Morgunblaðið - 18.07.2003, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 192. TBL. 91. ÁRG. FÖSTUDAGUR 18. JÚLÍ 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Tortímandinn
snýr aftur
Mennirnir á bak við tækni-
brellurnar | Fólk 48
Illgresi er
augnayndi
Borðskreytingar geta verið með
ýmsum hætti | Daglegt líf B5
Æðarvarp
á Faxaflóa
Heimsókn til bóndans
í Þerney | Höfuðborg 18
METNAÐARFULL efnahagsáform
kínverskra stjórnvalda eru ófram-
kvæmanleg vegna þess að heim-
urinn hefur ekki efni á vestrænni
velferð í Kína nema Vesturlandabú-
ar gerbreyti neysluvenjum sínum, að
því er CNN-sjónvarpið hafði eftir
Klaus Töpfer, yfirmanni Umhverfis-
áætlunar Sameinuðu þjóðanna.
Töpfer segir að í heiminum séu
ekki nægar náttúruauðlindir til að
1,3 milljarðar Kínverja geti tekið
upp vestræna neysluhætti. Kínversk
stjórnvöld stefna að því að fjórfalda
þjóðarframleiðsluna fyrir árið 2020
en Töpfer telur það ekki gerlegt
nema íbúar iðnríkjanna gerbreyti
neysluvenjum sínum, þannig að hinir
fátæku í heiminum geti einnig notið
góðs af takmörkuðum nátt-
úruauðlindum.
Töpfer segir að til að bílafjöldinn í
Kína yrði að tölu sá sami og í Þýska-
landi, til dæmis, þyrftu Kínverjar að
framleiða 650 milljónir bíla en um-
hverfisverndarsinnar telji að þá
myndu hvorki málm- né olíubirgðir
heimsins hrökkva til.
Hagvöxturinn í Kína var um 8% í
fyrra og gert er ráð fyrir því að
hann verði um 7% í ár.
Vestræn
velferð í
Kína sögð
óhugsandi
LANGHLAUPARAR og aðrir
íþróttamenn sem drekka of mik-
inn vökva á meðan þeir æfa geta
átt á hættu að verða alvarlega
veikir eða jafnvel deyja vegna
ástands sem skapast þegar
ójafnvægi verður á natríumflæði
í blóðinu.
Hvort sem magn efnisins
verður of mikið eða lítið getur
ójafnvægið leitt til þess að bólg-
ur myndast í heilanum, sam-
kvæmt grein sem birtast mun
um helgina í British Medical Jo-
urnal. Þekkt eru sjö tilfelli þess
að íþróttamenn hafi látið lífið og
250 önnur tilvik sem leiddu ekki
til dauða. Farið var að veita fyr-
irbærinu athygli eftir að kven-
kyns keppandi í maraþoninu í
Boston 2002 féll niður og lést
eftir að hafa meðan hún hljóp
drukkið mikið magn af íþrótta-
drykk sem innihélt natríum.
Höfundar greinarinnar segja
að leiðbeiningar frá framleið-
endum íþróttadrykkja þar sem
fólki er ráðlagt að drekka eins
mikið af slíkum drykkjum og
hægt er, eða allt að 1,2 lítra á
klukkustund, séu alrangar, slíkt
geti verið hættulegt. „Líklega er
best að drekka eins mikið og lík-
aminn segir manni með þorsta,“
segir í greininni.
Of mikil
vökva-
neysla
varasöm
París. AFP.
LJÓST er að tveir menn voru í stórhættu þegar
þeir fundu fyrir tilviljun mikið magn af dínamíti í
vegræsi undir Bláfjallaafleggjaranum síðdegis í
gær.
Fullvíst er talið að hér hafi komið í leitirnar
sprengiefnið sem stolið var úr geymslu á Hólms-
heiði austan Rauðavatns hinn 4. júlí sl. en þá var
alls 245 kg af sprengiefni stolið. Talningu á
sprengiefninu sem fannst lauk seint í gærkvöld og
sagði Hörður Jóhannesson, yfirlögregluþjónn í
Reykjavík, að ljóst væri að þarna væri fram komið
allt sprengiefnið úr ráninu.
Mikil mildi þykir að sprengiefnið skyldi ekki
springa í höndunum á mönnunum þegar þeir hand-
fjötluðu efnið og lýstu sér með sígarettukveikjara í
dimmu ræsinu innan um hundruð kílóa af dínamíti.
