Morgunblaðið - 18.07.2003, Blaðsíða 46
ÍÞRÓTTIR
46 FÖSTUDAGUR 18. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
BIRGIR Leifur Hafþórsson, kylfingur í Golfklúbbi Kópavogs
og Garðabæjar, átti frábæran hring í gær, á öðrum degi meist-
aramóts GKG. Birgir Leifur lék þá Vífilsstaðavöllinn á 9 högg-
um undir pari, eða á 61 höggi og er þetta besti hringur sem
kappinn hefur leikið á ferli sínum.
Birgir Leifur fékk par á fyrstu tvær holurnar, þá kom fugl
og því næst þriðja parið. Á 5. holu fékk hann örn eins og fyrsta
daginn, þá skolla, par og endaði fyrri níu holurnar á fugli og
pari. Hann var því þrjú högg undir pari eftir fyrri níu.
Fugl kom á næstu holu, þá par, fugl á ný og par áður en
Birgir Leifur fékk örn á 14. brautinni. Síðan kom par, fugl, par
og síðustu holuna lék hann á fugli. Séu punktar Birgis Leifs
reiknaðir út kemur í ljós að hann fékk 45 punkta fyrir þennan
frábæra hring.
„Þetta var fínn hringur, hringur sem ég er búinn að bíða
lengi eftir. Næsta skref er að að komast niður fyrir sextíu
höggin,“ sagði Birgir Leifur eftir draumahrigninn í gær.
Birgir Leifur hefur örugga forystu í meistaraflokki hjá GKG
og næsta víst að hann verður klúbbmeistari á sínu fyrsta ári í
klúbbnum.
Besti hringur Birgis
Leifs: 9 undir pari
Birgir Leifur lék á 9 höggum
undir pari í gær.
ÓÐINN Björn Þorsteinsson,
kringlukastari úr FH, kastaði kringl-
unni 49,20 metra á Evrópumeistara-
móti unglinga, 22 ára og yngri, sem
hófst í borginni Bydogoszcz í Pól-
landi í gær. Hann komst ekki í úrslit
– til þess þurfti Óðinn Björn að kasta
lengra en 53,38 metra.
SILJA Úlfarsdóttir úr FH keppir í
dag í undanúrslitum í 400 m grinda-
hlaupi kvenna. Undanrásir áttu að
fara fram í gær, en voru felldar niður
þar sem færri en sextán konur eru
skráðar til leiks.
HAUKUR Sigurvinsson, sem lék
með Aftureldingu á síðustu leiktíð í
handknattleik, skrifaði undir samn-
ing við HK í fyrrakvöld. Haukur var
fyrirliði Aftureldingar síðasta vetur.
BEN Thatcher mun leika með
Leicester á næstu leiktíð í ensku úr-
valsdeildinni en hann hefur spilað
með Tottenham síðustu ár. Thatch-
er er 27 ára gamall varnarmaður en
hann er áttundi leikmaðurinn sem
Leicester fær til sín í sumar.
ARGENTÍNUMAÐURINN Diego
Simeone leikur með Atletico Madrid
næsta keppnistímabil. Simeone er
miðjumaður og lék með Lazio síð-
asta vetur. Simeone lék með Atletico
Madrid 1996 þegar liðið sigraði tvö-
falt, deild og í bikarkeppninni.
NORSKI landsliðsmaðurinn
Steffen Iversen, 27 ára, sem hefur
verið í herbúðum Tottenham, er í
viðræðum við forráðamenn Wolves.
Þá hafa Úlfarnir einnig hug á að fá
félaga hans, Rússann Sergei Rebr-
ov, til liðs við sig frá Tottenham, en
hann hefur verið í láni hjá tyrkneska
liðinu Fenerbahce.
BRASILÍSKI landsliðsmaðurinn
Kleberson er líklega á leið til Man-
chester United frá Atletico Parana-
ense. Kleberson er varnarmaður og
hann var í heimsmeistaraliði Bras-
ilíu í fyrra.
