Morgunblaðið - 15.07.2003, Blaðsíða 41
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚLÍ 2003 41
HÖRÐUR Magnússon gekk í gær
til liðs við 2. deildar lið ÍR í knatt-
spyrnu og mun leika með Breiðholts-
liðinu það sem eftir lifir keppnis-
tímabilsins. Hörður er einn mesti
markvarðahrellir í íslenskri knatt-
spyrnu og er í fimmta sæti yfir
markahæstu leikmenn í efstu deild
frá upphafi með 87 mörk. Hann hef-
ur leikið allan sinn feril með FH-ing-
um utan eins tímabils þegar hann lék
með Val en hann ákvað að taka sér
frí eftir keppnistímabilið 2001.
HÖRÐUR sem leikur sinn fyrsta
leik fyrir ÍR-inga í kvöld þegar þeir
sækja Fjölnismenn heim.
ÍTALINN Lorenzo Amoruso gekk
í gær til liðs við Blackburn Rovers í
ensku úrvalsdeildinni. Amoroso
kemur frá skosku meisturnum,
Glasgow Rangers. Blackburn þurfti
að greiða 160 milljónir Ísl. króna fyr-
ir kappann.
DAVID Moyes, knattspyrnustjóri
Everton, hefur hug á að fá Steve
McManaman, leikmann Real Madrid
til liðsins. Sem krakki var McMana-
man eitilharður stuðningsmaður
Everton.
VINNY Samways gekk til liðs við
Walsall í ensku 1. deildinni í gær.
Samways er miðjumaður og gerði
garðinn frægan með Tottenham á
árum áður.
SOUTHAMTON hefur klófest
Friz Hall, einn efnilegast varnar-
mann Englands frá 2. deildar liðinu
Oldham Athletic. Dýrlingarnir
greiða Olham 30 milljónir ísl. króna
fyrir kappann.
JUWAN Howard er genginn til
liðs við Orlando Magic í bandaríska
NBA-boltanum. Howard lék með
Denver Nuggets á síðasta leiktíma-
bili en var með lausan samning eftir
leiktíðina. Howard var fyrsti leik-
maður NBA-deildarinnar sem gerði
100 milljón dala samning við lið en þá
lék hann með Washington Wizards.
SJÖ eldri íslenskir kylfingar tóku
þátt í H.M. King Leopold mótinu í
Waterloo í Belgíu fyrr í mánuðnum.
Þetta mót er haldið annað hver ár en
fyrir tveimur árum unnu Íslending-
ar mótið. Tvær sveitir frá Íslandi
tóku þátt og lenti A-sveit Íslands í 6.
sæti og B-sveitin endaði í 14. sæti en
það tóku alls 23 sveitir þátt í mótinu.
SAM DALLA BONA, leikmaður
AC Milan, mun leika með Bologna á
næstu leiktíð í ítölsku knattspyrn-
unni. Bologna mun fá Dalla Bona að
láni á næsta tímabili en hann náði
ekki að festa sig í sessi hjá Milan eft-
ir að hafa komið frá Chelsea árið
2002.
BANDARÍSKI hjólreiðamaðurinn
Lance Armstrong hélt forustunni í
Tour de France hjólreiðakeppninni í
gær. Alexandre Vinokourov frá
Kasakstan hjólaði hraðast í gær en
hann er nú í 2. sæti.
FÓLK„ÉG verð að hugsa um framtíð
mína sem leikmaður og vil því
yfirgefa Rosenborg nú þeg-
ar,“ segir Árni Gautur Arason
landsliðsmarkvörður Íslands í
knattspyrnu við Nettavisen í
gær en samningur Árna við fé-
lagið rennur út um næstu ára-
mót.
Árni Gautur ákvað að hafna
tilboði félagsins í vetur og í
sumar hefur hann verið á
varamannabekk liðsins og að-
eins leikið í 2. deildinni með
varaliði félagsins.
„Ég verð að komast í betri
leikæfingu þar sem það eru
mikilvægir leikir framundan
hjá íslenska landsliðinu. Það
er mín ósk að Rosenborg fái
eitthvað fyrir sinn snúð ef ég
verð seldur frá félaginu. En
eins og staðan er í dag vonast
ég til að komast til annars liðs
nú þegar, því það getur verið
mjög erfitt að komast að hjá
liðum í Evrópu þegar deildar-
keppnirnar eru hafnar,“ segir
Árni Gautur Arason við
norska blaðið Nettavisen en
skoska liðið Hearts hefur sýnt
Árna áhuga.
Árni er að
missa þol-
inmæðina
JÓN Arnór Stefánsson er ekki í
leikmannahópi Dallas Mavericks
sem tekur þátt í sumarmóti í
Boston næstu daga en mótið hófst
gær og því lýkur hinn 20. júlí eða
á sunnudag.
Þar mæta til leiks Milwaukee
Bucks, Cleveland Cavaliers með
LeBron James fremstan í flokki,
Boston Celtics, Atlanta Hawks,
New York Knicks, Dallas Mav-
ericks, New Jersey Nets,
Philadelphia 76’ers, San Antonio
Spurs og Washington Wizards.
Eins og áður hefur komið fram
hefur Dallas boðið Jóni Arnóri að
taka þátt í sumarleikjum liðsins.
Forráðamenn liðsins munu hafa
áhuga á að sjá íslenska landsliðs-
manninn leika gegn NBA-
leikmönnum en Jón Arnór stóð
sig vel í efstu deild í Þýskalandi á
sl. keppnistímabili með TBB
Trier.
Ekki náðist í Jón Arnór í gær
en hann er staddur í Dallas.
