Morgunblaðið - 27.07.2003, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27. JÚLÍ 2003 C 3
Raufarhafnarhreppur
Grunnskólakennarar
Staða í almenna bekkjakennslu í yngri bekkjum
er laus til umsóknar.
Grunnskólinn á Raufarhöfn er einsetinn, rúmgóður og vel búinn
skóli með rúmlega 50 nemendum í hæfilega stórum bekkjardeildum.
Á Raufarhöfn búa um 300 manns í sérlega fjölskylduvænu umhverfi.
Gott og ódýrt íbúðahúsnæði er til staðar. Á staðnum er öll almenn
þjónusta, góður leikskóli og glæsileg íþróttamiðstöð ásamt sundlaug
með aðstöðu fyrir alla aldurshópa. Fjölbreyttir útivistarmöguleikar
eru til staðar í ósnortinni náttúru.
Á Raufarhöfn býr kraftmikið og skemmtilegt fólk. Á Raufarhöfn er
gott að búa. Hver vill ekki gera tilraun og leyfa börnum sínum að
upplifa þá paradís og það frelsi sem á staðnum er að finna? Hver
vill ekki komast í kynni við sjálfan sig og losna við áreitið sem borgar-
lífinu fylgir? Hver er ekki tilbúinn til að sannreyna orð þeirra sem
búa á staðnum?
Allar nánari upplýsingar veitir Júlíana Gústafs-
dóttir, skólastjóri í síma 847 1416 juli-
ana@riben.is, Guðný Hrund Karlsdóttir, sveitar-
stjóri, gudny@raufarhofn.is og Sigþór Þórarins-
son, formaður skólanefndar, í síma 893 1080.
Einnig er hægt að nálgast almennar upplýsingar
um skólastarfið á heimasíðu hreppsins
www.raufarhofn.is undir liðnum Grunnskóli.
Ritari
Ritari óskast í hálft starf. Starfið felst í móttöku,
símsvörun, bókhaldsfærslum (HANSA-kerfið),
reikningagerð, innheimtu o.fl. Þekking og
hæfni nauðsynleg á framangreindum sviðum
ásamt tölvukunnáttu. Starfið krefst sjálfstæðis.
Eingöngu þeir sem eru að leita að framtíðar-
starfi sæki um. Umsóknareyðublöð afhent á
staðnum. Upplýsingar ekki gefnar í síma.
Síðumúla 1, Reykjavík.
Sendiráð Bandaríkjanna
Einkaritari
Sendiráð Bandaríkjanna óskar eftir að ráða
einkaritara. Viðkomandi mun starfa á almennri
skrifstofu og verkefni eru afar fjölbreytt.
Umsækjendur skulu uppfylla eftirfarandi
skilyrði:
Hafa fullkomið vald á ensku og íslensku.
Hafa lokið stúdentsprófi eða prófi við viður-
kenndu skrifstofunámi.
Hafa tveggja ára reynslu við skrifstofustörf,
þar af eitt ár sem einkaritari.
Kunnátta og þekking á ritvel og tölvu.
Umsóknareyðublöð má sækja í afgreiðslu
sendiráðsins á Laufásvegi 21, frá kl.08.00, 28
júlí. Útfylltum umsóknum skal skilað fyrir
kl.17.00, 8 ágúst nk.
Umsóknir sem berast eftir þann tíma verða
ekki teknar gildar. Sendiráð Bandaríkjanna
mismunar ekki umsækjendum eftir kyni, aldri
eða kynþætti.
Sjúkrahúsið Vogur
Starfsmaður óskast sem fyrst við ræstingar
og í þvottahús. 75% starfshlutfall.
Upplýsingar veitir Rósa Andrésdóttir í síma
530 7667.
Skemmtileg vinna
Óskum eftir starfsmanni í upplýsingamiðlun
hjá lítilli vaxandi ferðaskrifstofu. Viðkomandi
þarf að hafa mjög góða enskukunnáttu og helst
góð tök á öðru tungumáli. Þarf að geta hafið
störf strax. Umsóknir sendist til augldeildar Mbl.
merktar: „V — 13949“ eða á box@mbl.is.
Starf í gestamóttöku
Hótel í miðbænum óskar eftir starfsmanni í
fullt starf. Um er að ræða vaktavinnu.
Umsóknir sendist til auglýsingadeildar Mbl.,
merktar: „IH—13944", eða á box@mbl.is ,
fyrir 31. júlí.
Sölumaður
Áreiðanlegur sölumaður óskast. Þarf að hafa
þjónustulund, koma brosandi til vinnu og
umfram allt vera metnaðarfullur.
Áhugasamir sendi uppl. á rymi@rymi.is eða skili
umsókn í móttökuna í versluninni Rými, Há-
teigsvegi 7, 105 Reykjavík, fyrir 8. ágúst 2003.