FENERBAHCE hefur rekið varn-
armanninn Samuel Johnson. Þjóð-
verjinn Christophe Daum, sem er
nýráðinn knattspyrnuþjálfari liðsins,
vildi losna við Johnson sem er þrí-
tugur og kom til Fenerbache árið
1999.
SPÆNSKI hjólreiðamaðurinn Ju-
an Antonio Flecha vann 11. áfanga
hjólreiðakeppninnar Tour de
France í gær, 153 kílómetra leið milli
Narbonne og Toulouse. Flecha var
langfyrstur í mark og hjólaði vega-
lengdina á þremur og hálfri klukku-
stund. Bandaríkjamaðurinn Lance
Armstrong hefur forustu í heildar-
keppninni en hann freistar þess nú
að vinna keppnina fimmta árið í röð.
EVANILSON, leikmaður Bor-
ussia Dortmund, meiddist illa í leik
gegn Bochum í fyrrakvöld. Evanil-
son, sem er brasilískur miðjumaður,
verður frá keppni í allt að sex mán-
uði.
FÓLK
Staða liðanna fyrir leikinn varekki mjög glæsileg, FH í átt-
unda sæti og Skagamenn í því ní-
unda en bæði höfðu
tapað síðustu deild-
arleikjum sínum.
Stuðningsmenn
mættu því ekki
mjög kokhraustir til leiks, sérstak-
lega ekki Skagamenn sem eiga því
ekki að venjast að sjá sitt lið heyja
botnbaráttu. Það fór því lítið fyrir
hvatningu fyrir hlé, varla að menn
hvettu sína menn til dáða heldur
var nær eingöngu sett út á störf
dómara.
Fyrstu mínúturnar fóru í bar-
áttu um miðjuna og þegar á leið
voru það heimamenn, sem náðu
þar undirtökunum. Það vantaði
samt bit í framlínuna þar sem
Hjörtur Hjartarson, sem leysti
Stefán Þór Þórðarson af hólmi í
leikbanni, mátti sín lítils gegn
Dananum Tommy Nielsen. Eftir
fimmtán mínútna þóf fór að draga
til tíðinda þó að mörkin létu sem
fyrr á sér standa en af sjö sæmi-
legum færum í fyrri hálfleik voru
sex heimamanna. Julian Johnsson
skallaði í slá á 15. mínútu, þremur
mínútum síðar var Hjörtur nálægt
því að ná boltanum við fingurgóma
Daða Lárussonar, markvarðar
FH, og síðan fór aukaspyrna
Hjálms Dórs Hjálmssonar rétt yfir
mark FH. Gunnlaugur Jónsson,
fyrirliði ÍA, brá sér síðan í sóknina
og skallaði boltann rétt yfir mark
FH eftir hornspyrnu og á 36. mín-
útu fór gott skot Julian af 20
metra færi beint í hendur Daða
markvarðar. FH-ingar fengu eina
horn sitt fyrir hlé á 31. mínútu og
á þeirri fertugustu fengu þeir eina
umtalsverða færi sitt fyrir hlé er
Jón Þorgrímur Stefánsson skallaði
að marki ÍA eftir hornspyrnu en
Þórður Þórðarson markvörður átti
ekki í vandræðum með að grípa
boltann.
Síðari hálfleikur byrjaði á svip-
uðum nótum og sá fyrri, með barn-
ingi á miðjunni og þegar á leið
voru heimamenn duglegri við að
byggja upp sóknir. Þeim gekk hins
vegar sem fyrr illa síðasta spölinn
þrátt fyrir nokkur sæmileg færi en
vissulega áttu gestirnir úr Hafnar-
firði einnig nokkur ágæt færi.
Markaleysið fór hins vegar illa í
leikmenn og þeir eyddu á köflum
of miklu púðri í að reyna fá dóm-
arann til að skipta um skoðun.
