Morgunblaðið - 29.07.2003, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 29.07.2003, Qupperneq 20
AUSTURLAND 20 ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ FÓLKSFJÖLGUN á Austurlandi hefur farið fram úr væntingum og áætlunum sveitarstjórnarmanna eystra. Þannig fjölgaði á tímabilinu apríl til júní á þessu ári um 63 í fjórð- ungnum, ef miðað er við aðflutta um- fram brottflutta. Mest varð íbúafjölg- un á Austur-Héraði, eða 43, og er sveitarfélagið í fimmta sæti á lands- vísu miðað við þessar forsendur. „Fólksfjölgunin sem hefur átt sér stað á þessu ári kemur skemmtilega á óvart,“ segir Eiríkur Bj. Björgvins- son, bæjarstjóri Austur-Héraðs. „Þegar við unnum okkar markmið í sex ára áætlun sveitarfélagsins, 2003–2009, vorum við með fjölgunar- tölur upp á 34 einstaklinga á árinu. Nú er fjölgunin komin í 43 og við þurfum því strax að endurskoða markmið okkar. Auðvitað höfðum við væntingar til þess að hér yrði hröð íbúaþróun og höfum unnið markvisst að því að vera með íbúðaframboð og ýmis verkefni til að hér gæti átt sér stað fjölgun. En þetta kemur okkur þó engu að síður í opna skjöldu.“ Í sex ára áætlun sveitarfélagsins er gert ráð fyrir að íbúafjöldinn verði 3.200 manns árið 2009 og í fram- kvæmdaáætlun framreiknað að íbúa- talan nemi 3.700 manns árið 2017. Þá er reiknað með 400 nýjum íbúðum til að mæta þessari fjölgun. Í þéttbýliskjörnum á Hallormsstað og Eiðum er einnig gert ráð fyrir fjölgun á komandi árum og er tilbúið deiliskipulag fyrir þá. Sala á jörðum hefur jafnframt farið vaxandi í sveit- arfélaginu, en framboð er ekki mikið og þær seljast því háu verði. Engar lóðir lausar á Egilsstöðum „Í dag eigum við engar lóðir heldur Eiríkur áfram. „Það er allt farið. Við vorum þó það forsjál að skipuleggja nýtt íbúðahverfi í bænum og fórum líka í þéttingu byggðar. Það er að segja að við bjuggum til lóðir inni í gömlu hverfunum og út úr þessu samanlagt fáum við í kringum 70 til 80 íbúðir. Næst verður farið í fyrri hluta Selbrekku ofan við bæinn og þær íbúðir koma út á markaðinn í ágústmánuði og eru í kringum 50 talsins. Síðan er framhaldið deili- skipulag efra svæðis Selbrekku sem á að gefa okkur um 50 til 60 íbúðir. Allt svæðið á að gefa á bilinu 110 til130 íbúðir. Þá eru Íslenskir aðalverktak- ar búnir að óska eftir svokölluðu Votahvammslandi á Egilsstöðum, sem er 9,30 ha. Það er nýtt að verk- takar komi og vinni með okkur að deiliskipulagi íbúðarhverfa, en við er- um að gera slíkt með Trésmiðju Sveins Heiðars á Akureyri, sem ætl- ar að byggja eina götu í Selbrekku og ÍAV. Þær hugmyndir sem eru í gangi gefa á bilinu 100 til 140 íbúðir. Það er veruleg þétting á byggðinni. Það sem bíður okkar næst er að fara í svæðið suður af þéttbýlinu og hefur verið sett fram bókun um að fara í fyrstu 18 ha á því svæði og byrja að deiliskipuleggja það alveg á næstunni.