Morgunblaðið - 29.07.2003, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 29.07.2003, Blaðsíða 41
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚLÍ 2003 41 FORRÁÐAMENN tyrkneska liðs- ins Galatasaray eru í sjöunda himni þessa dagana – eftir að búið er að selja 40 þúsund ársmiða á heimaleiki liðsins á aðeins tuttugu dögum. Það er ekki langt síðan talið var að liðið myndi leika heimaleiki sína fyrir framan fá- mennan hóp áhorfenda, þar sem byrjað er að rífa heimavöll Gal- atasaray, Ali Sami Yen, og nýr leikvangur verður byggður, en hann á að verða tilbúinn 2005. Forráðamenn liðsins ákváðu að taka hinn nýja ólympíuleikvang í Istanbúl á leigu, en völlurinn tek- ur 85 þús. áhorfendur í sæti. Þar sem völlurinn er þónokkuð fyrir utan borgina – þrjá tíma tekur að komast til og frá vellinum – voru menn ekki bjartsýnir á að áhorf- endur myndu fjölmenna á leikina þar. Sú hræðsla var óþörf því að eins og áður sagði seldust 40 þús- und ársmiðar og reiknað er með að alls seljist um 50 þúsund þeirra. Þess má geta til gamans að fram til þessa hefur Galatasaray selt um 8 þús. ársmiða á keppn- istímabili. Það er því greinilegt að áhuginn á þessu kunnasta liði Tyrklands hefur aukist mikið. Galatasaray hefur selt 40 þúsund ársmiða BIKARMEISTARAR HK í handknattleik sigruðu sviss- neska 2. deildarliðið Lyss, 24:19, í æfingaleik í Digranesi í fyrrakvöld. Með Lyss leikur Óskar Elvar Óskarsson, fyrr- verandi fyrirliði HK, en hann gekk til liðs við félagið fyrir síðasta tímabil. Óskar Elvar var í stóru hlutverki hjá Lyss í leiknum, skoraði nokkur mörk og átti fjölda stoðsendinga. Lyss mætir FH í Kaplakrika í kvöld kl. 18 en FH-ingurinn Guðmundur Magnússon þjálf- aði liðið fyrir nokkrum árum. HK lagði lið Óskars Elvars FH-ingar hafa náð góðum tökumá Valsmönnum undanfarin ár og hafa ekki beðið lægri hlut fyrir þeim í tveimur efstu deildunum eða bik- arnum í átta ár. Þetta var sjötti sig- urleikur þeirra í röð gegn Hlíðarendaliðinu. En framan af virtist slíkt ekki í uppsiglingu. Valsmenn voru betri aðilinn í fyrri hálfleik, réðu þá ferðinni á miðjunni með bræðurna Sigurbjörn og Jó- hann Hreiðarssyni í aðalhlutverk- um og vítaspyrna Jóhanns skildi liðin að í hléi, 1:0. Reyndar var Atli Viðar Björnsson nærri því að koma FH yfir úr opnasta færi hálfleiksins þegar hann slapp innfyrir vörn Vals hægra megin og renndi boltanum framhjá Ólafi markverði, en einnig framhjá markinu. Að öðru leyti voru það Valsmenn sem ógnuðu og þeir Kristinn Lárusson og Thomas Maale voru nálægt því að skora úr hörkuskotum sem sleiktu mark- stangir Hafnfirðinga. Forysta Hlíð- arendaliðsins í hléi var fyllilega verðskulduð. Ólafur Jóhannesson, þjálfari FH, var líflegri en allt hans lið í fyrri hálfleiknum og fór mikinn á hliðarlínunni. Hafi hálfleiksræðan verið í takt við þá tilburði hefði ver- ið fróðlegt að vera fluga á vegg í búningsklefa FH í leikhléinu. Hvað svo sem hann sagði við lærisveina sína þar, hreif það heldur betur. Þeir mættu í allt öðrum gír til síðari hálfleiksins, hófu þegar stórsókn og hún var aðeins þrjár mínútur að skila jöfnunarmarki frá Jóni Þor- grími Stefánssyni, 1:1. FH