Morgunblaðið - 21.07.2003, Blaðsíða 26
Fjölmenni á frumsýningu Ussss
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Aðstandendur myndarinnar stilltu sér upp á sviðinu og voru hylltir af áhorfendum.
Leikstjórinn Eiríkur Leifsson er lengst til vinstri.
Davíð Guðbrandsson og Jón Marínó sem fara með aðal-
hlutverkin í Ussss voru glettnir á frumsýningarkvöldi.
Bibbi og Beta létu sig ekki vanta enda er það ekki á
hverjum degi sem íslensk kvikmynd er frumsýnd.
NÝ íslensk kvikmynd, Ussss – ekkert sérstaklega rómantísk gamanmynd, var frumsýnd í Háskólabíói á fimmtu-
dagskvöld.
Margt góðra gesta var við frumsýninguna og fékk myndin ágætar móttökur áhorfenda sem skemmtu sér vel yfir
„skelfilega fyndnum“ slysaskotum og misviturlegu ráðabruggi sögupersónanna sem enda á blóðugan máta.
Það er Eiríkur Leifsson sem leikstýrir myndinni og er þetta fyrsta kvikmynd hans í fullri lengd. Aðalhlutverkin
eru í höndum Davíðs Guðbrandssonar og Jóns Marinós en einnig láta til sín taka í myndinni þau Sirrý Jónsdóttir,
Felix Eyjólfsson, Þorsteinn Viðarsson, Baldur Bragason og Venus.
Nýtt blóð í íslenska
kvikmyndaflóru
26 MÁNUDAGUR 21. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Sýnd kl. 6.Sýnd kl. 6, 8 og 10.15. B.i. 14 ára.
Stríðið er hafið!
Sýnd kl. 8 og 10.
HUGSAÐU STÓRT
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
Miðasala opnar kl. 15.30
Sýnd kl. 4. Ísl. tal. 500 kr.Sýnd kl. 8 og 10. B.i. 14
X-IÐ 97.7
SV MBL
ÓHT RÁS 2
HK DV
Sýnd kl. 4, 5.40, 8 og 10.20.
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 14 ára.
kl. 6, 8.30 og 11.
Stríðið er hafið!
Sýnd kl. 6.
YFIR 28.000
GESTIR!
HINN írski Pierce Brosnan,
sem túlkað hefur njósnara
hennar hátignar, James
Bond, í fjórum kvikmyndum
til þessa, hlaut á dögunum
konunglega orðu fyrir
störf sín. Brosnan segist
vera mjög snortinn að fá þessa
viðurkenningu fyrir túlkun sína á
þessum frægasta spæjara Breta
en honum var veitt heiðursorða
breska heimsveldisins (Order of
the British Empire). Orðan er þó
aðeins heiðursorða en ekki full-
gild orða því Pierce er ekki
breskur þegn.
Það var sendiherra Bretlands á
Írlandi, Stewart Eldon, sem af-
henti Pierce orðuna að við-
stöddum ættingjum hans.
Pierce segist aðeins hafa í
hyggju að leika í einni Bond-
mynd til viðbótar og tók fálega
undir spurningar um að slá met
Rogers Moores sem lék njósn-
arann í sjö myndum. Nýjasta
Bond-myndin hefur fengið titilinn
Allt eða ekkert (Everything or
Nothing) og samkvæmt áætlun er
hún væntanleg seinna á árinu og
verður þá væntanlega jólamyndin
í ár ásamt þriðja hluta Hringa-
dróttinssögu og lokahluta Matrix-
þríleiksins.
Brosnan sem
Bond, alltaf
óaðfinnanlegur
í klæðaburði og
hárið glæsilegt,
jafnvel þegar
hann er
holdvotur.
Bond
fær
orðu
Englandsdrottning heiðrar Pierce Brosnan