Morgunblaðið - 19.07.2003, Blaðsíða 8
FRÉTTIR
8 LAUGARDAGUR 19. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Útivistarskóli Landsbjargar
Þjálfun í
öruggri útivist
ÚTIVISTARSKÓLILandsbjargar ernú starfræktur
áttunda árið í röð. Á upp-
hafsárunum var skólinn í
Hamraborg í Berufirði en
var fluttur í þjálfunarbúðir
Slysavarnafélagsins
Landsbjargar að Gufuskál-
um árið 2000. Útivistar-
skólinn kennir unglingum
að ferðast á öruggan hátt
og bregðast við slysum ef
þau verða og hafa alls um
1.000 unglingar sótt skól-
ann. Skólastjóri er Kol-
brún Guðmundsdóttir.
– Fyrir hverja er Úti-
vistarskólinn?
„Útivistarskólinn er fyr-
ir alla unglinga á aldrinum
14–18 ára, óháð því hvort
þeir taka þátt í unglinga-
starfi Slysavarnafélagsins Lands-
bjargar eða ekki. Talsvert er um
það að unglingar komi á námskeið
í skólanum að sumri og hafi ekki
kynnst starfinu áður, en um haust
hefji þau síðan starf með einni af
49 unglingadeildum okkar sem eru
hringinn í kringum landið.“
– Hvers konar námskeið eru í
boði?
„Við bjóðum upp á tvenns konar
námskeið á sumrin, grunnnám-
skeið og framhaldsnámskeið. Síð-
asta vetur gerðum við tilraun með
vetrarframhaldsnámskeið sem
heppnaðist mjög vel.“
– Hvað læra þátttakendur?
„Á grunnnámskeiðunum er
kennt allt sem snýr að almennri
ferðamennsku eins og um ferða-
hegðun, ferðafatnað og útivistar-
búnað og mataræði á ferðalögum.
Þá fá allir kennslu og þjálfun í
bjargsigi, rötun, siglingu slöngu-
báta, notkun áttavita, fyrstu hjálp
og gistingu undir berum himni,
ásamt því að slegið er á létta
stengi og farið í leiki eins og kassa-
klifur.
Einnig fá þátttakendur að kynn-
ast ýmsum hliðum björgunarsveit-
arstarfs eins og vinnu í húsarúst-
um og fleira. Þegar komið er út í
framhaldsnámskeiðin er farið ítar-
legar í efnið og fleiri þáttum bætt
inn, svo sem snjóflóðahættu, notk-
un ísaxa og mannbrodda.“
– Hvar og hvernig fer þjálfunin
fram?
„Þjálfun og kennsla fara fram á
Gufuskálum og svæðinu í kring.
Búið er að útbúa á Gufuskálum
mjög fullkomna aðstöðu til þess að
kenna undirstöðuatriði í bjargsigi
áður en farið er út í náttúruna.
Annars er reynt að fara sem mest
út í náttúruna enda er hún einstök
á svæðinu, stutt er í allt sem þarf á
að halda en þannig fá unglingarnir
að tileinka sér kunnáttuna í því
umhverfi sem þau munu þurfa að
beita henni í framtíðinni.“
– Hvernig hafa Gufuskálar
reynst sem vettvangur skólans?
„Á Gufuskálum á Snæfellsnesi
eru einar bestu hugsanlegar að-
stæður til þess að reka skóla sem
þennan. Stutt að komast á jökul, í
bjargsig, á sjó og eða í úfið hraun.
Þá er aðstaðan sem
byggð hefur verið upp á
Gufuskálum með því
besta sem þekkist en
þar eru fullkomnar
kennslustofur, góð
svefn- og mataraðstaða, æfingar-
svæði fyrir rústabjörgun, sig og
línubjörgun.
Svæðið hefur verið í uppbygg-
ingu síðustu árin. Áður var þar
rekin Loran-stöð á vegum Banda-
ríkjahers en þegar Loran-kerfið
var lagt niður fékk Slysavarna-
félagið Landsbjörg svæðið og hús-
eignir á svæðinu til afnota. Í dag
sækja björgunarsveitirnar okkar
þangað allan veturinn enda eru
þar á einum stað flestar aðstæður
sem nauðsynlegt er að æfa við,
hvort sem er á láði eða legi.“
– Eru ólíkar æfingar fyrir stelp-
ur og stráka?