hélt áfram að sækja en gegn gangi leiksins kom Hálfdán Gísla- son Val í 2:1. Það reyndist eina marktilraun Hlíðarendapilta allan síðari hálfleikinn, allt þar til á loka- sekúndunum. FH-ingar létu þetta mark ekki slá sig út af laginu, þeir héldu Valsmönnum í heljargreipum á þeirra vallarhelmingi og Allan Borgvardt gerði þeim hvað eftir annað lífið leitt. Það var hann sem jafnaði metin 18 mínútum fyrir leikslok, og það var líka Allan sem skoraði sigurmarkið þegar sex mín- útur lifðu af leiknum. Valsmenn hljóta að vera fegnir að þurfa ekki að mæta honum oftar því Allan var þeim líka sérlega erfiður í fyrri leiknum í sumar og skoraði þá í 4:0 sigri FH. Strax eftir annað markið átti Atli Viðar hörkuskot í þverslá og í kjöl- farið skallaði Jón Þorgrímur yfir Valsmarkið úr dauðafæri. Vals- menn voru aldrei líklegir til að ná forystunni í þriðja sinn, hvað þá að jafna undir lokin, en þeir áttu þó eina tilraun rétt áður en flautað var af – Elvar L. Guðjónsson skallaði úr þröngu færi en varnarmaður bjargaði með því að skalla í horn. Allan var að öðrum ólöstuðum bestur FH-inga í leiknum, geysi- lega líflegur og leikinn sóknarmað- ur, og fékk góðan stuðning frá fé- lögum sínum, Atla Viðari og Jóni Þorgrími. Sá síðastnefndi hefur sérstakt lag á að skora gegn sínum gömlu félögum í Val og gerði það í þriðja deildaleiknum í röð. Heimir var öflugur á miðjunni og þegar meiðsli fóru að þjaka hann um miðjan seinni hálfleik leysti Baldur Bett hann af og var feikiduglegur að vanda. Það var virkilega góður bragur á FH-ingum í síðari hálf- leik, en segja má að frammistaða þeirra í heildina hafi verið svört og hvít, rétt eins og búningurinn. Eftir ágætan fyrri hálfleik áttu Valsmenn hreinlega engin svör við leik FH-inga eftir hlé. Þeim gekk illa að halda boltanum, voru sífellt reknir aftur á sinn vallarhelming á ný og sjálfstraustið í liðinu fór þverrandi eftir því sem á leið. Bræðurnir héldu leik liðsins uppi ásamt miðvörðunum sterku, Guðna Rúnari og Ármanni Smára. Ellert Jón Björnsson var ógnandi á hægri kantinum í fyrri hálfleik, sem og Hálfdán í fremstu víglínu, en þeir duttu nánast alveg út úr leiknum eftir hlé. Morgunblaðið/Arnaldur Atli Viðar Björnsson, sóknarmaður FH, og Stefán Helgi Jónsson, varnarmaður Vals, í baráttu um boltann í leik liðanna á Hlíðarenda í gærkvöld. Hermann Albertsson, FH-ingur, fylgist með. Allan afgreiddi Val á Hlíðarenda FH-ingar eru komnir á lygnan sjó í úrvalsdeildinni eftir sannfærandi sigur á Valsmönnum á Hlíðarenda í gærkvöld, 3:2. Með þessum úr- slitum komust þeir í sex stiga fjarlægð frá fallsæti og eru nú aðeins tveimur stigum frá toppliðunum, sem reyndar eiga leik til góða. En spili Hafnfirðingarnir áfram eins og þeir gerðu í síðari hálfleiknum í gær hafa þeir alla burði til að blanda sér í baráttuna í efri hluta deildarinnar. Valsmenn eru hinsvegar komnir í slæma stöðu við botninn, þetta var þeirra þriðji tapleikur í röð og eftir ágætan fyrri hálfleik voru þeir gjörsamlega yfirspilaðir í þeim síðari og eiga greinilega bullandi fallslag fyrir höndum. Daninn snjalli Allan Borgvardt var í aðalhlutverki og skoraði tvö síðari mörk Hafnfirð- inga í leiknum, sigurmarkið þegar sex mínútur voru eftir. Víðir Sigurðsson skrifar FÓLK  BIRGIR Már Jónsson sundmaður, setti nýtt piltamet á Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar í París í gær – varð ellefti í 100 m skriðsundi á 53,83 sek. Gamla metið átti Örn Arnarson, 53.91 sek.  