Morgunblaðið - 16.07.2003, Blaðsíða 25
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. JÚLÍ 2003 25
FRÁ árinu 1998, þegar Háskólinn
í Reykjavík (HR) hóf starfsemi, og
fram til ársins 2002 var mikil ásókn í
tölvunarfræðinám
við skólann. Svipaða
sögu má segja um
tölvunarfræðinám
við Háskóla Íslands
og jafnframt marga
erlenda háskóla.
Helsta ástæða mikils
áhuga nemenda á tölvunarfræði-
námi var uppgangur tæknifyr-
irtækja á umræddum tíma í atvinnu-
lífi og á hlutabréfamörkuðum.
Tæknifyrirtæki á Íslandi kepptust
um vinnuafl, laun voru mjög há og
góðir nemendur gátu valið á milli
margra starfa.
Eins og flestir vita hefur eft-
irspurn eftir fólki með tölv-
unarfræðimenntun minnkað nokkuð
undanfarin 2–3 ár samfara lækkun á
gengi tæknifyrirtækja á hlut-
bréfamörkuðum og jafnframt sam-
fara samdrætti í fjárfestingum fyr-
irtækja í vél- og hugbúnaði.
Nokkurn veginn samtímis hefur
áhugi nemenda á tölvunarfræðinámi
minnkað verulega. Taflan hér fyrir
neðan sýnir þróun á heildarfjölda
umsókna (í staðarnám, fjarnám og
háskólanám með vinnu) í tölv-
unarfræði við HR á árunum 1998–
2003. Jafnframt má sjá hversu stórt
hlutfall umsækjenda er konur. Þess
ber að geta að tölvunarfræðideild
HR velur úr hópi umsækjenda þann-
ig að ekki komast allir umsækjendur
að í nám.
Samtals Breyting frá
fyrra ári
Karlar Konur %
Konur
1998 363 278 85 23,4%
1999 251 -30,9% 183 68 27,1%
2000 387 54,2% 265 122 31,5%
2001 415 7,2% 288 127 30,6%
2002 366 -11,8% 287 80 21,9%
2003 192 -47,5% 169 23 12,0%
Áhyggjuefni
Úr töflunni má lesa tvennt sem
veldur undirrituðum nokkrum
áhyggjum. Í fyrsta lagi má sjá að
fjöldi umsókna í tölvunarfræði við
HR á árinu 2003 eru 47,5% færri en
árið 2002. Vissulega eru atvinnu-
horfur tölvunarfræðinga ekki nógu
góðar sem stendur en ýmislegt
bendir til þess að eftir 2-3 ár verði
myndin gerbreytt. Miklum hagvexti
er spáð á næstu árum (í kjölfar stór-
iðjuframkvæmda) og þá er líklegt að
fjárfesting fyrirtækja í vél- og hug-
búnaði taki við sér. Sem dæmi má
nefna að Samtök íslenskra hugbún-
aðarfyrirtækja (SÍH) telja að nú sé
aðeins spurning um tíma hvenær
önnur uppsveifla hefjist í hugbún-
aðargerð (sjá frétt á www.ut.is). Svo
virðist sem nýútskrifaðir nemendur
úr framhaldsskólum átti sig ekki á
þessari stöðu og horfi eingöngu til
þeirra atvinnumöguleika sem til
staðar eru á þessari stundu. Það
verður að teljast afar líklegt að
vegna fækkunar tölvunarfræðinema
undanfarin tvö ár muni verða veru-
legur skortur á fólki með tölv-
unarfræðimenntun á árunum 2005-
2006. Að auki má hér nefna að spár
til lengri tíma gera ráð fyrir mun
meiri vexti í upplýsingatækni en al-
mennt í öðrum atvinnugreinum (sjá
t.d. U.S. Department of Labor, Bur-
eau of Labor Statistics: http://
www.bls.gov/oco/ocos042.htm).
Hitt áhyggjuefnið er hlutfallsleg
fækkun kvenna í tölvunarfræðinámi.
Um 31% umsækjenda í tölv-
unarfræðideild HR voru konur á ár-
unum 2000-2001 og var það til-
tölulega hátt hlutfall á alþjóðlegan
mælikvarða. Síðustu tvö ár hefur
hlutfallið hins vegar farið minnkandi
og næsta haust stefnir í að konur
verði aðeins um 12% nýnema. Þessi
litla og minnkandi þátttaka kvenna í
tölvunarfræðinámi er auðvitað al-
gerlega óásættanleg. Sérhvert þjóð-
félag hlýtur að þurfa á þátttöku
beggja kynja að halda í uppbygg-
ingu upplýsingatækninnar. Það
gengur ekki til lengdar að í stórum
meirihluta séu það karlar sem taki
ákvarðanir á hinum ýmsu sviðum
sem tölvunarfræðingar starfa á, s.s.
við kennslu, rannsóknir, hugbún-
aðargerð, stjórnun og ráðgjöf.
