Morgunblaðið - 12.07.2003, Page 1
STOFNAÐ 1913 186. TBL. 91. ÁRG. LAUGARDAGUR 12. JÚLÍ 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Mestur
heimsmaður
Sveinn Einarsson fjallar um leik-
skáldið Odd Björnsson | Lesbók 4
Umferð
í hámarki
Rótgróin veitinga- og
greiðasala á Selfossi | Árborg 18
Strandhögg
Eiríks rauða
Ný breiðskífa færeysku
rokksveitarinnar Týs | Fólk 42
myndu styðja þá hugmynd að
NATO-lið yrði sent til Íraks. „Ítalska
stjórnin telur, að það væri skref í
rétta átt,“ sagði Frattini. Ítalir hafa
samþykkt að senda 3.000 manna lið
til Íraks, en Frakkar hafa sagt að
þeir muni því aðeins senda liðsauka
að umboð fáist frá SÞ. Í gærkvöldi
greindi Gerhard Schröder, kanslari
Þýskalands, frá því að Þjóðverjar
myndu ekki geta orðið við beiðni
Bandaríkjamanna um liðsauka.
ÖLDUNGADEILD Bandaríkja-
þings samþykkti einróma í gær að
hvetja George W. Bush forseta til að
íhuga að falast eftir því að Atlants-
hafsbandalagið (NATO) og Samein-
uðu þjóðirnar (SÞ) sendi lið til Íraks,
en fyrrverandi yfirmaður bandaríska
hersins þar, Tommy Franks, segir að
Bandaríkjamenn kunni að þurfa að
vera þar í allt að fjögur ár. Colin Po-
well utanríkisráðherra viðurkennir
að hann sé ekki viss um hversu vel
bandalagsþjóðir Bandaríkjamanna
og Breta taki í að senda mannskap til
Íraks.
Samþykkti öldungadeildin að
Bush „ætti að íhuga að fara formlega
og tafarlaust fram á það að NATO
kalli til lið sem sent verði til Íraks,
með svipuðum hætti og bandalagið
hefur gert í Afganistan, Bosníu og
Kosovo“.
Franco Frattini, utanríkisráð-
herra Ítalíu, sagði í gær að Ítalir
Vilja NATO til Íraks
Bagdad, Róm, Berlín. AFP.
BANDARÍSKA varnarliðsmannin-
um, sem ríkissaksóknari hefur
ákært fyrir tilraun til manndráps
með því að hafa stungið Íslending
hnífi í Hafnarstræti í vor, var fylgt
af íslenskum lögreglumönnum til
Keflavíkurflugvallar seint í gær-
kvöldi samkvæmt ákvörðun ríkis-
saksóknara og fangelsismálastofn-
unar.
Bandaríkjamenn hafa sem kunn-
ugt er sóst eftir því að gæsla yfir
hinum ákærða yrði á þeirra hendi
og samþykkti ríkissaksóknari að
sakborningurinn yrði afhentur
Varnarliðinu þá og því aðeins ef
yfirlýsing fengist af hálfu Varn-
arliðsins um að framkvæma gæslu-
varðhaldið sem sakborningurinn
sætir samkvæmt úrskurði Héraðs-
dóms Reykjavíkur. Ef yfirlýsing
fengist ekki þess efnis við mörk
varnarsvæðisins, yrði sakborning-
urinn færður aftur á Litla-Hraun.
Um var að ræða tilraun af hálfu
ríkissaksóknara til að koma til
móts við kröfur bandarískra yf-
irvalda og ná sáttum í deilumál-
inu, að sögn Braga Steinarssonar
vararíkissaksóknara.
Varnarliðs-
maðurinn
fluttur til
Keflavíkur-
flugvallar
MUNAÐARLAUS börn í
Úganda, er misst hafa for-
eldra sína úr alnæmi, faðma
George W. Bush Banda-
ríkjaforseta er hann kom
ásamt Láru konu sinni í
heimsókn á heilsugæslustöð
fyrir HIV-smitaða í Entebbe
í gær. Sungu börnin banda-
rískt ættjarðarlag fyrir for-
setann. Úganda var fjórði
viðkomustaðurinn í Afr-
íkuför Bush, en í gærkvöldi
hélt hann til Nígeríu, sem
verður síðasta Afríkuríkið
sem hann heimsækir að
þessu sinni. Þar tók á móti
honum Olusegun Obasanjo
forseti, en gífurlega um-
fangsmikil öryggisgæsla
var í Abuja, höfuðborg Níg-
eríu, þar sem 2.000 manna
aukalögreglulið hafði verið
kallað út.
