Morgunblaðið - 24.07.2003, Blaðsíða 35
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. JÚLÍ 2003 35
ATVINNU-
AUGLÝSINGAR
I
I
Verkefni óskast
Vanir járnabindingamenn geta bætt við sig verk-
efnum á höfuðborgarsvæðinu. Áratuga reynsla.
Áhugasamir leggi inn upplýsingar á augldeild
Mbl. eða á box@mbl.is, merktar: „V — 13930“. Afgreiðslustarf
Snyrtilegur starfskraftur óskast
til afgreiðslustarfa í úra- og skartgripaverslun
á Laugaveginum. Aldur ca 35-45 ára. Vinnutími
kl. 10-15 og annan hvern laugardag kl. 10-16.
Upplýsingar um aldur, menntun og fyrri störf
sendist til augldeildar Mbl. eða á box@mbl.is,
merktar: „A — 13931.“
!
" #
! $ &&&# '
(
%
)
*+
!
'
,- (#
.%**,/%**
!
!
..%**,/%**
0 1 2
#
-*
#
!
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
TILKYNNINGAR
Kynning á tillögu að mats-
áætlun fyrir vinnslu
kalkþörunga í Hrútafirði
Tillaga að matsáætlun fyrir vinnslu kalkþör-
unga í Hrútafirði er til skoðunar á veraldarvefn-
um, slóð www.hunathing.is . Með tilvísun til
reglugerðar 671/2000, 14 gr., gefast 2 vikur til
að koma á framfæri athugasemdum við mats-
áætlun, frá birtingu auglýsingar þessarar. At-
hugasemdir má senda til skrifstofu Húnaþings
vestra, Klapparstíg 4, 530 Hvammstanga, eða
á netfang sveitarstjori@hunathing.is .
Sveitarstjórinn í Húnaþingi vestra.
Auglýsing
um afgreiðslu bæjarráðs Kópavogs
á auglýstri tillögu að deiliskipulagi
Í samræmi við 1. mgr. 25. gr. skipulags- og
byggingarlaga nr. 73/1997, með síðari breyt-
ingum, eru hér með auglýst afgreiðsla bæjar-
ráðs Kópavogs á eftirtalinni deiliskipulagstil-
lögu:
Vatnsendi. F-reitur (vesturhluti).
Deiliskipulag.
Í samræmi við skipulags- og byggingarlög nr.
73/1997, með síðari breytingum, hefur bæjar-
stjórn Kópavogs þann 27. maí 2003 samþykkt
tillögu að deiliskipulagi vesturhluta F-reits í
Vatnsenda. Deiliskipulagssvæðið afmarkast
af fyrirhuguðum húsum við Fellahvarf til aust-
urs, Vatnsendabletti 5 til suðurs, breyttri legu
Elliðahvammsvegar til vesturs og núverandi
Vatnsendavegi til norðurs. Í tillögunni felst að
á deiliskipulagssvæðinu verði byggð þriggja
hæða fjölbýlishús með 42 íbúðum. Tillagan
er sett fram á uppdrætti í mkv. 1:1000 ásamt
greinargerð og skipulagsskilmálum dags.
19. júní 2002. Tillagan var auglýst frá 20. sept-
ember til 18. október 2002 með athugasemda-
fresti til 1. nóvember 2002. Athugasemdir og
ábendingar bárust. Tillagan var samþykkt
óbreytt en eftirfarandi lagfæringar voru gerðar
á deiliskipulagsgögnum: skilmálar um stað-
setningu húsa innan lóðar voru gerðir skýrari,
bætt var inn skilmálum um sameiginleg leik-
svæði og upplýsinga um hljóðvist færð inn.
Skipulagsstofnun hefur yfirfarið málsgögnin
sbr. bréf dags. 10. júlí 2003 og gerði ekki
athugasemd við að birt yrði auglýsing um
samþykkt deiliskipulagsins sbr. ofangreind
lög. Auglýsing um gildistöku deiliskipulagsins
birtist í B-deild Stjórnartíðinda 24. júlí 2003.
Nánari upplýsingar eða gögn um ofangreinda
deiliskipulagsáætlun og afgreiðslu hennar er
hægt að nálgast á Bæjarskipulagi Kópavogs,
Fannborg 6, 200 Kópavogi, milli kl. 8:30 og
16:00 frá mánudegi til fimmtudags og á föstu-
dögum frá 8:00 til 14:00.