Jón Arnór ekki með Dallas
Á fyrstu tíu mínútum fékk Valurtvö góð færi til að skora en
Dóra Stefánsdóttir skaut beint í
markvörð KR. Sjálf-
ir fengu Vesturbæ-
ingar tvö sæmileg
færi en tókst að
skora úr báðum, í
fyrra skiptið skaut Ásthildur Helga-
dóttir í stöng en Hrefna Jóhanns-
dóttir fylgdi vel á eftir og síðan gaf
Ásthildur fyrir frá vinstri og Hrefna
skoraði í annað sinn á 12. mínútu.
Það sló Valsstúlkur út af laginu um
stund en þær bitu í skjaldarrendur
og börðust en sem fyrr gekk þeim
illa síðasta spölinn að marki gest-
anna. Þjálfari Vals skerpti því á
sókninni en hvort lið fékk gott færi
fyrir hlé, Þóra B. Helgadóttir varði
vel frá Dóru Maríu Lárusdóttur og
Ásthildur skaut í slá. Valsstúlkur
mættu vígreifar til síðari hálfleiks en
bæði lið fengu ágæt færi þar til Dóra
María skoraði með skalla af stuttu
færi á 52. mínútu. Það jók baráttu
Vals og eftir nokkrar harðar atlögur
jafnaði Kristín Ýr Bjarnadóttir á 68.
mínútu. KR-ingar tóku aðeins við sér
eftir jöfnunarmarkið en Valur fékk
þó tvö ágæt færi til að skora sigur-
markið.
„Mér fannst seinni hálfleikur einn
af okkar betri í sumar en veit ekki
hvað var að gerast fyrir hlé, eflaust
eitthvert stress og þegar það rann af
okkur sýndum við eðlilegan leik,“
sagði Helena Ólafsdóttir, þjálfari
Vals, eftir leikinn. „Við byrjuðum
illa, fengum á okkur tvö mörk og mér
fannst liðið vera að vinna sig út úr
því í fyrri hálfleik. Það var þá ekki
annað að gera en spýta í lófana og
liðið gerði það svo að KR átti ekki
möguleika eftir hlé.“ Laufey Jó-
hannsdóttir átti góðan leik fyrir Val
og hélt oft aftur af Ásthildi. Í vörn-
inni voru Íris Andrésdóttir og Pála
Marie Einarsdóttir góðar.
Vanda Sigurgeirsdóttir, þjálfari
KR, var sátt við stigið en sá samt eft-
ir hinum. „Ég er ekki sátt við að hafa
tveggja marka forystu og hafa leik-
inn í hendi sér en gefa það svo frá
sér. Aftur á móti held ég að þetta séu
sanngjörn úrslit og að mörgu leyti
vorum við heppnar. Við hefðum
reyndar getað gert út um leikinn í
dauðafæri til að komast í 3:0,“ sagði
Vanda eftir leikinn. „Það munar mik-
ið um að fá A-dómara, með fullri
virðingu fyrir hinum finnur maður
muninn.“ Ásthildur var best hjá KR
og Þóra í markinu var einnig góð.
Í Kópavoginum kom Margrét
Ólafsdóttir, Breiðabliki, í 1:0 á 27.
mínútu en Sif Atladóttir jafnaði sex
mínútum síðar. Það hristi upp í Blik-
um og Margrét bætti við tveimur og
Elín Anna Steinarsdóttir einu áður
en Sif Atladóttir svaraði fyrir FH.
Morgunblaðið/GolliBaldur Bjarnason Framari og Fylkismaðurinn Ólafur Ingi Skúlason eigast við.
Valur uppskar
bara eitt stig
VALSSTÚLKUR gengu ekki sáttar af velli í gærkvöldi eftir 2:2 jafn-
tefli við KR á Hlíðarenda og lái þeim hver sem vill því eitt stig fyrir
gríðarlega baráttu við Íslandsmeistarana var rýr uppskera. KR er
því með sex stiga forystu á Val en fimm stig á Breiðablik eftir 4:2
sigur Kópavogsstúlkna á FH í Hafnarfirði.
Stefán
Stefánsson
skrifar
styrkja New Jersey mjög mikið.
„Ég hef mikinn sigurvilja og Kidd
hefur hann einnig. Kidd er besti
leikstjórnandi deildarinnar og mig
langar að leika í sama liði og hann.
Hver einasti körfuboltamaður sem
hefur einhverja hæfileika myndi
vilja leika með Kidd,“ sagði Mourn-
ing.
New Jersey Nets verða að teljast
sigurstranglegastir í austurdeild-
inni næsta vetur en sem fyrr mun
vesturdeildin vera miklu sterkari.
Los Angelas Lakers mætir firna-
sterkt til leiks og eftir að stjörnu-
leikmennirnir Gary Payton og Karl
Malone ákváðu að ganga til liðs við
Shaquille O’Neal og Kobe Bryant í
Lakers eru varla margir sem þora
að veðja gegn liðinu á næstu leiktíð.
MIÐHERJINN, Alonzo Mourning,
vill leika með Jason Kidd á næsta
tímabili í NBA-deildinni en Kidd
hefur ákveðið að gera nýjan sex ára
samning við New Jersey Nets. Mo-
urning, sem er 33 ára gamall hefur
verið í herbúðum Miami Heat síð-
ustu átta ár, mun spila með New
Jersey á næstu leiktíð.
Hann lék ekkert á síðasta tíma-
bili vegna nýrnaveiki en hann var
lengi vel einn allra besti miðherji
deildarinnar og er einn af þeim fáu
sem hafa haft eitthvað í Shaquille
O’Neal, miðherja Lakers að gera.
Mourning hefur skorað að meðal-
tali 20,3 stig og tekið 9,8 fráköst í
leik í NBA deildinni og ef Mourning
sleppur við veikindi sem hafa verið
að hrjá hann síðustu ár mun hann
Mourning vill spila
með Jason Kidd