“ Áberandi er á Egilsstöðum skortur á húsnæði fyrir fyrirtæki og iðnað. Eiríkur segir vera í pípunum fram- lengingu á iðnaðarhverfi við Lyngás og Miðás til suðurs og eigi eftir að muna verulega um það. „Það er nokkuð erfitt að segja til um hver þörf verður í uppbyggingu sveitarfélagsins. Skipulagið þarf að vera mjög sveigjanlegt og íbúarnir sömuleiðis. Við viljum fá þá til að vinna með okkur og sýna ákveðna sanngirni. Það er svo dýrt fyrir sveit- arfélagið og þar með íbúana að byggja þetta allt saman og láta svo jafnvel standa autt ef spár ganga ekki eftir. Við verðum að leyfa sveiflunum að koma á okkur upp að vissu marki og spila svolítið eftir því. Samkeppni um nýtt miðbæjarskipulag Lengi hefur verið rætt um að taka þurfi miðbæ Egilsstaða til gagngerr- ar endurskoðunar. Miðbærinn liggur alls staðar og hvergi og mjög fjölfarin aðalgata bæjarins, Fagradalsbraut, klýfur hann eftir endilöngu. Í sumar var haldinn opinn borgarafundur um miðbæjarskipulag og kom fram vilji fólks til verulegra umbreytinga. Stofnuð voru miðbæjarsamtök þar sem eru fulltrúar þeirra húsbygginga sem eru á miðbæjarsvæðinu í dag, fulltrúi frá Vegagerð og Þróunar- stofu Austurlands og kynningar- fulltrúi sveitarfélagsins. „Það eru allir velkomnir í þennan hóp sem áhuga hafa,“ segir Eiríkur. „Við höfum óskað eftir að fá punkta frá þessum aðilum um hvaða kröfur þeir setja um þetta svæði. Síðan veg- um við það og metum og búum til úr því góða súpu sem heitir forsögn að miðbæjarskipulagi og ætlum að fara með það í verðlaunasamkeppni. Við erum í sambandi við Arkitektafélag Íslands því það eru ákveðnar reglur sem þarf að fara eftir í slíkri sam- keppni og málið verður þannig í föst- um skorðum. Ágiskun okkar er að við getum klárað allt ferlið fyrir áramót og farið þá að vinna deiliskipulagsvinnuna og hafið jafnvel framkvæmdir næsta vor. Þetta kostar umtalsverða fjár- muni, en við teljum að þetta eigi að skila okkur betri árangri og ekki síð- ur snarpari umræðu, þar sem fleiri geta verið með í að skapa nýjan miðbæ.“ Austfirðingar þurfa stuðning ríkisvalds og almennings Um hina hröðu uppbyggingu í sveitarfélaginu segir Eiríkur að hún komi til með að kosta mikla fjármuni. „Þó að menn sjái útsvarstekjur í ákveðnum hillingum þá kostar hver íbúi líka peninga í útgjöldum,“ segir hann. „Það sem er að gerast hér fyrir austan er afskaplega jákvætt fyrir samfélagið. Ábyrgðin er hins vegar ekki bara okkar sem búum hérna. Við þurfum stuðning ríkisvaldsins og allra annarra íbúa landsins til þess að þetta megi allt saman ganga vel upp. Við stöndum vel undir þessari ábyrgð, en við þurfum að fá ákveðinn skilning á því að bæði þetta sveitarfé- lag og eins Fjarðabyggð þurfa að skuldsetja sig verulega til að geta staðið undir þeim væntingum sem eru gerðar til þeirra. Við verðum því að halda afar vel á spilunum. Við vit- um jú að þenslan í landinu stafar af því að það eru framkvæmdir á Aust- urlandi. En þá mega menn heldur ekki beita því gegn okkur. Það er tal- að um að hið opinbera þurfi að draga úr útgjöldum, þ.e. úr framkvæmdum. Við hér fyrir austan getum ekki gert það. Við verðum að framkvæma til að geta staðið undir því sem á sér stað hérna. Og ég vona að menn stilli mál- um ekki þannig upp að af því að við fengum þetta verkefni, eigi menn að fá eitthvað annars staðar á sama tíma. Vonandi fá aðrir landsmenn sína þenslu líka, eins og við fáum hér, þótt síðar verði. En það geta ekki all- ir gert allt á sama tíma.