Morgunblaðið - 07.08.2003, Blaðsíða 8
70089: 0;<=>?7@0A0:70>
B0
70> <C0:%0DE 9
;:
+ + + + ,+ + ,,+, + + - # '# $$# ! #%
$#. " /%# .". /0".1."2 1."3.".
>%
><
0%C:F>
/4"5 /4"6 14"0 16"6
#:0;%;:
+
/."5
B0
70>
FG8H/0B%
YFIRTAKA og afskráning Skeljungshefur ýmis önnur áhrif en að síðastaolíufélagið hverfi úr Kauphöll Íslands.Í tengslum við stofnun Kaupþings
Búnaðarbanka, Sjóvár-Almennra trygginga
og Burðaráss á Steinhólum í því skyni að yf-
irtaka Skeljung verða þær eignir Skeljungs
sem ekki tengjast rekstri félagsins seldar.
Meðal þessara eigna eru hlutir í Sjóvá-Al-
mennum, Flugleiðum og Eimskipafélaginu,
móðurfélagi Burðaráss, og sérstakir samn-
ingar eru gerðir um að Sjóvá-Almennar og
Burðarás skuli eignast þessa hluti.
Þetta mun hafa talsverð áhrif á lista
stærstu hluthafa þessara félaga. Sjóvá-Al-
mennar munu kaupa hluti Skeljungs í sér og
verða þar með komnar yfir þau 10% mörk
sem heimiluð eru í lögum, en Skeljungur átti
10,4% í Sjóvá-Almennum og félagið átti 1,8%
eigin hluta fyrir. Samtals verður eigin hlutur
Sjóvár-Almennra því rúmlega 12%, en við-
skiptin eru gerð með fyrirvara um samþykkt
hluthafafundar og Fjármálaeftirlits um
lækkun hlutafjár. Við lækkun hlutafjárins
eykst hlutur annarra og hlutur Burðaráss,
sem verður stærstur, hækkar úr 10,2% í
11,4%. Næstur verður Lífeyrissjóður versl-
unarmanna með 5,3% og bræðurnir Benedikt
og Einar Sveinssynir verða í 3. og 4. sæti
með samtals 9,6% hlut.
Eignarhald og yfirráð
Sjóvá-Almennar tryggingar kaupa einnig
hlutabréf í Flugleiðum og verða þar með
næst stærsti hluthafi Flugleiða með 11,5%
hlutafjárins, en áður áttu Sjóvá-Almennar
6,2% í Flugleiðum og voru fjórði stærsti
hluthafinn.
Burðarás kaupir bréf Eimskipafélagsins
og eigin hlutir Eimskipa aukast því úr um
1⁄2% í 6,6%. Við þessa breytingu verður Eim-
skipafélagið þriðji stærsti hluthafi Eimskipa-
félagsins, en Fjárfestingarfélagið Straumur
verður áfram stærstur með 13,3% og Sjóvá-
Almennar í öðru sæti með tæp 11%.
Vegna þeirra samninga sem Sjóvá-Al-
mennar tryggingar og Eimskipafélagið
gerðu við Kaupþing Búnaðarbanka um að
kaupa hlutafé í þessum félögum og Flug-
leiðum út úr Steinhólum, hafa forsvarsmenn
þessara félaga tryggt stöðu sína í félögunum
þrátt fyrir að röð stærstu hluthafa breytist
og einn detti út.
Eins og sjá má af því að Kaupþingi, sem
nú er Kaupþing Búnaðarbanki, hefur tekist
að eignast helmingshlut í Skeljungi getur
eignarhald eða yfirráð yfir tilteknum fé-
lögum breyst. Þetta á jafnvel við um rótgróin
félög og þar með getur landslagið í atvinnu-
lífinu einnig breyst.
