Morgunblaðið - 11.08.2003, Side 1
STOFNAÐ 1913 214. TBL. 91. ÁRG. MÁNUDAGUR 11. ÁGÚST 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Postuli einka-
væðingar
Eamonn Butler telur heilbrigðis- og
menntakerfið næsta verkefnið 16
Sannkallað
sigurmark
Veigar Páll skoraði fyrir KR eftir
venjulegan leiktíma Íþróttir 4
Furðulegar
flugvélar
Sýning á flugmódelum á Mel-
gerðismelum 4
FRANZ Fischler, sem fer með sjáv-
arútvegs- og landbúnaðarmál í fram-
kvæmdastjórn Evrópusambandsins
(ESB), segir að komi til þess að Ís-
lendingar semji um aðild að sam-
bandinu yrði að finna lausn þar sem
tillit væri tekið til lögmætra hags-
muna íslenzks sjávarútvegs en jafn-
framt til grundvallarreglna ESB, en
til þeirra heyrir meðal annars að lög-
sagan milli 12 mílna landhelgi og 200
mílna efnahagslögsögumarkanna sé
skilgreind sem lögsaga ESB.
Fischler hitti í gær Ólaf Ragnar
Grímsson, forseta Íslands, Árna
Mathiesen sjávarútvegsráðherra og
opnaði nýja Miðstöð Evrópuupplýs-
inga við Háskólann í Reykjavík.
Sagðist hann sannfærður um að
hægt væri að finna lausn á sjávarút-
vegsmálunum, ákvæðu Íslendingar
að sækja um aðild að ESB.
Spurður hvort hann útilokaði að
hægt yrði í aðildarsamningum að
semja um sérskilgreiningu á ís-
lenzku fiskveiðilögsögunni innan
sameiginlegu sjávarútvegsstefnunn-
ar, þannig að Íslendingar gætu gerzt
aðilar en haldið samt yfirráðunum
yfir fiskimiðunum óhögguðum, sagði
Fischler að Evrópusambandið væri
eins og klúbbur með sínar reglur, og
sá sem vildi ganga í klúbbinn gengi
að gildandi reglum hans. „Þetta er
grundvallaratriðið. Því snúast aðild-
arviðræður í aðalatriðum um það að
ræða hvar umsóknarríkið á í erfið-
leikum með að ganga að hinum gild-
andi reglum og hvernig hægt er að
leysa úr þessum erfiðleikum í formi
aðlögunarfrests eða sérlausna, en í
samræmi við grundvallarreglur
ESB-réttar.“
Alla jafna væri svæðið milli 12
mílna landhelgi og 200 mílna efna-
hagslögsögumarkanna skilgreint
sem sameiginleg fiskveiðilögsaga
ESB. Ýmsar leiðir væru þó hugsan-
legar til að tryggja lítt breytta hög-
un veiða.
Skilgreina yrði efnahagslög-
söguna sem lögsögu ESB
ALDREI hefur lofthiti mælzt meiri í
Bretlandi en í gær er mælar veðurstof-
unnar við Heathrow-flugvöll stigu í 37,9
gráður á Celcius. Við það fór hitinn
sömuleiðis yfir 100 gráður á Fahrenheit
í fyrsta sinn, eða í 100,2°F.
Var heitara í Bretlandi í dag en á
mörgum helstu áfangastöðum sólbaðs-
dýrkenda. Þannig voru 28,9°C á sama
tíma á Barbados í Karíbahafi og 17,8°C í
Rio de Janeiro í Brasilíu.
Gamla hitametið var 37,1 gráða en sá
hiti mældist í ágústmánuði 1990 í mið-
enska bænum Cheltenham.
Þá stefndi í að hitinn í Skotlandi jafn-
aði fyrra met frá 1908, 32,8 gráður.
Veðmálastofur þurfa nú að punga út
stórfé eftir að metið féll. Þannig þarf
veðmálastofan William Hill nú að borga
þeim sem veðjuðu rétt um fjórðung millj-
ónar punda, eða yfir 30 milljónir króna.
AP
Svitakirtlalausir ferfætlingar sunnar í álf-
unni hafa ekki átt sjö dagana sæla að und-
anförnu. Þessi hundur í Clerkenwell í
London reyndi hvað hann gat að kæla sig
þegar brezka hitametið var slegið í gær.
Hitamet sleg-
ið í Bretlandi
Lundúnum. AP, AFP.