Undir lokin lögðu Skagamenn mik-
ið kapp í sóknina svo úr varð
nokkur spenna en áhorfendur fóru
heim án þess að sjá mark.
„Ég er auðvitað gífurlega
svekktur því við vorum betri í
leiknum en eins og svo oft áður þá
gengur okkur illa að skora úr fær-
unum okkar og eitt stig í dag er
ekki nóg,“ sagði Gunnlaugur Jóns-
son, fyrirliði Skagamanna, eftir
leikinn. „Við ætluðum að rífa okk-
ur upp eftir síðasta leik sem var
skelfilegur og það gekk ágætlega,
við börðumst vel og fáum færi en
því miður nýtast þau ekki og
fimmta jafnteflið er staðreynd. Ég
er ágætlega ánægður með mína
menn en við vorum kannski ekki
alveg nógu duglegir við að skapa
okkur fleiri færi en þetta var þó
framför frá síðasta leik og ég er
sáttur við það.“ Fyrirliðinn sagði
Akurnesinga ekki ánægða með
stöðu liðsins en leikmenn hyggjast
bæta sig. „Staða okkar er mjög
erfið. Við höfum sýnt ágæta leiki
inni á milli en ekki sigrað og það
er mjög erfitt að vera á Skaganum
þegar gengur illa. Við notum nú
bikarkeppnina til að rífa okkur
upp og hífa upp keppnisandann.
Við erum í annarri stöðu þar þó að
það sé ekki endilega minni pressa
á okkur þar en við ætlum okkur
sigur þar,“ bætti Gunnlaugur við
en hann stóð sig með sóma í vörn-
inni eins og Reynir Leósson. Grét-
ar Rafn Steinsson og Pálmi Har-
aldsson voru traustir á miðjunni
og og Julian Johnsson var einnig
ágætur.
Þjálfari FH, Ólafur Jóhannes-
son, hrósaði happi með stigið. „Ég
er mjög ánægður með úrslitin því
okkur hefur gengið illa í síðustu
leikjum og þetta gefur okkur
sjálfstraust. Við lögðum upp með
að fá ekki á okkur mark og það
gekk eftir en við vorum ekki nógu
kaldir við að spila boltanum og
vorum oft of mikið til baka en eina
hættan sem skapast hjá þeim er úr
hornspyrnum þó að þeir hafi feng-
ið eitt færi í seinni hálfleik. Mér
fannst mínir menn duglegir en dá-
lítið hræddir með boltann, það var
það eina sem var að. Það er fínt að
fara upp á Skaga og ná sér í eitt
stig,“ sagði Ólafur eftir leikinn.
Eins og hjá ÍA var vörnin góð með
Tommy Nielsen og Sverri Garð-
arsson og á miðjunni voru Heimir
Guðjónsson og Baldur Bett dug-
legir. Allan Borgvardt var góður.
Skagamenn
skora ekki
SKAGAMENN skoruðu mörkin en það hefur lítið farið fyrir því und-
anfarið og í gærkvöldi tókst þeim ekki að þenja netmöskva er FH
sótti þá heim. Þó að Skagamenn væru meira með boltann vörðust
Hafnfirðingar af miklum móð og áttu nokkur færi en geta farið sáttir
heim með eitt stig í farteskinu eftir markalaust jafntefli. Staða lið-
anna breytist því lítið, Akurnesingar eru eftir sem áður í öðru af
fallsætum deildarinnar en FH-ingar í næsta sæti fyrir ofan þá.
Stefán
Stefánsson
skrifar
ÍA 0:0 FH
Leikskipulag: 4-4-2 Landsbankadeildin,
10. umferð,
Akranesvöllur
Fimmtudaginn 17. júlí 2003.
Aðstæður:
Fínar, norðan andvari
og 18 stiga hiti.
Áhorfendur: 830.
Dómari:
Gísli H. Jóhannsson,
Keflavík, 4.
Aðstoðardómarar:
Magnús Þórisson,
Eyjólfur Finnsson.