Reuters
Bush í
Úganda
Lofaði góðan/14
SALA á fiski á erlendum mörkuðum hefur verið
hæg á undanförnum misserum, einkum á þetta
við um ýsu og ufsa, en einnig karfa. Forstjórar
SÍF og SH kenna um efnahagssamdrætti í Evr-
ópu og aukinni samkeppni á mörkuðum. Verð á
ýsu hefur lækkað um 13% á hálfu öðru ári mælt í
SDR. Lækkun er enn meiri í íslenskum krónum.
Adólf Guðmundsson, útgerðarmaður á Seyð-
isfirði, segist finna vel fyrir breyttum aðstæðum á
erlendum mörkuðum. „Ýsan hefur verið mjög
þung í sölu. Það hefur verið birgðasöfnun í þessari
hefðbundnu vöru, fimm pundum og blokk. Menn
hafa ekki treyst sér að taka mikinn ufsa nema upp
í fasta samninga. Síðan er sala á karfa farin að
þyngjast líka.“
Adólf sagði að í tengslum við kvótaaukninguna
í sumar hefðu menn verið fljótir að reikna út verð-
mætaaukninguna en það væri ekki nóg að veiða
fisk, það þyrfti líka að selja hann.
„Markaðirnir eru mjög rólegir,“ sagði Gunnar
Örn Kristjánsson, forstjóri SÍF. Hann sagði að
sala á ýsu og ufsa hefði verið hæg. Verð á ýsu
hefði lækkað. Enn sem komið væri hefðu menn
komist hjá verðlækkun á þorski.
Gunnar Örn sagði að framleiðslan væri minni
yfir sumarmánuðina og því væri almennt ekki um
birgðasöfnun að ræða. „Menn hafa orðið varir við
lækkanir. Meginskýringin er sú að það hefur ver-
ið almennur samdráttur í neyslu á meginlandinu,
sérstaklega Þýskalandi, Frakklandi og Spáni.
Það er annaðhvort efnahagssamdráttur eða
stöðnun í efnahagslífi þessara landa. Sama staða
er í Bandaríkjunum.“
Gunnar Örn sagði margt geta haft áhrif á þró-
unina á næstunni. Búið væri að auka þorskkvót-
ann sem þýddi aukið framboð á mörkuðum. Óljóst
væri hvert yrði framboð á þorski úr Barentshafi.
Það hefði einnig einhver áhrif að verð á laxi væri í
sögulegu lágmarki. Mikið framboð væri líka af
tvífrystum fiski frá Kína á útsöluverði.
„Staðreyndin er sú að fiskur er dýr vara og
þegar er samdráttur í samfélaginu leitar fólk í
ódýrari vöru. Það er það sem er að gerast núna.“
Gunnar Örn sagði að menn verði að taka mið af
aðstæðum á mörkuðum þegar þeir reikni verð-
mæti aukins kvóta. „Staðreyndin er sú að þessi
aukning á ýsukvóta í fyrravetur skilaði engri
aukningu í þjóðarbúið vegna þess að verð á ýs-
unni hrundi vegna offramboðs.“
Ufsinn fallinn af stalli
Gunnar Svavarsson, forstjóri SH, hefur sömu
sögu að segja. Hann segir að þegar horft væri á
ýsuna yrði að taka tillit til þess að neyslan á henni
væri mjög svæðisbundin. Neyslan væri á austur-
strönd Bandaríkjanna og Bretlandi. Neysla á ufsa
væri almennari. „Í Þýskalandi, þar sem ufsinn var
í vissum metum, má segja að hann sé fallinn af
þeim stalli. Þjóðverjar eru mjög gjarnir á að
kaupa inn með tilliti til þess hvar verðið liggur.
Okkar ufsi er kominn í sama flokk og alaskaufs-
inn, sem er ein stærsta hvítfisktegund í heim-
inum. Verðið hefur fallið og það ástand er senni-
lega viðvarandi.“
Ýsa og ufsi þung í sölu á
erlendum fiskmörkuðum
GEORGE Tenet, framkvæmdastjóri
bandarísku leyniþjónustunnar, CIA, við-
urkenndi í gær að stofnunin hefði gert
mistök með því að láta óátalið að George
W. Bush forseti segði í stefnuræðu sinni í
janúar sl. að Írakar væru að reyna að
verða sér úti um úran í kjarnorkuvopn í
Afríku.
Bush brást í gær við gagnrýni á þessa
fullyrðingu með því að segja að yfirmenn
CIA hefðu lesið ræðuna yfir áður en hún
var flutt og ekki gert neinar athugasemdir
við hana.
CIA
viðurkennir
mistök
Washington. AP.
CIA samþykkti/14