“ Austur-Hérað og Fjarðabyggð eiga í samkeppni um að draga að sér fyrirtæki og íbúa og segir Eiríkur þá samkeppni með jákvæðum formerkj- um, en ekki felast í baktjaldamakki og hrepparíg. „Bæjarstjórnin hér hefur lagt línur í því að lækka skatta á fyrirtæki í 1% eins og Fjarðabyggð hyggst gera,“ segir hann. „Við þurf- um að gera heilmargt til að þessi fólksfjölgun og atvinnutækifæri verði að veruleika og íbúar sáttir og ánægðir með það sem þeir fá. Það kostar vinnu og peninga. Það skiptir miklu máli að koma því á framfæri við almenning. Það er ekkert gefið í svona bransa. Þetta er gífurlega vandmeðfarið og við reynum að vanda okkur eins og við getum, en það þarf afskaplega lítið til að mis- stíga sig í þessum hraða uppgangi,“ sagði Eiríkur bæjarstjóri að endingu. Íbúafjölgun örari á Austur-Héraði en reiknað hafði verið með „Fólksfjölgunin kemur skemmtilega á óvart“ Austur-Hérað Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Það er alls staðar verið að byggja! Eiríkur Bj. Björgvinsson, bæjarstjóri Austur-Héraðs, við nýbyggingar í Litluskógum og Kelduskógum.Aðalskipulag til ársins 2017. Sameining norðanverðs Austurlands í salti NÚ er unnið að sameiningu Austur- Héraðs, Norður-Héraðs, Fellahrepps og Fljótsdalshrepps. Standa vonir til að jafnvel verði hægt að kjósa um slíka sameiningu á þessu ári. Aðilar frá sveitarfélögunum hafa verið í sameiningarviðræðum undan- farna mánuði og hafa Borgfirðingar fylgst með álengdar, þó þeir taki ekki þátt í viðræðunum að svo stöddu. Jöfnunarsjóði sveitarfélaga hefur jafnframt verið sent erindi um fjár- veitingu vegna væntanlegrar samein- ingar og vinnu við hana og er reiknað með að jákvætt svar fáist frá sjóðn- um. Í kjölfar þess verður væntanlega ráðinn starfsmaður til verkefnisins og þá sett fram formleg áætlun um sam- eininguna. Mismunandi mun vera hversu sveitarstjórnir Austur-Héraðs, Norð- ur-Héraðs, Fellahrepps og Fljóts- dalshéraðs vilja ganga hratt fram til verks og gæti hugsanlega komið upp klofningur þar sem Austur-Hérað og Fellamenn myndu sameinast fyrr og hin tvö ganga síðar inn í ferlið. Þetta skýrist þegar menn koma saman í haust til frekari bollalegginga. Á Austur-Héraði ríkir vilji til þess að farið verði í kosningar innan þessa árs en jafnframt er lögð áhersla á að vinna við sameininguna verði vönduð mjög. Mikil vinna Mikið var rætt um sameiningu á norðursvæði Austurlands á síðasta ári og hefur mikil vinna farið fram undir þeim formerkjum. Einnig hafa komið fram hugmyndir um samein- ingu Austur-Héraðs við firðina sunn- anvert í fjórðungnum. Sveitarfélög á norðursvæðinu vinna saman að margvíslegum verk- efnum samfélagsþjónustunnar en í sveitarstjórn Austur-Héraðs er talið að styrkja þurfi samgönguþætti fjórðungsins verulega, t.d. með jarð- göngum undir Hellisheiði og bættum vegasamgöngum, áður en grundvöll- ur verður fyrir stærra sameiningar- ferli. Bæjarstjórn