Morgunblaðið - 21.07.2003, Blaðsíða 1
2003 MÁNUDAGUR 21. JÚLÍ BLAÐ B
Útsala
Útsala
Útsala
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
GÓÐUR ÁRANGUR HJÁ ÞÓREYJU EDDU Í ÞÝSKALANDI / B8
„ÉG er mjög sáttur með riðilinn okkar og ég held að við
höfum verið heppnir því þessu fylgja ekki mjög dýr
ferðalög,“ sagði Hrannar Hólm, formaður körfuknatt-
leiksdeildar Keflavíkur, í samtali við Morgunblaðið eft-
ir að dregið hafði verið í Evrópukeppninni í körfu-
knattleik í gær. Hrannar var viðstaddur þegar dregið
var í München.
Keflavík lenti í riðli með Toulon frá Frakklandi og
portúgölsku liðunum Ovarense og Madeira. Þetta er
bikarkeppni Evrópu og er liðunum skipt í fjóra riðla og
komast þrjú efstu liðin áfram á næsta stig. „Þetta eru
ekki dýr ferðalög og svo tókst okkur að semja við
portúgölsku liðin um að spila báða leikina í einni og
sömu ferðinni.
Við byrjum heima 5. nóvember á móti Ovarense, síð-
an er það Toulon úti 13. nóvember, Madeira hér heima
26. og Toulon hérna 10. desember og loks Ovarense úti
16. desember og tveimur dögum síðar á Madeira,“
sagði Hrannar.
Ovarense er meðal sterkustu liða Portúgals en Mad-
eria var um miðja deild í fyrra eins og Toulon í frönsku
deildinni.
Keflavík mætir
tveimur liðum
frá Portúgal
Jakob Jóhann Sveinsson bætti sitt eigið Ís-landsmet í 100 metra bringusundi en hann
synti á tímanum 1:03,11 mínútur en fyrra met-
ið var 1:03,25 mínútur. Jakob lenti í 31. sæti en
Jón Oddur Sigurðsson endaði í 53. sæti á tím-
anum 1:05,91.
Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir varð í 30. sæti í
100 metra flugsundi á tímanum 1:3,49 mínút-
um.
Steindór Gunnarsson, landsliðsþjálfari í
sundi, var ánægður með hvernig til tókst á
fyrsta keppnisdeginum á HM.
„Ég er mjög sáttur með fyrsta keppnisdag-
inn. Allir krakkanir bættu sig og stóðu sig vel.
Á svona stórum mótum eru það rúmlega 30%
keppenda sem bæta sig og því er þetta góð
byrjun hjá okkur. Lára Hrund synti glæsilegt
sund, stórbætti Íslandsmetið og var með vel
útfært sund í alla staði. Kolbrún Ýr bætti tím-
ann sinn og ég er bjartsýnn á að hún haldi
áfram að bæta sig. Jakob setti Íslandsmet sem
var vel gert hjá honum og hann lofar góðu fyrir
200 metra bringusundið. Jón Oddur bætti tím-
ann sinn aðeins og ég er ánægður með það,“
sagði Steindór Gunnarsson í samtali við Morg-
unblaðið í gær.
Í dag keppir Örn Arnarson í 100 metra bak-
sundi, Íris Edda Heimisdóttir tekur þátt í 100
metra bringusundi og Anja Ríkey Jakobsdóttir
keppir í 100 metra baksundi.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Jakob Jóhann Sveinsson úr sundfélaginu Ægi setti Íslandsmet í 100 metra bringusundinu í Barcelona.
Lára Hrund og
Jakob Jóhann
settu Íslandsmet
LÁRA Hrund Bjargardóttir setti Íslands-
met í 200 metra fjórsundi á heimsmeist-
aramótinu í sundi í Barcelona í gær-
morgun. Hún varð í 31. sæti en hún synti
á 2:20,35 mínútum og um leið náði hún
ólympíulágmarkinu fyrir ÓL í Aþenu
2004. Lára stórbætti Íslandsmetið en
hún átti eldra metið sem var 2:22,42
mínútur.