Morgunblaðið - 20.07.2003, Blaðsíða 10
10 B SUNNUDAGUR 20. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ferðalög
Morgunblaðið/RAX
Við Kollumúla í Lónsöræfum. Ferðin í Lónsöræfi er Grétu minnisstæð
því það hellirigndi mestallan tímann og var hífandi rok.
Ferðu oft í gönguferðir um landið?
„Ég reyni að fara að minnsta kosti í eina ferð á ári og hef farið í
þessar hefðbundnu ferðir, þrisvar á Hornstrandir, gengið í Fjörður
og farið á Fimmvörðuháls og Kjalveg svo dæmi séu tekin. Fyrir
tveimur og hálfu ári varð ég starfsmaður starfsmannaráðs Land-
spítala og síðan hef ég farið með vinnufélögunum í að minnsta
kosti eina ferð á ári. Fyrir tveimur árum gekk ég með þeim
Laugaveginn og fór einnig í Lónsöræfi. Í fyrra fór ég í Sveins-
tinda, Skælinga og Hólaskjól og í ár liggur leiðin á Víknaslóðir.
Ferðirnar eru farnar í samvinnu við Ferðafélag Íslands.“
Er einhver gönguferð eftirminnilegri en aðrar?
„Já, gönguferðin í Lónsöræfi er mér minnisstæð því veðrið var
alveg hryllilegt. Það var hellidemba mest alla ferðina og hífandi
rok. Allt varð ófært og margir hímdu inni í skála þegar ganga átti
í nágrenni Egilssels. Ég sór þess þá heit að fara aldrei aftur í
svona gönguferð en það var fljótt að fenna yfir það heit þegar
heim var komið.“
Skapast ekki skemmtileg stemning við svona aðstæður?
„Eiginlega. Það hrikti í kofanum í veðurofsanum og þrengslin
voru mikil. Við tókum bara upp á því að segja brandara og sögur
og það var mikið hlegið.
Um fimm þúsund manns eru í starfsmannafélagi Landspítala og
auðvitað þekkjast ekki allir. Maður kannast samt við andlitin og
þegar fólk vinnur allt á sama stað þá nær það fljótt saman.“
Hvað er það sem heillar þig við gönguferðirnar?
„Kynnin við landið verða nánari þegar maður gengur um það en
ef farið er yfir á bíl. Þar að auki nýtur maður útiverunnar og
reynir hæfilega á sig. Auðvitað nýtur fólk ferðanna betur ef það
er í þokkalegu formi en fólk kemst líka langt á þrjósku og vilja.“
Þú ætlar svo í lok mánaðarins á Víknaslóðir?
„Já, ég ætla með vinnufélögunum dagana 31. júní til 5. ágúst og
við höldum frá Vatnsskarði og göngum bæði meðfram strönd og
upp á fjöll og siglum hluta leiðarinnar. Við gistum í skálum á leið-
inni og fullt fæði og leiðsögn er innifalið.“
Eru fleiri ferðir í sumar á dagskrá starfsmannaráðsins?
„Þegar er búið að fara í nokkrar ferðir en fyrir utan þessa ferð á
Víknaslóðir verður farið í bakpokaferð í ágúst og síðan liggur fyr-
ir að fara í árlega fjölskylduferð í Þórsmörk í september.“
Hellidemba í
Lónsöræfum
Fjallabaksleið Syðri við Innri Emstruá, Hnattfell í baksýn. Glaðlegur og
galvaskur hópur á heimleið eftir vel heppnaða ferð á Sveinstind, um
Skælinga og í Hólaskjól. Gréta er fyrir miðri mynd í blárri flíspeysu.
Eftirminnileg gönguferð
Starfsmannaráð Landspítala hefur undanfarin ár boðið
starfsmönnum og fjölskyldum þeirra upp á fjölbreyttar
gönguferðir um landið. Gréta Sigurðardóttir hefur
gengið upp um fjöll og firnindi með vinnufélögunum.
