Morgunblaðið - 24.07.2003, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 24.07.2003, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913 198. TBL. 91. ÁRG. FIMMTUDAGUR 24. JÚLÍ 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is Stærstu útsölulokin götumarkaður Opið til kl. 21 í kvöld Sushi fyrir Finna Hráefnið og hreinleikinn undirstaðan | Viðskiptablað B7 Grín gert að sjálfshjálpar- bókum | Listir 24 Niceland í rigningu Regnhlífar komu í góðar þarfir við tökur á nýrri mynd | Fólk 49 ARNARVARP hefur gengið vel í ár og eru fleiri ungar að komast á ról en nokkru sinni áður síðan farið var að fylgj- ast með varpi arna fyrir um 40 árum. Taldir hafa verið 33 ungar í 25 hreiðrum í sumar, flestir við Breiðafjörð, en nokkrar vikur eru í að þeir verði fleygir. „Fyrstu ungarnir fara að fljúga um mánaðamótin, en flestir byrja um miðjan ágúst,“ segir Kristinn Haukur Skarphéðinsson, fuglafræðingur. „Stofninn mælist stærri en hann hefur nokkurn tíma verið síðan örninn var frið- aður fyrir 90 árum, svo það eru eins góðar horfur og verið geta.“ Talið er að nú séu á landinu 56 arnarpör. Vitað er um 52 og áætlað er að fjögur til viðbótar hafi ekki fundist. „Það er greinilegt að það hefur verið vöxtur í stofninum síðustu árin,“ segir Kristinn. Morgunblaðið/RAX Aldrei fleiri arnarungar frá því eftirlit hófst DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra sagði á fundi með blaðamönnum í gær þegar hann var inntur við- bragða við frumskýrslu Samkeppn- isstofnunar um olíufélögin, að þetta væru ekki fréttir sem kæmu honum algjörlega á óvart. „Ég held að all- ur almenningur í landinu hafi haft þá tilfinningu að það hafi um langa hríð tíðkast að hafa að minnsta kosti nokkurt sam- ráð. Menn hafa séð hvað olíufélögin eru fljót að hækka og lengi að lækka gagnvart almenningi. Ég hef fundið að því áður og það hefur alltaf gerst í undrafínum takti. Þannig að þetta kemur út af fyrir sig ekki á óvart.“ Hann sagðist telja að meira hefði verið um samráð og annað af því tagi áður fyrr og hefði það verið ástæða þess að samkeppnislög voru sett á sínum tíma. „Menn höfðu á tilfinningunni að þetta væri grasserandi. Ég er hins vegar sannfærður um að það hafi dregið mjög úr slíku. Ég er jafn- framt sannfærður um að það væri ekki óhætt að leggja Samkeppnis- stofnun niður. Ég tel að þetta sé enn grasserandi víða og ef þetta eftirlit væri ekki lengur til staðar færi allt á verri veg aftur. Við tölum oft um íþróttaandann. Ég er sannfærður um það, þegar ég horfi á fótbolta, að ef ekki væri dómari með gult spjald og rautt þá væri miklu meira um tæklingar og alls konar hluti sem ekki eru geðfelldir.“ Ólöglegt samkvæmt eldri lögum Skýringar olíufélaganna um að þau hafi þurft langan aðlögunartíma vegna nýrra samkeppnislaga sagði hann ekki traustvekjandi. „Ýmsir þeir þættir sem menn eru að gefa í skyn að hafi farið úrskeiðis voru í raun brotlegir þá þegar þótt eftirlitsþátturinn væri ekki kominn í það far sem síðar kom. Mér finnst það ekki vera trúverðug rök að menn hafi þurft aðlögunartíma til að hætta að brjóta gömul lög vegna þess að það voru komin ný lög.“ Hann sagði að ef mál sem þessi kæmu til kasta dómstóla ætti hann ekki von á að slíkar röksemdir myndu vega þungt. Hvað þátt Þórólfs Árnasonar borgarstjóra varðaði, sem áður var markaðsstjóri Olíufélagsins, sagði forsætisráðherra „óneitanlega dálít- ið fyndið að sjá borgarstjórann sitja í borgarráði þar sem samþykkt er að ef olíufélögin hafi platað borgina þá muni hún gera kröfu um bætur. Ætlar hann að skrifa undir bréfið? Hann veit hvort hann plataði borg- ina eða ekki. Hann þarf ekki að láta rannsaka það væntanlega. En hann ætlar að gera kröfu um að ef hann plataði borgina fyrir þessum árum þá fái hann bætur fyrir það sem borgarstjóri. Þetta er afskaplega magnað.