FANNEY Björk Tryggvadóttir, ÍR, bætti eigið meyjamet í stangarstökki um fimm sentímetra – stökk 3,50 m og keppir til úrslita í í París í dag.  SIGURBJÖRG Ólafsdóttir, Breiða- bliki, stökk 5,59 m í langstökki og varð í 13. sæti.  GRETA Mjöll Samúelsdóttir, Breiðabliki, hljóp 100 m á 12,68 sek. Magnús Valgeir Gíslason, Breiða- bliki, hljóp 100 m á 11,40 sek.  STEFÁN Guðmundsson, Breiða- bliki, hljóp 1.500 m á 4.06,76 mín. og Arndís María Einarsdóttir, UMSS, hljóp 800 m á 2.21,85 mín.  ÞORLEIFUR Árni Björnsson, handknattleiksmaður úr ÍR, er geng- inn til liðs við Gróttu/KR. Þorleifur er 21 árs skytta, lék 15 leiki með ÍR í 1. deild síðasta vetur og skoraði 6 mörk, og á að baki marga leiki með yngri landsliðum Íslands.  FINNBOGI Grétar Sigurbjörnsson hefur verið ráðinn þjálfari 1. deildar- liðs Fylkis/ÍR í handknattleik kvenna. Finnbogi Grétar hefur undanfarin ár verið aðstoðarþjálfari karlaliðs ÍR. Andri Úlfarsson leysir hann þar af hólmi en hann lék með Selfossi í 1. deildinni síðasta vetur.  RAGNA Ingólfsdóttir féll úr leik á heimsmeistaramótinu í badminton í Birmingham á Englandi í gær. Ragna, sem er Íslandsmeistari í badminton, er eini Íslendingurinn sem tók þátt í mótinu en hún er í 44. sæti á heimslistanum í einliðaleik kvenna. Ragna tapaði fyrir Judit Meulendijks frá Hollandi, 2:11 og 4:11 en Meul- endijks er í 13. sæti á heimslistanum.  ÍVAR Ingimarsson lék seinni hálf- leikinn með Wolves, nýliðunum í úr- valsdeildinni, sem fengu hrikalegan skell gegn utandeildarliðinu More- cambe um helgina, 6:1. Staðan var orðin 4:0 þegar Ívar kom til leiks. Wolves var með sína reyndustu menn, Paul Ince, Denis Irwin og Oleg Luzhny, en allt kom fyrir ekki.  BJARNÓLFUR Lárusson, miðju- maður ÍBV í knattspyrnunni, lék á dögunum sinn 200. deildaleik á ferl- inum þegar Eyjamenn lögðu Val, 2:1. Bjarnólfur hefur leikið 101 deildaleik fyrir ÍBV og 99 í Bretlandi með Hib- ernian, Walsall og Scunthorpe.  ÞÓRARINN Kristjánsson lék á föstudag sinn 100. deildaleik fyrir lið Keflavíkinga í knattspyrnu er liðið lagði Breiðablik af velli 3:1.  HEIÐAR Helguson lagði upp annað marka Watford sem vann QPR, 2:1, í æfingaleik um helgina.  AUÐUN Helgason átti góðan leik í vörn Landskrona sem vann Hamm- arby á útivelli, 1:0, í sænsku úrvals- deildinni í knattspyrnu í gærkvöld. Adolf til Stjörnunnar ADOLF Sveinsson gekk í gær til liðs við Stjörnuna í Garðabæ, en hann hefur verið með Keflvíkingum í sumar en var þar áður í her- búðum Garðbinga. Stjarnan hefur þá fengið tvo nýja leikmenn til liðs við sig á stuttum tíma því Calum Bett gekk til liðs við félagið fyrir stuttu. „Þetta er meðal annars gert til að styrkja hópinn fyrir næsta tímabil því þeir gerðu báðir tveggja ára samning,“ sagði Ragnar Gíslason, þjálfari Stjörnunnar, í gærkvöldi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.