Þ
AULVANIR húsbíla-
eigendur og þeir sem eiga
tjaldvagna, fellihýsi eða
hjólhýsi vita eflaust hvern-
ig bera á sig að þegar fara á
í ferðalag þar sem gist er á tjaldsvæð-
um en ég rann alveg blint í sjóinn, hef
örsjaldan gist í tjaldi og þekki lítið inn
á þann ferðamáta. Það tók mig
nokkra daga að venjast því að dvelja á
tjaldsvæði í Skandinavíu því það er í
raun lífsstíll. Sumir sem við kynnt-
umst í ferðinni búa þar öll sumur
meira og minna, planta sumarblóm-
um við fortjöldin en í þeim geymir
fólk oft sjónvarpið, myndbandstækið,
örbylgjuofninn, kaffivélina og hæg-
indastólana.
Það voru því algjörir græningjar í
þessum geira sem pöntuðu húsbíl í
Kaupmannahöfn hjá dönsku fyrir-
tæki í gegnum ferðaskrifstofuna
Fylki á Ísafirði. Við höfðum aldrei áð-
ur ekið húsbíl og kunnum ekkert á
það sem þarf að gera eins og að setja
vatn á bílinn, tæma salerni og þvíum-
líkt. Eiginmaðurinn tók að sér að sjá
um allt sem snýr að húsbílnum og það
verður að segjast að bæði akstur og
umsýsla á bílnum lék í höndunum á
honum frá upphafi.
Stjörnugjöf á tjaldsvæðum
Áður en lagt var í hann skoðuðum
við tjaldsvæði í Svíþjóð og Danmörku
á Netinu. Frá Kaupmannahöfn áttum
við erindi til Gautaborgar en að öðru
leyti var ferðinni heitið þangað sem
sólin skein.
Það er tiltölulega auðvelt að fikra
sig áfram með upplýsingar á Netinu
þegar skipuleggja á frí sem þetta í
Svíþjóð og Danmörku. Fyrir það
fyrsta eru tjaldsvæði í Skandinavíu
vel skipulögð og stjörnuvædd og því
auðvelt að sjá hvaða aðstöðu þau hafa
upp á að bjóða. Við sáum fljótt að með
börn þurfti tjaldsvæðið að vera að
minnsta kosti þriggja stjörnu og fjöl-
skylduna langaði að dvelja við sjóinn.
Fyrir valinu varð því fyrst tjald-
svæði skammt frá Gautaborg við bæ
sem heitir Varberg. Tjaldsvæðið sem
heitir Apelvikens camping stóð alveg
undir væntingum. Umhverfið var
geysilega fallegt, ströndin hrein og
tjaldsvæðið fjölskylduvænt. Þarna
var fólk með allar græjur með sér,
fortjald, stóla, borð, grill og jafnvel
þvottasnúrur. Sumir sem dvelja
þarna langdvölum voru búnir að
planta sumarblómum við húsvagnana
og slá grasið reglulega í kringum.
Mörg dæmi voru um að fólk setti upp
girðingar í kringum sinn húsvagn og
fortjald til að fá að vera í næði og þá
er ég að tala um alvöru girðingar úr
gegnheilum við. Við klikkuðum á
ýmsu í skipulagningunni og uppgötv-
uðum fljótt að við vorum eins og ratar
við hliðina á þessu vana fólki. Til
dæmis höfðum við ekki tekið með
okkur að heiman borð og stóla úr
garðinum sem hefði hvort sem er ver-
ið út í hött vegna 20 kílóa farangurs-
reglunnar í flugi. Við hefðum hins
vegar getað pantað borð og stóla með
bílnum en það er verulega dýrt að
panta aukabúnað og við hreinlega átt-
uðum okkur ekki á því í tíma. Sé fólk
hins vegar á tjaldsvæðum án þess að
vera með borð og stóla til að sitja á úti
er það svipað og að vera á hvítri sand-
strönd í glampandi sól á gallabuxum.
Við fjárfestum í stólgörmum og kassi
þjónaði hlutverki borðs í þessari ferð.