“ Spurður hvort hann teldi að ein- staklingar og fyrirtæki ættu að sækja skaðabætur vegna málsins sagði forsætisráðherra að menn yrðu að bíða eftir endanlegri niður- stöðu. Lítur skelfilega út „Ég get alveg sagt sem lesandi málsins, ég hef ekki haft meiri að- stöðu en þið til að kynna mér þetta, að málið lítur ekki vel út. Það lítur skelfilega út. Engu að síður verðum við að gefa þeim sem eru í sæti grun- aðra, ef svo má taka til orða, færi á að svara fyrir sig. Þeir verða að njóta andmælaréttar. Það verður að gilda um alla. Að því leyti er óheppi- legt að málið skuli koma út núna þegar einungis önnur hliðin er til. Því okkur hættir til, mér sem öðrum, að dæma út frá því sem við sjáum. Ég hef ekki séð rök eða svör hinna.“ Rök olíufélaga um aðlögunar- tíma ekki trúverðug Davíð Oddsson  Stefnt að viðræðum/26 AP MIKIL geðshræring greip um sig í ráðhúsinu í New York, sem er neðarlega á Manhattan, eftir að maður tók að skjóta þar af byssu. Eru menn minnugir hryðjuverkaárásarinnar 11. september 2001. Fljótlega eftir að fréttist um atburðinn í ráðhúsinu var fjöldi lög- reglumanna mættur á staðinn og voru þeir gráir fyrir járnum. Uppnám á Manhattan EINN af borgarfulltrúum New York-borgar var skotinn til bana af óþekktum byssumanni í fundarsal ráðhússins um miðjan dag í gær. Byssumaðurinn var sjálfur felldur af óeinkennisklæddum lögreglumanni. Borgarfulltrúinn, James E. Davis, var fyrrverandi lögreglumaður og þekktur baráttumaður gegn stór- borgarofbeldi. Morðinginn er sagður hafa verið pólitískur andstæðingur Davis, sem var svartur á hörund og fulltrúi Brooklyn í borgarstjórn. Mennirnir voru samferða inn í ráð- húsið en tengsl þeirra gerðu morð- ingjanum kleift að komast inn án þess að fara í gegnum öryggisgæslu. Byssumaðurinn hafði komið sér fyrir á áhorfendapöllum fundarsalar borgarstjórnar þegar hann tók skyndilega upp byssu og skaut Davis í bringuna, en hann var einnig á áhorfendapöllunum. Öryggisvörður sem var niðri í fundarsalnum skaut þá byssumanninn fimm sinnum og lést hann seinna á sjúkrahúsi. Öryggisgæsla var aukin til muna í ráðhúsinu í New York eftir hryðju- verkaárásina í hitteðfyrra. Þurfa menn nú jafnan að fara í gegnum málmleitartæki áður en þeim er hleypt inn, auk þess sem óeinkennis- klæddir lögreglumenn eru á verði. Morð í ráðhúsi New York New York. AP. LJÓST þótti í gær að andstæðingum Gray Davis, ríkisstjóra í Kaliforníu, hefði tekist að safna nægilega mörgum undirskriftum í herferð fyrir því að fá ríkisstjórakosning- arnar sem haldnar voru á síðasta ári endurteknar. Embættismenn voru í gær að fara yfir listana en ef þeir staðfesta að um gildar undirskriftir sé að ræða verða nýjar kosningar haldnar innan áttatíu daga. Þessar sögulegu kosn- ingar færu þannig fram að fyrst segðu kjósendur já eða nei við þeirri spurningu hvort ástæða væri til að víkja Davis úr embætti. Síðan kysu þeir mann sem þeir helst vildu sjá leysa hann af hólmi. Davis, sem er demó- krati, nýtur ekki nema um 23% fylgis nú um stundir skv. skoðana- könnunum. Ýmislegt spilar hér inn í, m.a. 38 milljarða dollara fjárlagahalli á ríkissjóði Kaliforníu-ríkis. Stuðningsmenn ríkisstjórans gagnrýna undirskriftasöfnunina og segja að nýjar kosningar myndu kosta skattgreiðendur í Kaliforníu á bilinu 30 til 60 milljónir dollara. Fer Schwarzenegger fram? Miklar vangaveltur eru uppi um það hvort kvikmyndaleikarinn Arnold Schwarzenegg- er, sem er repúblikani, verður frambjóðandi í kosningunum. Schwarzenegger sneri aftur til Bandaríkjanna í gær úr kynnisferð vegna myndar sinnar, Tortímandinn 3, og var haft eftir pólitískum ráðgjafa hans að hann teldi líklegt að leikarinn, sem er 56 ára og fæddist í Austurríki, gæfi kost á sér. Kosið á ný í Kaliforníu? Los Angeles. AFP, AP. Arnold Schwarzenegger Gray Davis Ofleikur á stefnumóti

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.