Morgunblaðið - 11.08.2003, Blaðsíða 24
DAGBÓK
24 MÁNUDAGUR 11. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Wiesbaden kemur í
dag. Brúarfoss fer í
dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Otto og Brúarfoss
koma í dag. Andenes
Fisk 2 og Caravos
Trader fara í dag.
Mannamót
Aflagrandi 40. Vinnu-
stofa og leikfimi kl. 9,
boccia kl. 10. Fé-
lagsvist í dag kl. 14.
Árskógar 4. Kl. 11
boccia. Smíðastofan er
lokuð til 11. ágúst.
Handavinnustofan er
opin. Kl. 13.30 fé-
lagsvist, kl. 16 mynd-
list. Púttvöllur opinn
mánudag til föstudags
kl. 9–16.30.
Bólstaðarhlíð 43. Kl.
9–16 handavinna, kl. 9–
17 fótaaðgerð, kl. 10–
11.30 samverustund.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist í
Gullsmára 13 kl. 20.30.
Fótaaðgerð frá kl. 10.
Skrifstofa Félags eldri
borgara í Kópavogi er
opin í dag frá kl. 10–
11.30.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 bað, kl. 9
fótaaðgerð, og mynd-
list, kl. 10–12 verslunin
opin, kl. 13 föndur og
handavinna.
Félagsstarfið Dalbraut
18–20. Kl. 13 frjáls
spilamennska (brids).
Félagsstarfið Dalbraut
27. Kl. 9–16 opin
handavinnustofan, kl.
9–12 myndlist, kl. 13–
16 körfugerð, kl. 11–
11.30 leikfimi, kl. 13–16
spilað, kl. 10–13 versl-
unin opin.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Bað kl. 9–
12, opin vinnustofa, kl.
9–16, félagsvist kl. 14,
kl. 9–12 hárgreiðsla.
Ath. breyttur tími í fé-
lagsvistinni, frá og með
1. sept. byrjar fé-
lagsvistin kl. 13.30
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Fé-
lagsvist kl. 13.30.
Gerðuberg, fé-
lagsstarf. Á morgun
opnað að afloknu sum-
arleyfi, fjölbreytt sum-
ardagskrá, m.a. ferða-
lög, kl. 13 boccia. S.
575-7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Handavinnustofan op-
in, leiðbeinandi á
staðnum kl. frá kl. 9–
17.
Gullsmári, Gullsmára
13. Félagsþjónustan er
opin frá kl. 9–17 virka
daga, heitt á könnunni.
Hraunbær 105. Kl. 9
fótaaðgerð, kl. 10
bænastund, kl. 13 hár-
greiðsla.
Hvassaleiti 56–58. Kl.
13 frjáls spilamennska.
Fótaaðgerð.
Norðurbrún 1. Kl. 10–
11 ganga. Hárgreiðslu-
stofan er lokuð til 12.
ágúst.
Vesturgata 7. Kl. 9–16
fótaaðgerð og hár-
greiðsla, kl. 9.15–15.30
handavinna, kl. 9.30–
10.30 boccia, kl.11–12
leikfimi, kl. 13–16 kór-
æfing.
Vitatorg. Kl. kl. 9 hár-
greiðsla, kl. 9.30 hand-
mennt og morg-
unstund, kl. 10
fótaaðgerð og boccia,
kl. 13 frjáls spil.
Minningarkort
Minningarkort Lands-
samtaka hjartasjúk-
linga fást á eftirtöldum
stöðum á Vestfjörðum:
Jón Jóhann Jónsson,
Hlíf II, Ísafirði, s. 456
3380, Jónína Högna-
dóttir, Esso-verslunin,
Ísafirði, s. 456 3990, Jó-
hann Kárason, Engja-
vegi 8, Ísafirði, s. 456
3538, Kristín Karvels-
dóttir, Miðstræti 14,
Bolungarvík, s. 456
7358.
