Morgunblaðið - 22.07.2003, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. JÚLÍ 2003 37
DAGBÓK
„ÉG FÉKK góða hug-
mynd,“ er vinsæl setning
hjá litlum snáða sem um-
sjónarmanni er kunnur. Við
eftirgrennslan kemur iðu-
lega í ljós að hin góða hug-
mynd felst í því að fara að
kaupa ís.
Norður
♠ D102
♥ Á764
♦ 1076
♣ DG2
Suður
♠ Á97
♥ 52
♦ Á9854
♣ ÁK3
Í bikarleik fyrir stuttu
fékk suður líka „góða hug-
mynd“. Hann var sagnhafi í
þremur gröndum eftir opn-
un á grandi og Stayman
svar makkers. Vestur kom
út með spaðasexu, fjórða
hæsta. Fær lesandinn góða
hugmynd?
Ef útspilið er fjórða
hæsta þá á vestur KG8 fyr-
ir ofan sexuna. Með hlið-
sjón af því er ekki um
neinn hitting að ræða í upp-
hafi. En vandinn er þessi:
tígulinn þarf að fría og það
þýðir að vörnin kemst
tvisvar inn. Og það er ekki
gæfulegt ef vörnin skiptir
yfir í hjarta. Hin góða hug-
mynd sagnhafa fólst í því
að fæla AV frá því að spila
hjarta. Hann stakk upp
spaðadrottningu í borði (!)
og spilaði tígli á níuna og
gosa vesturs. Hin djúpa
áætlun fólst í því að fá vest-
ur til að halda áfram með
spaðann frá KG fimmta.
Sagnhafi hugðist drepa
strax á spaðaás og spila tíg-
ulás og tígli. Ef austur var
með þriðja tígulinn (sem
var líklegt) ætti hann ekki
spaða til að spila.
Þessi snilldarlega áætlun
gekk eftir, því vestur spil-
aði spaðakóng um hæl. En
eins og stundum fer fyrir
vel heppnuðum aðgerðum,
þá dó sjúklingurinn:
Norður
♠ D102
♥ Á764
♦ 1076
♣ DG2
Vestur Austur
♠ KG863 ♠ 54
♥ K3 ♥ DG1098
♦ KG2 ♦ D3
♣ 975 ♣10864
Suður
♠ Á97
♥ 52
♦ Á9854
♣ÁK3
Vestur átti þriðja tíg-
ulinn og komst því inn á
fríspaðana.
Á hinu borðinu tók sagn-
hafi fyrsta slaginn á spaða-
tíu og dúkkaði tígul yfir til
vesturs. Frá bæjardyrum
vesturs var tilgangslítið að
spila hjarta og hann skipti
yfir í lauf. Sagnhafi náði því
að fríspila tígulinn og vann
sitt spil. Reyndar þýðir
ekkert fyrir vestur að spila
hjarta. Kóngurinn yrði
dúkkaður og ef vestur hittir
á þann snilldarleik að spila
litlu hjarta, gæti sagnhafi
svarað í sömu mynt með
því að stinga upp ás og
stífla litinn!
Góðar hugmyndir og
brids eiga ekki alltaf sam-
leið. Við skulum fá okkur ís.
Það er margt vitlausara.
BRIDS
Umsjón Guðm. Páll
Arnarsson
ÁRNAÐ HEILLA
HLUTAVELTA
Þessi duglegu börn héldu tombólu til styrktar Rauða
krossi Íslands og söfnuðu 1.196 kr. Þau heita Walter
Brynjar Ketel, Sigurvin Bachmann og Guðlaug Bachmann.
1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rc3 Rf6
4. Bg5 dxe4 5. Rxe4 Be7 6.
Bxf6 gxf6 7. Rf3 f5 8. Rg3 c5
9. Bc4 cxd4 10. Rxd4 f4 11.
Re4 a6 12. c3 b5 13. Bb3 h5
14. De2 Bb7 15. O-O-O Db6
Staðan kom upp í stór-
meistaraflokki á fyrsta laug-
ardagsmóti sem lauk fyrir
skömmu í Búdapest í Ung-
verjalandi. Rússinn Sergey
Reutsky (2307) hafði hvítt
gegn Attila Jakob (2442).
16. Rxe6! fxe6 17. Rd6+
Dxd6 17...Kf8 hefði einnig
endað með ósköpum fyrir
svartan eftir 18.
Dxe6. 18. Hxd6 Bxd6
19. Dxe6+ Be7 20.
Hd1 og svartur gafst
upp enda útilokað að
verjast máti. Arnar
E. Gunnarsson náði
sínum lokaáfanga að
alþjóðlegum meist-
aratitli og vantar ein-
ungis að ná 2400
skákstigum til að
verða alþjóðlegur
meistari. Bragi Þor-
finnsson náði sínum
fjórða áfanga að al-
þjóðlegum meistaratitli á
mótinu og er í sömu sporum
og Arnar að þurfa ná stiga-
lágmarkinu til að fá titilinn.
