
tölulegur samanburður en aðrar breytur er
erfiðara að mæla, t.d. reglubyrði. Upplýs-
ingar um hana eru byggðar á svörum fyrir-
tækja við könnun World Economic Forum og
þar virðist vera að finna eina helstu ástæð-
una fyrir að Ísland lækkar lítillega í heildar-
einkunn. Fyrirtækin eru að kvarta meira en
áður undan þeim tíma sem fer í að sinna því
sem hér er kallað „eftirlitsiðnaðurinn“ og
undan skrifræði við stofnun nýrra fyrir-
tækja.
Þá er einkunn Íslands m.a. að lækka vegna
vaxandi hlutfalls samneyslunnar af þjóðar-
frameiðslu og vegna umfangsmikilla milli-
færslu- og niðurgreiðslukerfa, m.a. í land-
búnaði,“ segir Gústaf Adolf hjá SA inntur
eftir því hverja hann telji ástæðu breyting-
arinnar.
Ekki lengur efst Norðurlanda
Ekkert Norðurlandanna var ofar en Ísland á
listanum sem birtur var í skýrslu síðasta árs
en Ísland deildi þá 11. sætinu með Finnlandi.
Með lægri einkunn færist Ísland niður fyrir
Finnland og deilir nú 13. sætinu með Dan-
mörku. Önnur Norðurlönd komast ekki inn á
listann yfir efstu tuttugu ríkin.
Reglubyrði og sam-
neysla lækka einkunn
Ísland færist úr 11. sæti í 13. sæti í skýrslu Fraser-stofnunarinnar um hagkerfi með mest
frjálsræði. Einkavæðing og skattbreytingar síðasta árs koma inn í skýrsluna á næsta ári
! "
! "
#
$ %
$ %
$ %
&
' ()*+
,--
. */
0 * +1
2* 34
"
"
"
# $
# $
5 %
5 %
&
VIÐSKIPTABLAÐ MORGUNBLAÐSINS
STJÓRNIR Strengs og Landsteina hafa
skrifað undir samkomulag um fyrirhug-
aðan samruna félaganna. Stefnt er að því að
samþykki allra aðila liggi fyrir í lok ágúst
og að félögin verði sameinuð í október.
Í tilkynningu segir að sameinað fyrirtæki
Strengs og Landsteina verði leiðandi þjón-
ustufyrirtæki í upplýsingatækni hér á landi
fyrir viðskiptavini á sviði fjármála, þjónustu
og verslunar með yfir 1.000 viðskiptavini.
Ársvelta sameinaðs fyrirtækis er áætluð
um 1.200 milljónir króna.
Nafn hins sameinaða fyrirtækis verður
Landsteinar – Strengur. Forstjóri verður
Jón Ingi Björnsson, framkvæmdastjóri
Strengs, og Ingvar Kristinsson, fram-
kvæmdastjóri Landsteina, verður stað-
gengill hans. Ingvar mun einnig stýra vöru-
stjórnun.
Sókn á erlenda markaði
Jón Ingi segir að áður en til samruna félag-
anna kemur muni þau fara í gegnum hefð-
bundna áreiðanleikakönnun auk þess sem
leita eigi eftir samþykki hluthafa. Hann
segir að með samruna félaganna sé verið að
horfa til framtíðar. Mikil tækifæri felist í
samrunanum, einkum í sókn erlendis. Auk
þess séu kröfur til fyrirtækjanna að breyt-
ast og færast meira yfir í viðskiptasýn og
ráðgjöf.
Ingvar Kristinsson segir að megintil-
gangurinn með samruna Strengs og Land-
steina sé annars vegar að búa til kröftuga
einingu fyrir innanlandsmarkað, og hins
vegar að geta tekið þátt í þeirri öru þróun
sem eigi sér stað í upplýsingatækni erlend-
is. Bæði fyrirtækin hafi náð góðum árangri
á erlendum markaði. Þróunin sé ör og
stærri og öflugri einingar þurfi til að taka
þátt í henni.
Í tilkynningu kemur fram að Land-
steinar og Strengur hafi um nokkurt árabil
þróað, markaðssett og selt viðskiptalausnir
fyrir verslanir er byggjast á Navision og
Axapta frá Microsoft Business Solution.
S A M R U N I
Aukin tæki-
færi til sókn-
ar erlendis
Stefnt er að samruna Strengs
og Landsteina í október
S É R B L A Ð U M V I Ð S K I P T I , E F N A H A G S M Á L O G A T V I N N U L Í F Á S A M T S J Á V A R Ú T V E G S B L A Ð I
Freddy og Fannie
Húsnæðislánakerfi í Bandaríkjunum skoðuð 6
Apple.is
Beiðni um umskráningu lénsins hafnað 8
TÆKIFÆRI Í SIGLINGUM