Minningarkort Lands-
samtaka hjartasjúk-
linga fást á eftirtöldum
stöðum á Norðurlandi:
Blómabúðin Bæj-
arblómið, Húnabraut
4, Blönduós, s. 452
4643, Blóma- og gjafa-
búðin, Hólavegi 22,
Sauðárkróki, s. 453
5253, Blómaskúrinn,
Kirkjuvegi 14b, Ólafs-
firði, s. 466 2700, Haf-
dís Kristjánsdóttir,
Ólafsvegi 30, Ólafsfirði,
s. 466 2260, Blómabúð-
in Ilex, Hafnarbraut 7,
Dalvík, s. 466 1212,
Bókabúð Jónasar,
Hafnarstræti 108, Ak-
ureyri, 462 2685, Bóka-
búðin Möppudýrið,
Sunnuhlíð 12c, Ak-
ureyri, s. 462 6368,
Penninn Bókval, Hafn-
arstræti 91-93, Ak-
ureyri, s. 461 5050,
Blómabúðin Akur,
Kaupangi, Mýrarvegi,
Akureyri, s. 462 4800,
Blómabúðin Tamara,
Garðarsbraut 62,
Húsavík, s. 464 1565,
Bókaverslun Þórarins
Stefánssonar, Garð-
arsbraut 9, Húsavík, s.
464 1234, Skúli Jóns-
son, Reykjaheiðarvegi
2, Húsavík, s. 464 1178,
Skúli Þór Jónsson,
Boðagerði 6, Kópa-
sker, s. 465 2144,
Rannveigar H. Ólafs-
dóttur, Hólavegi 3, 650
Laugum, s. 464 3181.
Minningarkort Stóra-
Laugardalssóknar,
Tálknafirði til styrktar
kirkjubyggingarsjóði
nýrrar kirkju í Tálkna-
firði eru afgreidd í
síma 456-2700.
Í dag er mánudagur 11. ágúst,
223. dagur ársins 2003. Orð dags-
ins: Úr fjarlægð birtist Drottinn
mér: „Með ævarandi elsku hef ég
elskað þig. Fyrir því hefi ég látið
náð mína haldast við þig.“
(Jer. 31, 3.)
Vefþjóðviljinn fjallaðium málefni einka-
skóla um helgina. Þar
sagði m.a.: „Mennta-
málaráðherra, Tómas
Ingi Olrich, flutti á
fimmtudag ávarp á ráð-
stefnu Íslensku mennta-
samtakanna og sagði þar
að einkaskólar gegndu nú
mikilvægu hlutverki í ís-
lensku menntakerfi og
sagðist binda vonir við að
hlutur þeirra færi vax-
andi. Formaður fræðslu-
ráðs Reykjavíkur, Stefán
Jón Hafstein, lítur einka-
skóla – eða svonefnda
einkaskóla eins og hann
kýs jafnan að kalla þá –
talsvert öðrum augum.
Í verki hefur hann og R-listinn reynt að
kreista lífið úr einkaskól-
um borgarinnar og í orði
sýnir hann minni en eng-
an áhuga á að einkaskólar
fái að dafna í borginni.
Hann lítur svo á að með
því að hafa einkaskóla
aukist kostnaður borg-
arinnar og hann og R-list-
inn eru líka á móti því að
„búa til tvöfalt grunn-
skólakerfi í borginni“,
eins og þeir kalla það að
hafa í Reykjavík bæði
einkaskóla og skóla borg-
arinnar.
Þegar áhugi á einka-rekstri í skólakerfinu
er öfugu megin við frost-
markið eins og innan
R-listans er ekki við því að
búast að einkaskólar verði
stofnaðir eða að þeir sem
fyrir eru fái að dafna eðli-
lega. Það er ekki heldur
við því að búast að nokkur
frjó hugsun eða nýmæli
verði til þegar kerfið er
aðalatriðið og öll áhersla
lögð á að verja það. Ef
menn líta svo á að kerfið
sé heilagt gera þeir auð-
vitað allt til að raska ekki
ró þess og þá er skiljanleg
sú andúð sem einkaskólar
í Reykjavík hafa orðið fyr-
ir. En það að kerfisþrælar
hræðist breytingar þýðir
ekki að þær séu hættu-
legar.
Það er vitaskuld fjar-stæða að rekstur
einkaskóla sé dýrari en
rekstur skóla á vegum
borgarinnar. Borgaryf-
irvöld gætu þvert á móti
sparað útsvars- og hol-
ræsagjaldsgreiðendum
verulegar fjárhæðir með
því að fela einkaaðilum
rekstur grunnskólanna.
Og það er ekki bara að fé
myndi sparast, þjónustan
myndi líka batna ef í borg-
inni væru einkaskólar sem
kepptust við að veita sem
besta þjónustu og mesta
menntun. En þetta hafa
vinstri menn aldrei skilið,
ekki heldur þessir nýju og
nútímalegu, svo engin von
er til að þeir muni nokkru
sinni gera breytingar í
rétta átt í menntamálum.