Lokastaða mótsins varð
annars þessi: 1. Evgeny
Postny (2499) 7½ vinning af
11 mögulegum. 2. Sergei
Ovsejevitsch (2497) 7 v. 3.
Bragi Þorfinnsson (2373)
6½ v. 4.–7. Zoltan Medvegy
(2498), Arnar Gunnarsson
(2348), Leonid Gerzhoy
(2410) og Sergei Reutsky
(2307) 6 v. 8.–9. Alexander
Krapivin (2339) og Jón Vikt-
or Gunnarsson (2411) 5 v.
10. Nicolai V. Pedersen
(2528) 4½ v. 11. Attila Jakob
(2442) 3½ v. 12. Jennifer
Shahade (2248) 3 v.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman í Akureyrarkirkju
21. júlí sl. af sr. Svavari A.
Jónssyni þau Eva Dögg
Björgvinsdóttir og Sig-
mundur G. Sigurðsson.
Heimili þeirra er á Ak-
ureyri.
50ÁRA afmæli. Fimm-tug er er í dag þriðju-
daginn 22. júlí, Hólmfríður
Haukdal, Vörðu 14, Djúpa-
vogi. Í tilefni dagsins taka
hún, eiginmaður og börn á
móti ættingjum og vinum á
tjaldstæðinu á Fossárdal við
Berufjörð, laugardaginn 26.
júlí frá kl 17:00
MENNINGARDAGSKRÁ
Í SKÁLHOLTI
HELGARTILBOÐ
Pantanir og upplýsingar í Skálholtsskóla,
sími 486 8870, netfang skoli@skalholt.is
Skálholtsskóli býður upp á sérstakt tilboð
um næstu helgi, 26.–27. júlí
Dagskráin felur í sér gistingu og allar máltíðir m.a.
sögutengdan kvöldverð að hætti Þorláks biskups helga
og kaffiborð Valgerðar biskupsfrúar,
kynningu fornleifauppgraftarins, menningartengda
staðarskoðun og að sjálfsögðu alla atburði
Sumartónleika í Skálholti þessa helgi.
Verð kr. 12.000.
*
*
*
Sumartilboð
Glæsileg snyrtivörutilboð
Bolir, toppar o.fl. á
tilboðsverði
Nóatúni 17 • sími 562 4217Gullbrá • Sendum í póstkröfu
Bikarkeppnin þriðja umferð
Dregið hefir verið í þriðju umferð
bikarkeppninnar en á ýmsu gekk í
annarri umferðinni.
Eftirtaldir leikir verða í þriðju
umferð:
Ógæfa ehf/Björgv.M.Kr.–Aðalst. Sveinss.
Shellsk./Rúnar Einarss–Ing. P. Jóhannss.
Hársnyrting Vildísar–ÍAV/Matth.Þorv.
Félagsþjónustan/Guðl. Sv.–Teymi/Bern. Kr
Spsj.Sigl&Mýras.–Skaginn hf/Þorgeir J.
Guðm Sv. Hermannss.–Strengur/Hrannar
E
Norðangarri/Frímann–Suðurnesjasveitin
Goði/Þór.Jónasson–Subaru–sveitin/Jón.B
Lokastaðan í annarri umferðinni varð
þessi:
Ingv. P.Jóhannss.–Friends/M.H. 66– 63
Teymi/Bern. Krist.– Orkuv.Rvk. 74– 72
Goði/Þ.Jónass.– Bjarni Sveinss.109–100
Suðurnesjasv.– Baldur Bjartm. 112– 51
G.Helgas.–Fél.þj./Guðl.Sv. 32–154
Norðangarri–Tryggingastofan 104– 63
Gísli Þór.–Skaginn/Þorgeir Jós.109–143
Shell–skálinn–Sparisj.í Keflav. 86– 77
Eðv. Hallgr.–Ógæfa/Björgv.M.Kr. 78– 96
Samskipti–Hársnyrting Vildísar 54–130
Símon Sím.– Guðm.Sv.Hermannsson 56–
64 Vinir/Heimir Tr.–Aðalst.Sveins. 83– 99
ÍAV/Matth.Þorv–Anna G. Nielsen 128– 39
Kr.Kristinsson–Strengur/Hr.Erl. 64– 90
Subaru-sveitin– Gylfi Baldurs. 83– 69
Sp.Sigl&Mýr.–Bindir ehf.-Guðm.Sv. 1–0
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
Sá leikur sem varð mest spenn-
andi í annarri umferð var milli sveita
Teymis og Orkuveitunnar. Jafnt var
eftir 40 spil 63–63 og var framlengt
um 4 spil. Þeim lauk með sigri Teym-
is 11–9. Loks má geta þess að sveit
Bindis ehf. mætti ekki til keppni og
var dæmd úr leik.
