Morgunblaðið - 18.07.2003, Blaðsíða 12
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
12 FÖSTUDAGUR 18. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ÚR VERINU
TVÖ skip frá Eyjum, Harpa og
Kap, stunda nú tilraunaveiðar á
síld við eyjarnar. Skilyrði fyrir
veiðunum er að hún verði öll unnin
til manneldis og meðal annars er
verið að gera tilraunir til að vinna
úr henni hrognin.
Vinna hrognin líka
Jóhann Pétur Andersen, fram-
kvæmdastjóri Ísfélags Vestmanna-
eyja, segir að þetta hafi gengið
þokkalega, en dagamunur sé á
veiðunum. „Við flökum mest af
síldinni og frystum en eitthvað er
líka heilfryst. Þá höfum við verið
að taka úr henni hrognin eftir að
þau eru orðin nógu þroskuð. Þetta
er stór og átulaus síld sem hentar
mjög vel til manneldisvinnslu, þótt
hún sé svolítið horuð. Flökin og
heilfrysta síldin fer að mestu til
Evrópu og eitthvað til Japans, en
hrognin höfum við ekki selt ennþá.
Mér vitanlega er þetta í fyrsta sinn
sem gerð er tilraun til að vinna
hrogn úr íslenzkri síld. Við erum
því að kynna þetta fyrir markaðs-
mönnunum og svo er bara að sjá
hvað kemur út úr þessu, en verðið
fyrir síldina er fremur lágt,“ segir
Jóhann Pétur Andersen.
Þægilegur veiðiskapur
„Heyrðu, þetta er dauft í dag, en
var fínt í gær. Þá vorum við með
um 230 tonn. Þessu er líklega að
ljúka. Síldin er komin að hrygn-
ingu og þá hverfur hún svo það er
sjálfhætt. Við megum bara vera að
þessu í mánuð og verðum því að
hætta ekki seinna en 25. júlí,“ seg-
ir Andrés Þorsteinn Sigurðsson,
eða Addi Steini, skipstjóri á Hörpu
VE.
„Við byrjuðum 25. júní og erum
líklega komnir með um 2.000 tonn.
Við vorum á þessu í fyrra líka og
fengum þá um 3.000 tonn, svo
þetta er heldur lakara nú. Það eru
líka einhverjar breytingar frá því í
fyrra. Hrygningin virðist vera fyrr
á ferðinni nú og svo er hún alveg
átulaus nú, en í fyrra var töluverð
áta í henni. Þetta er því stór og
falleg síld núna, fínasta síld,“ segir
Andrés.
Hann segir að þetta sé fínasti
veiðiskapur, farið út að morgni og
komið heim að kvöldi. „Þetta er
ósköp huggulegt, maður sefur
heima á nóttunni og veiðir á dag-
inn. Við erum ekki nema um hálf-
tíma á miðin. Það er síld allt í
kringum Eyjarnar en sú vænsta
hefur haldið sig við Helliseyna og
við höfum verið mest þar. Við tök-
um svona 100 til 200 tonn á dag,
en veiðiskapurinn miðast við
vinnslugetuna í landi. Sem betur
fer hefur þetta gengið vel,“ segir
Andrés Þorsteinn Sigurðsson.
Morgunblaðið/Sigurgeir
Það er nóg af síld. Búið að snurpa og byrjað að dæla silfri hafsins um borð.
Skipstjórinn Andrés Þorsteinn Sigurðsson segir þetta huggulegan veiðiskap.
Fínasta síld
Tilraunaveiðar á síld við Eyjar
EFTIRLITSSTOFNUN EFTA
hefur sent norskum stjórnvöldum at-
hugasemd vegna brota á reglugerð-
um Evrópska efnahagssvæðisins um
frítt flæði vinnuafls. Athugasemdin
snýr að mönnun fiskiskipa.