Austur-Héraðs hefur m.a. lýst því yfir að hún telji skynsamlegast að byrja smátt og horfa þegar tímar líða til sameiningar stærri svæða. Austur-Hérað Grunnskóla- nemum fjölgar ört NEMENDUM sem hefja nám í Grunnskólanum á Egilsstöðum í haust hefur fjölgað um 25 á síðustu vikum. Grunnskólinn er þegar fullset- inn og verður bætt við þremur laus- um kennslustofum til að mæta þess- ari fjölgun. Þá verður farið í framkvæmdir við nýjan leikskóla á Egilsstöðum í haust. Færanlegar kennslustofur verða settar við Grunnskólann á Egilsstöð- um, þar sem sveitarfélagið getur ekki brugðist nægjanlega hratt við mjög vaxandi eftirspurn eftir skólaplássi. Þó stendur til að byggja við skólann og einnig mun Tónlistarskóli Austur- Héraðs, sem nú er í þröngu húsnæði í íbúðarhverfi, fá nýja aðstöðu í grunn- skólanum. Þá er Austur-Hérað í sam- vinnu við Fellahrepp um samnýtingu grunnskóla og leikskóla. Framkvæmdir við nýjan leikskóla á Egilsstöðum hefjast í haust og verð- ur hann byggður í áföngum. Fyrst verða byggðar tvær deildir og hinar síðari eftir þörfum. Þegar fram í sækir stendur til að stækka þéttbýlið á Egilsstöðum til suðurs og mun þá jafnframt grunn- skóli og leikskóli verða byggðir í því hverfi. Austur-Hérað ♦ ♦ ♦ FJÖLFARIN umferðaræð sker miðbæ Egilsstaða í tvennt. Þar fara daglega um fleiri tugir flutningabíla með tengivagna, tankbílar, vörubílar og aðrir þungaflutningar, bifreiðar með tjaldvagna og fellihýsi á eftir sér, auk almennrar umferðar fólks- bíla. Þungaflutningar hafa aukist mjög mikið síðan framkvæmdir við Kára- hnjúkavirkjun hófust og eiga eftir að vaxa hraðbyri með meiri fram- kvæmdaþunga bæði við virkjun og álver. Þá er ferðamannatíminn nú í algleymingi og talið að á Egilsstöð- um jafngildi ferðamannastraumur- inn um 1.000 manna viðvarandi byggð yfir hásumarið. Segja má að alger glundroði ríki í miðbæ Egils- staða þar sem farartækjum af öllum tegundum ægir saman og bílaplön, bílastæði og samgönguæðar er allt sprungið með hvelli af álaginu, auk þess sem gatnamót eru óhönduglega staðsett í miðbænum. Skipuð hefur verið umferðarnefnd hjá sveitarfélaginu sem hefur það hlutverk að koma með tillögur að úrbótum. Hugmyndin er að leiða umferðina með einhverjum hætti á kafla fram hjá miðbænum og gera einhverja bráðabirgðaaðstöðu fyrir þungaflutningsumferðina, sem ekki aðeins fer í gegnum bæinn, heldur staðnæmist líka til að fá ýmsa þjón- ustu í miðbænum. „Við erum í mjög sérstakri stöðu til ársins 2007 vegna framkvæmdanna í kringum okkur,“ segir Eiríkur Bj. Björgvinsson, bæj- arstjóri Austur-Héraðs. „Við getum þó ekki byggt framtíðarskipulagið í miðbænum á því, heldur verðum við að horfa til næstu fjörutíu ára eða lengra. Ég held að við höfum ekki gert okkur almennilega grein fyrir hvað myndi gerast hér umferðar- lega í kjölfar framkvæmdanna. Auð- vitað vissu allir að hér yrði mikil þungaumferð í gegnum bæinn, en kannski gleymdum við að reikna með að hún staðnæmdist hjá okkur líka.“ Umferðin á suðu- punkti í miðbænum Egilsstaðir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.