Síðasti spiladagur þriðju umferðar
er 17. ágúst.
Hallgrímskirkja. Fyrirbænaguðsþjónusta
kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum.
Háteigskirkja, eldri borgarar. Pútt alla
morgna ef veður leyfir frá kl. 10. Félagsvist
mánudaga kl. 13, brids miðvikudaga kl.
13. Þátttaka tilkynnist til Þórdísar í síma
511 5405.
Hjallakirkja. Bæna- og kyrrðarstund kl.
18.
Seljakirkja. Æskulýðsfélag Sela kl. 20–
22
Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir 10–12
ára börn í safnaðarheimilinu Strandbergi,
Vonarhöfn frá kl. 17–18.30.
Vídalínskirkja. Í sumar verður opið hús á
vegum kirkjunnar fyrir eldri borgara í safn-
aðarheimilinu Kirkjuhvoli kl. 13–16. Spil-
að og spjallað. Þorlákur sér um akstur fyrir
þá sem óska.
Grindavíkurkirkja. Foreldramorgnar alla
þriðjudaga kl. 10–12.
Borgarneskirkja. Helgistund í kirkjunni kl.
18.30–19.
Þorlákskirkja. Fermingarfræðsla í dag kl.
13.40.
Krossinn. Almenn samkoma kl. 20.30 í
Hlíðasmára 5. Allir velkomnir.
Kefas. Bænastund kl. 20.30. Allir vel-
komnir.
Akureyrarkirkja. Morgunsöngur kl. 9.
Safnaðarstarf
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
KRABBI
Afmælisbörn dagsins:
Þú ætlar þér að ná langt og
hefur það hugrekki sem til
þarf. Ekkert getur haldið
aftur af þér þegar þú hefur
ákveðið eitthvað.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Í dag hefst fjögurra vikna
tímabil sem einkennist af
rómantík, veislum, gleði og
glaum. Þú átt eftir að njóta
þess að vera til.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Nú er rétt að einbeita sér að
málefnum heimilisins. End-
urfundir ættingja veita þér
tækifæri til þess að rifja upp
æskuminningar.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Spenntu beltið! Hlutirnir
eiga það til að gerast hratt
þessa stundina og það er
gríðarlega mikið um að vera.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú einbeitir þér í auknum
mæli að fjármálum. Þú íhug-
ar hvernig best sé að afla
peninga og eyða þeim.
Eyddu ekki meira en þú
aflar.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Næstu vikurnar ættir þú að
safna kröftum fyrir það sem
eftir er af árinu. Þú mátt bú-
ast við því að þér bjóðist góð
tækifæri og að þú hittir gott
fólk.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Notaðu þann tíma sem þú
hefur aflögu til þess að hvíl-
ast. Þú þarft meiri tíma í ein-
rúmi. Áhugi þinn á yf-
irskilvitlegum hlutum hefur
aukist til muna.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Vinsældir þínar hafa aukist
þó nokkuð. Búðu þig undir
að heyra frá vinum þínum og
fá boðskort í veislur. Taktu
þeim boðum fagnandi!
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Klæddu þig vel og skartaðu
þínu fegursta. Aðrir gætu í
framhaldinu borið meira
traust til þín. Þú stendur
undir því trausti.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þú kýst að víkka sjóndeild-
arhring þinn gegnum nám og
ferðalög. Gerðu eins mikið af
því og þú getur þessa stund-
ina.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Eitthvað vekur miklar til-
finningar hjá þér í dag. Þú
ætlar ekki lengur að vera
áhorfandi heldur kýst þú að
berjast fyrir réttindum þín-
um.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Samræður við vini og ætt-
ingja geta kennt þér margt
um sjálfa(n) þig í dag. Vertu
viss um að hlusta vandlega á
það sem aðrir segja.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Láttu undan þeirri löngun
þinni að skipuleggja hlutina.
Þú munt ekki sjá eftir því.
Best væri að hefjast handa
sem fyrst.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Á RAUÐSGILI
Enn ég um Fellaflóann geng,
finn eins og titring í gömlum streng,
hugann grunar hjá grassins rót
gamalt spor eftir lítinn fót.
Hugrökk teygist á háum legg
hvönnin fram yfir gljúfravegg,
dumbrauðu höfði um dægrin ljós
drúpir hin vota engjarós.
Löngum í æsku ég undi við
angandi hvamminn og gilsins nið,
ómur af fossum og flugastraum
fléttaðist síðan við hvern minn draum.
- - -
Jón Helgason
LJÓÐABROT
Drottinn minn! Þú fórst
ansi nálægt lögregluþjón-
inum þarna á horninu!