Morgunblaðið - 23.07.2003, Blaðsíða 2
FIMMTA kynslóð Golf, þekktasta
bíls Þýskalands allra tíma, verður
kynnt í haust á bílasýningunni í
Frankfurt. Fyrstu opinberu mynd-
irnar sem birtast af þessum bíl fylgja
hér með en gífurleg leynd hefur ríkt
yfir útliti nýja bílsins.
Volkswagen hefur jafnan fetað
öruggar slóðir þegar kemur að út-
litshönnun og breytingu á bílum sín-
um og engin undantekning er hvað
Golf varðar. Ennþá má sjá uppruna-
legu línurnar í þessum vinsæla bíl og
þótt hann sé gjörólíkur fyrstu gerð-
inni, sem kom á markað fyrir tæpum
þrjátíu árum, hafa breytingar á milli
kynslóða verið hægfara. Alls hafa yf-
ir 22 milljónir VW Golf selst frá því
hann kom fyrst á markað. Fimmta
kynslóð Golf er lengri og breiðari en
núverandi gerð. Bíllinn verður 4.204
mm á lengd, 57 mm lengri en núver-
andi gerð, 24 mm breiðari og 39 mm
hærri. Það sem mestu munar er þó
kannski meira innanrými. Farang-
ursrýmið tekur nú 347 lítra í stað 300
lítra áður og lengdin á innanrýminu
er 5,4 cm meiri.
Bíllinn verður fáanlegur jafnt
þrennra og fimm dyra og einungis
með einni bensínvél til að byrja með.
Þetta er 1,6 l FSI-vélin sem nú er
boðin líka í Touran fjölnotabílnum.
Með þessari vél kemur bíllinn með
sex gíra handskiptum gírkassa.
Bíllinn verður eins og áður boðinn
í Trend-, Comfort- og Sportline-út-
færslum. Staðalbúnaður í öllum
gerðum verður sex líknarbelgir,
fimm hnakkapúðar, þar af tveir virk-
ir í framsætum, pedalar sem falla
niður í gólf við árekstur, nýjasta
kynslóð af ESP-stöðugleikastýringu
og margt fleira.
Jón Trausti Ólafsson, upplýsinga-
fulltrúi Heklu, segir að fyrstu bílarn-
ir komi hingað til lands á nýju ári en
fram að því verður takmarkað magn
af eldri gerð Golf á boðstólum á hag-
stæðu verði. Jón Trausti segir að
ekki sé ljóst hvert verðið verður á
nýja bílnum en á hinn bóginn sé vitað
að hann hækkar í verði enda bæði
stærri og betur búinn.
Næsta kynslóð VW Golf kemur á markað hérlendis upp úr áramótum.
Fyrstu myndir af nýjum Golf
Golf V er lengri og breiðari en núverandi gerð.
2 B MIÐVIKUDAGUR 23. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
bílar
NÆRRI fimmti hver bíll sem skráður
var fyrstu sex mánuði ársins hefur
verið seldur til bílaleigu. Alls seldust
fyrstu sex mánuðina 5.333 bílar og
þar af fóru 1.037 bílar til bílaleiga. Það
eru þó einkum tíu bílategundir sem í
mestu magni fara til bílaleiga. Efst
trónir Suzuki en alls fóru 55,73% af
öllum seldum bílum þeirrar gerðar til
bílaleiga. Mesta magnið er hins vegar
Toyota-gerðar en 391 bíll þeirrar
gerðar fór til bílaleigu á tímabilinu.
!
" # $%
& '(
)
#
$
*
! +
,
&
& -'
&*
$. /
!
"
12
32
42
52
62
72
82
92
:2
1;2
112
132
142
152
162
172
182
192
1:2
3;2
312
332
342
352
362
372
382
392
3:2
4;2
412
432
434
8;
31
4;
1:4
37;
12615
645
149
1;9
34;
183
469
6;
41;
45
46
378
89
366
138
51
38
;
4
7
6;
3
61
18
1:
6
6
62444
#
$
%
&'
19;
36
8
1;
71
7:
4:1
13:
39
1:
3:
1:
49
4
13
1
1
8
1
4
1
;
;
;
;
;
;
;
;
;
;
;
;
12;48
#
$
%
Nærri fimmti hver
bíll til bílaleigu
UM 60 Frakkar voru á ferð hér á landi í
síðustu viku til þess að taka myndir af
nýrri kynslóð Peugeot 407 í íslenskri
náttúru. Að því er næst verður komist
stöldruðu menn við hjá Breiðamerkurlóni
og víðar á landinu til þess að fanga bílinn
á filmu en hann kemur ekki á markað fyrr
en næsta vor í Evrópu. Það er óhætt að
segja að straumurinn hafi legið til Íslands
til þess að mynda bíla. Eins og greint er
frá á næstu síðu voru teknar myndir af
einum glæsilegasta sportbíl veraldar,
Mercedes-Benz SLR, við Dyrhólaey á dög-
unum, í vor voru hér á ferðinni Bandaríkja-
menn að taka myndir af Cadillac SLX,
núna standa yfir myndatökur á nýjum Land
Rover Freelander og BMW X3. Mikil leynd
hvílir yfir myndatökum af þessu tagi en for-
vitnin rekur margan manninn til þess að
taka myndir og þeir sem hafa komist í tæri
með myndavél við þessa bíla í íslensku um-
hverfi eru hvattir til að hafa samband við
bílablað Morgunblaðsins.
Nýr Peugeot 407 verður sýndur á bíla-
sýningunni í Genf næsta vor og í framhaldi
af því kemur hann á almennan markað.
Engar opinberar myndir eru til af honum en
þessar tölvuunnu myndir gætu gefið hug-
mynd um hvernig endanlegt útlit hans verð-
ur. Tölvuunnin mynd af Peugeot 407.
Peugeot 407 myndaður á Íslandi