Þetta verður líklega að teljast breyting frá
því sem var fyrir aðeins örfáum árum, því nú
hafa ný fyrirtæki, sem standast hinum eldri
fyllilega snúning fjárhagslega, skotið upp
kollinum. Fyrir aðeins um 31⁄2 ári hafði Kaup-
þing eignast rúmlega 6% hlut í Eimskipa-
félaginu og var orðið meðal stærstu hluthafa
þess. Líkt og um bréf Skeljungs nú þá hækk-
uðu bréf Eimskipafélagsins töluvert við
ásókn Kaupþings, en leikar fóru hins vegar á
annan veg þá en nú. Kaupþing var keypt út
og bréfin enduðu í eigu Sjóvár-Almennra
með viðkomu hjá Eimskipafélaginu. Kaup-
þing hafði fjárhagslegan ávinning af viðskipt-
unum, en hafi fyrirtækið ætlað sér að ná yf-
irtökum í Eimskipafélaginu tókst það ekki.
Hver sem ætlunin var þegar Kaupþing hóf
að safna bréfum Eimskipafélagsins, þá er í
öllu falli ljóst að í þetta skipti er Kaupþing á
góðri leið með að takast ætlunarverkið. Fyr-
irtækið á þegar orðið helming hlutafjár í
Skeljungi og getum hefur verið að því leitt
að það muni eignast allt félagið þegar upp er
staðið.
Staða þeirra sem fara með stjórnina í
Eimskipafélaginu og Sjóvá-Almennum virðist
nokkuð sterk í þeim félögum, sérstaklega
Sjóvá-Almennum. Þar er enginn sýnilegur
keppinautur um stjórn félagsins, en hið sama
er reyndar ekki hægt að segja um Eimskipa-
félagið, þar sem Straumur er sem fyrr segir
stærsti hluthafinn.
Stórir, nýir hluthafar í Flugleiðum
Staðan í Flugleiðum hefur breyst mikið á
síðustu misserum og meðal stærstu hluthafa
og í stjórn þess félags eru nú komnir fjár-
festar sem ekki er ólíklegt að vilji auka enn
við hlut sinn. Þetta eru Jón Ásgeir Jóhann-
esson, forstjóri Baugs, og fjárhagslega
tengdir aðilar. Þar að auki er Eignarhalds-
félagið Fengur fimmti stærsti hluthafi Flug-
leiða með 5,8%, en Fengur á tæpan helming
AcoTæknivals á móti Baugi. Forstjóri Baugs
er meðal eigenda Fjárfestingafélagsins
Gaums og Ovalla Trading, sem samanlagt
eiga 14,9% hlut í Flugleiðum. Að auki er
Kaupþing hf., fjárfest.verðbréf, skráð fyrir
4,4% hlut í Flugleiðum, en sá hlutur er í raun
í eigu viðskiptavina Kaupþings. Samanlagðir
hlutir Gaums, Ovalla Trading og Fengs eru
ríflega 20% hlutafjár Flugleiða og með þeim
hlut sem Kaupþing er skráð fyrir eru þessir
hlutir komnir í um 25% hlutafjárins.
Burðarás og Sjóvá-Almennar hafa hins
vegar rúmlega 40% hlutafjár Flugleiða eftir
að Sjóvá-Almennar hafa keypt hlut Skelj-
ungs og Flugleiðir eiga rúmlega 6,5% eigin
hlutafjár, þannig að sem stendur að minnsta
kosti eru yfirráð félagsins óbreytt.
Í tengslum við þá samninga sem gerðir
eru um eignarhluti Skeljungs í Flugleiðum,
Eimskipafélaginu og Sjóvá-Almennum vekur
athygli að sambærilegir samningar eru ekki
gerðir um önnur félög. Þetta á við um félög á
borð við Eskju, Þorbjörn-Fiskanes og ýmis
önnur, ekki síst í sjávarútvegi. Jafnvel SÍF
er utan samninga þrátt fyrir að Skeljungur
eigi 6,4% hlut í félaginu og Burðarás og
Sjóvá-Almennar séu samanlagt með nálægt
30% eignarhlut og hlutur Skeljungs geti því
haft áhrif á yfirráð í félaginu.