Skot á mark: 9(4) – 6(2)
Hornspyrnur: 11 – 2
Rangstöður: 2 – 1
Leikskipulag: 4-5-1
Þórður Þórðarson
Hjálmur Dór Hjálmsson M
(Unnar Örn Valgeirsson 74.)
Reynir Leósson M
Gunnlaugur Jónsson M
Andri Lindberg Karvelsson
Kári Steinn Reynisson
(Garðar Gunnlaugsson 78.)
Grétar Rafn Steinsson M
Pálmi Haraldsson M
Guðjón H. Sveinsson
(Alekandar Linta74.)
Julian Johnsson M
Hjörtur J. Hjartarson
Daði Lárusson
Guðmundur Sævarsson
(Freyr Bjarnason 78.)
Sverrir Garðarsson M
Tommy Nielsen M
Magnús Ingi Einarsson
Jón Þorgrímur Stefánsson
Heimir Guðjónsson M
(Víðir Leifsson 89.)
Baldur Bett M
Hermann Albertsson
Jónas Grani Garðarsson
(Atli Viðar Björnsson 83.)
Allan Borgvardt M
Gul spjöld: Guðmundur Sævarsson, FH (27.) fyrir brot. Heimir Guðjónsson,
FH (56.) fyrir brot. Gunnlaugur Jónsson, ÍA (62.) fyrir brot.
Tommy Nielsen, FH (65.) fyrir leikaraskap. Julian Johnsson, ÍA
(70.) fyrir brot.
Rauð spjöld: Engin.
ÚRSLIT
KNATTSPYRNA
Efsta deild karla,
Landsbankadeild:
Akranes: ÍA - FH ......................................0:0
Fram - KA..................................................2:3
Kristján Brooks 11., 81. - Steinar Tenden
23., 42., Þorvaldur Örlygsson 83.
Fylkir 10 6 1 3 15:8 19
Þróttur R. 10 6 0 4 18:13 18
Grindavík 10 6 0 4 16:16 18
KR 10 5 2 3 12:12 17
KA 10 4 2 4 16:14 14
ÍBV 10 4 1 5 16:15 13
FH 10 3 3 4 14:15 12
Valur 10 4 0 6 13:17 12
ÍA 10 2 5 3 11:12 11
Fram 10 2 2 6 13:22 8
Bikarkeppni KSÍ,
VISA-bikar kvenna,
undanúrslit:
Stjarnan - Valur........................................1:4
Auður Skúladóttir (54. víti) - Dóra María
Lárusdóttir 31., 90., Íris Andrésdóttir 37.,
Nína Ósk Kristinsdóttir 52.
1. deild karla:
Njarðvík - Haukar ....................................1:2
Eyþór Guðnason 80. - Jón Gunnar Gunn-
arsson 27., 89.
Keflavík 9 7 1 1 25:10 22
Víkingur R. 10 5 4 1 14:7 19
Þór 9 4 3 2 20:15 15
Haukar 10 4 2 4 15:15 14
HK 9 3 2 4 11:12 11
Njarðvík 10 3 2 5 16:18 11
Afturelding 10 3 2 5 11:19 11
Stjarnan 9 2 4 3 11:13 10
Breiðablik 9 3 1 5 7:10 10
Leiftur/Dalvík 9 2 1 6 9:20 7
3. deild karla B:
Árborg - ÍH................................................5:3
Staðan:
Leiknir R. 9 8 1 0 38:4 25
Reynir S. 8 6 2 0 30:5 20
ÍH 9 5 1 3 21:16 16
Freyr 9 5 0 4 17:21 15
Árborg 9 4 2 3 28:18 14
Hamar 9 2 1 6 10:28 7
Afríka 9 1 0 8 5:30 3
Ægir 8 0 1 7 7:34 1
3. deild karla C:
Vaskur - Hvöt ............................................1:1
Staðan:
Vaskur 10 8 1 1 32:12 25
Reynir Á 9 5 2 2 16:12 17
Hvöt 10 4 3 3 21:9 15
Magni 9 4 2 3 22:15 14
Neisti H. 9 1 2 6 14:25 5
Snörtur 9 0 2 7 9:41 2
Þýskaland
Deildarbikarkeppnin:
Hamburger SV - Hertha Berlín..............2:1
Marcel Maltritz 9., Christian Rahn 71. -
Fredi Bobic 37.