NEPALSKUR gurkhahermaður
og einn Íraki féllu og nokkrir særð-
ust er til átaka kom með Írökum og
breskum hermönnum í Basra í Suð-
ur-Írak í gær. Voru upptökin mikill
eldsneytis- og rafmagnsskortur í
borginni en auk þess var ráðist á
breska hermenn í tveimur öðrum
bæjum í Suður-Írak. Í Bagdad
særðust fimm bandarískir hermenn
og tíu Írakar í átökum þar.
Mótmælin í Basra hófust á laug-
ardag og þá og í gær var kveikt í
bíldekkjum og grjóti kastað að
breskum hermönnum. Voru upp-
þotin í gær á fjórum stöðum í borg-
inni og var þá skotið á bresku her-
árásir. Nefndi hann einkum sam-
tökin Ansar al-Islam, sem höfðu
áður bækistöð í Norður-Írak en
Bandaríkjamenn töldu sig hafa
upprætt. Sagði Bremer, að liðs-
menn þeirra væru nú að koma frá
Íran og varaði við nýju hryðjuverki
á borð við sprenginguna við jórd-
anska sendiráðið.
Al-Jazeera-sjónvarpsstöðin
sýndi í gær myndir af mönnum,
sem hótuðu hertum árásum á
Bandaríkjamenn en neituðu um
leið öllum tengslum við Saddam
Hussein og stuðningsmenn hans.
Hafa þá alls fern samtök haft uppi
sams konar hótanir um helgina.
Bandarískir hermenn handtóku
í fyrrinótt háttsettan sjíta-klerk,
Ali Abdul Karim al-Madani, en
hann var einnig í haldi Bandaríkja-
manna í tvo daga snemma í júlí.
Kom þá til mikilla mótmæla meðal
sjíta.
Bremer, ráðsmaður Bandaríkj-
anna í Írak, sagði í viðtali við New
York Times í gær, að hundruð ísl-
amskra skæruliða, sem hefðu flúið
Írak í stríðinu, hefðu snúið aftur og
væru að leggja á ráðin um miklar
mennina, sem svöruðu skothríð-
inni. Féllu gurkhahermaður og
einn Íraki í átökunum og átta
manns særðust. Gurhkahermenn
voru áður í þjónustu breska hers-
ins en voru nú fengnir sérstaklega
til að sinna öryggisgæslu.
Við háskólann í Bagdad var
handsprengju kastað að banda-
rískum hermönnum og særðust þá
fimm þeirra og tíu Írakar. Þá var
einnig skotið á bandarískan her-
jeppa vestur af Bagdad.
Vaxandi átök í Írak
Bremer segir hundruð íslamskra
skæruliða streyma til landsins
Reuters
Íraskur maður ber burt annan, sem varð fyrir skoti í uppþotunum í Basra í gær. Undirrót mótmælanna var
mikill bensín- og rafmagnsskortur í borginni en í gær var þar um 50 stiga hiti á Celsius.
Bagdad. AP, AFP.
ALLS gengu 155 menn í gær
frá framboðspappírum vegna
ríkisstjórakosninganna í Kali-
forníu í október. Er það mjög
mislitur hópur en skoðana-
kannanir sýna, að kvikmynda-
leikarinn Arnold Schwarzen-
egger muni sigra örugglega.
Meðal frambjóðenda verða
klámkóngurinn Larry Flynt
og repúblikaninn og auðkýf-
ingurinn Bill Simon en hann
skoraði í gær á flokksbróður
sinn Schwarzenegger að upp-
lýsa fólk um skoðanir sínar á
hinum ýmsu málum því að enn
vissi enginn hverjar þær væru.
Ýmsir furðufiskar eru í hópi
frambjóðenda, m.a. þær stöll-
urnar Mary Carey, sem vill
láta klámmyndir koma í stað
skotvopna til að draga úr of-
beldi, og Angelyne en sérstakt
áhugamál hennar er að bæta
vegina til að bleiki sportbíllinn
hennar verði ekki fyrir
hnjaski.
155 fram-
bjóðendur
Los Angeles. AFP.
ÁRNI M. Mathiesen sjávarútvegs-
ráðherra segir erindi Franz
Fischlers, sjávarútvegsstjóra Evr-
ópusambandsins, í Háskólanum í
Reykjavík í gær hafa verið gott
og gagnlegt. Hann segist sérlega
ánægður með hugmyndir hans
um afstöðu ESB um niður-
greiðslur og fríverslun á fisk-
vörum í samningum Alþjóða-
viðskiptastofnunarinnar (WTO).
Hugmyndir Evrópusambandsins
og Íslands fari þar vel saman. Þá
segir hann að margt jákvætt hafi
komið fram varðandi stækkun
EES í erindi Fischlers.
Ánægður með fríverslunaráherslur
Ekki bara/12