Af þessum sökum væri
full ástæða fyrir mennta-
málaráðherra, sem eins
og fram hefur komið hef-
ur allt aðra sýn á einka-
skóla en R-listinn, að beita
sér fyrir breyttum reglum
til að auðvelda stofnun
einkaskóla og gera þeim
betur kleift að keppa við
opinberu skólana.“
STAKSTEINAR
Einkaskólar, mennta-
málaráðherra og
R-listinn
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI komst að því um dag-inn að hann er hjarðmenni. Hann
fór akandi frá Reykjavík til Akureyr-
ar í vikunni fyrir verslunarmanna-
helgi, og var allfjarri því að vera einn
á veginum. Því gladdi það Víkverja
að sjá hve skynsamlega menn virtust
aka, enginn mikið að flýta sér og
flestir til í að vera á nokkurn veginn
sama hraða og hinir – sem var meira
að segja rétt um það bil löglegur há-
markshraði. Lykillinn að áfallalítilli
umferð er nefnilega sá, að allir séu á
svipuðum hraða. Kannski finnst ein-
hverjum þetta leiðinlegur hjarðhugs-
unarháttur í Víkverja, en Víkverji
vill frekar vera hjarðmenni en tefla
sjálfum sér, fjölskyldu sinni og sam-
borgurum í stórhættu.
x x x
EN ÞAÐ fór fyrir Víkverja líkt ogAdam forðum, að hann var ekki
lengi í paradís. Í Borgarfirði gerðist
alltof kunnuglegur atburður. Fólks-
bíll fullur af unglingum geystist fram
úr Víkverja og nokkrum öðrum lög-
hlýðnum ökumönnum eftir að bíl-
stjórinn hafði beðið nokkurn tíma
mjög óþolinmóður eftir tækifæri til
að láta til skarar skríða.
x x x
EN ÞAÐ er ekki bara hraðakstursem er til vandræða – að ekki sé
nú minnst á óþurftar – í umferðinni.
Því fékk Víkverji líka að kynnast á
norðurleiðinni. Í Borgarfirðinum,
skömmu eftir að unglingarnir æstust
fram úr, fór Víkverji allt í einu að
velta því fyrir sér að hann hefði ekki
tölu á því hversu marga bíla með
fellihýsi eða tjaldvagni aftan í hann
hefði séð frá því lagt var upp frá
Reykjavík. Reyndar hafði einn með
fellihýsi verið á undan Víkverja
lengi. Og þessir fellihýsaferðalangar
eiga það óneitanlega til að verða lest-
arstjórar með því að fara hægar en
flestir hinir og eiga illt um vik að
hleypa fram úr sér, annaðhvort
vegna þess að þeir sjá ekki afturfyrir
fellihýsið, eða hreinlega treysta sér
ekki til að víkja sómasamlega með
það í eftirdragi. En svona drátt-
halaháttur er engu hættuminni – og
síst þarflegri – en ofsaakstur.
x x x
EN ENN um fellihýsin. Íslenskirþjóðvegir eru eiginlega ekki
gerðir fyrir þau – þeir eru of mjóir –
og svo sannarlega ekki fyrir allan
þennan fjölda af þeim. Víkverji fór
reyndar að velta því fyrir sér, í allri
þessari fellihýsafjöld þarna á þjóð-
vegi númer eitt, hvort þetta væri
nýjasta útgáfan af fótanuddtækjaæði
landans og hvort brátt megi vænta
þess að notuð fellihýsi verði auglýst
til sölu í stórum stíl.
Morgunblaðið/Sigurður Jökull
MEÐ SEIGLUNNI hefur
Davíð Oddssyni forsætis-
ráðherra tekist að ná beinu
og milliliðalausu sambandi
við Hvíta húsið í Wash-
ington vegna varnarmála
landsins.
Síðan hafði hann samráð
við Robertson lávarð, fram-
kvæmdastjóra NATO í
Brussel, 28. júlí sl. um gang
mála um varnarstöðu Ís-
lands, og jafnframt stöðu
bandalagsins og framtíð
þess.
Það er skammt stórra
högga á milli í framgangi
og viðræðum Íslendinga og
Bandaríkjamanna með
þessu háttalagi okkar og
málið komið í góðan farveg.
Þeir eru orðnir góðir kunn-
ingjar, þremenningarnir og
valdamennirnir Bush, Ró-
bertson og Davíð Oddsson,
og allt gott um það að segja
í upphafsatriðum málefnis-
ins. Hvað svo sem það leiðir
í ljós í framtíðinni. Þetta
mun allt verða með vin-
semd og virðingu; verið
handviss. Það verður sum-
arstemming í þessum sam-
skiptum, eins og Davíð
sagði í öðru samhengi.
