Morgunblaðið - 13.07.2003, Page 1
Sunnudagur
13. júlí 2003
atvinnatilboðútboðfundirtilsölutilleigutilkynningarkennslahúsnæðiþjónustauppboð
mbl.is/atvinna Gestir í vikunni 7.270 Innlit 13.391 Flettingar 52.544 Heimild: Samræmd vefmæling
LAUS STÖRF
• Slagverkskennara við Skólahljómsveit
Kópavogs
• Stærðfræðikennara í Hjallaskóla
• Umsjónarkennara í Hjallaskóla
Nánari upplýsingar á:
www.kopavogur.is
og www.job.is
KÓPAVOGSBÆR
www.kopavogur.is
Forstöðumaður
vistunar í Glerárskóla
Laust er til umsóknar starf forstöðumanns vist-
unar í Glerárskóla (100% starf).
Verksvið forstöðumanns er að veita forstöðu
skólavistun sem er:
Vistun fyrir nemendur skólans í 1. - 4. bekk
og starfrækt er í samræmi við skóladagatal
og stundaskrá. Vistunin hefur aðsetur í skól-
anum.
Vistun barna á Akureyri, 10 - 16 ára sem eru
með skilgreinda fötlun. Aðsetur verður í Ár-
holti.
Sumarvistun barna á Akureyri, 6 - 16 ára
sem vegna fötlunar geta ekki nýtt sér al-
menn tilboð. Aðsetur verður í Árholti.
Vistunin er undir stjórn skólastjóra Glerárskóla
og skrifstofuaðstaða forstöðumanns verður
í Árholti. Lóðir Árholts og Glerárskóla liggja
saman.
Óskað er eftir starfsmanni með háskólamenntun
á félags-, uppeldis- eða heilbrigðissviði. Stjórn-
unarreynsla og reynsla af starfi með fötluðum
er æskileg. Viðkomandi þarf að geta hafið störf
í byrjun ágúst nk. Laun eru skv. gildandi kjara-
samningi. Starfsmannadeild veitir upplýsingar
um kaup og kjör.
Upplýsingar um starfið veita Úlfar Björnsson
skólastjóri í síma 892 2667 og Halldór Gunnars-
son aðstoðarskólastjóri í síma 690 3575 eða
893 2667.
Umsóknareyðublöð fást í þjónustuanddyri
Akureyrarbæjar í Geislagötu 9 og á heimasíðu
bæjarins www.akureyri.is . Umsóknum skal
skilað í þjónustuanddyrið. Umsóknarfrestur
er til 31. júlí 2003.
Tekið verður tillit til samþykktar bæjarstjórnar
Akureyrarbæjar um jafnréttismál við ráðningu
í starfið.
Háskólinn á Akureyri auglýsir
lausa stöðu
deildarforseta við
heilbrigðisdeild
Markmið heilbrigðisdeildar er að búa nemend-
ur undir störf og framhaldsnám á sviði heil-
brigðisvísinda. Núverandi námsbrautir eru
hjúkrunarfræði og iðjuþjálfun til BS prófs auk
náms til meistaraprófs í heilbrigðisvísindum.
Starf deildarforseta felur í sér yfirumsjón með
starfsemi deildarinnar, kennslu, stjórnun og
rannsóknum. Rektor ræður deildarforseta til
þriggja ára að fenginni umsögn heilbrigðis-
deildar og að höfðu samráði við háskólaráð.
Til greina kemur að deildarforseti gegni jafn-
framt störfum prófessors við deildina, t.d. á
sviði heilbrigðisrannsókna, líffæra-, lífefna-
og lífeðlisfræði.
Umsækjendur skulu uppfylla hæfnisskilyrði
um stöðu háskólakennara, sbr. lög um háskóla
nr. 136/1997, á vettvangi fræða sem annað-
hvort eru kennd í viðkomandi deild eða tengj-
ast viðfangsefnum hennar. Dómnefnd skal
meta hæfi umsækjenda með sama hætti og
hæfi umsækjenda um stöðu háskólakennara
er metið sbr. 3. gr. laga um Háskólann á Akur-
eyri nr. 40/1999.
Umsækjendur skulu láta fylgja umsókn sinni
rækilega skýrslu um vísindastörf sín, ritsmíðar
og rannsóknir, svo og námsferil og störf. Ein-
tök af prófskírteinum og birtum vísindaleg-
um greinum og skýrslum skulu fylgja um-
sókn. Umsækjendur fá tækifæri til að gera at-
hugasemdir við dómnefndarálit.
Nánari upplýsingar gefur Þorsteinn Gunnars-
son, rektor, netfang: rektor@unak.is.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Félags há-
skólakennara á Akureyri og fjármálaráðherra.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörð-
un um ráðningu hefur verið tekin. Umsókn get-
ur gilt í 6 mánuði. Umsóknir berist Háskólanum
á Akureyri, skrifstofu rektors, Sólborg við Norð-
urslóð, 600 Akureyri, fyrir 1. ágúst nk.