Sölumaður
Viljum ráða sölumann vegna ýmiss konar
símasöluverkefna. Góðir tekjumöguleikar.
Við bjóðum upp á jákvætt vinnuumhverfi,
aðstoð, leiðbeiningar og námskeið. Nánari
upplýsingar í s. 590 8000 á milli kl. 13 og
15 alla virka daga.
BM-ráðgjöf er upplýsingafyrirtæki sem veitir sérhæfða þjónustu
í markaðs-, upplýsinga- og innheimtumálum. Markmið fyrirtæk-
isins er að aðstoða fyrirtæki og félagasamtök við að ná settu
marki í upplýsinga-, markaðs- og innheimtustarfi. Með sér-
þjálfuðu starfsfólki og öflugum tæknibúnaði beitum við hnit-
miðuðum vinnubrögðum til að auka gæði þjónustu og auka
árangurinn af innheimtu- og markaðsstarfi viðskiptavinarins.
BM ráðgjöf ehf.,
Ármúla 36, Reykjavík,
sími 590 8000, netfang bm@mb.is
Sölumenn óskast á
fasteignasölu
Við óskum eftir tveimur sölumönnum á fast-
eignasölu okkar, annar má vera löggiltur. Farið
verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál!
Gott tækifæri fyrir rétta aðila.
Umsókn ásamt mynd sendist á augldeild Mbl.
merkt: „Sölumaður fasteigna — 13940“.
Tískuvöruverslun
óskar eftir starfskrafti. Aldurstakmark er 20 ára.
Áhugasamir sendi umsóknir á box@mbl.is eða
til augldeildar Mbl. merktar:„T — 13934“.
Tónlistarkennari
Tónlistarskóli Dalasýslu óskar eftir tónlistar-
kennara í hlutastarf næsta skólaár. Upplýsingar
gefur skólastjóri Halldór Þórðarson í síma
434 1123, 434 1228 og sveitarstjóri Haraldur
L. Haraldsson í síma 434 1432.
Umsóknarfrestur er til 8. ágúst 2003.
Þjálfarar óskast
Körfuknattleiksdeild Ármanns-Þróttar óskar
eftir þjálfurum fyrir meistaraflokk karla og
kvenna.
Áhugasamir hafi samband við stjórn Ármanns-
Þróttar, Magnús, sími 690 7884, Páll sími
897 7320.
Þjónustulundað starfsfólk óskast í verslanir okk-
ar í Kringlunni og Smáralind. Heilsdags- og
hlutastörf í boði. Skilyrði að umsækjendur séu
20 ára eða eldri og reynsla af sölustörfum er
æskileg. SOCK SHOP er reyklaus vinnustaður.
Umsóknir sendist til Leista ehf., Hæðasmára 6,
201 Kópavogi, eða á netfangið ari@leistar.is .
LAUS STÖRF
• Baðvarðar við íþróttahús Kársnes-
skóla
• Deildarstjóra í leikskólann Álfatún
• Leikskólasérkennara í leikskólann
Álfatún
• Leikskólakennara við ýmsa leikskóla
bæjarins
• Stærðfræðikennara í Hjallaskóla
• Umsjónarkennara í Hjallaskóla
Nánari upplýsingar á:
www.kopavogur.is
og www.job.is
KÓPAVOGSBÆR
www.kopavogur.is
Starf kórstjóra
við Hallgrímskirkju
Hallgrímskirkja í Reykjavík auglýsir hlutastarf
stjórnanda barna- og unglingakóra kirkjunnar
laust til umsóknar. Nauðsynlegt er að viðkom-
andi hafi menntun á þessu sviði ásamt starfs-
reynslu. Umsóknarfrestur er til 5. ágúst næst-
komandi og þarf viðkomandi að geta byrjað
sem allra fyrst. Upplýsingar veita Hörður
Áskelsson, kantor, og Ingólfur Hartvigsson,
framkvæmdastjóri, í síma 510 1000.
Umsóknir skulu sendar til Hallgrímskirkju,
Skólavörðuholti, pósthólf 651, 121 Reykjavík,
eða á hallgrimskirkja@hallgrimskirkja.is,
merktar: Kórstjóri.
Sóknarnefnd Hallgrímssóknar.
FRÁ KÁRSNESSKÓLA
• Kvenkyns baðvörður óskast til starfa
við íþróttahús Kársnesskóla í Kópa-
vogi. Viðkomandi þarf að geta hafið störf
í byrjun september 2003.
Umsóknarfrestur er til 21. ágúst.
Launakjör skv. kjarasamningum Starfsmanna-
félags Kópavogs og Launanefndar sveitarfélaga.
Nánari upplýsingar gefur Gunnar Guðmundsson
íþróttafulltrúi í síma 570 1600, netfang
gunnarg@kopavogur.is .
Starfsmannastjóri
Sjá ennfremur: www.kopavogur.is og www.job.is
KÓPAVOGSBÆR
www.kopavogur.is