Morgunblaðið - 08.08.2003, Blaðsíða 18
AKUREYRI
18 FÖSTUDAGUR 8. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ
www.islandia.is/~heilsuhorn
Kelp
Fyrir húð, hár og neglur
SENDUM Í PÓSTKRÖFU
Glerártorgi, Akureyri, s. 462 1889
fæst m.a. í Lífsinslind í Hagkaupum,
Árnesaptóteki Selfossi og
Yggdrasil Kárastíg 1.
Útsala
Útsala
Útsala
Útsala
Krónunni, 2. hæð, sími 462 3505,
Hafnarstræti 97, 600 Akureyri.
Verið velkomin
ELSTA flughæfa flugvélin á land-
inu, Piper J-3 Cub C-65, er orðin
60 ára gömul og af því tilefni
efndi eigandi vélarinnar, Kristján
Víkingsson, til afmælishófs í
Flugsafninu á Akureyri fyrir
helgi. Í máli Kristjáns kom fram
við þetta tækifæri að vélinni væri
helst flogið á sunnudögum þegar
gott er veður. Afmælisdagur vél-
arinnar er 14. júlí en hún var
smíðuð í Loch Haeven í Banda-
ríkjunum árið 1943 og notuð af
flughernum þar sem kennslu-
flugvél.
Árið 1967 keypti Norðurflug
Tryggva Helgasonar hf. vélina til
landsins og fékk hún einkenn-
isstafina TF-JMF. Í dag ber hún
einkennisstafina TF-CUB. Vélin
var notuð til kennslu- og útsýnis-
flugs allt til ársins 1977. Þá hefur
vélin dregið ófáar svifflugurnar á
loft í gegnum tíðina. Á árunum
1989 til 1991 var vélin endur-
byggð að hluta af núverandi eig-
anda. Vélin er óbreytt frá upp-
hafi og er vélarafl hennar 65
hestöfl. Hún hefur ekki rafkerfi
og því þarf að snúa henni í gang
með handafli.
Kristján sagði að vélin hefði
alla tíð verið farsæl en þó hefði
hún tvisvar orðið fyrir skemmd-
um. Í annað skiptið var vélinni
flogið í Vaðlaheiðina og í hitt
skiptið sló henni niður í lendingu,
með þeim afleiðingum að loft-
skrúfan slóst niður. Ekki urðu þó
slys á fólki í þessum óhöppum.
Sem fyrr segir er afmælis-
dagur vélarinnar 14. júlí.
Afmælinu var hins vegar frestað
þar til í síðustu viku, þar sem von
var á umboðsmanni New Piper
Aircraft Inc. í Skandinavíu, í
sölu- og kynningarferð til
Akureyrar á nýrri Piper Archer
III flugvél. Var sú vél einnig til
sýnis í afmælinu. Gamla vélin er
tveggja sæta en sú nýja fjögurra
sæta.
Elsta flughæfa flugvélin sem
til er á Íslandi orðin 60 ára
Morgunblaðið/Kristján
Afmælisgestir skoða Piper-flugvélina í Flugsafninu á Akureyri.
Aðeins flogið á sunnu-
dögum í góðu veðri
BÆJARRÁÐ Akureyrar samþykkti
í gær bókun sem formaður þess lagði
fram, þar sem skorað er á íslensk
flugmálayfirvöld að framlengja leyfi
Grænlandsflugs til beins flugs milli
Akureyrar og Kaupmannahafnar í
a.m.k. eitt ár eða til 1. nóvember
2004 og jafnframt verði unnið að því
að tryggja varanlegt leyfi.
Samkvæmt upplýsingum frá
Grænlandsflugi þarf ákvörðun um
framlengingu leyfisins að liggja fyrir
og hafa borist stjórninni fyrir stjórn-
arfund sem haldinn verður hinn 11.
ágúst nk. Ef staðfesting á framleng-
ingu leyfisins liggur ekki fyrir á þeim
fundi er hætta á að stjórn félagsins
ákveði að hætta fluginu.