Reynsla af forritun ekki
nauðsynleg
Það er útbreiddur misskilningur
að fyrri reynsla af tölvum og for-
ritun sé nauðsynleg til að stunda
tölvunarfræðinám. Sérstaklega er
þetta útbreiddur misskilningur hjá
konum. Tölvunarfræðideild HR ger-
ir ekki kröfu um að nemendur hafi
útskrifast af tiltekinni braut úr
framhaldsskóla og margoft hefur
það sýnt sig að góðir nemendur ná
góðum árangri í tölvunarfræðinámi
þrátt fyrir að hafa ekki kynnst for-
ritun í framhaldsskóla.
Tölvunarfræðinám er góður val-
kostur fyrir nemendur sem vilja eiga
kost á fjölbreytilegum, hagnýtum og
vel launuðum störfum að námi
loknu. Jafnframt ber sérstaklega að
nefna að mikill skortur er á fólki hér
á landi með framhaldsmenntun í fag-
inu – tölvunarfræðideild HR hefur
einmitt lagt mikla áherslu á upp-
byggingu meistaranáms sem hefst í
fyrsta sinn haustið 2003.
Til að fjölga nemendum í tölv-
unarfræði á næsta skólaári hefur
HR framlengt umsóknarfrest í nám-
ið og rennur hann út 15. ágúst nk.
Tölvunarfræði-
nám er góður
valkostur
Eftir Hrafn Loftsson
Höfundur er forseti tölvunarfræði-
deildar Háskólans í Reykjavík.
EVRÓPUNEFND sem vinnur
gegn kynþáttafordómum og um-
burðarleysi gaf út skýrslu nú fyrir
skömmu um stöðu
mála á Íslandi. Í
skýrslunni er krist-
infræðikennsla í
skólum gagnrýnd.
Kristinfræðslan er
skyldufag sem kann
að valda fordómum
og getur verið erfitt fyrir foreldra
að sækja um undanþágu fyrir börn-
in sín.
Kristinfræðsla í skólum
ýtir undir fordóma
Í fyrsta lagi er ekki boðið upp á
neina þjónustu fyrir nemendur sem
ekki sækja kristinfræðitíma og því
þurfa þeir yfirleitt að hanga einir á
göngum skólanna á meðan kennsl-
an stendur yfir.
Í öðru lagi getur það reynst afar
erfitt fyrir börn að sleppa krist-
infræðslunni af félagslegum ástæð-
um. Fátt þykir óöruggum börnum
og unglingum erfiðara en að vera
stimpluð öðruvísi og mörg dæmi
eru um að nemendur hafi orðið fyr-
ir áreiti, og stundum einelti, frá
skólafélögum og jafnvel kennurum
vegna þess að þau sitja ekki krist-
infræðsluna, eru annarrar trúar
eða trúlaus.
Stjórn Siðmenntar berast reglu-
lega athugasemdir frá foreldrum
barna vegna óeðlilegra tengsla trú-
ar í skólastarfi. Hér eru örfá nýleg
dæmi:
„Í einum kristinfræðitímanum
bað kennarinn alla sem tryðu á
Guð að rétta upp hönd! Dóttir mín
þorði ekki annað en rétta upp hönd
eins og allir hinir.“
„[Dætur mínar komust í] vand-
ræði vegna hneykslunartals kenn-
ara á trúleysi þeirra, voru báðar
skammaðar beint fyrir framan
bekkinn fyrir að trúa ekki á guð.“
„Þegar einn kennaranna frétti
[að barnið mitt ætlaði að fermast
borgaralega...] hélt hann langar töl-
ur yfir bekknum um siðleysi trú-
leysis og borgaralegrar fermingar.“
„Einu sinni til tvisvar á ári er
farið með börnin í kirkju til messu.
[...] ég bað um að barnið mitt færi
ekki. Var tekið nokkuð vel í það en
þó sagt að slíkt væri kannski ekki
hægt nema finndist starfsmaður
sem vildi vera eftir til að gæta
barnsins á meðan allir færu til
messu. Var mér gert ljóst að ég
væri að skapa vesen.“
Trúboð ekki fræðsla
Í frétt Morgunblaðsins síðastlið-
inn fimmtudag fullyrðir biskup að
kristinfræðslan sé „ekki trúboð
heldur fræðsla um trúarbrögð sem
meirihluti landsmanna aðhyllist...“
Gott ef satt væri. Kristinfræðslan í
skólum er yfirleitt kennd í formi
trúboðs en ekki hlutlausrar
fræðslu. Enda ekki undarlegt þar
sem flestar bækur sem notaðar eru
til kennslunnar eru skrifaðar af
prestum. Bækurnar fjalla um goð-
sagnir kristinnar trúar eins og um
staðreyndir væri að ræða og börn
hvergi vöruð við því að efnið sé
ekki byggt að sagnfræðilegum stað-
reyndum.