„Nei, gerðar eru sömu kröfur til
stelpna og stráka, enda starfa
bæði kynin við hlið hvors annars í
björgunarstarfi dags daglega.“
– Hverjir kenna?
„Kennarar Útivistarskólans eru
vant björgunarsveitarfólk sem
hefur mikla reynslu og þjálfun úr
starfi björgunarsveita. Með því að
hafa vana björgunarsveitarliða
sem kennara getum við tryggt að
unglingarnir fái góða kennslu frá
útivistarfólki sem hefur prófað það
sem verið er að kenna og getur
miðlað af eigin reynslu. Það er allt-
af besta kennslan þegar upp er
staðið.“
– Hvernig hafa námskeiðin lík-
að?
„Aðsóknin er alltaf að aukast og
fjölbreytileiki námskeiðanna fer
vaxandi, enda höfum við tekið eftir
því að þeir sem koma einu sinni á
námskeið hafa margir hverjir mik-
inn áhuga að koma aftur.“
– Eru einhver námskeið eftir í
sumar?
„Enn eru eftir tvö námskeið, 7.–
12. ágúst og 14.–19. ágúst og eru
nokkur sæti laus á þau.“
– Hverjar eru helstu reglur hins
ábyrga útivistarmanns?
„Hinn ábyrgi útivistarmaður
gerir alltaf ferðaáætlun
og lætur aðra vita af
henni. Þá passar hann
líka upp á það að láta
vita ef ferðaáætlunin
breytist til að koma í
veg fyrir óþarfa áhyggjur hjá þeim
sem heima sitja. Fleiri góðar og
gildar fjallareglur eru þær að
leggja ekki upp í langferð án þjálf-
unar, fylgjast með veðurspám og
veðurútliti, snúa við í tæka tíð ef
aðstæður breytast, hlusta á ráð
reyndra fjallamanna, vera ávallt
viðbúin því versta – jafnvel þegar
farið er af stað í stuttar ferðir – og
ferðast ekki einsamall.“
Valgeir Elíasson
Valgeir Elíasson er upplýs-
ingafulltrúi Slysavarnafélagsins
Landsbjargar. Hann hefur starf-
að innan raða félagsins frá 1987,
fyrst í unglingadeild Alberts á
Seltjarnarnesi en síðar með
Björgunarsveitinni Ingólfi, m.a. í
fjallaflokki og undanförum, auk
stjórnarsetu. Hann varð fyrsti
formaður Björgunarsveitarinnar
Ársæls þegar sveitirnar Ingólfur
og Albert voru sameinaðar árið
1999. Valgeir stundaði í vetur
nám við Stjórnendaskóla Háskól-
ans í Rvk. Hann er í sambúð með
Hrefnu Þorbjörnsdóttur og eiga
þau Söru 12 ára, Guðrúnu Mar-
gréti 9 ára og Atla 5 ára.
Sömu kröfur
til drengja og
stúlkna
EFTIR sólríkan dag í Reykjavík á
dögunum tók himinn á sig þessa fal-
legu mynd, baðaður í geislum
kvöldsólarinnar. Við slíkar að-
stæður eru margir sem nota tæki-
færið og kjósa að ganga meðfram
göngu- og hjólastígum borgarinnar
sem nú teygja sig eftir strandlengj-
unni þveri og endilangri.
Morgunblaðið/Kristinn
Síðkvöld í Reykjavík
SAMKEPPNISSTOFNUN telur
ekki ástæðu til að grípa til aðgerða í
tengslum við meint samkeppnishaml-
andi ákvæði í félagssamningi Kynnis-
ferða. Erindi barst stofnuninni frá
Allrahanda ehf. í júlí á síðasta ári þar
sem óskað var eftir því að stofnunin
skoðaði hugsanleg samkeppnisleg
áhrif eignarhalds í Kynnisferðum.