Hamburger mætir Bayern München í
undanúrslitum á þriðjudaginn.
Svíþjóð
AIK Stokkhólmur - IFK Gautaborg .......0.2
Örgryte - Djurgården...............................0:3
Staðan:
Djurgården 14 9 1 4 32:13 28
Hammarby 13 7 4 2 19:14 25
Malmö 13 7 3 3 24:13 24
AIK 14 7 3 4 22:15 24
Halmstad 14 7 2 5 25:18 23
Örebro 14 6 4 4 19:18 22
Örgryte 14 6 2 6 20:23 20
Gautaborg 14 5 4 5 21:15 19
Helsingborg 13 5 3 5 14:21 18
Elfsborg 13 4 4 5 16:21 16
Landskrona 14 3 6 5 15:19 15
Sundsvall 14 2 6 6 13:19 12
Enköping 14 2 3 9 14:29 9
Öster 14 2 3 9 11:27 9
KNATTSPYRNA
Bikarkeppni KSÍ, VISA-bikar kvenna,
undanúrslit:
Kópavogur: Breiðablik – ÍBV ...................20
1. deild karla:
Akureyri: Þór – Breiðablik........................20
Garðabær: Stjarnan – Keflavík.................20
2. deild karla:
ÍR-völlur: ÍR – Léttir.................................20
Selfoss: Selfoss – KFS ...............................20
3. deild karla A:
Borgarnes: Skallagrímur – BÍ ..................20
Fífan: Drangur – Bolungarvík ..................20
3. deild karla B:
Sandgerði: Reynir S. – Ægir.....................20
3. deild karla C:
Hofsós: Neisti H. – Reynir Á. ...................20
Dúddavöllur: Snörtur – Magni..................20
3. deild karla D:
Vilhjálmsvöllur: Höttur – Einherji...........20
Seyðisf.: Huginn – Neisti D.......................20
Fáskrúðsf.: Leiknir F. – Fjarðabyggð .....20
KRIKKET
Úrvalslið EFG-bankans í Lundúnum mun
leika við Reykjavíkurúrvalið og íslenska
landsliðið í krikket kl. 23 í Laugardal. Má
búast við að leikurinn standi fram á nótt og
jafnvel fram undir morgun. Er þetta fyrsti
miðnæturkrikketleikur sem sögur fara af.
Í KVÖLD
KVENNALANDSLIÐ Íslands í knatt-
spyrnu er í 17. sæti á nýútgefnum
styrkleikalista FIFA, alþjóða knatt-
spyrnusambandsins. Bandaríkin eru í
efsta sætinu, Noregur er í öðru sæti
og Þýskaland í því þriðja. Þetta er í
fyrsta skipti sem FIFA gefur út opin-
beran styrkleikalista fyrir kvenna-
landslið, en áður hafði einstaklingur
séð um listann og útreikninga. Ísland
var í 18. sæti á listanum hjá honum,
þannig að landsliðið hefur færst upp
um eitt sæti.
Frakkar, sem leika með Íslendingum
í riðli í undankeppni Evrópukeppni
landsliða, eru í níunda sæti og Rússar,
sem verða næstu mótherjar Íslands,
eru í ellefta sæti. Ungverjar, sem ís-
lenska liðið lagði að velli á dögunum,
4:1, eru í 26 sæti og Pólverjar, sem
eru einnig í riðlinum, eru í 31. sæti.
83 þjóðir eru á listanum og er lands-
lið Nepal í neðsta sæti.
Ísland í 17.sæti