Hver eignast Skeljung?
Menn hljóta óhjákvæmilega að velta því fyrir
sér hvað verði um Skeljung að nokkrum
mánuðum liðnum, þegar Steinhólar hafa af-
skráð félagið og leyst til sín öll útistandandi
hlutabréf. Þótt keppinautar um Skeljung hafi
nú náð saman um leið til að leysa þá stöðu
sem upp var komin í félaginu verður að telj-
ast afar hæpið að nokkur þeirra hugsi þenn-
an ráðahag til frambúðar. Næsta víst má
telja að annaðhvort Kaupþing Búnaðarbanki
kaupi hina tvo út eða þeir hann, og verður
fyrri kosturinn þá að teljast líklegri miðað
við hvernig frá kaupunum er gengið. Kaup-
þing Búnaðarbanki eykur hlut sinn í Skelj-
ungi með þátttöku í Steinhólum og hinir
tveir eiga sölurétt gagnvart Kaupþingi Bún-
aðarbanka.
En þótt Kaupþing Búnaðarbanki kaupi
hina tvo ef til vill út eftir nokkra mánuði
verður að teljast nánast útilokað að bankinn
ætli sér að eiga fyrirtæki í olíudreifingu til
frambúðar. Ætlunin er vafalítið að selja
Skeljung áfram, ef til vill eftir einhverjar
breytingar á starfseminni, á nægilega hag-
stæðu verði til að geta á endanum innleyst
hagnað af viðskiptunum.
Einn af þeim möguleikum sem nefndur
hefur verið, meðal annars í Markaðsyfirliti
greiningardeildar Landsbankans, er að
Baugur kaupi Skeljung. Baugur gæti nýtt
verslanir Skeljungs á bensínstöðvunum auk
þess sem fyrirtækið hefur nýlega lýst yfir
áhuga á að hefja rekstur bensínstöðva. Í
þessu sambandi má líka benda á að stjórn-
endur Baugs og Kaupþing hafa átt í margs
konar viðskiptum í gegnum tíðina, bæði hér
á landi og erlendis. Eitt nýjasta dæmið um
viðskipti þessara fyrirtækja var einmitt þeg-
ar Kaupþing Búnaðarbanki ákvað í síðasta
mánuði að selja dótturfyrirtæki Baugs, Úti-
lífi, verslunina Nanoq í Kringlunni.
Sparimerkja-
brúðkaup
Innherji skrifar
Innherji@mbl.is
MICROSOFT gæti átt yfir höfði sér sekt
sem nemur allt að tíunda hluta tekna fyr-
irtækisins á alþjóðavísu. Framkvæmdastjórn
Evrópusambandsins telur sig hafa sannanir
fyrir því að Microsoft nýti sér einokunar-
stöðu sína á markaði vegna útbreiðslu Wind-
ows-stýrikerfisins og brjóti með því sam-
keppnislög.
Mario Monti, sem fer með samkeppnismál
hjá framkvæmdastjórninni, segir gögn sýna
svo ekki verður um villst að Microsoft hefur
nýtt sér „yfirþyrmandi ráðandi stöðu“ Wind-
ows-stýrikerfisins á markaði fyrir einkatölv-
ur.
Meðal þess sem Microsoft liggur undir
ámæli fyrir er að dreifa Windows Media
Player, sem MP3 tónlistarskrár og geisla-
diska, með Windows-stýrikerfinu. Það telur
framkvæmdastjórnin brjóta í bága við sam-
keppnislög vegna þess hve stýrikerfið er út-
breitt. Aðrir framleiðendur, eins og Real-
Player, eigi því ekki möguleika á að keppa við
Media Player. Verði niðurstaðan sú að
Microsoft hafi brotið samkeppnislög neyðist
fyrirtækið annaðhvort til að gefa út nýja út-
gáfu Windows-stýrikerfisins án spilarans eða
útgáfu sem inniheldur fleiri spilara en Media
Player.
