Morgunblaðið - 21.07.2003, Blaðsíða 13
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. JÚLÍ 2003 13
50% afslátturBOSS BÚÐIN MENN KRINGLUNNI SÍMI 533 4242
OLYMPUS C-120 DIGITAL Camedia C-730 Zoom Camedia C-50ZOOMOLYMPUS Mju 300
Camedia C-350
NÝLEGA kom út
hjá Víkingafélag-
inu í London ritið
The Folk-Stories
of Iceland eftir
Einar Ól. Sveins-
son. Hér er á
ferð Um íslenzk-
ar þjóðsögur,
verk sem upp-
haflega birtist á prenti í Reykjavík
árið 1940.
„Eins og önnur rit Einars Ólafs
einkenndist sú bók af víðfeðmun
lærdómi höfundar, ritsnilld hans og
næmum skilningi á sérkennum og
gildi efnisins. Ritið hefur síðan ver-
ið í hávegum haft af þjóðsagna-
fræðingum og öðrum unnendum ís-
lenskra þjóðsagna, og fljótt kom
fram sú hugmynd að vert væri að
koma því á framfæri á erlendu
máli. Um 1970 tók Benedikt S.
Benedikz bókavörður að sér þýð-
inguna, og á þeim árum vann höf-
undur að nauðsynlegri endur-
skoðun vegna þess hve langt var
um liðið frá frumútgáfu. Síðar tók
dr. Einar G. Pétursson að sér að
annast það verk. Víkingafélagið í
London tók verkið til útgáfu, og
hefur Anthony Faulkes prófessor í
Birmingham endurskoðað þýð-
inguna og annast útgáfuna fyrir
hönd Víkingafélagsins,“ segir í
fréttatilkynningu frá Stofnun Árna
Mangússonar á Íslandi.
Ennfremur segir: „Ekki gerist það
á hverjum degi að íslensk fræðirit
séu þýdd og birt á erlendum
tungum, og fágætt er að nokkur
fræðirit séu talin verð þýðingar og
útgáfu þegar meira en sex áratugir
eru liðnir frá frumbirtingu þeirra.
Íslenskar þjóðsögur eru svo fjöl-
breytilegar og auðugar að vakið
hefur undrun og aðdáun erlendra
þjóðsagnafræðinga sem hafa
kynnst þeim. Fagnaðarefni er að
nú skuli komið út á heimsmáli sí-
gilt verk um þetta efni, sem nýtur
minni frægðar en það verð-
skuldar.“
Bókin er 319 bls. Bókrakápu
prýðir verkið Valkyrjurnar eftir Jó-
hann Briem.
Þjóðsögur
VIÐAMIKIL myndlistasýning sem
nefnist Prag-tvíæringurinn var opn-
uð 26. júní sl. og mun standa fram til
24. ágúst nk. Sýningarstjóri fyrir Ís-
lands hönd var Dorothee Kirch í Gall-
erí i8 og valdi hún Ásmund Ásmunds-
son, Gabríelu Friðriksdóttur,
Gjörningaklúbbinn og Unnar Örn
Jónasson til þátttöku. Að sögn Dor-
othee eru það útgefendur myndlist-
artímaritsins Flashart sem standa að
Prag-tvíæringnum. „Rúmlega tvö
hundruð listamenn tóku þátt í sýning-
unni og voru um tuttugu sýning-
arstjórar frá ýmsum löndum, að-
allega þó frá Evrópu. Ég var beðin
um að vera einn sýningastjóranna
eftir ábendingu frá Gabríelu Frið-
riksdóttur. Ég mátti velja þrjá til
fimm listamenn og við valið á lista-
mönnum hafði ég það að leiðarljósi að
endurspegla breiddina í listalífinu
hérlendis, þ.e. velja eins ólíka lista-
menn og ég gæti. Þannig sýndi Gabrí-
ela Friðriksdóttir teikningar sem hún
vann fyrir kápuna að geisladiski
Bjarkar Family Tree, Ásmundur var
með verk sem kallast „Fantagott
pepsí“, en verkið samanstendur af
fantaflöskum sem fylltar hafa verið
með pepsí, auk myndbands þar sem
Ásmundur heldur fyrirlestur um
verkið, Unnar Örn sýndi afar fíngerð-
ar teikningar sem gerðar voru með
tússi á A4 blöð, en innblásturinn að
teikningunum sótti hann í krossgátur
og línurit og svo sýndi Gjörn-
ingaklúbburinn myndbandsverk.“
Að mati Dorothee er gífurlega mik-
ilvægt fyrir íslenska listamenn að
taka þátt í svona sýningu. „Á svona
sýningu gefst kjörið tækifæri fyrir
listafólk að kynnast öðru listafólki og
ekki síst sýningar- og safnstjórum.
Gefin var út 600 síðna sýningarskrá
þar sem finna mátti ítarlegar upplýs-
ingar um alla listamennina og sýning-
arstjórana. Svona stór sýning dregur
líka að sér mikla athygli í fjölmiðlum
og marga gesti,“ segir Dorothee.
„Skipuleggjendur sýningarinnar
fullyrða að þetta sé einn af merkileg-
ustu viðburðum þessa árs í nútíma-
myndlist. Sýningin var öll staðsettt í
Listasafni Tékklands í Prag, sem er
mjög stórt safn,“ segir Sigrún Hrólfs-
dóttir sem ásamt Eirúnu Sigurð-
ardóttur og Jóní Jónsdóttur starf-
rækir Gjörningaklúbbinn. „Við
sýndum myndbandsverk sem nefnist
„Thank you “ eða „ Með þökk“ en það
var tekið upp á síðasta ári í tengslum
við Mósaíkþátt. Meðan við vorum úti
unnum við að myndbandsverki sem
við tókum upp á hótelinu þar sem við
gistum. Við vorum með hugmynd um
að vera jafnvel með gjörning á sýn-
ingunni, en það sköpuðust ekki réttar
aðstæður til þess og því ákváðum við í
staðinn að búa til myndbandsút-
færslu af þessum gjörningi. Hugs-
anlega verður verkið sýnt á sýningu
okkar á neðri hæð Nýlistasafnsins
sem verður opnuð 9. ágúst nk.,“ segir
Sigrún, en að hennar sögn verður
þetta viðamikil sýning þar sem sýnd-
ur verður afrakstur vinnu Gjörn-
ingaklúbbsins á þessu ári. Sýningin
ber yfirskriftina „Á bak við augun“,
sem vísar til þess að það eru augun
sem sjá myndlistina en allt það mik-
ilvæga gerist í raun bak við augun.“
Íslenskt myndlistar-
fólk á Prag-tvíæringi
Teikning Gabríelu Friðriksdóttur.
Jóní Jónsdóttir, Eirún Sigurðardóttir og Sigrún Hrólfsdóttir í myndbandsverkinu „Með þökk“ eða „Thank you“.
Salon Reykjavík, Árósum Að-
alheiður S. Eysteinsdóttir opnar
sýningu sem er liður í verkinu „40
sýningar á 40 dögum“.
Í DAG
Sjá einnig Staður og stund á mbl.is