Þetta hegðunarmynstur er
ekkert oflæti, heldur sið-
ferðileg íhugun og bláköld
mannleg skynsemi.
Páll G.
Hannesson.
Myndavél varð
eftir á bekk
LAUGARDAGINN 2.
ágúst sl. varð myndavél eft-
ir á bekk við Gróttu á Sel-
tjarnarnesi. Skilvís finn-
andi hafi samband í síma
561 1881 eða 899 0864.
Bakpoki með Fylkis-
munum tapaðist
FIMMTUDAGINN 7.
ágúst sl. tapaðist Jansport-
bakpoki í leið 115 frá Árbæ.
Í bakpokanum eru fótbolta-
skór, legghlífar, Fylkis-
stuttbuxur og Fylkissokk-
ar. Þetta er tilfinnanlegt
tjón fyrir eiganda mun-
anna. Skilvís finnandi vin-
samlegast hafi samband í
síma 567 4882 eða 696 6025.
Dýrahald
Nósí hljópst á brott
ÞETTA er Nósí. Nósí er
norskur skógarköttur rúm-
lega eins árs gömul læða.
Hún hræddist út af svölum
við Álfatún í Kópavogi eftir
að hafa orðið fyrir árás
annars kattar sem hafði
boðið sér sjálfur inn á heim-
ili Nósíar aðfaranótt 5.
ágúst sl. Nósí er inniköttur
og er því ómerkt, hvít og
svartgrábröndótt að lit.
Hennar er sárt saknað. Ef
einhver hefur orðið var við
ferðir Nósíar er sá góðfús-
lega beðinn um að hafa
samband í síma 864 0204
eða 694 5714.
Kisan okkar er týnd
SIGURBJÖRN hefur ekki
skilað sér heim að Rjúpna-
sölum 8 í Kópavogi síðan 4.
ágúst sl. Hann er gulbrönd-
óttur fress og ber brúna ól.
Eyrnamerking hans er
Y2008. Hans er sárt saknað
og eru íbúar í Salahverfi,
Breiðholti og Vatnsenda-
hverfi vinsamlegast beðnir
um að svipast um eftir hon-
um. Þeir sem verða hans
varir eru beðnir um að hafa
samband í síma 898 8962
eða 861 2865.
Baldur er týndur
ÞESSI 1 1/2 árs gamli fress
týndist frá Melabraut á
Seltjarnarnesi 4. ágúst sl.
Hann er geltur, eyrna-
merktur
og ber
svarta ól
með bjöll-
um. Hann
er síams-
blandað-
ur, hvítur
á lit með
gulbrönd-
ótt skott, 2 bletti ofan við
augu og á eyrum og einn á
hægra læri. Hann svarar
nafninu Baldur og er mjög
gæfur. Hann gæti hafa
lokast inni svo fólk í ná-
grenninu er vinsamlega
beðið um að kíkja í bílskúra
og geymslur. Hans er sár-
lega saknað. Þeir sem vita
eitthvað um afdrif hans eru
beðnir að hafa samband í
síma 698 2751.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
Mannlegt
hegðunar-
mynstur
Morgunblaðið/Kristinn
LÁRÉTT
1 vel verki farinn, 4 hörf-
ar, 7 hugboðs, 8 óglatt, 9
elska, 11 kyrrir, 13 ævi-
skeið, 14 gubbaðir, 15
eydd, 17 bára, 20 tré, 22
fingur, 23 úrkomu, 24
rétta við, 25 dregur.
LÓÐRÉTT
1 hyggja, 2 dunda, 3
blóma, 4 hjú, 5 jarð-
vinnslutækis, 6 illkvittna,
10 blés kalt, 12 stjórna,
13 heiður, 15 týnir, 16
úldni, 18 ládeyðu, 19
svarar, 20 hlífa, 21 eyja.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 fannfergi, 8 risti, 9 dunda, 10 tíu, 11 sella, 13
róðan, 15 kliðs, 18 hagur, 21 ker, 22 gelda, 23 orðar, 24
hroðalegt.
Lóðrétt: 2 alsæl, 3 neita, 4 endur, 5 ginið, 6 hrís, 7 barn,
12 lið, 14 óma, 15 kúga, 16 illur, 17 skarð, 18 hroll, 19
geðug, 20 rýrt.
Krossgáta
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16