Microsoft hefur þegar verið send skýrsla
um málið og fær nú „lokatækifæri“ til að gera
athugasemdir og bæta starfshætti sína.
Rannsókn framkvæmdastjórnarinnar á
Microsoft hefur nú staðið yfir í fjögur ár. Að
sögn talsmanns framkvæmdastjórnar Evr-
ópusambandsins er búið að afla nægilega
mikilla upplýsinga til að hægt sé að krefja
Microsoft um skýringar.
„Sannanirnar sem við höfum í höndunum
eru það miklar að viðkomandi fyrirtæki getur
ekki leitt þær hjá sér, er haft eftir Tilman
Lüder, talsmanni framkvæmdastjórnarinnar
í frétt AP-fréttastofunnar.
Nær til markaða í Evrópu
og Bandaríkjunum
Segir talsmaðurinn að ásakanirnar nú séu
ekki nýjar heldur sé um að ræða frekari
sannanir á grunsemdum um saknæmt hátt-
arlag Microsoft sem urðu til þess að rann-
sóknin hófst.
Gögn sem framkvæmdastjórnin hefur
undir höndum eru sögð ná bæði til markaða í
Evrópu og í Bandaríkjunum.
Microsoft gæti átt yfir höfði sér sekt sem
nemur allt að 10% af tekjum fyrirtækisins á
alþjóðavísu breyti það ekki háttum sínum.
Evrópuráðið sem hefur rannsakað Micro-
soft til margra ára sagðist nýlega hafa fengið
upplýsingar um rekstur fyrirtækisins bæði í
Evrópu og Bandaríkjunum sem staðfestu að
Microsoft stundaði enn einokun á markaði.
Microsoft fær
„lokatækifæri“ til
að bæta ráð sitt
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins segir starfshætti Micro-
soft brjóta í bága við samkeppnislög og vill að fyrirtækið hætti að
dreifa Windows Media Player með Windows-stýrikerfinu
Reuters
Handbært fé Microsoft-samsteypunnar sem Bill
Gates stýrir nemur um 49 milljörðum dala eða
um 3.800 milljörðum íslenskra króna. Hver
sem sektin verður er ljóst að Microsoft hefur
efni á að greiða niður syndir sínar.
FIMM ár eru liðin frá því Kaupþing hóf
starfsemi í Lúxemborg og að sögn Magn-
úsar Guðmundssonar, forstjóra Kaupthing
Bank Luxembourg, er dótturfélagið í Lúx-
emborg nú stærra á flesta mælikvarða en
móðurfélagið var þegar dótturfélagið var
stofnað. Þannig voru hreinar rekstr-
artekjur móðurfélagsins 807 milljónir
króna árið 1997 og hreinar rekstrartekjur
dótturfélagsins í fyrra voru 1.174 milljónir
króna. Heildareignir og eigið fé dóttur-
félagsins eru nú mun meiri en hjá móður-
félaginu fyrir fimm árum og starfsmenn
eru ámóta margir, eða um sextíu.
Stofnun Kaupthing Bank Luxembourg
var fyrsta skrefið í útrás Kaupþings, nú
Kaupþings Búnaðarbanka, en bankinn
rekur nú fjármálaþjónustu í átta löndum
utan Íslands. Meginstarfsemi Kaupthing
Bank Luxembourg er eignaumsýsla og
verðbréfaviðskipti fyrir viðskiptavini um
alla Evrópu. Að auki hefur bankinn haft
milligöngu um að útvega íslenskum fyr-
irtækjum, sveitarfélögum og öðrum erlend
lán, ýmist sem ný lán eða sem lið í endur-
fjármögnun.
Starfsmenn Kaupthing Bank Lux-
embourg eru nú 56 af 11 þjóðernum.
Heildareignir í umsjón bankans eru um 70
milljarðar króna og vöxturinn hefur verið
einna mestur í umsýslu eigna fyrir erlenda
viðskiptavini.
Fimm ár frá því útrásin hófst