Í bókuninni sem formaður bæjar-
ráðs lagði fram kemur meðal annars
fram: „Flugfélagið Grænlandsflug
hefur nú frá því 28. apríl sl. haldið
uppi áætlunarflugi tvisvar í viku
milli Akureyrar og Kaupmannahafn-
ar. Nú virðist sem framhald þessa
flugs sé í hættu þar sem leyfi til
flugsins hefur ekki fengist framlengt
nema til nk. áramóta. Á þeim stutta
tíma sem liðinn er frá því að flug
þetta hófst hefur þegar komið
greinilega í ljós hver lyftistöng það
er og mun verða fyrir ferðaþjónustu
á Eyjafjarðarsvæðinu og Norður-
landi. Þá er óhætt að fullyrða, að
beint flug frá Akureyri til Kastrup-
flugvallar opnar nýjar víddir fyrir
íbúa á landsbyggðinni og eykur sam-
keppnishæfni svæðisins á allan
hátt.“
Leyfi Grænlandsflugs
verði framlengt
Í KVÖLD kl. 20 verða haldnir út-
gáfutónleikar í tónlistarhúsinu
Laugarborg í Eyjafjarðarsveit í til-
efni af útkomu geisladisks með söng-
lögum eftir Garðar Karlsson. Disk-
urinn heitir Vorperla og lögin samdi
Garðar við ljóð Davíðs Stefánssonar,
Braga Sigurjónssonar og Sverris
Pálssonar. Flytjendur eru Hulda
Björk Garðarsdóttir sópran og Ósk-
ar Pétursson tenór, ásamt Daníel
Þorsteinssyni sem leikur undir á
píanó en hann útsetti einnig lögin.
Undirbúningur geisladisksins
hófst árið 2000 og hafði Garðar sjálf-
ur valið þau lög sem hann vildi að
yrðu gefin út. Garðar lést árið 2001
en fjölskylda hans ákvað að ljúka við
gerð disksins og lögðust allir á eitt
við að vanda til verks, líkt og hann
sjálfur hefði gert. Ólöf dóttir Garð-
ars hannaði umbúðirnar, sem eru
hinar glæsilegustu, og greinargóðar
upplýsingar eru um lögin ellefu,
Garðar sjálfan og flytjendurna en
Hulda Björk er einmitt líka dóttir
Garðars. Eins og áður sagði útsetti
Daníel Þorsteinsson lögin og bætti
um betur með því að taka lögin og
textana saman í vandað nótnahefti,
sem verður til sölu auk disksins.
„Þessi lög eru nauðsynleg viðbót við
sönglagahefðina og mikilvægt að
koma þeim á framfæri og gera þau
aðgengileg. Það er mikið samið af
tónlist af þessu tagi, sem nær ekki
alla leið,“ segir Daníel og bætir við að
útgáfa á tónlist af þessu tagi sé orðin
sjaldgæf og þetta sé því merkilegt
framtak. Hulda tekur undir þetta og
segir að stefnan sé að halda verkinu
áfram. Af nógu sé að taka. „Til að
halda heildarsvipnum ákváðum við
að hafa eingöngu sönglög á þessum
diski. Upphaflega stóð til að gefa út
einn disk með úrvali laga en það er
svo mikið til af lögum að diskarnir
verða væntanlega fleiri,“ segir
Hulda. Garðar samdi ekki bara
sönglög; eftir hann liggja fjölmarg-
ar tónsmíðar af ýmsu tagi. Þar má
nefna dægurlög, barnalög, kórlög,
sálmalög, píanólög og harmoniku-
lög og því ærið verk framundan við
að velja fleiri lög til útgáfu.
Miðaverð á tónleikana er 1.000
kr. Diskurinn og nótnaheftið eru
seld í einkasölu og hægt er að
panta disk og/eða nótnahefti með
því að senda skeyti á vorperla@st-
rik.is. Einnig er hægt að kaupa ein-
tak á handverkshátíðinni á Hrafna-
gili um helgina.
Útgáfu-
tónleikar
í Laugar-
borg
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Þau koma fram á útgáfutónleikunum í Laugarborg í kvöld. Frá vinstri:
Óskar Pétursson, Hulda Björk Garðarsdóttir og Daníel Þorsteinsson.
Flugmódelfélag Akureyrar heldur
á morgun árlega módelflugkomu á
Melgerðismelum. Dagskráin hefst
kl. 9 og lýkur með grillveislu um
kvöldið. Heiðursgestur verður Bret-
inn Steve Holland, sem kemur með
tvö módel í yfirstærð, annað þeirra
er eitt það stærsta sem flogið hefur,
með rúmlega sex og hálfs metra
vænghaf.
Sveppir og ber á Laugalandi
Skógræktarfélag Eyfirðinga gengst
fyrir skógargöngu á morgun, laug-
ardag, kl. 13.30 í Laugalandsskógi á
Þelamörk. Auk skoðunarferðar um
skógræktarsvæðið verður sér-
staklega hugað að afurðum skógar-
ins, það er sveppum og berjum. Þeir
sem áhuga hafa á að kynna sér nýt-
ingu þessara búdrýginda eru sér-
staklega hvattir til að koma. Sveppa-
fræðingur verður með í för.
Boðið verður upp á einfalda sveppa-
rétti, sem matreiddir verða á staðn-
um. Þátttakendum er bent á að taka
með sér hníf og ílát til að tína í. Allir
eru velkomnir.
Á MORGUN