Í sumum skólum eru haldnir
bænadagar, börn látin búa til
bænabækur með kristnum bænum
og í sumum skólum eru börn látin
fara með kristna bæn við upphaf
kennslutíma hvern morgun!
Í aðalnámsskrá grunnskóla er
auk þess gert ráð fyrir því að krist-
in trú og goðsögur hennar séu stað-
reyndir: „Kristin trú á sér rætur í
sögulegum atburðum, allt frá tím-
um Gamla testamentisins, sem ná
hámarki í lífi og starfi, dauða og
upprisu Jesú Krists.“ (bls. 7–8.)
Líf, starf og dauði Jesú eru ekki
sögulegir atburðir. Sagnfræðilegar
heimildir benda ekki til þess. Hvað
þá meint upprisa Jesú.
Enn fremur er kveðið á um það í
námsskránni að „kristilegt siðgæði
[eigi] að móta starfshætti skólans
ásamt umburðarlyndi og lýðræð-
islegu samstarfi.“ (bls. 8.) Þarna er
óbeint sagt að umburðarlyndi, lýð-
ræði og siðferði séu sérstaklega
kristin fyrirbæri. Það er vitanlega
ekki rétt. Það er erfitt fyrir sjálfs-
mynd þeirra sem ekki eru kristnir
(trúlausir eða annarrar trúar) að
hlusta á slíkan áróður.
Námsskráin segir svo skýrt og
skilmerkilega frá því að lokamark-
miðin með kristinfræðikennslu séu
að börn „efli trúarlegan... þroska
sinn“. (bls. 13.) Auk þess eiga börn-
in að gera „sér grein fyrir því
hvaða þýðingu krossdauði Jesú og
upprisutrúin [hafi] fyrir kristna
einstaklinga andspænis dauðanum
og þá von sem henni tengist.“ (bls.
21.) Menn hljóta að spyrja sig
hvort slík trúfræði eigi heima í
skólum? Hvaða þýðingu hefur
krossdauðinn þá fyrir trúlausa og
þá sem eru annarrar trúar? Á að
kenna börnum að þau fari til helvít-
is?
Trúarbragðafræði sem hluti
af sagnfræðikennslu
Ekkert er óeðlilegt við að kenna
börnum um uppruna og áhrif hina
ýmsu trúarbragða á mannkynssög-
una. Kennslan verður þó að vera
byggð á veraldlegum grunni en
ekki guðfræðilegum. Í skólum á að
kenna staðreyndir sem staðreyndir
og goðsagnir sem goðsagnir. Ekki
goðsagnir sem staðreyndir og öf-
ugt. Það er verkefni foreldra að
innræta börnum trúarhugmyndir ef
þeir það kjósa.
Kristin trú og önnur trúarbrögð
hafa haft mjög mikil áhrif á líf og
aðstæður manna í gegnum tíðina,
bæði slæm og góð. Mjög mikilvægt
er því að skólar fræði nemendur
sína um þessi áhrif á hlutlausan og
óhlutdrægan hátt. Það hvetur hins
vegar, rétt eins og Evrópunefndin
bendir á, bæði til fordóma og um-
burðarleysis þegar kennarar eru
settir í trúboðshlutverk presta og
saklausir skólakrakkar gerðir, ósp-
urðir, að sóknarbörnum ríkiskirkj-
unnar.
Um trúfræðslu og
trúboð í skólum
Eftir Sigurð Hólm Gunnarsson
Höfundur er blaðamaður og
varaformaður Siðmenntar.
Steypusögun
Vegg- og gólfsögun
Múrbrot
Vikursögun
Malbikssögun
Kjarnaborun
Loftræsi- og lagnagöt
Hreinlæti og snyrtimennska
í umgengni
BT-sögun
Sími 567 7544
Gsm 892 7544
Útflutningur á fiski
Til sölu er útflutningsfyrirtæki á fiski með mjög traust erlend sam-
bönd. Góð sambönd við innlenda framleiðendur. Mjög áhugavert fyr-
irtæki fyrir fjársterka aðila. Vilyrði (letter of intend) fyrir útflutningi á
þúsundum tonna af saltfiski og frystum fiski liggur þegar fyrir.
Nánari upplýsingar aðeins á skrifstofunni.
fyrirtaeki.is
Öll fyrirtækjaskráin okkar er nú á netinu í mjög aðgengilegu formi.
Nýjung:
Farið inn á síðuna atvinnutækifæri. Það gæti borgað sig.
Erum með úrval fyrirtækja á skrá hjá okkur
á hverjum tíma.
Einar Örn Reynisson, lögg. fasteignasali.
Best frá Tékk
Handskorin og handmáluð kristalljós
Hágæða ljósakrónur
Frí ráðgjöf, heimsending
og samsetning
Skúlagötu 10
Símar 894 0655 og 562 0900.
www.bestfratekk.is