Uppvask og leiksvæði
Aðstaðan á tjaldsvæðinu var til
sóma. Þarna voru þvottavélar og
þurrkarar, aðstaða til að sinna hús-
bílnum, tæma salernin, vatnið og svo
framvegis, hægt að vaska upp í upp-
þvottavél eða upp á gamla mátann,
elda inni í húsi og fara á salerni. Öll
þessi aðstaða var til fyrirmyndar ekki
síst fyrir þær sakir að gestir gengu
Á húsbíl um Danmörku og Svíþjóð
Það var ósköp notalegt
að vakna við ugluvælið í
dagrenningu segir
Guðbjörg R.
Guðmundsdóttir sem
gisti á tjaldsvæði í skógi á
Skáni þar sem fuglalífið
var fjölskrúðugt.
Það er ótrúlegt hvað margir koma vel útbúnir á tjaldsvæðin. Þessi er kominn
með sumarblóm í ker, hann slær grasið umhverfis hjólhýsið og eflaust er hann
eins og aðrir með sjónvarp, hljómtækjasamstæðu, myndbandstæki, örbylgju-
ofn, kaffivél og brauðristina.
Michael og Kirsten Jürgensen koma með hjólhýsið og fortjaldið, bátinn og
garðhúsgögnin sín í byrjun apríl á tjaldsvæðið í Dronningmølle og fara ekki með
„sumarbústaðinn" heim fyrr en í september. Á virkum dögum eru þau heima
hjá sér í um klukkustundar fjarlægð frá tjaldsvæðinu en koma um helgar og
þegar þau eiga frí yfir sumarið.
Ferðaskrifstofan Fylkir hefur
milligöngu um leigu á húsbílum
og sumarhúsum í Danmörku.
Tölvupóstfang: fylkir@fylkir.is
Vefslóð: www.fylkir.is
Sími 456 3745
Apelvikens camping
432 53 Varberg
Svíþjóð
Tölvupóstfang: receptionen@-
apelvikenscamping.se
Vefslóð:
www.apelvikenscamping.se
Sími 0046 340 14178
Dronningamølle
Strandcamping
Strandkrogen 2B
Dk-3120 Dronningmølle
Sími 0045 49 71 92 90
Fax: 0045 49 71 98 93
Tölvupóstfang: camping@-
dronningmolle.dk
Vefslóð:
www.dronningmolle.dk
Gagnlegar slóðir við skipulagn-
ingu svona ferðar:
www.dk-camp.dk
www.camping.dk
www.camping.se
www.stuga.nu
VIÐ vorum á meðalstórum hús-
bíl og borguðum 90.000 fyrir
vikuleigu. Auk þess þurftum við
að borga rúmlega 19.000 krón-
ur fyrir leigu á barnabílstól og
sængurfatnaði og handklæðum.
Bílarnir eru ekki afhentir á
Kastrup-flugvelli svo við bætt-
ist síðan kostaður í leigubíl frá
Kastrup flugvelli og að Hede-
husene þar sem húsbílaleigan
var en ferðin aðra leiðina kost-
aði um 5.000 íslenskar krónur.
Þar að auki kostar nóttin á 3
stjörnu tjaldsvæðum 2.000–
3.000 krónur eða á bilinu
14.000-21.000 krónur á viku.
Sumir taka bara gjald fyrir hús-
bílinn, tjaldið eða hjólhýsið á
meðan aðrir taka gjald á mann.
Flogið er nokkrum sinnum á
dag til Danmerkur frá Íslandi.
Flugfargjald er hægt að fá í
ýmsum verðflokkum. Flugleiðir
og Iceland Express fljúga til
Kaupmannahafnar frá Keflavík
en Greenlandair frá Akureyri.
Eigi fólk tjaldvagn eða húsbíl
borgar fjögurra manna fjöl-
skylda sem ferðast á dýrasta
tímanum í júlí með Norrænu
fram og til baka til Danmerkur
með meðalstóran tjaldvagn og
bíl um 217.000 krónur fyrir far-
ið fram og til baka. Bæði leiga á
húsbíl í Danmörku og fargjald
með Norrænu svo og leiga á
sumarhúsum er á lægra verði á
öðrum árstímum.
Dýrast að leigja
húsbíl í júlí
Eins og rati innan