Í lögum og reglugerðum EES er
ákvæði þess efnis að frjálst flæði
vinnuafls skuli vera milli allra aðild-
arlandanna án nokkurra takmark-
ana. Stofnuninni barst í upphafi árs
kvörtun vegna norska laga frá árinu
1966, sem taka til fiskveiðilögsögu
Noregs og banna erlendum þjóðum
veiðar innan hennar. Samkvæmt lög-
unum verður að minnnsta kosti
helmingur áhafnar og eigenda skips,
sem stundar veiðar innan lögsögunn-
ar að vera norskur, eða með fasta bú-
setu í Noregi. Eftirlitsstofnun telur
þetta ákvæði laganna brjóta í bága
við lög og reglurgerðir EES. Þau lög
banna beinar og óbeinar takmarkan-
ir á atvinnufrelsi svo sem kröfur um
fasta búsetu eða lögheimili verka-
fólks frá öðrum aðildarlöndum. Nið-
urstaða eftirlitsstofnunarinnar er
því sú, að með því að framfylgja þess-
um lögum brjóti norsk stjórnvöld
grein 28 í EES-samkomulaginu og
grein 1 og fjögur í reglugerð 1612/68.
Þess vegna hefur norskum stjórn-
völdum til að byrja með verið send
áðurnefnd athugasemd.
Óleyfilegt að tak-
marka mönnun
EFTA gerir athugasemdir við norsk lög
BAUGUR hefur tryggt sér 41,2%
hlut í bresku leikfangaversluninni
Hamleys og er nú eini tilboðsgjaf-
inn í fyrirtækið eftir að keppinaut-
urinn Tim Waterstone dró sig til
baka. Óháðir stjórnendur Hamleys
hafa lýst yfir stuðningi við yfirtöku-
tilboð Baugs.
Þrjár tilkynningar tengdar fyrir-
tækinu Hamleys, ein frá Water-
stone, önnur frá óháðu stjórnend-
unum og sú þriðja frá Baugi, voru
birtar í kauphöllinni í London í gær
og marka þær þáttaskil í keppninni
um yfirtöku á fyrirtækinu. Í erlend-
um fjölmiðlum hafa atburðir gær-
dagsins verið túlkaðir á þann hátt
að átökunum um Hamleys sé lokið
og að Baugur hafi í raun tryggt sér
fyrirtækið.
Jón Scheving Thorsteinsson, yf-
irmaður erlendrar fjárfestingar hjá
Baugi, segir að úr þessu sé erfitt að
yfirtaka Hamleys án þátttöku
Baugs, enda eigi Baugur nú það
stóran hlut að ekki sé hægt að ná
auknum meirihluta í Hamleys án
Baugs. Hann segir að yfirleitt sé yf-
irtaka langt komin þegar þessu stigi
sé náð og hann sé því vongóður um
að yfirtakan muni ná fram að
ganga.
Spurður að því hversu langan
tíma muni taka að ljúka yfirtöku-
ferlinu, að því gefnu að allt gangi
eftir, segir Jón að það ætti að vera
hægt að ljúka því á 60 dögum og að
það þætti gott ef það tækist að gera
þetta svo hratt. Algengt sé að það
þurfi að framlengja tilboð að
minnsta kosti einu sinni.
Í síðasta mánuði gerði Baugur
yfirtökutilboð í Hamleys upp á 205
pens á hlut, sem var 62% yfir verði
hlutabréfanna um miðjan mars, eða
áður en tilkynnt var um að stjórn-
endur hefðu áhuga á að yfirtaka
fyrirtækið. Baugur gerir tilboðið í
gegnum fyrirtækið Soldier, sem
Baugur á í félagi við stjórnendur
hjá Hamleys. Að morgni dags 27.
júní hækkaði Baugur tilboð sitt í
226 pens á hlut og síðar sama dag
gerði Waterstone 230 pensa tilboð í
Hamleys. Hamleys hafði valið svo-
kallaða óháða stjórnendur til að
leggja mat á yfirtökutilboðin, og við
tilboð Waterstones drógu þeir
stuðning sinn við tilboð Baugs til
baka, en þeir höfðu mælt með
fyrsta tilboði Baugs.
Waterstone vonsvikinn
Þriðja þessa mánaðar hækkaði
Baugur svo tilboð sitt í 254 pens á
hlut, sem er 101% yfir síðasta verði
áður en fréttir bárust um vænt-
anlega yfirtöku. Frá því þetta tilboð
barst hefur verið beðið viðbragða
Waterstones, en þau komu fram í
gær með tilkynningu til kauphallar-
innar í London um að Children’s
Stores, fyrirtækið sem hann stofn-
aði til að gera tilboð í Hamleys,
mundi ekki leggja fram nýtt yfir-
tökutilboð. Jafnframt var greint frá
því að Children’s Stores hefði sam-
þykkt að selja Soldier, fyrirtæki
Baugs, alla hluti sína í Hamleys.