Í Hafnarfirði búa um 21 þúsund manns. Bærinn stendur í
fallegu umhverfi hrauns og kletta. Hafnarfjörður hefur þá
bæjarsál sem einkennir búsetu við sjó og státar um leið af
hagkvæmni stærðarinnar og staðsetningar í jaðri höfuð-
borgarsvæðisins. Það er gott að búa og starfa í Hafnarfirði.
Sviðsstjóri umhverfis-
og tæknisviðs
Bæjarstjórinn í Hafnarfirði
Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða sviðsstjóra umhverfis-
og tæknisviðs. Sviðsstjórinn er jafnframt skipulags- og bygg-
ingarfulltrúi. Næsti yfirmaður er bæjarstjóri. Sviðsstjórinn er
einnig framkvæmdastjóri skipulags- og byggingarráðs. Svið-
inu er skipt í 3 deildir: skipulags- og byggingareftirlitsdeild,
umhverfis- og hönnunardeild og rekstur þjónustumiðstöðvar
(áhaldahúss).
Menntun og hæfni
Gerð er krafa um að sviðsstjórinn uppfylli þær kröfur sem
fram koma í 48. og 49. gr. skipulags- og byggingarlaga nr.
73/1997 sem og ákvæði gr. 2.7 í skipulagsreglugerð.
Reynsla á sviði stjórnunar er æskileg.
Æskilegt er ennfremur að umsækjendur hafi reynslu/þekk-
ingu á stjórnsýslu sveitarfélaga. Leitað er að metnaðarfullum,
skipulögðum og sjálfstæðum stjórnanda sem á létt með sam-
starf bæði við starfsmenn sína og þá bæjarbúa sem eiga
samskipti við umhverfis- og tæknisvið.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar ræður í starfið.
Um kaup og kjör fer samkvæmt viðkomandi kjarasamningi
Launanefndar sveitarfélaga.
Konur, jafnt sem karlar, eru hvattar til að sækja um starfið.
Upplýsingar
Þeim, sem vilja spyrjast nánar fyrir um þetta starf, er bent á
að hafa samband við Þórð S. Óskarsson hjá Intellecta í
síma 511 1225.
Umsókn
Sendist til Intellecta ehf., Lágmúla 6, 108 Reykjavík, eða á
thordur@intellecta.is fyrir 1. ágúst 2003.
Umsókn þarf að vera ítarleg. Greint skal frá menntun, fyrri
störfum, helstu verkefnum sem viðkomandi hefur fengist við
og sem hann telur að gagni megi koma í þessu starfi.
Gætt verður trúnaðar varðandi fyrirspurnir.
Öllum umsóknum verður svarað.
Lýðræðis- og jafnréttisfulltrúi
Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða lýðræðis- og jafnréttis-
fulltrúa. Starf fulltrúans er á stjórnsýslusviði og næsti yfirmaður
hans er bæjarlögmaður. Hann starfar með lýðræðis- og jafn-
réttisnefnd. Með ráðningu fulltrúans hyggst bæjarstjórn Hafn-
arfjarðar styrkja lýðræðis- og jafnréttismál í allri stjórnsýslu
sveitarfélagsins.
Hæfnis- og menntunarkröfur:
Gerð er krafa um lögfræðimenntun. Æskileg er reynsla af
jafnréttismálum í víðtækum skilningi.
Umsækjendur hafi staðgóða þekkingu á stjórnsýslu sveitar-
stjórnarstigsins, sé lipur í mannlegum samskiptum, sjálfstæður
og skipulegur í vinnubrögðum.
Lýðræðis- og jafnréttisfulltrúi er ráðinn af bæjarstjóra.
Um kaup og kjör fer eftir viðkomandi kjarasamningi Launa-
nefndar sveitarfélaga.
Konur, jafnt sem karlar, eru hvattar til að sækja um starfið.
Umsókn skal vera ítarleg, greint skal frá menntun og fyrri
störfum. Umsóknir skulu berast bæjarstjóranum í Hafnarfirði,
Strandgötu 6, eigi síðar en 1. ágúst nk. Nánari upplýsingar
um starfið veita auk bæjarstjóra, bæjarlögmaður og forstöðu-
maður starfsmannahalds.
Meðferðarheimilið
Hvítárbakka
óskar eftir starfskrafti
Á Hvítárbakka er rekin langtímameðferð fyrir
unglinga er eiga við verulega hegðunarröskun,
afbrotahneigð og/eða við vímuefnavanda að
stríða.
Um er að ræða erfitt, lifandi og skemmtilegt
starf.
Þátttaka í öflugu meðferðarteymi með góða
fagþekkingu.
Reglubundin handleiðsla og fræðsla í boði.
Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu af
vinnu með unglinga og geti hafið störf sem
fyrst.
Allar nánari upplýsingar gefa Inga og Sigurður,
símar 435 1530, 861 3260 eða 893 3260.
Umsóknir berist skriflega eigi síðar en 8. ágúst
Meðferðarheimilinu Hvítárbakka, 311 Borgar-
nesi.