Morgunblaðið - 25.07.2003, Blaðsíða 1
F Ö S T U D A G U R 2 5 . J Ú L Í 2 0 0 3 B L A Ð B
SKILABOÐ SKÍNA ÚR ANDLITUM /3 BLÚSINN FYLGIR HJART-
SLÆTTINUM /2 SJÓÐHEITUR DAGUR Í SVEITINNI /4 STOKKIÐ INN
Í ÆVINTÝRI /6 Á HVAÐ ERTU AÐ HLUSTA? /7 AUÐLESIÐ /8
GÖTULEIKHÚS Hins hússinshefur verið á fleygiferð í sum-ar eins og svo oft áður. Hóp-
inn skipa fjórtán framhaldsskóla- og
háskólanemar sem hafa að markmiði
að skapa, skemmta og fá fólk til þess
að staldra við í amstri hversdagsins. Í
sumar hefur Götuleikhúsið tekið þátt
í föstudagsbræðingi Hins hússins, en
þar hafa hópar á vegum hússins gert
miðborgina að vettvangi ljóðlistar,
tónlistar, leiklistar og myndlistar.
Götuleikhúsið hefur vakið athygli
fyrir líflega búninga. Á bak við þá
stendur ungur maður, Oddvar Hjart-
arson, 26 ára gamall meðlimur leik-
hússins til fjögurra ára. „Ég byrjaði
sem götuleikari, fór svo að starfa
meðfram því í Listsmiðjunni sem er
tæknileg bækistöð Götuleikhússins,
með búningaherbergi, sminki og
smíðaverkstæði. En í sumar hef ég
eingöngu séð um búningana,“ segir
Oddvar og er hæstánægður með
dugnað hópsins í sumar. Í Listsmiðj-
unni er saumavél sem hann kennir
leikurunum á og svo er reynt að út-
færa snjalla búninga fyrir sem
minnstan pening. „Við hringjum út
um hvippinn og hvappinn og spyrjum
fyrirtæki hvort þau
þurfa að láta eitthvað
frá sér, rýma lagerinn.
Þetta eru t.d. búðir eins
og Vero Moda og Hjá
Guðsteini.“
Til þess að móta yf-
irbragðið hittast götu-
leikararnir og kasta á
milli tillögum. „Svo tek
ég í endana og hnýti
saman. Oft fáum við
lánuð viðeigandi föt,
eins og jakkaföt fyrir
gömlu dansana á fyrsta
bræðingnum, en kjól-
arnir voru flestir til
hérna og ég þurfti bara
að gera aðeins við þá.“
Oddvar er nýútskrif-
aður úr fjöltæknideild
LHÍ og er á leið til Dan-
merkur í ljósmynda-
nám. Þá hefur hann
lært hárgreiðslu og not-
ar alla þessa kunnáttu í
búningavinnuna. „Síð-
asta föstudag sá ég um
að hanna balletbúninga
sem voru tú-tú-pils og
tátiljur, hanskar og hár-
ið sleikt í balletsnúða.
Svo settum við vatt ofan
á snúðana sem urðu
eins og afródúskar,“
segir Oddvar og rifjar
einnig upp ísdrottningar sem gengu í
sérlegum hægagangi frá Ráðhúsinu í
öfugsnúnum sloppum frá Bláa lóninu
og dragsíðum pilsum með kínverskan
varalit. „Þetta er voðalega feminískt
leikhús. Það eru margar stelpur í
hópnum og svo er leikstjórinn, Stein-
unn Knútsdóttir, dálítill femínisti. En
það er bara frábært,“ segir Oddvar
og brosir breitt.
Í dag fer fram síðasti föstudags-
bræðingur sumarsins og um leið
uppskeruhátíð Hins hússins. Allir
þrettán skapandi sumarhópar húss-
ins taka þátt í fjölbreyttri dagskrá
sem hefst með tónleikum Trio Cant-
abile í Ráðhúsinu kl. 12:15. Myndlist á
ruslatunnum skreytir Lækjargötu,
klukkan 16 verða tónleikar á Ingólfs-
torgi og í kvöld frumsýnir Reykvíska
listaleikhúsið Líknarann í Fríkirkj-
unni. Þema dagsins hjá Götuleikhús-
inu er „laugar-dagur“ á föstudegi,
sem er óður til gamla Laugavegarins.
„Við verðum klædd að hætti Emils í
Kattholti og förum um með bala og
þvottasnúrur, skrúbbum Laugaveg-
inn og okkur sjálf – þetta verður mjög
fallegt,“ segir búningastjórinn Oddv-
ar að endingu.
Föstudagsbræðingur Hins hússins nær hámarki
Á föstudagsbræðingi í júní. Fötin fékk Götuleikhúsið að láni í Spútnik og víðar.
Morgunblaðið/Jim Smart
Strákar og stelpur í balletbúningunum góðu.
gleðinnar
Nýju fötin