Sáum fullt af kössum
í svörtum plastpokum
Mennirnir voru við kvikmyndagerð í Bláfjöllum
þegar þeir römbuðu á pokana sem þeir töldu fyrst
að væri einhvers konar þýfi og könnuðu málið frek-
ar. „Við kíktum þarna inn í rörið og sáum þar fullt
af kössum í svörtum plastpokum og það leyndi sér
ekki að öllu hafði verið mjög haganlega komið fyr-
ir,“ sagði annar þeirra í samtali við Morgunblaðið í
gær. „Við sáum ekki mjög vel í myrkrinu og kveikt-
um á kveikjara til að lýsa okkur og í framhaldinu
tók ég í einn pokann og dró hann út. Á leiðinni
hristist hann mikið þegar hann dróst þvert á bár-
urnar í bárujárninu. Ég gerði mér ekki grein fyrir
því fyrr en eftir á hvað þetta var mikið hættuspil og
mér finnst raunar ótrúlegt að við skulum enn vera
á lífi. Þegar ég hafði dregið pokann út í dagsljósið
hristi ég hann utan af kassanum því mér stóð beyg-
ur af innihaldinu og ég vildi ekki taka kassann upp
úr honum eins og maður hefði vanalega gert. Þegar
kassinn datt á jörðina las ég: „Dínamít“ og þá tók-
um við til fótanna. Það var hellingur af þessu inni í
rörinu og mjög vel innpakkað.“
Þetta átti sér stað um kl. 16 og tilkynntu menn-
irnir fundinn tafarlaust til lögreglunnar. Kom hún
á vettvang skömmu síðar og lokaði Bláfjalla-
afleggjaranum og hóf vettvangsrannsókn. Að sögn
Guðmundar Arnar Guðjónssonar, varðstjóra á
vettvangi, voru kallaðir til sprengjusérfræðingar
Landhelgisgæslunnar þar sem enginn með sér-
hæfða þekkingu var tiltækur hjá lögreglunni.
Gylfi Geirsson, sprengjuefnasérfræðingur
Landhelgisgæslunnar, segir ljóst að fólkið hafi ver-
ið í lífshættu hafi það kveikt eld nálægt sprengiefn-
inu. Dínamít geti að vísu brunnið án þess að
springa, en þá þurfi að vera búið að breiða úr því
þannig að gasið, sem kemur frá því, eigi greiða leið
í burtu.
Tveir menn í stórhættu er þeir fundu mikið magn af stolnu dínamíti í Bláfjöllum
„Ótrúlegt að við skul-
um enn vera á lífi“
Lýstu sér með sígar-
ettukveikjara innan
um dínamítkassa
Morgunblaðið/Júlíus
Falið í vegræsi
Stolna dínamítið fannst í vegræsi á Bláfjallavegi. Tæknimenn lögreglu og sprengjusérfræðingar
Landhelgisgæslunnar sjást hér á vettvangi eftir að búið var að draga sprengiefnið út úr ræsinu.
TONY Blair, forsætisráðherra Bret-
lands, sagði að sagan myndi „fyrir-
gefa“ að Saddam Hussein hefði verið
komið frá jafnvel þótt í ljós kæmi að
hann og Geroge W. Bush Bandaríkja-
forseti hefðu rangt fyrir sér varðandi
gereyðingarvopn í Írak, er hann
ávarpaði fulltrúa- og öldungadeild
bandaríska þingsins í Washington í
gærkvöld. Hins vegar hefði hik, „er
við stóðum andspænis slíkri ógn og
áttum að veita forystu … [verið]
nokkuð sem sagan hefði ekki fyrirgef-
ið“, sagði Blair við mikinn fögnuð
þingmanna.
Blair kom til Washington í gær til
fundar við Bush á sama tíma og ríkis-
stjórnir beggja sæta ásökunum um að
hafa hugsanlega misnotað upplýsing-
ar um gereyðingarvopn Íraka í að-
draganda stríðsins.
Á sameiginlegum blaðamannafundi
eftir ávarpið lögðu þeir Bush og Blair
áherslu á að Íraksstríðið hefði verið
réttmætt. „Það mun koma í ljós að við
höfðum rétt fyrir okkur,“ sagði Bush.
Bað Bandaríkjamenn
að vinna með Evrópu
Blair bað Bandaríkjamenn að taka
á hryðjuverkaógn og harðstjórn með
„sannfæringu“, ekki einungis
byssum. „Bandaríkin verða að hlusta
rétt eins og þau veita forystu, en biðj-
ist aldrei afsökunar á gildum ykkar,“
sagði hann og var ákaft fagnað en
hann þurfti 40 sinnum að gera hlé á
ræðu sinni vegna lófataks frá þing-
mönnum.
Hann lagði áherslu á mikilvægi
tengsla milli landanna beggja vegna
Atlantshafsins. „Ekki gefast upp á
Evrópu, vinnið með henni.“
Hann kom inn á málefni Mið-Aust-
urlanda og sagði að hryðjuverkaógnin
þar hyrfi ekki fyrr en með friði á milli
Ísraela og Palestínumanna.
Neyddur til að hafa
upplýsingarnar með
Öldungadeildarþingmaðurinn Dick
Durbin staðhæfði í gær að yfirmaður
bandarísku leyniþjónustunnar,
George Tenet, hefði á lokuðum þing-
fundi upplýst að háttsettur maður í
Hvíta húsinu hefði verið harðákveð-
inn í að nota vafasama fullyrðingu um
úrankaup Íraka í Afríku í stefnuræðu
George W. Bush Bandaríkjaforseta í
janúar. Tenet hefði þannig í raun ver-
ið neyddur til að fallast á að fullyrð-
ingin yrði í ræðunni.
Forsætisráðherra Bretlands
ræddi Íraksstríðið á Bandaríkjaþingi
„Sagan mun fyrirgefa“
Reuters
Blair ánægður eftir ræðuna í gær.