Skipulagsstjóri Kópavogs.
SMÁAUGLÝSINGAR
FÉLAGSLÍF
Fimmtudagur 24. júlí 2003
Almenn samkoma í Þríbúðum,
Hverfisgötu 42, kl. 20:00. Mikill
söngur og vitnisburðir. Predikun
Helgi Georgsson. Allir hjartan-
lega velkomnir.
Föstudagur 25. júlí
Opinn AA fundur kl. 20:00.
Mánudagur 28. júlí
UNGSAM kl. 19:00. Uppbyggi-
leg þjálfun fyrir ungt fólk í bata.
www.samhjalp.is
Smiðjuvegi 5, Kópavogi.
Bænastund kl. 19:30.
Samkoma kl. 20:00, lofgjörð, fyr-
irbænir, Högni Valsson predikar.
Allir velkomnir.
Sunnudaginn 27. júlí verður
kennsla kl. 10:00, kennt verður
úr bókinnni „Kúnst fyrirbænar-
innar“ eftir Kenneth Hagin.
Trúarkennslan hefst svo að nýju
10. ágúst. Kennari er sem áður
Jón G. Sigurjónsson.
24. júlí — Fimmtudagskvöld
á Þingvöllum.
Kl. 20.00 Í svanalíki lyftist
moldin hæst. Leikararnir Guð-
rún Ásmundsdóttir og Eyvindur
Erlendsson fjalla um lífshlaup
og ljóð Einars Benediktssonar.
Gangan hefst við útsýnisskífu á
Haki og lýkur við þjóðargrafreit.
26. júlí Laugardagur.
Kl. 13.00 Ölkofradalur —
plöntur og saga. Gengið verð-
ur í Ölkofradal austan við Skóg-
arkot. Fjallað verður um blóm
og jurtir og nýtingu þeirra.
Gangan hefst við Flosagjá.
Kl. 14.00 Barnastund í þing-
helgi. Farið um þingstaðinn
með yngstu kynslóðina. Hefst
við Flosagjá.
27. júlí — Sunnudagur
Kl. 14.00 Guðsþjónusta í Þing-
vallakirkju. Prestur sr. Kristinn
Ágúst Friðfinnsson.
Kl. 15.00 Þinghelgarganga.
Gengið um þingstaðinn forna og
hugað að sögu Þingvalla og
fornleifarannsóknum. Hefst við
kirkju að lokinni guðsþjónustu
og tekur rúmlega 1 klst.
Nánari upplýsingar eru veittar í
þjónustumiðstöð í s. 482 2660
og á heimasíðu þjóðgarðsins
www.thingvellir.is . Þátttaka í
dagskrá þjóðgarðsins á Þing-
völlum er ókeypis og allir eru
velkomnir.
Matsveinn
óskast til afleysinga á frystitogara í allt að 45
daga. Skipið heldur til veiða á föstudags-
kvöldið 25. júlí nk. Upplýsingar í síma 467 1518
eða 892 4159.
mbl.is
ATVINNA
NÝLEGA var afhentur aðalvinn-
ingur í Sumarhappdrætti
Krabbameinsfélagsins, sem dreg-
ið var í 17. júní sl. Vinninginn,
sem var bifreið af gerðinni BMW
3181 SE, hlaut Steinar Erlends-
son.
Happdrætti Krabbameins-
félagsins hefur frá upphafi verið
ein veigamesta tekjulind krabba-
meinssamtakanna hér á landi og
stuðlað mjög að uppbyggingu
þeirra og þróun. Fræðslustarf
Krabbameinsfélagsins er að mikl-
um hluta kostað með hagnaði af
happdrættinu. Krabbameins-
félagið færir velunnurum sínum
bestu þakkir fyrir stuðninginn.
Frá hægri eru Jóhannes
Tómasson, formaður
Krabbameinsfélags
Reykjavíkur, Guðlaug
B. Guðjónsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Krabba-
meinsfélags Reykjavík-
ur, og vinningshafinn
Steinar Erlendsson, sem
tekur við lyklunum úr
hendi Sveinbjarnar
Hannessonar, sölufull-
trúa B&L.
Krabbameinsfélag-
ið afhenti vinning