Bent var á í kærunni að sameign-
arfélagið Kynnisferðir væri ekki
sjálfstæður skattaðili heldur bæru
eigendur ótakmarkaða ábyrgð á
skuldbindingum þess gagnvart þriðja
aðila. Eigendur fyrirtækisins væru
Flugleiðir hf., Ferðaskrifstofa Ís-
lands hf. ásamt Atlantik ferðum og
Ferðaskrifstofu BSÍ ehf. en þessir
aðilar væru markaðsráðandi á ís-
lenskum ferðaþjónustumarkaði og
samkeppni Kynnisferða og Allra-
handa hefði bein áhrif á afkomu
þeirra. Staðan væri því sú að um-
ræddar ferðaskrifstofur tækju ekki
ferðir Allrahanda í sölu nema ef sam-
bærilegar eða svipaðar ferðir væru-
ekki í boði hjá Kynnisferðum. Óskuðu
forsvarsmenn Allrahanda m.a. eftir
því að samkeppnisyfirvöld rannsök-
uðu félagsform Kynnisferða, sam-
þykktir og samninga félagsins við
eigendur þess. Í umsögn forsvars-
aðila Kynnisferða kemur fram að
Kynnisferðir telji að eigendur félags-
ins starfi á mismunandi mörkuðum
og því sé ekki hægt að halda því fram
að félögin hafi sameiginlega mark-
aðsráðandi stöðu.
Ákvæði fellt úr gildi í febrúar
Samkeppnisstofnun bendir hins
vegar á að ljóst sé að ákvæði í samn-
ingum sem skuldbindi sjálfstæð fyr-
irtæki og/eða keppinauta á markaði á
þann hátt að þau beini öllum eða
hluta viðskipta sinna til ákveðins að-
ila geti falið í sér samkeppnishömlur.
Hins vegar verði að líta til þess að
áhrif slíks ákvæðis séu takmörkuð í
tilviki Kynnisferða þar sem sam-
keppnisleg áhrif þess nái aðeins til
tveggja aðila, þ.e. Atlantik ferðaskrif-
stofu og Ferðaskrifstofu BSÍ. Þá hafi
Kynnisferðir á félagafundi í febrúar
síðastliðnum fellt slíkt ákvæði úr
gildi. Telur Samkeppnisstofnun með
vísan til þessa ekki ástæðu til að grípa
til neinna aðgerða.
Samkeppnisstofnun um meint samkeppnishamlandi
ákvæði í samningi Kynnisferða
Engin ástæða til að
grípa til aðgerða
Morgunblaðið/Þorkell
PÓST- og fjarskiptastofnun hefur úr-
skurðað að Og Vodafone hafi umtals-
verða markaðshlutdeild á markaði
fyrir farsímanet og farsímaþjónustu,
að kröfu Landssíma Íslands.
Þetta hefur í för með sér skyldu Og
Vodafone til að verða við beiðnum
annarra fyrirtækja um tengingu við
fjarskiptanet félagsins, og til að gæta
jafnræðis og veita aðgang að nauð-
synlegum upplýsingum vegna sam-
tenginga, að því er fram kemur í til-
kynningu frá Póst- og fjarskipta-
stofnun.
Landssími Íslands krafðist þess í
desember síðastliðnum að stofnunin
úrskurðaði á þennan veg. „Þetta er
skref í átt til þess að Síminn fái svig-
rúm til samkeppni á jafnréttisgrund-
velli,“ segir Páll Ásgrímsson, for-
stöðumaður lögfræðideildar Símans,
og fagnar hann úrskurðinum.
„Þetta breytir ekki miklu fyrir okk-
ur,“ segir Pétur Pétursson, forstöðu-
maður upplýsinga- og kynningarmála
Og Vodafone. „Við höfum veitt öðrum
farsímafyrirtækjum samtengingu við
net okkar. Við rekum félagið á við-
skiptalegum grunni og lítum á þetta
sem hluta af okkar rekstri.“
Landssíminn krafðist þess einnig
að stofnunin úrskurðaði að Og Voda-
fone hefði umtalsverða markaðshut-
deild á samtengingamarkaði, en því
hafnaði Póst- og fjarskiptastofnun, og
segir í tilkynningu þeirra að fyrirtæk-
ið hafi ekki umtalsverða markaðshlut-
deild á því sviði. Þessu fagnar Pétur
og segir að stofnunin taki undir sjón-
armið Og Vodafone í þessu máli. Páll
segir að þessum hluta úrskurðarins
verði hugsanlega áfrýjað.
Úrskurður Póst- og fjarskiptastofnunar um farsímamarkaðinn
Og Vodafone með „umtals-
verða“ markaðshlutdeild