Í tilkynningunni til kauphallar-
innar er haft eftir Tim Waterstone,
sem er stofnandi og fyrrum eigandi
Waterstone-bókabúðanna og rekur
nú leikfangaverslunina Daisy &
Tom, að hann sé vonsvikinn yfir því
sem gerst hafi. „Hamleys hefði fall-
ið vel að rekstri Daisy & Tom og
farið vel saman við áætlanir um
vöxt Daisy & Tom. Engu að síður
verða ákvarðanir að byggjast á
traustum efnahagslegum forsend-
um og jafnvel með augljósum sam-
legðaráhrifum milli Daisy & Tom og
Hamleys eru ekki viðskiptaleg rök
fyrir því fyrir okkur að greiða meira
en 230 pens á hlut í Hamleys,“ er
haft eftir Waterstone.
Stuðningur óháðu
stjórnendanna
Óháðir stjórnendur birtu tilkynn-
ingu í kauphöllinni í London strax
eftir að Waterstone hafði dregið sig
í hlé og lýstu yfir stuðningi við
endurskoðað tilboð Baugs. Í til-
kynningunni er haft eftir Jim Hodk-
inson, sem er formaður nefndar
óháðu stjórnendanna, að eftir harða
keppni í tilboðsferlinu hafi óháðu
stjórnendurnir ánægju af að mæla
með 254 pensa tilboði í Hamleys.
Fáeinum mínútum eftir tilkynn-
ingu óháðu stjórnendanna birtist til-
kynning Soldier um að von væri á
formlegri tilboðsyfirlýsingu og að
tilboðstíminn hefði verið framlengd-
ur til 31. júlí. Þá kom fram að Baug-
ur hefði eignast 26,3% í Hamleys og
auk þeirra bréfa sem Baugur hefði
tryggt sér samkvæmt ákveðnum
skilyrðum með óafturkræfum samn-
ingum væri hlutur hans í Hamleys
41,2%.
Tilboð Baugs er háð því skilyrði
að eigendur að minnsta kosti 90%
hlutafjár gangi að því, en við 90%
mörkin verður Baugi heimilt að
leysa til sín þau bréf sem út af
standa.
Miðað við tilboð Baugs upp á 254
pens er Hamleys verðlagt á 58,7
milljónir punda, eða tæpa 7,3 millj-
arða íslenskra króna.
Þáttaskil í keppn-
inni um Hamleys
Baugur hefur
tryggt sér 41,2%
hlutafjár. Water-
stone dregur
sig til baka
BORGARAPÓTEKI hefur verið
lokað. Samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins er ólíklegt að apó-
tekið verði opnað að nýju en Borg-
arapótek hefur átt í rekstrarerf-
iðleikum.
Samkvæmt upplýsingum frá
Héraðsdómi Reykjavíkur hefur
ekki verið óskað eftir gjald-
þrotaskiptum félagsins sem er
einkahlutafélag í eigu 10 hluthafa.
Lokunin tengist einnig, sam-
kvæmt sömu heimildum blaðsins,
breytingum á starfsemi í húsinu en
eins og fram kom í Morgunblaðinu
fyrr á þessu ári er fyrirhugað að
öll starfsemi Læknastöðvarinnar í
Álftamýri flytjist í gamla Orku-
veituhúsið á Suðurlandsbraut strax
eftir verslunarmannahelgi.
Morgunblaðið/Kristinn
Borgarapóteki lokað
vegna rekstrarerfiðleika
Zoom
gjald-
þrota
FYRIRTÆKIÐ Zoom, sem
sérhæfði sig í hreyfimyndum
fyrir MMS-símaþjónustu, hef-
ur verið tekið til gjaldþrota-
skipta.
Í frétt vefmiðilsins
c21media.net er vitnað í Sigurð
Jónasson hjá Zoom og sagt að í
skoðun sé að stjórnendur fyrir-
tækisins kaupi reksturinn. Haft
er eftir Sigurði að kvikmynda-
og auglýsingadeild fyrirtækis-
ins verði lokað, en viðræður séu
í gangi um að teiknimynda- og
gagnvirknideildir haldi áfram.
Sonara stór hluthafi
Meðal stærstu hluthafa Zo-
om, samkvæmt frétt frá árslok-
um 2001, voru finnska símafyr-
irtækið Sonera,
Nýsköpunarsjóður, Íshug og
frumkvöðlar.
Stjórnarformaður er Hreinn
Sigmarsson hjá Nýsköpunar-
sjóði.